Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
43
Grindavík:
Björgunarsveitin gengst
fyrir flugeldasýningu
Grindavík.
mí
J|t Messur
Wjm í dag
DOMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr.
Þórir Stephensen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta í safnaðarheimili
Arbæjarsóknar kl. 11 árdegis.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson. Hrafnista: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta í Breiðholtsskóla kl. 11. Sr.
Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúla-
son. Jólatrésskemmtun í safnað-
arheimilinu milli kl. 15 og 17
mánud. 29. des. Sóknarnefndin.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11.
Ragnheiður Sverrisdóttir.
GRENSÁSKIRKJA: Kvöldmessa
með altarisgöngu kl. 20.30. Þor-
valdur Halldórsson sér um söng
og tónlist. Sr. Halldór Gröndal.
Guðspjall dagsins: Lúk.
2: Simeon og Anna.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Jóla-
tónleikar Mótettukórs Hallgríms-
kirkju kl. 17.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.
Sr. Arngrímur Jónsson. Messa
kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Helgi-
stund kl. 14 fyrir börn og fjöl-
skyldu. Þórhallur Heimisson
stjórnar. Jólatrésfagnaður, jóla-
sveinar og jólapokar, súkkulaði
og smákökur. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Sr. Frank M. Halldórsson.
Helgistund kl. 14. Orgel- og kór-
stjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN:' Guðsþjónusta í
Seljahlíð kl. 14. Aðstoðarprestur
prédikar. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta í sjúkrahúsinu kl. 13 í
dag og í Dvalarheimilinu Höfða
kl. 14. Sr. Björn Jónsson.
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík mun halda mikla
flugeldasýningu fyrir verslun-
ar- og þjónustuaðila í Grindavík
inánudaginn 29. desember
klukkan 20.00. Þetta er liður í
flugeldasölu björgunarsveitar-
innar sem er aðalfjáröflun
hennar fyrir þessi áramót eins
og undanfarin ár.
Að sögn Gunnars Tómassonar
formanns björgunarsveitarinnar
mun hagnaður af flugeldasölunni
renna til byggingu Oddsbúðar sem
reist er yfir björgunarbátinn og
önnur tæki sveitarinnar.
Flugeldasalan fer fram í bæki-
stöð sveitarinnar við Hafnargötu.
Kr. Ben.
N ítján þúsund og þrír vinningshafar
ín m*
ar
eir
er risastór hópur. Enginn
salur á íslandi rúmar hann
og erfitt að ná öllum saman
á mynd. Samt verða nítján
þúsund og þrír vinningshafar ,
hjá SÍBS þetta happdrættisár ö| þi
skipta með sér eitt hundrað
og tólf milljónum, sem er
óvenjuhátt vinningshlutfall
- meira en fjórði hver
íiði vinnur. Það borgar sig
^sannarlega að vera með, því
að þetta er stórskemmtilegur leikur,
fullur af spennu og hagnaðarvon. En það
sem er þó allra best er að þessi
spennandi skemmtun gegnir
athyglisverðu hlutverki. Hún
gefur þér tækifæri til þess
að skila góðu framlagi til upp-4_______
byggingar á nauðsynlegum
þætti í heilbrigðisþjón-
ustu okkar. Pú leggur
fram þinn skerf og átt
möguleika á milljóna-
vinningum og 3 eftir-
sóknarverðum aukavinningum: Volks-
wagen Golf Syncro í mars, Subaru í júní
og Saab 900i í október - fyrir sama verð
og í fyrra aðeins 200 krónur á mánuði.
Við drögum 13. janúar.