Morgunblaðið - 28.12.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
37
nakta, hvernig við dæmum fólk.
Við kynnumst fólki sem okkur
líkar, en líkar svo ekki þegar við
komumst að innra eðli þess. Sumt
fólk er of róttækt að okkur finn-
ist, okkar líkar ekki eitthvað í fari
þess, og þá viljum við ekki um-
gangast það.“
William Hurt var ráðlagt af vin-
um og kunningjum innan leikara-
stéttarinnar að leika ekki í
myndinni, þar sem persónan væri
hommi. Hurt hlustaði ekki á þessi
vinaráð. Hann hafði áður leikið
homma á sviði, það var í leikritinu
„Fimmti júlí“.
„Allir góðir leikarar hafa leikið
homma eða lesbíur og það er ekk-
ert launungarmál lengur að
margir leikarar eru hommar eða
lesbíur," segir Hurt.
Honum finnst almenningur hafa
horft um of á hommann í persónu
Molina og uppreisnarmanninn i
Valentín. Hurt leit á þessar per-
sónur sem vini, enda segir hann:
„Það sem heillaði mig við þessa
sögu voru andstæðurnar í mönn-
unum tveimur þegar þeir kynnast,
en skiljast sem nánir vinir. Það er
í gegnum vináttuna sem þeir upp-
götva sjálfsvirðingu. Það finnst
mér stórkostlegt. Þessir menn,
Molina og Valentín, vita í raun
ekki hveijir þeir eru við upphaf
sögunnar, en nálgast sannleikann
eftir því sem þeir bindast sterkari
vináttuböndum. Þeir brotna ekki
niður, heldur gerir dvölin í fanga-
klefanum þá sterkari einstaklinga
en áður.“
Það er mál manna að túlkun
Hurts á Molina sé fyrsta sann-
verðuga túlkun á homma í
bíómynd. Svo vel tekst Hurt upp
að margir hafa haldið að hann sé
hommi sjálfur. William Hurt er
ekki hommi, en það er vitaskuld
aukaatriði. Það sem skiptir máli
er hvemig hann túlkar persónur
sínar og hvernig honum tekst til.
Vinirnir sem réðu honum frá að
leika Molina vom ekki upplits-
djarfir þegar Hurt fékk Óskarinn;
það var söguleg stund, því það var
í fyrsta skipti sem Hollywood tek-
ur homma alvarlega.
Hurt réðst til atlögu við Molina
á sama hátt og hann hefur túlkað
allar hinar persónumar. Hann vill
gera þær trúverðugar, sannar.
Hann er mjög upptekinn af ein-
staklingnum andspænis gini
heildarinnar. Hann vill túlka og
sýna allt litróf mannskepnunnar,
niðurbeygt og auðmýkt (eins og
dópistann í The Big Chill og hom-
mann í Kossinum) jafnt sem
kennara og virta lögfræðinga (í
Guð gaf mér eyra og Body Heat).
Þegar þetta er ritað er ekki vit-
að með vissu hvaða verkefni
William Hurt velur sér næst, en
til greina kemur að hann leiki
aðalhlutverkið í mynd sem Michael
Cimino langar að gera eftir smá-
sögu Tmmans Capote, sem nefnist
„Hand Carved Coffins", sem allt
eins má kalla Útskomar líkkistur.
HJÓ
Nærmynd af hjólabúnaði Fokker
Friendship-vélarinnar eftir lendingu.
Flugvellinum margsinn-
is lokað vegna aurbleytu
FLUGVELLINUM á Egilsstöðum
hefur verið lokað fjórum sinnum
það sem af er þessum mánuði
vegna aurbleytu. Að sögn Ingólfs
Arnarssonar, umdæmisstjóra
Flugmálastjórnar á Austurlandi,
er völlurinn í raun ófær vegna
þessa mun oftar, en flug er þá
fellt niður af öðrum ástæðum.
