Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Jafntefli hjá Mar-
geir og Mestel
JAFNTEFLI varð í biðskák Mar-
geirs Péturssonar og Bretans
Mettel í 8. umferð skákmótsins
í Hastings og er Margeir í 11.-13.
sæti með 3 vinninga. Biðskák
Chandlers og Adoijan lauk einn-
ig með jafntefli, sem og skák
Chandlers og Larsen, en Larsen
vann biðskák sína við Kudrin.
Staðan í mótinu eftir átta um-
ferðir er því þannig að Larsen og
Chandler eru efstir og jafnir með
5.5 vinninga. í 3. sæti er Lputjan
með 5 vinninga, 4.-6. Adoijan,
Chiburdanidze og Speelman með
4.5 vinninga, 7.-8. Mestel og Gu-
feld með 4 vinninga, 9.-10. Plaskett
og Kudrin með 3,5 vinninga, 11.-13.
Margeir, Large og Hodgson með 3
vinninga og 14. Conquest með 2,5
vinninga.
„Þetta var hroðalegur klaufa-
skapur að tapa fyrir Lputjan og
Larsen í upphafi mótsins," sagði
Margeir í samtali við Morgunblaðið
um lélegt gengi sitt til þess á mót-
inu til þessa. „Síðan sprengdi ég
mig í vinningstilraunum á móti
Speelman og tapaði skákinni í stað
þess að vinna hana og laga stöðuna
aðeins. Það má segja að ég hafi
ekki haft þann meðbyr sem ég hafði
hér í fyrra. Það hefur heldur blásið
á móti, enda hefur taflmennskan
ekki verið upp á marga fiska. En
það þýðir ekkert annað en að bíta
á jaxlinn og vona að vindáttin
breyttist," sagði Margeir ennfrem-
Gufeld, Larsen og Large, Lputjan
og Adorjan, Chandler og Speelman,
Conquest og Mestel, Plaskett og
Chiburdanidze og Hodgson og
Kudrin.
Okurmálið
aftur til
saksóknara
MÁL Hermanns Gunnars Björg-
vinssonar, sem ákærður var fyrir
okurlánastarfsemi, hefur verið
sent aftur til ríkissaksóknara til
athugunar og umsagnar.
Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari sagði, að hjá embætti sínu
væri nú verið að fara yfir mál Her-
manns Gunnars og málatilbúnað
ákæruvaldsins í öðrum okurmálum.
„Það er líklegt að fallið verði frá
ákæru í verulegum mæli í ljósi dóms
Hæstaréttar. Það verður unnið að
þessu máli á næstunni, en ég get
ekki tilgreint nákvæmlega hvenær
fregna er að vænta," sagði ríkissak-
sóknari.
Kista Snorra Hjartarsonar borin úr kirkju. Fremstir bera Ólafur Jóhann Sigurðsson og Sigurður
Pálsson, þá Þorsteinn frá Hamri og Helgi Hálfdanarson, síðan Ólafur Jóhann Ólafsson og Hjörtur
Pálsson og loks Hannes Pétursson og Sveinn Skorri Höskuldsson. í dyrum Dómkirkjunnar má sjá
bróður skáldsins, Torfa Hjartarson. Morgunbiaðið/ói.K.M.
*
Utför Snorra Hjartarsonar
ÚTFÖR Snorra Hjartarsonar
skálds var gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík í gær. Meðal
viðstaddra voru forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, og Sverr-
ir Hermannsson, menntamála-
ráðherra.
Séra Rögnvaldur Finnbogason á
Staðarstað jarðsöng. Dómkórinn
söng undir stjóm Marteins H. Frið-
rikssonar dómorganista. Kristinn
Sigmundsson söng einsöng, Rose-
mary Kajioka lék á flautu og
Þorsteinn Gunnarsson leikari las
úr verkum skáldsins. Meðfylgjandi
mynd var tekin þegar skáldbræður
Snorra og_ félagar úr Rithöfunda-
sambandi íslands báru kistu skálds
ins úr kirkju.
Sáttasemj ari boðar alla
Borgarspítalinn: deiluaðila á fund sinn
Níunda umferð verður tefld í
dag. Þá tefla saman Margeir og
Meinatæknar
segja upp á ný
MILLI 25 og 30 meinatæknar á
Borgarspítalanum höfðu sagt
upp störfum sínum í gær að sögn
Jóhannesar Pálmasonar fram-
kvæmdastjóra.
