Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
Okrið er afleiðing
pólitískrar stefnu
eftir Svavar Gestsson
í ágúst 1984 gaf ríkisstjómin
vextina fijálsa. Það var afrek sem
Þorsteinn Pálsson jafnaði til
stærstu tíðinda íslandssögunnar í
efnahagsmálum. Afleiðingin blasir
við: Okrarar máttu okra á fólki og
svipta það öllum eigum margfald-
lega og þar með oft sjálfsvirðingu:
mannleg reisn var troðin niður í
svaðið. Ákvörðun um vaxtafrelsið
var pólitísk ákvörðun. Vaxtafrelsi
er frelsi fárra fjármagnseigenda en
ófrelsi fjöldans.
Strax þá um haustið, 1984, lét
ég þá skoðun í ljós að Seðlabankinn
hefði ekki heimild til þess að inn-
leiða hömlulaust vaxtafrelsi.
Honum bar skv. lögum að ákveða
hæstu heimilaða vexti. Bankaráðs-
maður Alþýðubandalagsins
mótmælti í bankaráði Seðlabankans
og ég flutti síðan frumvarp um
haustið um að afturkalla vaxtafrels-
ið. Enginn tók undir það nema
Alþýðubandalagið: Ekki stjómar-
andstöðuflokkarnir hinir, ekki
ríkisstjómin — en okraramir léku
lausum hala.
Og hæstiréttur. Ég er með 14
hæstaréttardóma á bakinu. Ég
kann ekki að taka ofan fyrir hæsta-
rétti, ekki í meiðyrðamálum,
guðlastsmálum og ekki heldur í
okurmálum.
Ábyrgð þessa máls er:
1. Ríkisstjómarinnar, sérstaklega
Þorsteins Pálssonar, sem knúði
fram vaxtafrelsið og leyfði okr-
ið. (Svo er Steingrímur Her-
mannsson að biðja um opinbera
rannsókn á sjálfum sér!)
2. Seðlabankans, sem braut lög
með því að afhenda markaðnum
vaxtaskráningarvaldið, les: Af-
henti okrurunum valdið.
3. Meirihluta Alþingis, sem hafnaði
tillögum Alþýðubandalagsins
haustið 1984.
Hvað á að gera?
Nú er sagt að löggjafinn hafí
ekki sinnt skyldu sinni: Meirihluti
alþingis gerði það ekki er hann
hafnaði tillögum Alþýðubandalags-
ins.
Svavar Gestsson
Afstaða Alþýðubandalagsins er
skýr:
1. Notuð verði heimild sem er í
gildandi Seðlabankalögum um
að setja hámaksvexti. Það á
ríkisstjómin að gera.
2. Sett verði ný okurlög.
3. Fæmstu sérfræðingar verði
fengnir til þess að fara yfír dóm
hæstaréttar meðal annars með
tilliti til þess að kanna hvort
hann stenst eignarréttar-
ákvæði stjórnarskrárinnar.
Fram fari opinber rannsókn á
málinu.
Alþýðubandalagið mun gera það
að skilyrði við stjómarmyndun eftir
næstu kosningar:
— að sett verði ákvæði um há-
marksvexti og öll lánastarf-
semi umfram þau mörk verði
dæmd okur.
— að skipt verði um alla banka-
stjóra Seðlabankans og fleiri
æðstu starfsmenn opinberra
stofnana.
Stundum kvarta þingmenn und-
an því að þinginu sé ekki sýnd
virðing: Það þing sem hafnar tillög-
um eins og þeim sem við fluttum
gegn okrinu haustið 1984 það þing
hefur dæmt sjálft sig til virðingar-
leysis, ef ekki fyrirlitningar, meðal
almennings í landinu. Það þing of-
býður og misbýður réttarvitund og
siðgæðiskröfum almennings.
Höfundur er þingmaður Alþýðu-
bandalagsins íReykjavík.
ASEA Cylinda
uppþvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu
neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð-
leika og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi
einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar!
3/FOmx
HATUNI 6A SlMI (91)24420
FRAMKÖLLUM
LITMYNDIR
Á ALLT AÐ
framköllunarþjónusta
framköllunarþjónusta
MÍNÚTUM
Meö nýrri tölvustýröri tækni frá FUJI
framköllum viö litmyndir á mettíma.
Ljós og litgreining er algjörlega sjálfvirk,
sem tryggir hámarksgæöi á myndunum þínum.
Ný tækni — lægra verð — aðeins 17 krónur hver
mynd.
Stykkishólmur:
Jólagjöf til Dvalar-
heimilis aldraðra
Stykkishólmi.
