Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 47

Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGTTR 98 rtRSRMRER 1986 47 Silki og náttúruefni í hávegum höfð Markus - tískuhús opnað Þótt ótrúlegt megi virðast er þetta prjónaflík, hvít Hér er annað pils samansaumað úr silki, en blússan með fjölskrúðugum litum. Við hana er svart pijóna- er tvöföld að framan og að sjálfsögðu úr silki. pils. Þessi föt eru frá Uta Raasch og eru svört. Segja má að peysan sé „ein með öllu“, því að festin er saumuð í hana. Peysan, eins og pilsið, er úr silki. Morgunblaöið/Einar Falur Þessi peysa er prjónuð úr blöndu af silki og moha- ir, en piisið er saumað saman úr silkirenningum. Skömmu fyrir jól var opnuð ný tískuvöruverslun hér í bæ og bar hún nafnið Markus — tískuhús. Verslunin er í gamla miðbænum, nánar tiltekið í usturstræti 10, fjórðu hæð. Það eru hjónin Guðlaug Jónsdóttir og Ásgeir Ebenezersson sem eiga verslunina, en til kynning- ar á þeirri vöru, sem þau hafa á boðstólum, héldu þau tískusýningu að Hótel Borg hinn 18. þessa mán- aðar. Morgunblaðið var til staðar og forvitnaðist við Guðlaugu um strauma og stefnur í tískunni í ár. Hún sagði að greinilegt væri að náttúruefni, s.s. silki, væru í mikilli sókn og einnig að dýr og vönduð föt, væru orðin algengari. „Islend- ingar eru almennt séð mjö vel klæddir, séu þeir bornir saman við næstu nágranna og eru þeir þó al- mennt ekki sakaðir um auraleysi. íslendingar eru alveg tilbúnir til þess að borga vel fyrir falleg föt, en þeir vilja líka fá eitthvað fyrir peningana og sjá til þess að þeir eru ekki snuðaðir.“ Að sögn Guðlaugar er fólk ófeimnara við að klæða sig upp dags daglega en áður. „Kvenfatn- aður nútímans miðast gjaman við að hægt sé að stunda vinnu í honum að degi til, en samkvæmislíf að kvöldi." Sem fyrr segir eru náttúru- efni ýmis mjög vinsæl, en skartgirni er það greinilega líka, því að mikið er um hálsfestar, nælur og beltis- sylgjur. Þá er nokkuð um það að skraut sé saumað í fatnaðinn. Hvað um það, sjón er sögu ríkari. ©PIB COSPER * * %sad -/Q393 -ll'. C0SPE.R -íU. 4, r".....- ^ ] * C05PER VOGIN: SEM e TELUR ÞÚ ERT MARGFAIT FLJÓTARI AÐ TELJA MEÐ ÞESSARI VOG, SEM ER MJÖG EINFÖLD í NOTKUN. ÞESSAR VOGIR ERU NÚ ÞEGAR í NOTKUN VIÐ AÐ TELJA: SKRÖFUR, FITTINGS OG ÝMSA STYKKJAVÖRU AUK ÞESS SEM ÞÆR HJÁ VOGUE TELJA METRA Á EFNISSTRÖNGUM. VOGIN NÝTIST EINNIG SEM VENJULEG VOG FYRIR VIGTUN Plastos liF KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.