„Það lætur nærri að þetta séu
um helmingur starfandi meina-
tækna við spítalann“ sagði Jóhann-
es, „við spítalann eru 28-29
stöðugildi og margir í hlutastarfi.
Uppsagnimar hafa verið sendar
yfírmönnum deilda, og mér eru
ekki kunnar ástæður þeirra að svo
stöddu."
Þjóðhagsstofnun telur sjómenn þegar hafa f engið bætt það,
sem af þeim var tekið með lögum um kostnaðarhlutdeild 1983
SATTASEMJARI hefur boðað
alla aðila kjaradeilu sjómanna
og útvegsmanna á fund hjá sér
í dag klukkan 9 árdegis. Fundar-
boðinu fylgdu eindregin tilmæli
um að láta deilur vegna meintra
samningsbrota og verkfallsbrota
liggja milli hluta meðan freistað
væri að ljúka samningum. Eng-
inn samningsaðila hefur neitað
að mæta á fundinn, en samninga-
nefnd Sjómannasambandsins
kom saman til fundar klukkan
8.30 til að taka ákvörðun um
mætingu og með hvaða hætti hún
taki hugsanlega þátt í viðræðun-
um. Guðjón A. Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, segir
málin komin í hnút og ekkert
hafi breytzt síðustu dægrin.
Þjóðhagsstofnun telur að það,
sem tekið var af sjómönnum 1983
með lögum um kostnaðarhlut-
deild, hafi þeir þegar fengið
aftur.
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari, sagði í samtali við
Forsætisráðherra um lánasjóðsmálið:
„Sverrir ákveður hvort Finn-
ur vinnur áfram að málinu“
STEINGRÍMUR Hermannsson fulltrúi þingflokksins í þessu sam-
forsætisráðherra segir að það sé starfi," 'sagði Steingrímur og bætti
auðvitað ákvörðun Sverris Her- því við að hann bæri fullt traust til
mannssonar menntamálaráð-
herra hvort Finnur Ingólfsson
vinnur áfram að lánasjóðsmál-
inu. Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við forsætisráð-
herra í gær.
„Það er auðvitað menntamála-
ráðherrans að ákveða hvemig
áfram verður unnið að þessu máli.
Ef hann vill ekki að Finnur vinni
áfram að því þá er sú ákvörðun
auðvitað í hans valdi," sagði
Steingrímur.
Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins ijallaði um ágreining þann sem
kominn er upp út af lánasjóðsfrum-
varpinu á fundi sínum í fyrradag.
Finnur kom á þann fund og gerði
grein fyrir sínu máli og lagði fram
skýrslu þar um, að sögn forsætis-
ráðherra. Forsætisráðherra sagði
að Páll Pétursson formaður þing-
flokksins hefði lokið málinu á
fundinum með því að segja að hann
treysti því að Finnur nyti stuðnings
þingflokksins. „Það var vitanlega
engin traustsyfirlýsing samþykkt á
þessum fundi enda er Finnur ekki
Finns. „Mér finnst nú að verið sé
að gera úlfalda úr mýflugu í þessu
máli,“ sagði Steingrímur, „en vissu-
lega má til sanns vegar færa að
Finnur hefði átt að vera varkárari
í þessum störfum sínum, en ég er
sannfærður um að hann var að
vinna eftir bestu sannfæringu að
lausn málsins."
Morgunblaðið, að þetta væri ný til-
raun til að reyna að þoka málum
áleiðis. Ymsar leiðir hefðu þegar
verið reyndar, en þetta virtist í
sínum huga eina leiðin í stöðunni.
Hann sagði sáttatillögu ekki á döf-
inni hjá sér, enda yrði að móta slíka
tillögu í náinni samvinnu við deilu-
aðila og stjómvöld, einkanlega þar
sem hún hlyti að fela í sér breyt-
ingu á lögum um kostnaðarhlut-
deild.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambandsins, sagði
í gær, að samninganefnd sam-
bandsins myndi taka um það
ákvörðun árdegis hvort hún tæki
þátt í fundinum og þá einnig með
hvaða hætti. Sjómenn skildu fund-
arboð sáttasemjara svo, að þar
væri ekki um eiginlegan sáttafund
að ræða. Ákveðið hefur verið að
Hafþór Rósmundsson fari utan til
London á föstudag til viðræðna við
æðstu menn Alþjóðasambands
flutningaverkamanna um hugsan-
legt löndunarbann erlendis á meinta
verkfallsbijóta.
Helztu ágreiningsmál, sem teíja
fyrir samningum eru meint verk-
Kjartan J. Jóhannsson látinn
KJARTAN J. Jóhannsson læknir
og fyrrverandi alþingismaður
lést í Reykjavík í gær.
