Morgunblaðið - 08.01.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
21
í glerlyftu til
Norðurljósanna;
Nýr veit-
ingasalur
opnaðurí
Þórshöll
NÝR veitingasalur hefur verið
tekinn í notkun á fjórðu hæð
hússins í Brautarholti 20, þar
sem veitingahúsið Þórscafé er
til húsa. Salurinn ber heitið
„Norðurljósin" og verður hann
leigður út fyrir hvers konar
mannfagnaði, svo sem einka-
samkvæmi, árshátíðir, þorra-
blót, ráðstefnur og brúðkaups-
og fermingarveislur svo nokkuð
sé nefnt.
Norðurljósin eru rekin á vegum
Þórshallar hf., sem einnig rekur
Úr salarkynnum Norðurljósanna í Þórshöll.
veitingahúsið Þórscafé, en rekstur
Norðurljósanna verður þó aðskil-
inn frá öðrum rekstri í húsinu og
sérinngangur þar inn. Sérstök
glerlyfta hefur verið smíðuð utan
á Þórshöll, þar sem gestir Norður-
ljósanna geta sparað sér sporin
upp í salinn, en fyrir þá sem eru
lofthræddir er að sjálfsögðu hægt
Heilsugæsla Suðurnesja fær
ekki umbeðnar hækkanir
að komast þangað eftir hefð-
bundnum leiðum, það er upp
breiðan og góðan stigagang.
Blár litur er mjög ráðandi í inn-
réttingum Norðurljósanna og í
loftinu hvelfist „stjömuhiminn"
yfir salinn til að gefa staðnum
hinn rétta blæ. Salurinn tekur um
150 manns í sæti og þar eru full-
komin hljómflutningstæki fyrir
diskótek og góð aðstaða fýrir
hljómsveit og aðrar uppákomur.
Veitingastjóri Norðurljósanna er
Kristján Daníelsson.
Aðalw
boðið hf.
Toyota Landc. TD 1987 nýr 1.400.000
Toyota Landc. 1985 980.000
Toyota Landc. 1984 860.000
Toyota Landc. 1983 800.000
Toyota Landc. 1982 700.000
Toyota Corolla DX 1984 340.000
Toyota Corolla 1985 380.000
Toyota Tercel 1983 320.000
Toyota Tercel 1984 370.000
Toyota Tercel 1985 445.000
Getum útvegað allar gerðir
bíla eftir óskum hvers og
eins.
Grindavík.
Fjárhagsnefnd Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum,
sem skipuð er öllum bæjar- og
sveitarstjórum á svæðinu, hafn-
aði á mánudag öllum óskum
Heilsugæslu Suðurnesja um auk-
inn rekstur sem hefði haft
verulegan kostnað í för með sér
fyrir sveitarfélögin á nýbyrjuðu
ári.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var helsti kostnaðaraukinn
fólginn í því að þátttaka Heilsu-
gæslunnar í sameiginlegum rekstri
sjúkrahússins átti að hækka úr 40%
{ 60%. Kostnaður sjúkrahússins átti
að lækka að sama skapi úr 60% í
40%. Töldu nefndarmenn að ekki
kæmi til greina að heilsugæslan
axlaði hluta af kostnaði sjúkrahúss-
ins sem fer nú inn á föst fjárlög
ríkisins. Þá var því hafnað að heilsu-
gæslan fengi að bæta við 5 nýjum
stöðugildum. Rekstrarkostnaður
Heilsugæslu Suðumesja hækkar þvf
samkvæmt þessu um 15% á milli
áranna 1986 og 1987.
Fjárhagsnefndin var kosin á
síðasta ári til þess að fara ofan í
saumana á kostnaðaráætlunum
sameiginlegra fyrirtækja SSS, enda
hefur raunin verið sú að mörg sveit-
arfélaganna stynja nú þungt undan
hve sameiginlegi reksturinn klfpur
meira og meira af framkvæmdafé
þeirra. Tillögur nefndarinnar og
fjárhagsáætlanir fyrirtækjanna
þurfa nú að fara fyrir stjóm SSS
til að fá samþykki.
Kr. Ben.
JE
Við styðjum
handknattleikslands-
liðið
Verð frá
kr. 265.000
BDEJB
umboðið
Fíat Uno
Árg. 1987