Morgunblaðið - 28.12.1986, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.12.1986, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. BESEMBER 1986 Reykvíkingar Verslið víÓ vana menn Flugeldamarkaöir: Skátabúðin við Snorrabraut Fordhúsið, Skeifunni Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Suðurlandsbraut 12 Verslunarmiðstöðin Mjódd, Breiðholti Seglagerðin Ægir, Örfirisey Mazdahúsið, Fosshálsi 1 Við Miklagarð Við Staldrið, Breiðholti Við Þjóðarbókhlöðuna, Melatorgi Hjálparsveit skáta Reykjavík 5 Fáskrúðsfj ör ður: Næg atvinna og bygginga- framkvæmdir að hefjast Fáskrúðsfirði. HÉR var undirbúningur jóla með hefðbundnum hætti, sett voru upp sex jólatré í bænum og er það heldur fleiri en áður hefur verið. Veður var gott síðustu daga fyrir jól eftir heldur risjótt tíðarfar í desember, færð á veg- um góð og fólk notaði sér það MÍR: Þrjár fræðslu- myndir frá Sovétríkjunum Sunnudaginn 28. desember kl. 16.00 verða sýndar þrjár fræðslumyndir frá Sovétríkjun- um í bíósal MÍR að Vatnsstig 10 og verða þær allar með skýring- um á íslensku. Ein myndanna lýsir framförum á sviði iðnaðar í Sovétríkjunum, önn- ur ijallar um sovéska afreksmenn í íþróttum sem komið hafa frá sveitahéruðum landsins og þriðja myndin er frá Vestur-Síberíu. Að- gangur að kvikmyndum MIR er ókeypis og öllum heimill. Jólahraðskák- mót Taflfélags Kópavogs HIÐ árlega jólahraðskákmót Taflfélags Kópavogs verður haldið í dag, 28. desember, kl. 14.00 í Kópavogsskóla. Vegleg verðlaun verða í boði á þessu skákmóti og hefst mótið eins og áður segir kl. 14.00. (Fréttatilkynning) óspart notað til að ferðast til nágrannabyggðarlaga til að versla og hitta kunningja. Hér var opnuð ný verslun er hlaut nafnið Brekkubær, þar er verslað með fatnað og hljómflutningstæki. Verkalýðs- og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar efndi til matar- veislu fyrir sjómenn á dögunum, með þátttöku ýmsra fyrirtækja í sjávarútvegi. Sunnudaginn 21. desember voru haldnir nemendatónleikar í kirkj- unni á vegum Tónskóla Fáskrúðs- §arðar, skólastjóri skólans er Árni Isleifsson. Kirkjukór Fáskrúðsíjarð- arkirkju stóð fyrir aðventukvöldi er þótti takast vel og var það vel sótt. Næg atvinna hefur verið hér allt þetta ár, nú er annar skuttogari Hraðfrystihúss FáskrúðsQarðar til gagngerar endurbóta, fer sú fram- kvæmd fram í Póllandi og er ráðgert að því ljúki í mars. Fyrri hlutann í desember voru afhentar fjórar íbúðir í verka- mannabústöðum, þar af tvær nýjar sem var seinni áfangi í raðhúsi sem i eru fimm íbúðir. Ráðgert er að hefja framkvæmdir við sjö íbúðir til viðbótar, en óvíst er um þær. Nú virðist vera kominn hugur í fólk að he§a byggingu húsa á eigin vegum, en mjög lítið hefur verið byggt á síðustu sex árum. Fyrir nokkru var reist hér timb- urhús á einni hæð, er það Þorsteinn Bjarnason byggingaverktaki sem fengið hefur úthlutað þrem lóðum er hann ætlar að byggja hús á. Unnið hefur verið að byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða hér og hafa til heimilisins borist stórgjafir svo sem frá Kaupfélagi Fáskrúðs- fírðinga 1 milljón, frá Samtökum kvenna um öldrunarmál um 500 þúsund auk þess sem Lionsklúbbur Fáskrúðsfjarðar afhenti 300 þús- und sem fara í innréttingar í eldhús íbúðanna. Ráðgert er að íbúðimar verði tilbúnar í maí á næsta ári. Albert Jólaskemmt- un fyrir börn stúdenta og starfsfólks Háskólans FÉLAG _ guðfræðinema við Há- skóla íslands stendur fyrir árlegTÍ jólaskemmtun fyrir börn stúdenta og starfsfólks Háskól- ans í dag, sunnudaginn 28. desember. Að þessu sinni verður skemmtun- in haldin í matsal Félagsstofnunar stúdenta við Hringbraut og hefst hún kl. 15.00. Að venju verður dansað í kring um jólatréð, jólalög- in sungin og von er á jólasveinum í heimsókn, væntanlega með sitt af hverju í pokahorninu. Stúdentar, kennarar og annað starfsfólk Háskóla íslands er hvatt til að fjölmenna með bömin sín á skemmtunina og rétt er að taka það fram að aðgangur er ókeypis. Sýning KR- flugelda KR-flugeldar halda sína árlegu flugeldasýningu á KR-svæðinu við Frostaskjól í dag kl. 17.30. Að venju verður vandað til sýn- ingarinnar og vom sýningargripirn- ir fluttir inn sérstaklega frá Vestur-Þýskalandi. Ástæða er til að benda á að sýn- ingin sést best frá Flyðrugranda og Kaplaskjólsvegi. Sýningin hefst eins og fyrr segir kl. 17.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.