Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 36

Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 36
 36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 WILLIAM HURT „Hann er tauga veiklaður enda kemurhannfrá Bandaríkjunum, landi sem elur af sér taugaveiklað fólk,“ segir kvikmynda- Ieikstjórinn Hector Babenco um vin sinn William Hurt. William Hurt er óvenjulegur leikari í þeim skilningi að hann kýs að leika í aðeins þeim myndum sem hann telur merkilegar, hann velur einungis þau hlutverk sem gera kröfur til hans sem leikara. Hann getur ekki hugsað sér að leika í mynd sem ekkert reynir á listræna hæfíleika hans og kom það berlega í ljós þegar brasilíski leikstjórinn Hector Babenco bauð honum að leika hommann Molina í „Kossi köngurlóarkonunnar". Hurt hafði fengið þijú gimileg til- boð frá Hollywood og loforð um eina milljón dala fyrir hveija mynd, en hann kaus frekar að leika hommann Molina „fyrir örfá- ar krónur“, eins og Babenco sagði sjálfur. Lífið er ekki svart og hvítt, heldur grátt Hann er heimsþekktur en sjálf- . ur segist hann ekki vera nein stjama úr himinhvolfi Hollywood, veit ekki einu sinni hvað það er. Hann spratt fram á sjónarsviðið árið 1980, þrítugur að aldri, þegar hann lék í mynd Kens Russell, „Altered States". Það er harla óvenjulegt að leika aðalhlutverk í sinni fyrstu kvikmynd. Síðan hefur hann leikið svo að segja í einni mynd á ári: hann lék á móti Kat- hleen Tumer í „Body Heat“ eftir Lawrence Kasdan árið 1981; árið eftir lék hann með Sigoumey Weaver í „Húsverðinum" (ýmist kölluð The Janitor eða Eyewit- ness) eftir Peter Yates; tók aftur saman við Kasdan árið 1983 þegar - þeir og sex aðrir leikarar sömdu óð til 68-kynslóðarinnar, „The Big Chill"; tvö ár liðu þar til „Koss köngurlóarkonunnar" var frum- sýnd í Cannes og Hurt var kosinn besti karlleikari hátíðarinnar og hlaut Óskarinn fyrir sömu mynd nákvæmlega ári síðar; og svo lék hann í kvikmyndaútgáfunni af „Children of a Lesser God“, leikrit- inu sem sýnt var í Iðnó undir heitinu „Guð gaf mér eyra“. Sam- býliskona Hurts leikur heymar- lausu stúlkuna í myndinni. Og hann hefur nýverið lokið við að leika í mynd sem nefnist „Destiny" undir stjóm Gregory Nava og var ' tekin að mestu í Austur-Evrópu. Það verður því vart annað séð en að William Hurt sé eftirsóttur meðal handritshöfunda og kvik- myndaskálda, þrátt fyrir orðið sem fer af honum sem óstýrilátum manni, leikara sem gerir tak- markalausar kröfur um listræna nákvæmni. Slíkir menn eru ekki vel séðir á öllum bæjum, enda er það eftirtektarvert hvað Hurt sæk- ir mikið út fyrir Hollywood. Lawrence Kasdan, sem er einn besti vinur Hurts, segir að William Hurt sé mjög hlédrægur, nánast feiminn, en telur jafnframt að í slíkum leikurum (DeNiro er alveg eins) búi gífurleg orka sem fái stórkostlega útrás í leiklistinni. Hurt forðast sviðsljósið og veitir sjaldan blaðaviðtöl. Hann sér ekki Hurt lék eiturlyfjasjúkling í „The Big Chill“ eftir Lawrence Kasdan, einni merkustu kvikmynd siðari ára. tilgang í þeim. Hann veitti þó bandaríska kvikmyndatímaritinu American Film viðtal síðastliðið sumar og í því tjáði hann sig um Ieiklist. Hurt hefur ákveðnar skoðanir á leiktækni. Hann segist aldrei fara inn í persónuna sem hann leikur (eins og DeNiro gerir), því það sé sjúklegt, hann sé ekki kleyfhugi. Hann segist einungis túlka ákveðnar persónur sem hann telur að eigi sér enga stoð í raunveru- leikanum. Hann er miklu snoknari fyrir utangarðsmönnum. „Það er miklu heiðarlegra að mínu mati,“ segir hann. „Það er sama hvar í heiminum þig ber nið- ur, þú sérð aðeins jarðbundið fólk. Ég vil ekki gera fólk stærra en það er. Ég get, samvisku minnar vegna, ekki túlkað ménn sem handritshöfundur hefur magnað upp, stækkað og gert óraunveru- lega. Lífíð er ekki bara svart og hvítt. Lífíð er grátt. Mikið hlýtur lífíð í svörtum og hvítum heimi að vera dapurt. Mér líður best William Hurt og Kathleen Turner léku saman í „Body Heat“ eða Blóðhita eins og hún nefndist á íslensku. þegar enginn þekkir mig, þegar ég get gengið um götur með gler- augun mín, ógreitt hár, í snjáðum gallabuxum. Ég er eins ólíkur Burt Reynolds og hugsast getur.“ Trúverðugfar persónur Hector Babenco vildi fá öldung- inn Burt Lancaster til að leika hommann Molina í „Kossi köng- urlóarkonunnar" en Burt var veikur, svo Babenco datt William Hurt í hug, enda var hann þá nýbúinn að lesa stórmerkilegt við- tal við hann í Rolling Stone. Babenco og Hurt hittust, ræddu saman um bókina sem myndin er byggð á, og þá var ekki aftur snúið. Babenco sagði síðar að þeir Hurt væru ótrúlega líkir að eðlis- fari, hann væri að vísu dálítið of taugaveiklaður fyrir sinn smekk, en það væri skiljanlegt þar sem Hurt kæmi frá Bandaríkjunum. „Það var ekkert furðulegt þótt Babenco vildi fyrst fá Burt Lanc- aster og síðan mig þegar Lancast- er veiktist," segir Hurt. „Aldursmunurinn skiptir engu, því myndin fjallar um persónur (homma og uppreisnarmann) sem er að finna í öllum löndum heims, það er að segja myndin fjallar um mannlegt eðli. Molina getur verið tvítugur, þrítugur eða fertugur, og því ekki sjötugur? Það sama á við um samfanga hans, Valentín. Það skiptir í rauninni heldur ekki máli hvort annar þeirra er hommi. Myndin fjallar um mannskepnuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.