ÞAÐ HEFIR verið venja Lions-
klúbbs Stykkishólms að færa
Dvalarheimili aldraðra bókagjaf-
ir i bókasafn sitt um hver jól.
Nú var breytt út af venjunni og
slegið í félag með Kvenfélaginu
Hringurinn og Dvalarheimilinu
fært frá báðum félögunum veg-
leg hljómtækjasamstæða með
hátalarkerfi og segulbandi í
vönduðum umbúðum.
Við þetta tækifæri afhentu þau
María Bæringsdóttir, formaður
kvenfélagsins, og Daði Þór Einars-
son, varaformaður Lionsklúbbs
Stykkishólms, þessa góðu gjöf
Dvalarheimilinu og á móti henni tók
Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri,
fyrir hönd heimilisins. Við þetta
tækifæri minntist sveitarstjórinn
þess hve mikið hefði áunnist á þeim
8 árum sem Dvalarheimilið hefði
starfað, minntist hann einnig á að
frá Dvalarheimilinu væru nú liðs-
menn sem aðstoðuðu ellilífeyris-
þega sem enn kysu að búa heima,
með húsverk og hjálp, þá væru tvær
konur sem hefðu umsjón með föndri
og öðru eldri borgurum til styrktar
og ánægju og væri þessi starfsemi
í hröðum vexti. Minntist Sturla
áforma um stækkun heimilisins og
hvemig mætti auka starfsemina.
Minntist hann orða oddvita Stykkis-
hólmshrepps við opnunina fyrir 8
árum, þegar hann mælti að ekki
mætti minna vera en þeir sem no-
tið hefðu verka þeirra sem nú hefðu
lokið hinum daglegu störfum, sæju
um að þeir fengju lítinn hluta af
fyrirhöfn sinni í uppbyggingu þjóð-
félagsins með því að búa þeim
góðan stað til að njóta efri ára.
Þetta væri aðeins lítill þakklætis-
vottur.
María Bæringsdóttir minntist
æskujóla sinna í sveitinni og ávarp-
aði viðstadda dvalargesti. Daði Þór
setti síðan tækin af stað.
Að lokum þakkaði sveitarstjóri
góða gjöf, starfsmönnum heimilis-
ins og velunnurum gott starf, og
bað vistmönnum og heimilinu allrar
blessunar.
í lokin bauð svo Guðlaug Vigfús-
dóttir forstöðukona viðstöddum í
kaffí. Þessi stund var bæði hátíðleg
og elskuleg, eitt fagurt ljós sem
kveikt er á þessum jólum í Stykkis-
hólmi.
- Árni
Hrútafjörður:
Aðventukvöld
í Staðarkirkju
Sóknarpresturinn kveður söfnuð sinn
Stað, Hrútafirði.
SÉRA Yngvi Þórir Árnason
sóknarprestur á Prestsbakka
lætur nú af störfum vegna ald-
urs.
Mánudagskvöldið 15. desember
sl. var haldið aðventukvöld í Staðar-
kirkju, fjölmenni var á samkom-
unni. Kirkjukórinn söng undir stjóm
söngstjórans Guðrúnar Kristjáns-
dóttur og böm úr bamaskóla
Staðarhrepps sungu við undirleik
kennara síns Ólafar Pálsdóttur.
Séra Yngvi Þórir flutti kveðju-
ræðu, þakkaði hann sóknarbömum
sínum liðin ár er þau presthjón
flytja á brott eftir nær 40 ára veru
sína hér.
Formaður sóknamefndar Sverri
Bjömsson færði presthjónunum
kveðjur og þakkir safnaðarins og
óskaði þeim velfamaðar í framtíð-
inni.
Að lokinni athöfninni bauð
kirkjukórinn öllum samkomugest-
um til veglegs kaffisamsætis í
Staðarskála.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á Staðarkirkju á sl. þremur
árum, nú á yfírstandandi ári hefur
kirkjan öll verið máluð að innan.
Málningarvinnu annaðist Guðbjart-
ur Þ. Oddsson málarmeistari. Unnið
hefur verið við frágang á lóðinni
kringum kirkjuna, lóðin girt með
snyrtilegri girðingu og gengið frá
bílastæðum.
Allt hefur þetta kostað mikið fé
og hefur nú verið hafin fjársöfnun
fyrir kirkjuna þess vegna. Spari-
sjóðimir á Borðeyri og á Hvamm-
stanga veita gjöfum viðtöku ásamt
sóknamefnd. Er allur stuðningur
vel þeginn.
m.g.