Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 9

Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 9 „Nafn hans skal kallað Friðarhöf ðingi“ (Jesaja 9.6.) Jólin eru hátíð friðarins. Á Betlehems-völlum við fæðingu Jesú sungu englarnir; „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með þeim mönnum sem hann hefir velþóknun á.“ Mikil þörf var á að friðar- höfðingin Jesús Kristur kæmi inn í þennan heim. Með boðskap sinn og anda, sem er friður. Alkunnugt er að ógnir atómstríðs vörpuðu ekki skugga sínum yfir mannkyn á þeim tíma, þó var ófriður, eirðarleysi og sundrung, sem htjáði hjörtu fólsins. Kvíði og angist hertók hjörtun. Þetta hvarf þegar Jes- ús kom inn í líf fólksins; í stað óvissu, angistar og ófriðar kom jafnvægi, hvíld og friður. Fjörutíu dögum eftir fæðingu Jesú, þegar hreinsunardagamir eftir fæðinguna voru liðnir, var Jesús fluttur af Maríu og Jósef til Jerúsalem í musterið. Þar vom þá fyrir tvö gamalmenni. (Sækja slíkir helst helgar tíðir?) Símeon og Anna Fanúelsdóttir áttatíu og fjögurra ára að aldri. Símeon kom að tillaðan andans í helgidóminn! Hvað knýr okkur eftir EINAR J. GÍSLASON til helgra tíða? í andanum nem- ur Símeon að Jesúbarnið er Drottinn. Alveg eins og vitring- arnir er féllu fram og veittu Jesú lotningu þá lofar hann Guð í lofsöng: „Nú lætur þú herra, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefir heitið mér. Því augu mín hafa séð hjálpræði þitt, Drottinn, í Jesú.“ Símeon bað um að mega deyja í friði, fara héðan sáttur við Guð og menn. Jesús var honum huggun. „Öruggur í friði gat hann haldið á vit hins ókunna —“ því að augu mín hafa séð Jesúm. í honum er hjálpræðið! Ófriður á sér margar rætur. Ófriður er alltaf Qandsamlegur og andstyggð. Enginn óskar eftir böli atómstyijaldar. Eng- inn blessar vopnaskakið í Afghanistan, í Afríku, Mið- og Suður-Ameríku. Boðskapur friðarhöfðingjans Jesú Krists þarf rúm, alveg eins og hann sjálfur á fyrstu jólunum í Betle- hem. Þá var það bara jatan sem lánuð var. Nú við þessi jól býr heimurinn við skugga atóms og vetnis. Geisla frá Chernobyl, kjarna- odda og geimgeisla fyrir ofan höfuð okkar. Við búum líka við heimilisófrið, hjónaskilnaði, ná- grannamisklíð, — ósamlyndi, sundrungu og allt annað sem sýnir mannlegt líf. Að ógleymd- um kvíða, nagandi óvissu sem fylgir því að vera maður og dauðinn verandi á hælum okk- ar, sem nær okkur fyrr eða síðar. Til öryggis og vissu þarf leið okkar persónulega að liggja til friðarhöfðingjans Jesú Krists. „FVið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður, ekki gef ég eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.“ Nú við áramót og göngu inn í nýtt ár þá skulum við keppa eftir friði Jesú, íslenska þjóð. Nýtt ár er ný ganga á vit hins ókunna. Jósef Jakobsson for- sætisráðherra í Egyptalandi, gaf bræðrum sínum ráð í upp- hafi, langrar ferðar. „Deilið ekki á leiðinni." Rekum sundur- lyndið í burtu. Göngum á braut Guðsríkis þar sem ríkir rétt- læti, friður og fögnuður í I„Rekum sundurlyndiÖ í burtu. Göngum á braut GuÖsríkis þar sem ríkir rétt- lœti, friöur ogfögnuöur í heilögum anda. “ heilögum anda. Brátt nær frið- ur friðarhöfðinginn Jesús í arríki Drottins um allan heim. hásæti og mun ríkja að eilífu. Þar sem réttlætið býr, þar verð- Gleðilegt nýtt ár. Níu í úrslit eðlisfræðikeppni FORKEPPNI í eðlisfræði fór fram i 10 skólum um allt land laugar- daginn 15. nóvember. 