Morgunblaðið - 28.12.1986, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
t
Eiginmaður minn, tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi,
SVANUR RÖGNVALDSSON,
Ferjubakka 8,
lést af slysförum 25. desember.
Fríða Gústafsdóttir,
Gústaf Gestsson,
Steinunn Svansdóttir, Gunnar Bjarnason,
Sjöfn Svansdóttir, Örn Óskarsson,
Gústaf Bjarni Svansson,
Rúnar Guðjón Svansson,
Jóhanna Svansdóttir
og barnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
INGiBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
lést á heimili sínu, Meistaravöllum 23, að morgni 25. desember.
Ingvi Matthias Árnason
og börn.
Eiginmaður minn, t GÍSLI JÓNSSON,
Nökkvavogi 9,
andaðist 25. desember í Landakotsspítala.
Fyrir hönd ættingja, Guðríður Ástráðsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
AXEL EINARSSON,
verður jarðsunginn mánudaginn 29. desember frá Dómkirkjunni
kl. 13.30.
Unnur Óskarsdóttir,
Kristín Axelsdóttir, Einar G. Guðjónsson,
Svanhvít Axelsdóttir, Arnar Gislason,
Einar Baldvin Axelsson,
Óskar Þór Axelsson,
Unnur Eva, Berglind Ósk og Axel.
1 Faðir okkar, h
KRISTJÁN JÓHANNSSON
frá Skógarkoti,
Dalbraut 21,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 30. desember kl.
15.00.
Bragi Kristjánsson, Hafsteinn Kristjánsson, Sigurður Kristjánsson, Rósa Ottósdóttir, Ingunn Lárusdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir,
Sigri'ður Kristjánsdóttir, Jón Ármann Sigurjónsson,
Jóna Kristjánsdóttir, Gunnar Árnason.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ,
PÉTUR INGJALDSSON,
Miðbraut 19,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 30. desember kl. 13.30.
Guðfinna Ingimarsdóttir,
Erlendur Pétursson, Elfsabet Arnoddsdóttir,
Ragnheiður Pétursdóttir, Eiríkur Karlsson,
Ingjaldur Pótursson, Steinunn Hermannsdóttir,
Ásdis Pétursdóttir Jóhann Hákonarson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóöir,
SVAVA VIGGÓSDÓTTIR,
Ásgarði 131,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginnn 29. desember
kl . 13.30.
Guðmundur
Helgi Magnússon,
Ágústa Magnúsdóttir,
Ástrós Guðmundsdóttir,
Eygió Guðmundsdóttir,
Magnea Guðmundsdóttir,
Helgason,
Guðrún Björnsdóttir,
Gunnar Gunnarsson,
Páll Björgvinsson,
Bragi Kristinsson,
Guðmundur Sfmonarson.
Minning:
Axel Einarsson
Einarssyni verið falin fjöldi trúnað-
arstarfa fyrir Flugleiðir. Hann
hefur verið lögfræðilegur ráðunaut-
ur við ýmsa meiri háttar samninga-
gerð við erlenda aðilja, þ. á m.
varðandi kaup nýrra flugvéla, leigu-
samninga, svo og ýmiss konar
samninga varðandi erlendar lántök-
ur.
Hann sat í varastjórn Flugleiða
á upphafsárum félagsins 1973—76
og hefur frá þeim tíma gegnt störf-
um ritara á stjómarfundum félags-
ins. I sambandi við þessi störf sín
hefur Axel setið á þriðja hundrað
funda stjórnar félagsins.
Hann sat í stjóm Ferðaskrifstof-
unnar Úrvals allt frá stofnun
félagsins árið 1970 og fyrstu tíu
árin sem stjómarformaður. Þá átti
hann sæti í stjórn Hótels Esju ára-
bilið 1974-83.
011 þessi störf sín fyrir Flugleiðir
hefur Axel rækt af einstakri kost-
gæfni og vandvirkni. Holl vom ráð
hans við úrlausn þeirra fjölbreyttu
viðfangsefna, sem á hveijum tíma
þurfti að glíma við.
Fyrir hönd starfsmanna Flug-
leiða minnist ég ómetanlegra starfa
Axels Einarssonar fyrir félagið, og
votta frú Unni og börnum þeirra
okkar dýpstu samúð.
