Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 Sjóslysið við Skrúð Framhluti flaks Synetu marar í hálfu kafi síðdegis á föstudag við Skrúð. í baksýn sést inn í Fáskrúðsfjörð. Morgunblaðið/Rax. Tólf menn fórust er breska skipið Syneta strandaði og sökk við Skrúð ÖLL áhöfn breska tankskipsins Syneta, 12 manns, drukknaði að- faranótt annars dags jóla eftir að skipið strandaði við klettinn Skrúð í mynni Fáskrúðsfjarðar laust fyrir miðnætti á jóladagskvöld. Níu menn fundust á floti í sjónum og náðust sjö þeirra um borð í skip og báta, sem stefnt var á strandstað. Einn skipverjanna var með lífsmarki en meðvitundarlaus er hann fannst. Hann lést skömmu síðar. Sex mannanna voru látnir þegar þeir náðust. Syneta strand- aði við norðausturhorn Skrúðs er það var á leið til Eskifjarðar frá Liverpool á Englandi til að lesta loðnulýsi, sem sigla átti með til Rotterdam í Hollandi og Dunkirk í Belgíu. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins átti skipið að koma fyrst við í Vestmannaeyjum en breytti áætlun er komið var að landinu og sigldi því meðfram Austfjörðum í stað þess að koma beint úr hafi til Eskifjarðar. Óljóst er hvað olli strandinu en svo virtist sem Syneta hafi siglt beint á Skrúð og að skip- veijar hefðu ekki vitað hvert stefndi fyrr en skipið tók niðri. Töldu sig hafa strandað við Seley Það var klukkan 23:20 á jóladag að skipveijar Synetu sendu út neyð- arkall og sögðust hafa strandað við Seley í mynni Reyðarfjarðar. Óskað var eftir tafarlausri aðstoð. Strax voru björgunarsveitir á Neskaup- stað, Eskifírði og Fáskrúðsfirði ræstar út og haft samband við for- menn allra tiltækra fiskibáta og togara. Fóru fyrstu skipin af stað um miðnætti. Nesradíó var í fjarskiptasam- bandi við Syneta og síðustu samtöl við skipið fóru fram rétt fyrir klukk- an 01:00 aðfaranótt annars dag jóla. í ljós kom að skipveijar voru ekki vissir um hvar skip þeirra var strandað og þegar á leið sögðust þeir ýmist vera í Seley eða í Skrúð. Um ^lukkan hálf eitt höfðu þeir samband við Nesradíó og sögðu 35 gráðu slagsíðu komna á skipið en að það væri samt nokkuð stöðugt á strandstaðnum, sem væri þétt upp við þverhnípt bjarg. Aðalvélarnar höfðu stöðvast nokkru áður en neyðarlýsing á skipinu virkaði og fjarskiptatæki voru þá í lagi. Varð að samkomulagi að þeir skytu upp neyðarflaug á slaginu 01.00 til að auðvelda staðsetningu skipsins, sem enn var óljós. Bátar yrðu þá komnir út í fjarðamynnin og gætu því gengið úr skugga um hvar skip- ið væri í raun strandað. Klukkan 00:50 fundu skipveijar á togaranum Hólmatindi frá Eski- firði út að Syneta hefði strandað í Skrúð með því að stefnumæla fjar- skipti skipsins við land. Aðeins 5 mínútum síðar var neyðarflaug sko- tið frá Synetu, eða 5 mínútum áður en ætlað var. Var það talin vera vísbending um að skipið hafi þá verið að leggjast alveg á hliðina og skipveijar að búa sig undir að fara frá borði. Klukkan hálftvö um nóttina kom fyrsta björgunarskipið á vettvang. Var það fiskibáturinn Þorri frá Fáskrúðsfirði, en skömmu seinna kom Hólmatindur að Skrúð og brátt voru skipin orðin tólf, þ.á. m. varð- skipið Týr. Skipveijar á Þorra töldu sig hafa séð uppblásinn gúmbjörg- unarbát við hlið Syneta, sem lá þá alveg á hliðinni í brimrótinu. Hins vegar sást ekkert til skipveija en talið var að þeir væru þá jafnvel farnir frá borði. Éljagangur var á standstaðnum og fljótlega hvarf Syneta sjónum skipveija á Þorra. Þegar næst rofaði til var björgunar- báturinn horfinn. Síðar um nóttina fannst sundur- tættur björgunarbátur á reki norður af Skrúð. Einnig fannst brak úr trefjaglersbát af skipinu, en björg- unarmenn töldu frekar að hann hefði brotnað meðan hann var um borð. Einnig fundust tveir björgun- arbátar úr áli. Skipið virtist hafa brotnað talsvert á strandstað því mikið brak rak úr því, aðallega þó innanstokksmuni, s.s. stólar, borð og arnað tréverk. Skip og bátar, sem sigldu á strandstað reyndu að girða af svæðið norður af Skrúð til að komast fyrir