Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
31
4-
I
Flugslysið í Saudi Arabíu:
Fimm öfgasamtök lýsa
ábyrgð á hendur sér
- Oljóst hvað gerðist og hverjir voru að verki
Dhahran, AP.
FIMM öfgamannasamtök írana
eða manna, sem sækja eftir hand-
leiðslu til íran, sögðust hafa
staðið á bak við ætlað rán írask-
rar farþegaþotu, sem brotlenti
við afskekktan eyðimerkurflug-
völl með þeim afleiðingum að 62
menn biðu bana.
Fregnum bar ekki saman um
hvað í raun og veru gerðist, um
fjölda þeirra, sem voru um borð í
þotunni, tölu látinna eða hve marg-
ir flugræningjarnir voru.
Því var haldið fram í Beirút að
orrustuþotur frá Saudi Arabíu
hefðu neytt þotuna, sem var af
gerðinni Boeing-737, til að lenda
og að margir hinna látnu hefðu
beðið bana er hermenn hefðu ráðist
til uppgöngu í flugvélina.
Embættismaður í Saudi Arabíu
sagði hins vegar að flugmennimir
hefðu skýrt frá bilunum í tækjum
flugvélarinnar og að þeir þyrfu að
lenda. Flugvélin hefði síðan skollið
í jörðina einum kílómetra frá eyði-
merkurflugbrautinni í Arar. Við það
Bandaríkin:
Ráðgjafi skipaður
í vopnasölumálinu
Washington, Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hefur skipað sérstakan
ráðgjafa til að skipuleggja og
stjórna tilraunum Hvíta hússins
til að -upplýsa vopnasöluna til
Irans. Reagan fór í gær í vikufrí
til Kaliforníu þar sem hann verð-
ur um áramótin.
David Abshire, sérfræðingur í
utanríkismálum og fyrrum sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Atlants-
hafsbandalaginu, var í fyrradag
fengið það starf að samræma til-
raunir Hvíta hússins til að komast
til botns í vopnasölumálinu og
greiðslunum til skæruliða í Nic-
aragua. í tilkynningu frá Hvíta
húsinu sagði, að Abshire ætti að
sjá til, að þingnefndir fengju þau
svör, sem þær óskuðu eftir, og
myndi hann í þvi efni hafa fullan
stuðning allra ráðamanna í Hvíta
húsinu. Mun Abshire heyra beint
undir forsetann og skýra honum
jafnharðan frá gangi mála.
Reagan og Nancy, kona hans,
. fóru í gær til Kaliforníu en það er
vani þeirra að fagna þar áramótun-
um með vinum og vandamönnum.
hefði hún brotnað í tvennt og eldur
kviknað um borð.
Jórdönsk yfirvöld héldu því fram
að 95 menn hefðu verið um borð
og 30 þeirra hefðu komizt lífs af.
Vamarmálaráðuneytið í Saudi
Arabíu sagði hins vegar að 107
hefðu verið um borð, 91 farþegi og
15 manna áhöfn. Hefðu 62 menn
beðið bana.
Jórdaníumaðurinn Salim Abdel
Dado, sem var farþegi í þotunni,
sagði 9 menn, þ.á m. öryggisverðir
í áhöfn þotunnar, hafa tekið þátt í
fjögurra til fimm mínútna skot-
bardaga um 20 mínútum fyrir
brotlendinguna. Tvær sprengjur
hefðu spurngið meðan á bardagan-
um stóð.
Þotan var á leið frá Bagdað,
höfuðborg Iraks, til Amman í Jórd-
aníu. Jórdanskur embættismaður
hélt því fram að tveir íranir hefðu
gert tilraun til þess að ræna þo-
tunni. Annar þeirra hefði fallið í
skotbardaga við öryggisverði og
hinn beðið bana í brotlendingunni.
Salim Abdel Dado sagði hins vegar
að ræningjamir hefðu verið fjórir
og að tveir þeirra hefðu beðið bana.