„Þetta vandamál er viðloðandi
nær alla flugvelli landsins. Við
íslendingar höfum aðeins mal-
bikað tvo flugvelli, á Akureyri
og Rifi, en sjáum ekki sóma okk-
ar í að halda neinum þeirra við,“
sagði Ingólfur.
Aurbleytan á Egilsstöðum mynd-
ast oftast á veturna þegar efsta lag
flugbrautarinnar þiðnar skyndilega,
gjarnan í rigningu. Vatnið getur
þá ekki runnið ofan í jarðveginn
né af flugbrautinni því hún er renni-
slétt. Fyrir nokkm varð Fokker
Friendship flugvél frá Flugleiðum
innilyksa vegna aurbleytu. Komst
hún ekki frá Egilsstöðum fyrr en
sólarhring síðar, en farþegarnir
sátu eftir með sárt ennið því vélin
gat ekki tekið á loft með þá innan-
borðs. Að sögn Ingólfs er ástandið
líkt þessu á fleiri stöðum á landinu
um þessar mundir vegna óvenjulegs
tíðarfars. Stærri flugvélar geta til
að mynda ekki lent á Höfn í Homa-
firði, og ísafjarðarflugvöllur var
lokaður í heila viku, eins og kunn-
ugt er.
Ingólfur sagði að nú hefði verið
gerð áætlun um lagningu nýrrar
flugbrautar á bökkum Lagarfljóts.
Að meðtöldum tækjabúnaði yrði
kostnaður við þessar framkvæmdir
um 180 milljónir króna. Kostir hins
nýja brautarstæðis væru margir,
þar á meðal yrði aðflugið að flug-
vellinum beint, en nú þurfa flugvél-
ar að taka tuttugu gráðu beygju í
lokastefnu og eru flugmenn ekki
hrifnir af því. „Skýrsla flugmála-
nefndar sem nú liggur fyrir Alþingi
er í raun fyrsta plaggið sem byggj-
andi er á um viðreisn flugvalla á
Islandi. Þar er gert ráð fýrir því
að framkvæmdir við Egilsstaða-
flugvöll myndu taka þijú ár. Núrla
er undir þingmönnum komið hvort
þessu yrði hmndið í framkvæmd."
Um Egilsstaðaflugvöll fór á
síðasta ári 50.771 farþegi, en þang-
að er líka flutt meiri fragt en á
aðra flugvelli landsins. A Akureyri
voru farþegar rúmlega 100.000, í
Vestmannaeyjum um 50.000, og á
ísafirði um 44.000.
Suðurnesjamenn fjölmenntu til að gefa blóð eins og á undanförnum
árum.
Fáni Rauða krossins blakti við hún við hús skátanna Heiðabúa í
Keflavík.
Keflavík:
Suðumesjamenn brugðust vel
við blóðsöfnun Blóðbankans
Keflavík.
AÐ VENJU brugðu Suðurnesja-
menn fljótt og vel við þegar
starfsfólk Blóðbankans kom með
tól sín og tæki í árlegri blóðsöfn-
un í Keflavík fyrir skömmu. Á
milli 160 og 180 manns komu til
að gefa blóð og lætur nærri að
safnast hafi um 70 lítrar af blóði.
Fyrir tveim árum komu 238
manns á sama degi í söfnun Blóð-
bankans í Keflavík og hefur það
met ekki enn verið slegið. Raunar
hafa flestir blóðgjafar á einum og
sama deginum verið í Keflavík und-
anfarin 15 ár.
Rauði krossinn á Suðurnesjum
sá um alla skipulagningu og að
blóðgjafar fengju nægju sína af
kaffi og meðlæti. Vaskir menn frá
björgunarsveitinni Stakki sáu um
að fólk þyrfti ekki að ganga og
Skátafélagið Heiðabúi lánaði hús-
næði.
- BB
Árni V. Árnason f.v. formaður
Rauða kross Suðurnesja notaði
nýjustu tækni, þráðlausan sima,
við að smala fólki og núverandi
formaður Gísli Viðar Harðarson
sá um að bakkelsi skorti ekki.