Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 79

Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986 79 Berghnd Bjarna- dóttir - Kveðjuorð Kveðja frá íslendinga- félaginu í Stokkhólmi Berglind Bjamadóttir er öll — eftir langa sjúkdómslegu. Sú fregn barst í liðinni viku til okkar, íslend- inga í Stokkhólmi. en með okkur hafði Berglind búið í tæpan áratug. Hingað kom hún til söngnáms, hér starfaði hún og lifði — þar til hún kaus að fara til íslands ( haust sem leið. Hún vissi þá, að hverju ste&idi og vildi eiga á Islandi síðasta bil ævinnar. Það væri óeðlilegt annað en spyija sig í hljóði: Af hveiju? — þótt svars sé vitaskuld ekki að vænta. Hingað til Stokkhólms kom Berglind tíl söngnáms sem var að lokum komið, þegar veikindin náðu tökum á henni og bundu um síðir enda á þá ævi, sem hún hafði búið sig undir. Hingað komin gerðist Berglind virkur og ötull félagsmaður í íslend- ingafélaginu. Hún æfði kór félags- ins og hann kom margoft fram undir hennar stjóm við ýmis tæki- færi, jafnt innan félagsins sem utan. Hún gmndvallaði starf kórs- ins á metnaði, samfara dugnaði og virðingu fyrir félögum sínum í kóm- um — og án efa hafa margir sem í kómum sungu undir hennar stjóm um lengri eða skemmri tíma notið í ríkum mæli kunnáttu Bergiindar og næmi — það mátti einu gilda hvort um var að ræða sænskan keðjusöng, suðurafrískan vinnu- söng eða íslenskt þjóðlag — Berg- lind smitaði af sér þeirri gleði sem gerði kórfélögum auðvelt að leggja á sig og drekka í sig söngva og ljóð, sem áttu fátt sameiginlegt annað en að heita músík. Það er mikils- vert að hafa mátt njóta þessa eiginleika Berglindar. Berglind kom líka sjálf fram á skemmtunum íslendingafélagsins, og víst er, að mörgum skemmti- nefndarmanni félagsins hafí þótt gott að leita til hennar. Hún tók kvabbinu vel og ljúflega, kom fús- lega hvenær sem til hennar var leitað, undirbjó sig af kostgæfni og söng — og fátt mátu samkomugest- ur betur en þegar Berglind kom fram. Það er hveiju félagi missir að slfkum félagsmanni og fyrirmynd — en sárari er þó missir ættingja og ástvina. íslendingafélagið í Stokk- hólmi vill, með þessum fátæklegu oiðum, koma á framfæri samúðar- kveðjum til ættingja Berglindar, foreldra hennar og systkina og til eftirlifandi eiginmanns hennar, Rúnars Matthíassonar — hjá þeim er hugur okkar. íslendingafélagið í Stokkhólmi SÉIKO NÚ ER-POSÉRA RAKVÉUNAMEÐSER • • i baðið í BÍLINN i FLUGIÐ i bátiimn i TJ ALDIO tilvalin jólagjöf FYR'R PANNSEM þúvilt GLEÐJA. Verö kf* 2.860 ífsöúúsTwmi, „ . ilbert Guöjónsson, Lauga g óskaf, Laugavegi • Trygg rundur Hannah, ^„ah K* avík • Karl Guömundsson. Selfoss, • fúliusson, Akranesi. EFTIR HEIMSPEKKTA HÖFUNDA VffiSJMÆR V\GGAlWs MÁRVKGGK CLARK Bókaútgáfa Hólmgarði 34, Reykjavík sími 91-31599 JACKIE COLLINS er þegar búin að tryggja sér fastan sess með vin- sælustu og virtustu skáldsagnahöfundum á enska tungu. Frásögn hennar er hispurslaus og beinskeytt, orðaval rammt og án alls tepruskapar. Uppbygging sögunnar einkennist af jöfnum stíg- anda frá upphafi til enda og spennan nær hámarki nálægt sögulokum. MARY HIGGINS CLARK rekur af frábærri snilli ógnvekjandi sögu af læknisfræðilegu samsæri, sem verður að fara leynt, hvað sem það kostar, jafnvel morð. Verkið rís með vaxandi þrótti og mikilfengi allt til loka, þegar Katie sjálf, sem aftur er komin á sjúkrahús- ið til venjulegrar skoðunar, kemst að því, að hún sjálf er bæði bráðin og veiðimaðurinn. VIÐSJÁL ER VAGGA LÍFSINS er mesta spennu- sagan sem Mary Higgins Ckark hefur sent frá sér til þessa. GÓÐAR BÆKUR Á GÓÐU VERÐI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.