Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
Helga Möller, Herbert Guðmundsson
Meðal þeirra sem fram koma í Hollywood eru Björgvin Halldórsson,
Gamlárskvöld - Nyjársfagnaðir
Hótel Borg
Húsið opnar kl. 00.30 og verður
opið til kl. 4. Hattar, knöll og snarl.
Broadway
Að loknum áramótadansleik
sjónvarpsins í Broadway verður
húsið opnað almenningi og verður
opið til kl. 4. Glen Millerband leikur
fyrir dansi.
Nýársfagnaður verður að kvöldi
nýársdags. Uppselt.
Hollywood
í Hollywodd verður opið frá kl.
22 á gamlárskvöld til kl. 04 á
nýársnótt. Meðal þeirra sem fram
koma eru Björgvin Halldórsson,
Helga Möller, Herbert Guðmunds-
son, Eiríkur Hauksson, Svava
Siguijónsdóttir sólarstúlka Pólaris
og Guðlaug Jónsdóttir stjama
Hollywood 1988. Aðrir gestir verða
Björn Leifsson og aerobikkliðið frá
Heilsustúdíóinu og einnig dans og
sýningarfólk Hollywood-Módels.
Hótel Saga - Súlnasalur
Á nýjársfagnaðinum í Súlnasal
verður árinu fangað með spaug-
landsliðinu og hljómseit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyrir dansi.
Spaugjandsliðið skipa: Halli, Laddi,
Karl, Öm, Siggi, Eggert og Edda.
Húsið verður opnað kl. 19.00 með
fordrykk, ijórréttuðum kvöldverði,
ásamt drykkjarföngum með mat.
Öllum nýársgestum býðst gisting á
1.595 kr. á mann miðað við gist-
ingu í tveggja manna herbergi.
Evrópa
Á gamlárskvöld verður opið frá
kl. 10 til kl. 4. Hattar og knöll og
snarl. Ætlunin er að sýna áramóta-
skaupið á risasjónvarpsskjá húsins.
Hljómsveitin Gimsteinn leikur fyrir
dansi. Rúmar Julíusson, þórir Bald-
ursson og María Baldurs skemmta.
HótelÖrk
- Nýársfagnaður og
gisting’.
Nýársfagnður verður í Hótel Örk
í Hveragerði. Fagnaðurinn hefst
með fordrykk kl. 19.00 í Blómasal.
Þá verður glæsilegur íjórrétta há-
tíðarmatseðill ásamt borðvínum og
veislustjóri er Árni Johnsen. Ómar
Ragnarsson skemmtir og hljóm-
sveitin Ópera leikur fyrir dansi.
Rútuferð fyrir þá sem ekki gista
er frá Umferðarmiðstöðinni kl.
17.30 og til baka að loknum dans-
leik. Dansleikur og gisting eina
nótt kostar 5.600 á mann, miðað
við tvö í herbergi.
Rúnar Júlíusson verður meðal
þeirra er koma fram í Evrópu.
Afmæliskveðja:
Thorsten Folin
Félag íslenskra ferðaskrifstofa:
Gagnrýnir ferðaskrif
stofurekstur ríkisins
Thorsten Folin, ofursti á eftir-
launum í sænska hernum, á 75 ára
afmæli hinn 27. desember 1986.
Fyrir hönd fjöldamargra íslenskra
vina hans, bæði á Islandi og í
Svíþjóð, langar mig til að minnast
þessara tímamóta í ævi hans með
nokkrum orðum.
Thorsten Folin — eða Þorsteinn
eins og íslendingum er tamast að
kalla hann — fæddist í París 27.
desember 1911. Foreldrar hans
voru hjónin Thorild Folin yfirverk-
fræðingur og Marguerite de la
Moussaye de Kergenano. Faðir
hans var á sínum tima umsvifamik-
ill athafnamaður í pappírsmassaiðn-
aði og byggði m.a. sellulósaverk-
smiðjur bæði í Frakklandi og
Kanada. Fetaði hann þar í fótspor
föðurbróður síns, Victors Folin, sem
var brautryðjandi í sænskum sellu-
lósaiðnaði. Móðir Þorsteins var af
gamalli greifaætt frá Bretaníu-
skaga í Frakklandi. Eru til heimildir
um að ættin hafí búið þar allar
götur síðan á 11.—12. öld.
Þorsteinn sleit barnsskónum í
Bergvik í Helsingjalandi í Norður-
Svíþjóð, en þar var rekin umfangs-
mikil sellulósavinnsla. Hann tók
stúdentspróf í menntaskóla í ná-
grannabænum Söderhamn. Síðan
gekk hann í sænska ríkisherinn.
Þar stundaði hann fyrst nám í
tveimur af háskólum hersins. Að
námi loknu þjónaði hann í ýmsum
herdeildum á vegum stórskotaliðs
og flughers. Síðar, á árunum
1946—1949, starfaði hann í herfor-
ingjaráðinu í Stokkhólmi og kenndi
þá jafnframt við háskóla flughers-
ins þar. Um tíma stjómaði hann
ungliðsforingjaskóla flughersins í
Linköping. Seinustu árin í hernum
var hann m.a. yfirmaður hersvæðis-
stjómarinnar í Skövde.
Þorsteinn fór á eftirlaun frá
hemum árið 1967. Síðan hefur
hann lágt sig sérstaklega eftir því
að halda sambandi við og tengja
ættimar sem að honum standa, en
ættingjamir em dreifðir víða, í
Svíþjóð, Sviss, Frakklandi og Eng-
landi.