allan reka frá Sy- netu en vindur stóð af suðvestri þegar skipið strandaði og færðist síðan í suðrið. Talið er að eitthvað af braki hafi þó komist framhjá skipagirðingunni og fann togarinn Snorri Sturluson t.d. bjarghring á reki um 2 sjómílur frá Seley. Einn fannst meö lífsmarki Lík fyrsta skipveijans fannst klukkan 02.40 en nokkrum mínút- um síðar fundu skipveijar á Sæljón- inu frá Eskifirði þriðja stýrimann Syneta. Hann reyndist með lífsmarki en var meðvitunarlaus og helblárog reyndust lífgunartilraun- ir árangurslausar. Læknir var kvaddur á vettvang og sigldi Sæl- jónið upp að Vattamesi, sem er milli Eskifjarðar og Fáskrúðsfjarð- ar, en koma átti lækni þaðan um borð. Hérðaslæknirinn á Fáskrús- firði hugðist vera um borð í Ljósa- fellinu frá Búðum við strandstað, en ekki reyndist unnt að sigla því vegna bilunar. Þegar boðin komu frá Sæljóninu var ekið með lækninn út á Vattarnes og var hann kominn um borð á fjórða tímanum. Var skipveijinn þá enn með lífsmarki en úrskurðaður látinn stuttu síðar. Líkin fundust síðan eitt af öðm og vom öll í björgunarvestum. Alls em fundinb lík 9 skipveija en í gær hafði ekkert spurtst til þriggja manna úr áhöfn Syneta. Þeir em hins vegar taldir af. Lík sjö skip- veija náðust um borð í skip á strandstað, tvö um borð i Geisla frá Eskifirði og fjögur um borð í Esk- firðing, auk skipveijans, sem náðist um borð í Sæljónið. Lík tveggja skipveija sluppu úr vestunum og sukku í sæ er verið var að draga þau um borð í skipin. Siglt var með lík sjömenninganna til Eskiíjarðar. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF—SÝN, sótti þau síðan til Egils- staða á föstudagskvöld og flaug með þau til Reykjavíkur. Tókst að bera kennsl á flest líkanna þar sem skilríki skipveijanna fundust á þeim. Fulltrúi útgerðar skipsins, Gordon Haggerstone, sagði hins vegar að nöfn hinna látnu yrðu ekki gefin upp að ósk aðstandenda þeirra. Fimm líkanna vom af Bret- um og tvö af mönnum frá Græn- höfðaeyjum. Fimm yfirmenn skipsins og kokkur vom breskir en undirmennimir 6 vom frá Græn- höfðaeyjum. Bréf g-efur til kynna að ekki haf i allt veriö með felldu um borð í bijóstvasa stýrimannsins, sem náðist um borð í Sæljónið, fannst bréf, sem stílað var til konu í Eng- landi. Það var skrifað á aðfangadag jóla og í því var m.a. kvartað yfir hversu ganglítið skipið hafi verið, því væri ekki hægt að sigla nema á fimm mílna hraða, og að sjálfstýr- ingin væri í ólagi. Þyrla varnarliðsins kom austur og var yfir flaki Syneta klukkan fjögur að morgni annars í jólum. Skipið var þá komið á hvolf og stóð aðeins stefni þess upp úr. Þyrlan tók þátt í leit að skipveijum en flaug til Hornaíjarðar klukkan 07 til elds- neytistöku og þar biðu flugmennirn- ir þess að birti. Héldu þeir síðan á ný að Skrúð og leituðu m.a. í eynni en sáu þar hvergi lífsmark. Einnig flaug þyrlan yfir íjömrn, sem erfitt var að komast í úr landi, en í gær- dag gengu félagar í björgunarsveit- um frá Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Seyðisfirði og Egils- stöðum ijömr. Leit var hætt síðdeg- is á sjó og landi en í birtingu í gærmorgun stóð til að halda henni áfram. Björgunarstörfum var lengst af stjórnað úr stjórnstöð, sem komið var upp í Vattarnesskriðum. Þaðan stjórnuðu félagar úr björgun- arsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði leit á sjó og landi. 1.260 tonna tankskip Syneta var 1.260 tonna og 86 metra langt tankskip, skráð eign Syndicate Tankships Ltd. í Gíbralt- ar, sem keypti það í október 1985, en gert út af Haggerstone Marine Ltd. í Homchurch í Englandi. Sam- kvæmt upplýsingum AP-fréttastof- unnar lagði Syneta upp í íslands- siglinguna frá Liverpool á Englandi 20. desember sl. Skipið var tómt en átti að lesta 1.100 lestir af lýsi á íslandi og sigla með það til Rott- erdam í Hollandi og Dunkirk í Belgíu. Að sögn fréttastofunnar hugðist John Taylor, fulltrúi eig- enda Syneta, koma til íslands í gær vegna strandsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.