Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
69
Afmæliskveðja:
Ingibjörg Gísladóttir
Amma konu minnar, langamma
bama minna og vinur minn, Ingi-
björg Gísladóttir, er 95 ára í dag,
20. desember. Hún er ung í anda
og útliti og oft gleymist okkur hvað
árin eru orðin mörg. Ingibjörg er
nefnilega þeim gæðum prýdd að
kunna að njóta lífsins og lætur
ekkert gott tækifæri úr greipum sér
renna til að njóta félagsskapar við
fólk. Hún sækir leikhús, ópemr,
spilar félagsvist og dansar sér til
heilsubótar. Einkennandi fyrir Ingi-
björgu er reisn, snyrtimennska og
smekkvísi í hvítvetna. Hún er jafnan
vel klædd hvunndags sem aðra
daga enda telur hún að það fari
aldrei úr tísku að vera vel klædd.
En aðal hennar er þó ríkuleg
kímnigáfa og æðmleysi, sem hefur
fleytt henni yfir erfíða hjalla. Hún
er verðugur fulltúi þeirrar kynslóð-
ar íslenskra kvenna, sem með seiglu
og æðmleysi byggði upp líf sitt og
afkomenda á gmnni takmarkaðra
jarðneskra eigna en þeim mun meiri
fjársjóði mannkosta.
Á hennar tíma óx íslenskt þjóðlíf
frá fátækt til velsældar, framfara
og menningar. Hún trúir á land
sitt og ieitar allra leiða til að bæta
eigið mannlíf sem og annarra.
Ég man vel sumarið sem hún
heimsótti okkur í Svíþjóð. Þetta
sumar var samfelldur leikur og
sífellt sólskin þó að auðvitað hafi
stundum rignt. Það var ótrúlega
gaman að fara með henni í bæinn
í fslenskum þjóðbúningi og vakti
hún hvarvetna athygli. Hún gekk á
sinn rólega yfirvegaða hátt og skoð-
aði margt og afköstin vom ótrúleg.
Þar tók ég eftir því, að það var
gmnnt á brosi sem alltaf byijaði
með glampa í augum.
Henni er margt til lista lagt. Hún
er mikil hannyrðakona og hún er
ljóðelsk og hefur verið félagi í Ljóði
og sögu í mörg ár. Hún hugsar vel
um garðinn sinn, hún er trúuð kona
og vill veg kirkjunnar sem mestan
og hefur stutt við hana dyggilega.
Mér er sífellt undmnarefni hve
fróðleikur hennar er traustur og
hve glöggsýn hún er. Á efri ámm
furðar mig mest á ótrúlega ömggu
minni hennar og hve Iangt og víða
minni hennar nær og hvel vel hún
fylgdist með straumum og stefnum
í þjóðfélaginu. Þar er ekki dottað á
vöku.
Hún býr ein í húsi sínu en allt
heimilishald hennar er með miklum
glæsibrag, þangað em ávallt allir
velkomnir. Nú er þessi sterkgreinda
og trausta gerðarkona 95 ára. Ef
margir lifa slíka ævidaga þurfum
við hin litlu að kvíða ellinni.
Megir þú lifa sem lengst.
Jón Bjarni Þorsteinsson
- *.
ími
TlMABÆR
GUÐMUNDUR JONSSON
BÓNDK ER
BÚSTÓLPl
SAGT FRÁ NOKKRUM
GÖÐBÆNDUM
IKfrffMI
ið
rivi:1.-'"i——..
rall Porsteinsson 1 1 ungu
Pétur Jónsson í Reynihlíd
Sérhver ný bók í
þessum flokki er
fagnaðarefni fyrir
bændur og aðra
áhugamenn um
landbúnað, auk þess
að vera ómetanleg
heimild fyrir hvem
þann sem lætur sig
menningu og at-
vinnusögu íslands
skipta.
boltana
þá eigum
|ji\
arena
Og
við þá
Blakboltar,
fótboltar,
handboltar,
körfuboltar.
töskur
SPORTVÖRIMRSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á HORNIRLAPPARSTIGS
0G GREWSGÖTU
S:117S3