Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 56
Bókum
víndrykkju
TÁKN sf. hefur gefið út bókina
Drekktu vín — lifðu betur — lifðu
lengur eftir Erik Olaf-Hansen í
þýðingu Elínar Stefánsdóttur.
A bókarkápu segir m.a.: „Tal-
svert stór hópur vínneytenda og
-njótenda veltir stundum vöngum
yfir spumingum eins og: Getur vín
verið skaðlegt? Hveijar eru afleið-
ingar langtímaneyslu? Er vín
vanabindandi? Getur lifrin skadd-
ast? Hvaða áhrif hefur vín á
æðakölkun? Minnkar þrek manns
af víndrykkju?
Erik Olaf-Hansen er blaðamaður
sem ritað hefur um læknisfræðileg
málefni í fjörutíu ár, og þar fyrir
utan um vín í Politiken um árabil.
Hann hefur kynnt sér fagbók-
menntir um vín og heilsu. Vel stutt
rökum hljómar ráð hans því: Njóttu
vínsins. Það gerir þér gagn. Hófsöm
neysla víns er heilsusamleg, lengir
lífið og er vöm gegn ýmsum sjúk-
dómum. Þess fyrr sem maður gerir
vínið að lífsförunauti sínum, þess
öruggar er að líf manns verður
ánægjulegt, og ellin þess eðlis að
maður verður hennar ekki var.“
Jólasöngvar
fjölskyldunnar
í Bústaða-
kirkju
SAMKVÆMT hefð er enn boðið
til jólasöngva fyrir alla fjölskyld-
una í Bústaðakirkju á sunnudag-
inn, sem er hinn fjórði í aðventu,
og hefst guðsþjónustan kl. 2
síðdegis, en barnasamkoman
rennur saman við hana.
Enn verður flutt jólasaga eftir
Ingólf Jónsson frá Prestbakka og
er þetta sú fimmtánda, sem Ingólf-
ur semur af þessu tilefni til flutn-
ings í Bústaðasókn. Kórar bama
koma úr Breiðagerðis- og Fossvogs-
skólum og reyndar víðar að og
stjómar organistinn, Guðni Þ. Guð-
mundsson, m.a. tólf manna hljóm-
sveit ungmenna. Og fastur liður og
vel metinn er helgileikur bamanna
úr Fossvogsskóla. Þá koma einnig
lúsíur úr Æskulýðsfélagi Bústaða-
sóknar í heimsókn og flytja söngva
sína. Þessi samkoma við lok jóla-
föstu hefur notið mikilla vinsælda,
enda gott að búa hug sinn undir
komu jólanna með þessum hætti
og æfa um leið nokkra þeirra
söngva, sem þá hefja til hæða.
Sóknarprestinum til aðstoðar á
þessum jólasöngvum eins og í
barnastarfmu í vetur eru þær Guð-
rún Ebba Ólafsdóttir og Elín Anna
Antonsdóttir. (Fréttatilkynning)
Eldur í hús-
vagni á Kef la-
víkurvelli
Vogum
ELDUR varð Iaus í húsvagni á
Keflavíkurflugvelli á þriðjudag,
á svæði Sölunefndar varnarliðs-
eigna. Þar varð lítið tjón.
Eldsupptök vom þau að sl. þriðju-
dag vom starfsmenn að brenna
festingar af vagninum, og mun
neisti hafa borist í gólf og orsakað
Eöeikju degi síðar.
Barnagæsla
í Kvenna-
skólanum
EFSTUBEKKINGAR Kvenna-
skólans i Reykjavík verða með
barnagæslu i dag, 20. desember,
kl. 09.00-20.00 í Kvennaskólan-
um við Fríkirkjuveg 9.
Bömunum verður séð fyrir veit-
ingum og haft ofan af fyrir þeim
með föndri, leikjum, söng og fleiru,
einnig munu jólasveinamir koma í
heimsókn.
56
íkoor <T^fcrv^C>,jrr 0° <TTTr\ a rrcj A fUT A T Cll(X A T£n/TTn<TOA*
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
BnniHHHBnBn
IELO
sauna
Ekta finnskt
12 mánaða greiðslu-
kjör
BENCO HF.
Lágmúia 7,
sími 84077.
Niótið gleoinnar
sem
fylginjridirbúningi jólanna.
Jólahyacintur
-Tilboð kr.95.-
Ómissandi um jólin.
Eigum líka allt efni
tii hyacintuskreytinga.
Stofueinir
Fallegar plöntur
í tilefni jóla.
Margir nota Stofueini
sem lítil jólatré
t.d. í barnaherbergi.
interftora
Blómum
víðaverold
parós
5% afsláttur
um Alparós (Azalea)
boösveröi.
3mi: Z96T- 596.-
695T- 521.-
495T- 371.-
.3957- 296.-
Höfum opið alladagafráW. 9-22,
nema á Þoriáksmessutilkl.23-
(jShúsinu vi& Sigtún: Simar 36770-686340