Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 - segir Júlíus Guðnason háseti JÚLÍUS Guðnason, 23 ára Akurnesingfur og nemi í Stýrimanna- skólanum, var í afleysingatúr sem háseti á Suðurlandinu þegar skipið fórst. Biaðamaður Morgunblaðsins rædddi við hann á sjúkarhúsinu í Þórshöfn í býtið í gærmorgun. „Þegar skipið fór á hliðina þá losnaði björgunarbátur sem hafði verið fastur og ég ætlaði að kom- ast í hann en sjórinn þeytti mér þá þannig að ég kastaðist niður á milli fastabátsins og skipsins. Ég fór á bólakaf og það eina sem ég hugsaði var að nú væri þetta búið. En ég var í vesti og mér skaut því upp aftur og strax þá var ég staðráðinn í því að þetta væri ekki búið;“ hefur Júlíus frásögn sína. „Ég vissi ekki af mér aftur fyrr en ég var kominn hinum megin við bátinn og ég hef það ekki á hreinu hversu langur tími leið. Það rakst einhver tréfleki í mig sem ég gat haldið mér í og svo sá ég að björgunarbátinn rak í áttina til mín og mér tókst að komast um borð.“ Júlíus segist aldrei hafa gefið upp vonina og að hann hefði alltaf haft það í huga eftir að Nimrod- vélin fann bátinn um nóttina að nú gæti ekki verið nema um ein klukkustund í björgun. Þannig hefði hann hugsað alla nóttina og allt þangað til björgun átti sér stað. „Auðvitað var manni kalt en við reyndum að passa okkur á því að standa uppréttir í bátnum svo að sjór gengi ekki yfir okkur alla. Nú, svo hjálpaði það til hvemig við studdum við bakið hver á öðr- um, kölluðumst á og töldum í hvom annan kjark. Vitanlega er þetta mesta lífsraun sem ég hef ratað í en á svona stundu þá hugs- aði ég heim til foreldra minna, svstkina og syskinabama. Fjöl- skylda mín var mér efst í huga og svo tilhugsunin um það að týn- ast. Hún fannst mér vera skelfi- legust." Júlíus rifjar upp þegar þyrlan kom á vettvang: „Bara það að heyra í þyrlunni er besta hljóð sem ég hef heyrt, þessu hljóði á ég aldrei eftir að gleyma. Ég var orð- inn kaldur og hrakinn, en mér hlýnaði ótrúlega fljótt eftir að ég var kominn í heitt bað um borð í Vædderen. Danirnir um borð vom unnar eiga heiður skilið hversu einstaklega elskulegir í okkar garð fljótt og rétt þeir brugðust við.“ og þeir ásamt frábærri áhöfn þyrl- AB Fimm bjargað, en sex manns fórust er flutningaskipið Suðurland fórst Skelfilegasta tilhugs unin sú að týnast Flutningaskipið Suðurland var með saltsíldarfarm á leið til Rússlands. Myndin er tekin í Grindavík fyrir 10 dögum er skipið lestaði þar. „Samstaða okkar og sam- hugnr bjargaði okkur“ - segir Kristinn Harðarson háseti KRISTINN Harðarson, 38 ára, hefur verið háseti á Suður- landinu í rúm tvö ár. Blaðamað- ur Morgunblaðsins ræddi við hann um björgunina á sjúkra- húsinu í Þórshöfn í gærmorg- un. „Við vomm allir stjórnborðs- megin í skipinu þegar það hallaðist yfir á bakborða og fylltist þeim megin af sjó. Við börðumst við að blása upp gúmbátinn jafnframt því sem við börðumst fyrir því að missa hann ekki, því hinn báturinn var farinn. Við náðum að blása hann upp en hann festist einhvem veginn og hefur að öllum líkindum rifnað við það. Við komum honum í sjóinn en sjóamir gengu yfir skipið og þeyttu okkur hist og her. Sumir lentu meira að segja undir skipinu. Þá voram við allir komnir í sjóinn nema skipstjórinn, það sá hann enginn. Ég heyrði í þeim tveimur sem saknað er auk skipstjórans nærri mér í sjónum þegar ég var að reyna að komast í bátinn. Við reyndum strax að svipast um eftir þeim þegar við vomm komnir í bátinn en árang- urslaust, enda kolniðamyrkur, hávaðarok og mikill sjór. Ég geri mér ekki glögga grein fyrir því hversu lengi ég var að velkjast í sjónum en það var ekki mjög langur tími. Líklega 