Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
Ingibjörg Jónsdóttir
rithöfundur látin
Ingibjörg Jónsdóttir, rithöf-
undur, lést á heimili sínu að
morgni 25. desember, 53 ára að
aldri.
Ingibjörg fæddist 14. október
1933, dóttir hjónanna Jóns Sveins-
sonar útgerðarmanns og Magneu
Magnúsdóttur. Hún skrifaði íjölda
bóka, jafnt fyrir böm sem full-
orðna, og bamaleikrit sem sýnt var
í Þjóðleikhúsinu. Einnig samdi hún
töluvert af bamaefni fyrir útvarp.
Hún starfaði við Alþýðublaðið um
árabil og var lengi þýðandi hjá Sjón-
varpinu. Ingibjörg átti við vanheilsu
að stríða hin síðari ár. Hún lætur
eftir sig aldraða móður, eiginmann ___
og fjögur uppkomin börn. Ingibjörg Jónsdóttir
Kór Dómkirkjunnar syngur við messu á jóladag. Við orgelið er Martin Hunger Friðriksson, dóm-
organisti.
Mikil kirkjusókn um jólin
KIRKJUSÓKN var almennt góð
um jólin, enda veður og færð
yfirleitt með betra móti. Veður
mun þó sums staðar hafa haml-
að messuhaldi.
Að sögn séra Bemharðs Guð-
mundssonar, fréttafulltrúa Þjóð-
kirkjunnar, sóttu um 3.000 manns
messur í Hallgrímskirkju á að-
fangadag, sem haldnar vom kl.
18 og á miðnætti. Miðnæturmess-
ur vom haldnar mjög víða og
virðist sem það sé að færast mjög
í vöxt að halda slíkar messur,
sérstaklega á Reykjavíkursvæð-
inu, svo og í auknum mæli úti á
landi. „Það var sérstaklega áber-
andi við þessar miðnæturmessur,
hve margir tónlistarmenn komu
þar fram,“ sagði Bemharður.
Sljami fannst eft-
ir fjóra mánuði
„HESTUR tapaðist úr girðingu
í Hafnarfirði 11. ágúst í sumar
og hefur eigandinn leitað hans
síðan, án árangurs". Þannig
hófst auglýsing i Morgunblað-
inu 4. desember sl. „Samdæg-
urs og auglýsingin birtist fékk
ég upplýsingar um hvar
Adolf Snæbjörnsson og Stjami við hesthúsin í Hafnarfirði.
Stjaraa væri að finna, en hann
hafði brugðið sér austur að
Hlíð i Grafningi", sagði eigandi
Stjaraa, Adolf Snæbjörnsson,
fimmtán ára Hafnfirðingur, í
samtali við Morgunblaðið.
Stjami hafði dvalist í góðu yfir-
læti að eyðibýlinu Hlíð síðan í
september og verið gefið með ám
sem þar voru, af Björgvini Sveins-
syni að Torfastöðum 2 í Grafningi.
„Það var ekki fyrr en fyrir
nokkrum dögum að ég fór og
sótti hann, en ég hafði þó einu
sinni áður farið og litið á hann“,
sagði Adolf. „Hann virtist ekki
alveg þekkja mig aftur því að í
fyrra skiptið þurftum við að eltast
við hann í tvær klukkustundir og
síðan í eina og hálfa klukkustund
þegar við sóttum hann. Honum
virðist ekki hafa orðið meint af
vistinni, lítur mjög vel út, og vil
ég færa Björgvini að Torfustöðum
2 mínar bestu þakkir fyrir hjálp-
ina“.
Haf narfj ör ður:
Eldur í
vélaverk-
stæði hjá
Dröfn
ELDUR kom upp í vélaverk-
stæði hjá skipasmíðastöðinni
Dröfn á annan dag jóla. Slökkvi-
starf gekk vel og skemmdir
urðu ekki miklar.
Talsverður eldur var þegar
slökkviliðið var kvatt á vettvang
um 5.30 um morguninn. Slökkkvi-
starfið tók u.þ.b. klukkutíma og
urðu skemmdir aðallega á raf-
magnsverkfærum, en talið er að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
Sala Flugleiða á hlut
sínum í Cargolux:
Engin
breyting
á störfum
Islendinga
SALA Flugleiða á hlut félagsins
í flugfélaginu Cargolux mun
sennilega ekki hafa áhrif á störf
Islendinga sem vinna hjá flugfé-
laginu í Luxemborg að því er
Sigurður Arinbjarnarson flug-
virki hjá Cargolux tjáði Morgun-
blaðinu.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu á Þorláksmessu hafa
Flugleiðir selt eignarhlut sinn í
Cargolux. Félagið var stofnað af
Loftleiðum á sínum tíma_ og í gegn-
um árin hafa margir íslendingar
unnið hjá því. Nú vinna íslendingar
þar í störfum flugmanna, flug-
virkja, vélvirkja og smiða.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Sigurður Arinbjamarson flugvirki
hjá Cargolux að ráðningar þeirra
Islendinga sem starfa hjá félaginu
hefðu ekki komið gegnum Flugleiði
og taldi hann því ekki að salan
hefði neinar breytingar í för með
sér á ráðningu Islendinganna.