Þorsteinn er þrígiftur. Með fyrstu
konu sinni átti hann dóttur sem býr
í London. Þau hjón skildu. Önnur
kona hans dó árið 1976. Nokkmm
ámm síðar kynntist hann Sigrúnu
Jónsdóttur, vefnaðarlistakonu og
kennara frá íslandi. Bar kynni
þeirra að í tengslum við sýningu
sem Sigrún hélt á Sögusafninu í
Stokkhólmi í sambandi við opinbera
heimsókn forseta íslands til
Svíþjóðar. Þau Þorsteinn og Sigrún
giftust árið 1983. Búa þau í gömlu,
stóm, fallegu húsi á Södra
Kungsvágen 250 á Lidingö rétt hjá
Stokkhólmi og reka á þeim stað
hinn myndarlegasta rausnargarð.
Öðm hverju dveljast þau í
Reykjavík, á Skólavörðustíg 12.
Sá sem kynnist Þorsteini Folin
tekur strax eftir tvennu; annars
vegar hversu myndarlegur maður-
inn er og ber aldur sinn vel, hins
vegar velvilja, kurteisi og tillitssemi
sem manninum er eiginleg. Það
sópar að Þorsteini þar sem hann
kemur og jafnframt laðast fólk að
honum.
Þorsteinn hefur tengst íslandi
traustum böndum síðan hann
kvæntist Sigrúnu Jónsdóttur fyrir
þremur ámm. Náttúra íslands höfð-
ar sterkt til hans — sem ekki er
kannski að undra um mann sem
kynntist vel sem unglingur tijá-
snauðu og hrikalegu landslagi
sænska Norðurlandsins við útivist
og silungsveiðar á sumrin. Þá hefur
hann lært þó nokkuð í íslensku
máli á þessum skamma tíma.
Ég veit að ég tala fyrir munn
fjöldamargra íslenskra vina öðlings-
ins Thorstens Folin þegar ég óska
honum hér með innilega til ham-
ingju með 75 ára afmælið og bið
hann vel og lengi að lifa.
Andri ísaksson
Á ALMENNUM félagsfundi í
Félagi íslenskra ferðaskrifstofa
þann 16. desember sl. var rætt
nokkuð um þátt íslenskrar ferða-
þjónustu við framkvæmd leið-
togafundarins í nóvember sl. Var
meðfylgjandi ályktun samþykkt
samhljóða:
„Félag íslenskra ferðaskrifstofa
harmar vanþekkingu íslenskra
stjómvalda á almennri ferðaþjón-
ustu hér á landi er kom fram í því
að talið var nauðsynlegt að fela
ferðaskrifstofu í eigu ríkisins nær
alla umsjá með þeim framkvæmda-
þáttum í tengslum við leiðtogafund-
inn sem annars tilheyrir hinum
fijálsa ferðamarkaði og íslenskar
ferðaskrifstofur hafa langa reynslu
í að annast.
Telur félagið að eðlilegra hefði
verið að nýta alla þá þekkingu og
STJÓRN Félags velunnara Borg-
arspítalans vill að gefnu tilefni
lýsa yfir fullum stuðningi við
starfsfólk Borgarspítalans í við-
leitni þess til að Borgarspítalinn
haldi því sjálfstæði og því frum-
kvæði sem hann hefur haft í
heilbrigðismálum höfuðborgar-
innar og landsins alls.
Stjóm félagsins harmar að þessi
glæsilegasta stofnun borgarinnar
skuli nú orðin að söluvöru, en telur
reynslu sem íslensk ferðaþjónusta
býr yfir og átelur harðlega að ís-
lenskar ferðaskrifstofur vom
algerlega sniðgengnar við fram-
kvæmd mála sem þær annars hafa
sinnt með verulegum árangri í
fjölda mörg ár við móttöku erlendra
ferðamanna.
Af þessu tilefni ítrekar Félag ísl.
ferðaskrifstofa þá skoðun sína að
óeðlilegt sé að ríkisvaldið sé að
sinna ferðaskrifstofurekstri í sam-
keppni við fijálsan rekstur og í
skjóli ýmissa forréttinda og hvetur
félagið ríkisstjómina til að leggja
Ferðaskrifstofti ríkisins niður hið
allra fyrsta. Rekstur Eddu-hótel-
anna, sem hefur verið svo til eina
réttlætingin á rekstri ferðaskrif-
stofunnar um árabil, væri jafnframt
betur kominn hjá sameiginlegri
bókunarmiðstöð sem hagsmunaað-
ilar ættu hlutdeild að.“
að fyrst svo sé komið verði að
tryggja að spítalinn lúti áfram sjálf-
stæðri stjórn. Þeirri stjórn beri að
tryggja að hæfíleikar lækna og
hjúkrunarliðs spítalans fái notið sín
í fijálsri samkeppni, er stefni að
því marki að veita alltaf bestu og
fullkomnustu þjónustu sem völ er á.
Stjórn FVB telur að sjálfstæð
stjórn Borgarspítalans geti áfram
leitað leiða til að bæta reksturinn,
eins og gert hafi verið,
(Fréttatilkynning)
p .urgmnlíl bifcifc
Metsölublad á hverjum degi!
Félag velunnara Borgarspítalans:
Tryggja verður áfram
sjálfstæða stjórn