51 keppandi mætti til leiks, þar af ein stúlka. Forkeppnin var í því fólgin að svara 20 krossaspurningum úr fyrri hluta eðlisfræðinámsefnis framhaldskólanna á 2 klukkutímum. Var meðalfjöldi réttra svara keppendanna 9,2 sem svarar til einkunnar- innar 4,6. Úrslitakeppnin verður haldin 14. og 15. febrúar og hefur til hennar verið boðið 9 efstu keppendum for- keppninnar, en þeir eru: Davíð Aðalsteinsson Menntaskólanum í Kópavogi, Gunnar Guðnason Menntaskólanum við Hamrahlíð, Garpur Dagsson Menntaskólanum við Hamrahlíð, Tryggvi Egilsson Menntaskólanum á Akureyri, Hjört- ur H. Jónsson Menntaskólanum á Akureyri, Sigurður H. Kjartansson Menntaskólanum á Akureyri, Geir Agnarsson Menntaskólanum í Reykjavík, Sveinn Amórsson Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti og Siguijón Þ. Kristjánsson Fjölbraut- arskólanum í Gairðabæ. Úrslitakeppnin er próf, bæði í verklegri og fræðilegri eðlisfræði, og fer fram í Háskóla íslands. Fyr- ir keppnina fá drengimir 9 lesefni og verkefni með í jólafríið. Efstu keppendur úr úrslitakeppninni, yngri en 20 ára, verða valdir til að keppa fyrir íslands hönd á Ólympíu- leikunum í eðlisfræði sem fram fara í Jena í Austur-Þýskalandi vikuna 5.-13. júlí næsta sumar. Morgunblaðið stendur straum af kostnaði við landskeppnina en menntamálaráðuneytið og Austur- Þýskaland af kostnaði vegna Ólympíuleikanna. Morgunblaðið/Einar Falur Efstu keppendur forkeppninnar ásamt framkvæmdanefnd lands- keppninnar. Viðar Ágústsson gjaldkeri framkvæmdanefndar, Einar Júlíusson formaður dómnefndar, Davíð Aðalsteinsson, Gunnar Guðnason og Sveinn Arnórsson. Á myndina vantar Hans K. Guð- mundsson formann framkvæmdanefndar, Tryggva Egilsson, Sigur- jón Þ. Kristjánsson, Sigurð H. Kristjánsson, Geir Agnarsson og Garp Dagsson. FJÁRFESriNGARFÉlAGIÐ UERflBREFflMflRKflÐUBIBIM Genaiðidaq 28. DESEMBER 1986 Markaðsfréttir Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 2 afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 14% 16% 1 ár 4% 95 93 92 2 ár 4% 91 90 88 3ár 5% 90 87 85 4ár 5% 88 84 82 5 ár 5% 65 82 78 6 ár 5% 83 79 76 7 ár 5% 81 77 73 8ár 5% 79 75 71 9ár 5% 78 73 68 10ár 5% 76 71 66 Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% HLV 15% 1 ár 89 84 85 2 ár 81 72 76 3 ár 74 63 68 4 ár 67 56 61 5ár 62 50 56 KJARABRÉF Gengl pr. 22/12 1986 = 1,823 Nafnverð Söluverð 5.000 9.115 50.000 91.150 TEKJUBRÉF Gengl pr. 22/12 1986 = 1,100 Nafnverð Söluverð 100.000 110.000 500.000 550.000 FJÁRFES'l 'INGsXRFÉLA GIÐ ÓSKAR VFÐSKFPTAVFNIFM SÍNIFM GLEÐILEGS ÁRS OG ÞAKKAR VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ T,TF)A: fjármál þín - sérgrein okkar Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 slmsvari allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.