Raunar sagðist hann ekki hafa
heyrt af sölunni fyrr en Morgun-
blaðið færði honum fréttina.
Olíuverðshækkunin
hefur lítil áhrif hér
-seg-ir Bolli Bollason, aðstoðarf orstj óri Þjóðhagsstofnunar
EKKI er búizt við því, að hækkun
heimsmarkaðsverðs á olíu í 18
dali fatið muni hafa mikil áhrif
hér á landi. í forsendum Þjóð-
hagsstofnunar fyrir efnahagsspá
fyrir næsta ár er gert ráð fyrir
því að olíuverð á næsta ári verði
17 dalir á fatið. Verðhækkun um
einn dal á fatið þýðir um 250
milljóna króna útgjaldaaukningu
vegna olíukaupa. Aætlað er að
við kaupum olíu fyrir um fjóra
milljarða á næsta ári.
Bolli Bollason, aðstoðarforstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þessi verð-
hækkun, sem samþykkt hefði verið
á fundi OPEC-ríkjanna, skipti því
ekki sköpum fyrir efnahag lands-
ins, nema frekari hækkanir fylgdu
í kjölfarið. Á þessu ári hefðum við
keypt olíu fyrir um 4 milljarða, um
5,3 í fyrra og áætluð olíukaup á
næsta ári væru um 4 milljarðar.
Bolli gat þess einnig, að áhrif verð-
breytinga á olíu erlendis kæmu
ekki strax fram hérlendis.
Miðað við að olíuverð fari upp í
18 dali á fatið á næsta ári, er talið
að utgjöld útgerðar vegna olíu-
kaupa aukist um 125 milljónir
króna og alls sjávarútvegsins
nokkru meira. Kristján Ragnarsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að þar
sem óvissa ríkti um olíuverð á næsta
ári, væru kjarasamningar við sjó-
menn erfiðari en ella. Útgerðar-
menn vildu því ekki semja af sér
hluti, sem þeir gætu setið uppi með
á næsta ári við hátt olíuverð. Auk
þess sætu útgerðarmenn uppi með
mikil vanskil við olíufélögin frá því
að verðið hefði verið í hámarki. 125
milljóna útgjaldaaukning vegna
olíukaupa gæfi heldur ekki tilefni
mikillar rausnar af hálfu útgerðar-
innar.
Skák:
*
Utvegs-
banka mót-
ið í dag
ÚTVEGSBANKINN heldur sitt
árlega skákmót í afgreiðslusal
aðalbankans við Austurstræti í
dag, sunnudag, og hefst mótið
klukkan 14. Flestir bestu skák-
menn landsins verða meðal
þátttakenda, þar á meðal stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson,
Helgi Ólafsson, Guðmundur Sig-
urjónsson, Jóhann Hjartarson og
Jón L. Árnason.
Þetta er í sjötta skipti sem Út-
vegsbankaskákmótið er haldið og
hefur það alltaf farið fram milli
jóla og nýárs. Öllum er heimilt að
fylgjast með skákmönnunum.
Tvö innbrot
í Hveragerði
yfir jólin
TVÖ innbrot voru framin í Hvera-
gerði jóladagana. Á jóladag var
brotist inn í verslunina Paradís
og einhveiju af skiptimynt stolið.
Annan dag jóla var brotist inn í
hús hjálparsveitarinnar og flug-
eldum stolið þar.
Færð á vegum á Suðurlandi var
góð utan það að slæmt veður var á
Hellisheiði jóladagana og þurfti lög-
reglan að aðstoða fólk þar vegna
ófærðar og slæms skyggnis. Á jóla-
dag var Hellisheiði ófær og umferð
beint um Þrengsli þar sem seinfarið
var vegna skafrennings.
Nokkuð mikill snjór er í uppsveit-
um Ámessýslu en færð góð. Á annan
dag jóla voru skemmtanir í Hótel
Selfossi og á Borg í Grímsnesi.
Sig.Jóns.
Kviknaði í
út frá jóla-
skreytingu
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var
kvatt út á jóladag að myndbanda-
leigu í verslunarmiðstöðinni
Rofabæ.
Vegfarandi sem leið átti hjá, tók
eftir að mikið sót hafði safnast innan
á glugga myndbandaleigunnnar. Við
nánari athugun kom í ljós að gleymst
hafði að slökkva á kerti í borðskreyt-
ingu á staðnum og kviknað hafði í
borði, sem skreytingin stóð á. Eldur-
inn slokknað af sjálfum sér vegna
súrefnisleysis. Talsverðar skemmdir
urðu á innanhúsmunum og mynd-
böndum.
Þá var slökkviliðið kvatt að Vita-
stíg í gærmorgun um 6 leytið, en
þar hafði gleymst að slökkva undir
kjötpotti. Talsverður reykur var í
íbúðinni, en skemmdir ekki umtals-
verðar.