Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
35
Jólatréð sem er gjöf frá vinabæ Stykkishólms í Noregi.
Stykkishólmur:
Jólatré frá Drammen í Noregi
Stykkishólmi.
MIÐVIKUDAGINN 17. des. var
kveikt á hinu stóra og fagra jóla-
tré sem Drammen í Noregi,
vinabær Stykkishólms, sendi íbú-
um hans fyrir jólin. Aður hafði
þessi athöfn verið boðuð á þriðju-
dag en þá var óveður og því
slegið á frest. A miðvikudag var
stillt veður og rétt fyrir athöfn-
ina kom snjódrífa og gerði allt
miklu jólalegra. Fjöldi fólks var
mættur í Hólmgarð, skrúðgarð
Hólmara, þar sem tréð hafði ver-
ið reist og stóð albúið.
Athöfnin hófst kl. 18 með því
að Lúðrasveit Stykkishólms undir
stjóm Daða Þ. Einarssonar lék
ýmis lög og síðan kirkjukórinn und-
ir stjórn Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Á dagskrá voru jólalög í miklum
meirihluta. Þá tók Ellert Kristins-
son oddviti til máls og veitti jólat-
rénu viðtöku og bar fram þakkir
fyrir rausnarlega og árvissa gjöf.
Leiðrétting
Nokkrar setningar féllu niður við
birtingu greinar Boga Ingimarsson-
ar í Morgunblaðinu sl. miðvikudag.
Birtist sá kafli greinarinnar á ný.
Hinar feitletruðu setningar féllu
niður:“Ég er þeirrar skoðunar, að
tómt mál sé að tala um Borgarspít-
alann sem borgarstofnun eftir að
hann er kominn á fjárlög ríkisins.
Slík stofnun getur aldrei verið nein
borgarstofnun. Myndu Revkvíking-
ar sætta sig við það, að Strætis-
vagnar Reykjavíkur, Vatnsveitan,
Hitaveitan, Félagsmálastofnun o.fl.
o.fl. yrðu sett á fjárlög ríkisins? Að
vísu getur ríkið sagt: Við borgum
ekki krónu í rekstrarkostnaði þess-
ara stofnana en við borgum 90% í
rekstri Borgarspítalans og því eðli-
legt að rekstrarkostnaður hans sé
ákveðinn á fjárlögum ríkisins. Þeg-
ar ríkið hefur síðan einhliða ákveðið
að setja Borgarspítalann á föst
fjárlög er jafnframt eðlilegt að
það beri ábyrgð á rekstri hans
og sljórnun.
Það er hins vegar ekki nauðsyn-
legt að setja Borgarspítalannund-
ir stjórn ríkisspítalanna, þ.e.
Landspítalans o.fl., heldur ætti
Borgarspítalinn að verða sjálfstæð
ríkisstofnun. Smærri einingar eru
miklu hagkvæmari heldur en stórar
einingar, ekkert síður í opinberum
rekstri en einkarekstri. Þannig fæst
líka betri samanburður. Þessi leið
útilokar það alls ekki, að hægt sé
að samræma og gera rekstur stóru
spítalanna í Reykjavík, þ.e. Lands-
pítala, Landakotsspítala og Borg-
arspítala, hagkvæmari. Þessir
spítalar þjóna sjúklingum hvað-
anæva af landinu, t.d. voru u.þ.b.
34% sjúklinga, sem vistuðust á
Borgarspítala 1985 búsettir utan
Reykjavíkur skv. upplýsingum úr
ársskýrslu Borgarspítalans.
Hann minntist þess einnig að nú
væri kirkjukórinn senn á leið til
Betlehem og myndi syngja þar um
jólin og í förinni væru fleiri Hólmar-
ar. Óskaði hann þeim góðrar ferðar.
Eftir ræðu Ellerts voru ljósin tendr-
uð á jólatrénu og lúðrasveitin lék
þjóðsöng Norðmanna. Um það leyti
bar að gesti kvöldsins, nokkra jóla-
sveina í fallegum búningum með
poka á baki og þá kom nú aldeilis
fjör í barnahópinn sem þarna var
mættur í tugatali. Andlitin ljómuðu
bæði á ungum og öldnum.
Þá má geta þess að Kvenfélagið
Hringurinn hafði sölu á heitu kakói
í húsi sínu þarna í garðinum og var
það vel notað af viðstöddum.
Bók um
lífrænar
lækningar
KOMIN ER út hjá Iðunni bókin
Heilbrigði og velliðan eftir dr.
Paavo Airola. Arngrímur
Arngrímsson þýddi.
í kynningu forlagsins á bókinni
segir: „Hér er fjallað um hvemig
fæðuval, fjörefni, fasta, lækninga-
jurtir og -böð og ýmsar aðrar
óskaðlegar aðferðir stuðla að bættri
heilsu, lengri og betri lífdögum.
Fjallað er um flesta algengustu
sjúkdóma og kvilla í vestrænum
samfélögum og leiðir til að ráða bót
á þeim með lífrænum lækningaað-
ferðum, sem þrotlausar rannsóknir
og reynsla hafa sannað að komi að
gagni.
Heilbrigði og vellíðan er ein besta
handbók um lífrænar lækningar
sem gefin hefur verið út. Læknar,
vísindamenn, næringarfræðingar
og fjölmargir áhugamenn hafa ein-
róma lokið lofsorði á hana og hún
hefur hlotið miklar vinsældir og
víðtæka útbreiðslu um allan heim.“
Einingabréf III eru handhafabréf alltaf
laus til útborgunar og gáfu á síðastliðnum
4 mánuðum 3297o ávöxtun.
Með kaupum á hlutabréfum
Hlutabréfasjóðsins hf, fyrir áramót
lækkar þú tekjuskatt þinn á næsta ári.
Opið til kl.12 gamlársdag
Kaupþing hf. óskar landsmönnum
gleðilegrar hátíðar og
farsældar á komandi ári.