Sigurður Helgason
forstjóri
Vinur minn, Axel Einarsson hrl.,
varð bráðkvaddur síðla 19. desem-
ber sl.
IJm áramótin 1969/70 hóf ég
störf að undirbúningi stofnunar
Ferðaskrifstofunnar Úrvals hf. sem
skyldi verða eign Flugfélags íslands
og Eimskipafélags Islands. Er fé-
lagið var stofnað í febrúar 1970
var Axel Einarsson kjörinn formað-
ur stjórnar og gegndi því starfi í
10 ár.
Upp frá því hófst samstarf mitt
við einn þann heilsteyptasta og
ráðabesta einstakling, sem ég hef
átt samskipti við. Hann var traustur
bakhjarl við uppbyggingu félagsins,
og umgengnin og manneskjuleg-
heitin við allt starfsfólkið var með
þeim hætti að engum gleymist. Er
hann birtist á skrifstofunni gaf
hann sér tíma til að kasta kveðju
og spyija fólkið um heimilishagi
fyrst og síðan hvemig viðskiptin
gengju.
Okkar bestu stundir varðandi
viðskipti voru upp úr kl. sjö á
morgnana, hann tók daginn
snemma og vissi að friðurinn á
morgnana gaf möguleika á miklum
afköstum. Onnum kafínn fann hann
ávallt tíma til að ræða málin, hann
var maður sátta og þurfti oft að
bera klæði á vopnin. Það að bera
klæði á vopnin var honum eðlilegur
hlutur, bera sáttarorð eða finna
lausnir á ágreiningi og vandamál-
um, sem upp komu, var hans
sérgrein. Það var ekki hlaupið upp
til handa og fóta, málin voru rædd
og grunduð, hlustað á alla aðila
áður en besta lausnin fannst. Það
var honum örugglega ekki alltaf
létt í frumbemsku Úrvals að halda
aftur af undirrituðum, er var þá
lítt kunnur innviðum móðurfélag-
anna, og fannst hjólin ekki ávallt
snúast í rétta átt.
Vísnaþáttur
Hjálmar Jónsson
„Jólaeldur
innriþinn...“
í Andvökum Stephans G.
Stephansonar er að finna jóla-
kveðju skáldsins til Jóns frá
Sleðbijót:
Jólaeldur innri þinn
út yfir kvcld þitt logi.
Skuggaveldin aldrei inn
að þér heldur vogi.
Brynjólfur Jónsson frá Minna-
núpi yrkir í andstreymi:
Drottinn blíður bregst ei mér
bijóst nær kvíðinn þreytir.
Reynslutíðin fram hjá fer
frið hann síðan veitir.
Sveinn Sveinsson frá Sigluvík
hafði þessa aðvörun fram að færa:
Dimma tekur af deginum
dettur sá er hleypur.
Varaðu þig á veginum
víða er hann sleipur.
Páll lögmaður Vídalín orti við
Björn meistara Þorleifsson, bisk-
up á Hólum (d. 1710):
Nú er ég orðinn frí og fijáls
fyrir mér dvelur engi.
Leggi þér Kristur hönd um háls,
hann sé vin þinn lengi.
Ásgrímur Kristinsson frá Ás-
brekku yrkir svo um jólahaldið
og það sem honum þykir breytt
frá því sem hann áður mundi:
Enn eru komin íslensk jól,
allt er birtu vafið.
Gleðst ég er hin gyllta sól
gægist yfír hafið.
Búðargluggar glitra af
glingri og tildurspjörum
Hvem einn dag, sem Drottinn gaf
drykkja er þreytt á börum.
Flesta hefur fjárhlut dreymt
fegri húsakynni.
En mannkærleika margir gleymt
mitt í velgengninni.
Þjóð er slíkum fimum fer,
fölna jólavakan.
Jesú blessað bamið er
borið út á klakann.
Ungt skáld og efnilegt heitir
Sigurður Ingólfsson og býr á
Akureyri. „Jólakveðjur til vinar
míns“ er að finna í ljóðabók hans,
Húm, er kom út á árinu: ^
I skammdegi og kulda er skelfur mín sál
ég skyggnist í himnanna dýrð.