15 til 20 mínútur. Ég var ekki orðinn gegn kaldur þegar ég komst í bátinn, kannski ég hafí verið svo ofboðslega hræddur að það hafi haldið á mér h'ita. Við lágum fyrst ofan á bátnum en reyndum svo að troða okkur undir þakið sem var allt rifið. Báturinn hálf fylltist af sjó og við reyndum að ausa eftir megni en það virtist aldrei grynnka í bátnum. Svo ætlaði ég að færa mig til í bátnum en sökk í kaf því það var svo stórt gat á botninum að fóturinn gekk niður í gegnum bæði lögin. Þá sáum við að það var tilgangslaust að ausa. Við stóðum því í sjó ýmist í læri eða upp fyrir klof en reyndum að gæta þess að blotna ekki að ofan því þá hefðum við verið bún- ir að vera. Við vomm allir illa búnir og yfírhafnarlausir þar sem þetta gerðist svo snöggt og fata- geymslumar fylltust af vatni á augabragði og lokuðust." „Hvað ég hugsaði á meðan ég beið,“ segir Kristinn og starir út um glúggann. „Ég held ég hafi hugsað mest lítið, maður beið bara í voninni um að fínnast. Við studd- um hvor annan mjög vel. Við kölluðumst á af mætti til þess að raddir okkar heyrðust í gegn um veðurgnýinn og öskmðum ýmist reiði- eða hvatningaróp um leið og einhver fór að hengja haus. Svo vomm við með reglubundin nafnaköll til þess að halda okkur við efnið. Það var ömurlegt að hafa lík félaga sinna fljótandi þarna í bátn- um í kring um sig en þeir létust mjög fljótlega. Annar var eigin- lega dáinn þegar hann kom um borð en hinn andaðist skömmu síðar. Við höfðum engan þrótt aflögu til þess að halda honum upp úr. Auðvitað fylltist maður örvænt- ingu eftir því sem biðin varð lengri og ég man ég sagði einu sinni um nóttina að ég öfundaði þá sem vom látnir því þetta var búið hjá þeim. Það var snarlega þaggað niður í mér og kallað á móti að við mundum allir hafa þetta af. Samstaða okkar og samhugur bjargaði okkur, um það er ég sann- færður." Kristinn segir að það hafí verið í birtingu sem Nimrod-þotan kom og henti niður öðmm björgunarbát. „Okkar hugsun þá var að komast í þann bát sem veitti eitthvert skjól og væri þurr. Það tók okkur klukku- tíma að ná honum en við náðum í línuna í rekakkerinu og drógum okkur að honum. Það hefði verið svo erfítt að róa hálf fullum bátn- um hjá okkur. Á meðan gengu sjóamir yfír okkur og þá kólnaði manni nú vemlega. Halldór var með þijá álpoka sem við skriðum í eftir að við komum í hinn bátinn, tveir og tveir í sitt- hvom pokann og svo einn í þann þriðja. Okkur var svo kalt á fótun- um. Það var ólýsanlega góð tilfinn- ing þegar þyrlan kom og það gekk mjög vel að bjarga okkur um borð í hana. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því fyrr en eftir á hvað slysið hafði átt sér stað á vondum stað eða eins og einn danskurinn orðaði það við okkur að við hefðum verið „in the middle of nowhere". Það var svo hugsað um okkur eins og ungaböm þegar við vomm komnir um borð í Vædderen og verður Dönunum seint fullþakkað fyrir það. Nei, ég er ekki hættur til sjós þrátt fyrir þessa eldraun," segir Kristinn. „En auðvitað get ég ekk- ert fullyrt um hvert framhald verður á sjómennsku minni fyrr en ég er búinn að fara fyrsta túr- inn.“ AB Kl.23.17 Aðfanga dagskvöld barst neyðarkall frá ms. Suðurlandiog hafði þá fengið á sig slagsíðu. Hálftíma seinna barst svo tilkynn- ing frá skipstjóra um að menn væru að fara í björgun- arbátana því skip- ið væri að sökkva. Var ms. Suðurland þá statt um 290 sjómílur austnorð- austur af Langa- nesi. Sfðdegis á jóladag bjargaði þyrla frá danska strand- gæsluskipinu Vædderen fimm skipverjum af ms. Suðurlandi úr ein- um björgunarbá- tanna. IV1 Murmansk Sovétríkin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.