Kjartan var fæddur í Reykjavík
19. apríl 1907. Foreldrar hans voru
Jóhann Ármann Jónsson úrsmiður
og Ólöf Jónsdóttir. Kjartan varð
cand. med frá Háskóla íslands
1931, læknir á ísafirði 1932 til
1963, héraðslæknir í Kópavogs-
héraði 1963 til 1978 og starfandi
læknir í Kópavogi frá þeim tíma.
Hann var yfirlæknir sjúkrahótels
Rauða kross íslands frá marsmán-
uði 1978 og formaður Rauða kross
deildar ísafjarðar og í stjóm Rauða
kross íslands um skeið. Hann var
formaður Geðvemdarfélags íslands
um tíma. Kjartan var í bæjarstjóm
ísafjarðarkaupstaðar 1950 til 1958.
Sat nokkrar vikur á Alþingi sem
Kjartan J. Jóhannsson
landskjörinn varaþingmaður haust-
ið 1946. Hann var alþingismaður
ísafjarðarkaupstaðar 1953 til 1959
og 3. alþingismaður Vestfjarðakjör-
dæmis 1959 til 1963. Formaður
fjárveitinganefndar Alþingis var
hann árin 1961 til 1963. Kjartan
var formaður Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda 1971 til 1974 og síðar
heiðursfélagi. Hann flutti tillögu á
Alþingi um að breyta frá vinstri
umferð í hægri og var skipaður í
nefnd 1966 til að stjóma fram-
kvæmd breytingarinnar. Hann var
í áfengisvamaráði frá stofnun þess
í apríl 1954 og í stjóm atvinnuleys-
istryggingarsjóðs frá stofnun hans
í marz 1956 þar til í desember 1963.
Kona hans er Jóna Ingvarsdóttir.
Þau eignuðust fimm böm og em
fjögur þeirra á lífi.
fallsbrot 18 skipa, sem em nú að
fiska fyrir siglingu. Sjómannasam-
bandið hefur ekki birt lista yfír
þessi skip eða tilkynnt viðkomandi
útgerðum að þau séu á umræddum
lista. Frá Vestfjörðum em 4 skip á
sjó, rækjuskipið Hafþór, frystitog-
arinn Hólmadrangur og tvö skip frá
Patreksfírði. Sjómannafélag ísa-
íjarðar og Alþýðusamband Vest-
§arða hafa krafízt þess að Hafþór
snúi til hafnar þar sem undirmenn
á skipinu séu í verkfalli. Undirmenn
á Vestfjörðum em aðeins í verk-
falli á Isafírði og Súðavík. Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið
Bylgjan krefst þess að öll þessi
skip komi inn, þar sem yfirmenn á
þeim öllum séu í verkfalli. Stjóm-
endur þessara skipa hafa allir
hundsað kröfumar og haft er eftir
skipstjóranum á Hafþóri, að enginn
í áhöfn skipsins sé því fylgjandi að
fara til hafnar. Þijú skip frá Aust-
íjörðum, sem vom að veiðum á
gamlárskvöld, hafa verið kærð fyrir
samningsbrot.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar fengju sjómenn
í raun jafnmikin hlut úr aflanum
nú og áður en kostnaðarhlutdeildin
hefði verið sett á með lögum 1983.
„Það hefur komið fram að lækkun-
in á skiptahlut sjómanna með
lögunum 1983 um 7 prósentustig,
hefur að fullu verið bætt með hækk-
un á kauptryggingu, lífeyrissjóðs-
greiðslum og lækkun á kostnaðar-
hlut í ársbyijun 1985 og aftur nú
og auknum skattafslætti. Þannig
metur Þjóðhagsstofnun að þeir séu
með sama hlut úr aflanum eða um
71% eins og var fyrir breytinguna
1983. Þrátt fyrir þetta höfum við
boðið þeim að auka enn hlut þeirra.
Nú ræða þeir um afkomu útgerðar-
innar en ekki um það, sem tekið
var af þeim 1983, af því, að þeir
eru búnir að fá það allt aftur. Hag-
ur útgerðar hefur vissulega batnað,
en yfír okkur hvílir hin mikla óvissa
um tekjumar í framtíðinni auk þess
sem olían er enn að hækka og var
í fyrradag komin upp í 151 dal í
Rotterdam, sem er 30 dölum hærra
en verðið hér nú,“ sagði Kristján
Ragnarsson.