Því Drottinn í kuldanum kyndir upp bál
þess kærleika er breiðir út friðarins mál.
Ó, Drottinn, þú gefur oss gleðileg jól
og gráti í hamingju snýrð.
Og síðar:
Er heimur grætur grimmd og stríð
svo grillir rétt í von
þá gefa jólin brosin blíð
og birtu - mannsins son.
Jónas Jónasson frá Torfmýri
orti þessa vísu um góð áform sín
eftir að honum opinberast gull-
væg sannindi. Því miður eru mér
ekki kunn frekari tildrög vísunn-
ar:
Drottinn trúa einan á
eyðir grúa meina.
Hjarta snúa heimi frá
hyggst ég nú að reyna.
Þau orð og áform vona ég að
séu allra þeirra, sem þátt þennan
lesa. Gleðileg jól.
Sérstakar síður yrði að skrifa um
umhyggju hans fyrir eigin fjöl-
skyldu. Heimilið var honum heilagt
og þar vildi hann vera í friði fyrir
önnum dagsins. Fjölskylduböndin
eru sterk, ekki aðeins heimilisfólkið
heldur og við allt nánasta skyldfólk.
Samspil og falslaus ást þeirra hjóna
verður öllum eftirminnileg, sem
fengu að kynnast.
Með fjölskyldum okkar treystust
böndin með árunum. Við höfum
ásamt konum okkar átt margar
ánægjustundir bæði innanlands og
utan og hugurinn staldrar þar frek-
ar við í dag þótt aðstoð og hjálpsemi
í starfi verði seint þökkuð, nema
með því að halda slíku merki á lofti
á tímum þar sem manneskjan og
manneskjulegheitin í viðskiptum
eru á hröðu undanhaldi.
Góðu vinir Unnur, börn, tengda-
synir og barnabörn, lífið heldur
áfram, merkið stendur, tíminn
græðir sárin. Eg efast ekki um
styrk ykkar og samheldni á erfiðum
tímum.
Búandi í erlendu landi finnst
manni dags daglega vegalengdir
vera stuttar, maður fær fregnir af
atburðum heimalandsins, maður
samgleðst í huganum með vinum
og kunningjum vegna hátíða, en
þegar harmafregnir berast verða
vegalengdir lengri og mátturinn
minni. Eg þakka fyrir að forlögin
sendu mig heim til jólahalds í fyrsta
skipti í þijú ár — skuggi fellur á
jólahald — en mér auðnast að fylgja
honum síðustu sporin.
Fyrir mína hönd og fjölskyldu
minnar ásamt gömlu Úrvals-fólki,
þökkum við forsjóninni fyrir okkar
stundir með góðum vini, Axel Ein-
arssyni, felum hann skapara vorum
og biðjum Qölskyldu hans guðs
blessunar.
I gömlu Kristianiu á Þorláki,
Steinn Lárusson.
Starfsfólk íslenskra getrauna var
harmi slegið er sú fregn barst til
okkar á hádegi laugardaginn 20.
des. að Axel Einarsson væri látinn.
Við væntum hans á mánudeginum
eins og venjulega til að yfirfara
vinningsseðla.
Axel Einarsson var eftirlitsmað-
ur íslenskra getrauna frá 1969
þegar starfsemi hófst á ný og allt
til dauðadags. Áhugi hans á knatt-
spyrnu, ekki síst ensku knattspyrn-
unni, hefur líklega ráðið því að
hann fékkst til þessa starfs og
sinnti hann því af einstakri alúð og
samviskusemi alla tíð. Það sem
helst einkenndi Axel og kom fram
í samskiptum okkar var heiðarleiki
í hvívetna, góð kímnigáfa og sann-
girni hans í erfiðum málum var
sérstök. Þó Axel kæmi til okkar sem
opinber eftirlitsmaður náði áhugi
hans á vexti og viðgangi fyrirtækis-
ins langt út fyrir mörk skyldustarfs-
ins.
Sár er söknuður okkar, en sárari
nánari ættingja og viljum við votta
eiginkonu, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum okkar innilegustu
hluttekningu.
Stjórn og starfsfólk
Islenskra getrauna.
Friöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
^tk