Utvarpið í Bagdað sagði mennina
hafa verið tvo. Hefðu þeir flogið til
Bagdað frá Belgrað í Júgóslavíu
og farið um borð í írönsku þotuna
sem biðfarþegar og því sloppið við
strangt öryggiseftirlit. í yfirlýsingu,
sem ríkisstjór Saudi Arabíu sendi
frá sér, sagði að þotan hefði farizt
í nauðlendingu. Ekki var minnzt á
flugrán í yfirlýsingunni. Loks sögðu
áreiðanlegar heimildir í Amman í
Jórdaníu að a.m.k. einn flugræn-
ingjanna hefði lifað lendinguna af
og hefði hann sagt við yfírheyrzlur
að neyða hefði átt flugvélina til að
fara til Damaskus í Sýrlandi og
síðan til Teheran, höfuðborgar Iran.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 244 - 23. desember 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,610 40,730 40,520
St.pund 57,879 58,050 58,173
Kan.dollari 29,506 29,593 29,272
Dönsk kr. 5,4147 5,4307 5,4225
Norsk kr. 5,3978 5,4137 5,3937
Sænsk kr. 5,8915 5,9089 5,8891
Fi. mark 8,3354 8,3600 8,2914
Fr.franki 6,2443 6,2628 6,2492
Belg. franki 0,9848 0,9878 0,9846
Sv.franki 24,4344 24,5066 24,5799
Holl. gyllini 18,1254 18,1790 18,1135
V-þ. mark 20,4891 20,5496 20,4750
Ít.líra 0,02954 0,02962 0,02953
Austurr. sch. 2,9101 2,9187 2,9078
Port escudo 0,2739 0,2747 0,2747
Sp.peseti 0,3030 0,3039 0,3028
Jan.ven 0,24956 0,25030 0,25005
Irsktpund 55,709 55,873 55,674
SDR (Sérst.) 49,1443 49,2892 48,9733
ECU, Evrópum. 42,63643 42,7624 42,6007
Belg. franki 0,9740 0,9769
Sovétríkin:
Námaslys
í Úkraínu
Líklegt talið, að margir hafi farist
Moskvu, AP, Reuter.
NÁMASLYS varð í Úkraínu í
Sovétríkjunum á miðvikudag,
aðfangadag jóla, en ekki hefur
verið skýrt frá hve margir menn
fórust.
Sovéskir fjölmiðlar hafa sagt, að
„manntjón" hafi orðið þegar mikil
gassprenging varð í Yasinovskaya-
Glubokaya-kolanámunni í Úkraínu
en engar upplýsingar hafa verið
gefnar um fjölda látinna. í sjón-
varpinu sagði, að sprengingin hefði
orðið rétt fyrir hádegi á aðfangadag
og að íbúar námabæjarins Makey-
evka syrgðu nú þá, sem látist hefðu
í slysinu.
Miðstjórn kotpmúnistaflokksins
og sovéska stjómin tilkynntu um
slysið og þykir það benda til, að
margir hafi farist. Alexander
Lyashko, forsætisráðherra Úkr-
aínu, hefur verið skipaður formaður
nefndar, sem á að rannsaka slysið,
og sagði hann í sjónvarpsviðtali, að
hið opinbera myndi koma aðstand-
endum hinna látnu til hjálpar.
Að undanfömu hefur sú breyting
orðið á í Sovétríkjunum, að farið
er að skýra frá slysum og öðram
atburðum, sem áður var þagað um.
Sovétríkin:
Drykkjuskapur
fer minnkandi
f
Moskvu, AP.
SOVÉSKA fréttastofan Tass
sagði í gær að sala á áfengum
drykkjum hefði minnkað um 40
prósent fyrstu ellefu mánuði
þessa árs.
í tilkynningu fréttastofunnar
sagði að tekjutap ríkissjóðs sökum
þessa hefði skilað sér til baka þar
sem dregið hefði úr glæpum og slys-
um auk þess sem verkamenn hefðu
mætt betur til vinnu sinnar. Sala á
ávaxtadrykkjum og gosi var sögð
hafa aukist að sama skaþi.
Gorbachev Sovétleiðtogi hratt af
stað herferð gegn drykkjuskap
landa sinna í mai á síðasta ári.
Dregið var stórlega úr framleiðslu
áfengis auk þess sem opnunartímar
áfengisverslana og veitingastaða
vora takmarkaðir.
Samkeppni Alafoss um
hönnun á handprjóna-
peysum.
Ágæti þátttakandi:
Við höfum ákveðið að
verða við þeim fjölmörgu
áskorunum sem við höfum
fengið og framlengja skila-
frest til 20. janúar n.k.
Okkur þykir leitt að þurfa
að fresta verðlaunaaf-
hendingu og vonum að
þessi dráttur valdi ekki
óþægindum.
Þeir sem vilja slást í hóp-
inn geta fengið nánari
upplýsingar hjá hand-
prjónadeild Álafoss í síma
666306.
Með bestu kveðjum og
óskum um gleðileg jól.
^llafoss
Pósthólf 1615 121 Reykjavík