Morgunblaðið - 08.01.1987, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Frá Laugarvatni. Hússtjórnarskólinn fyrir miðju.
sammála um ágæti þess, en um
hvað er þá deilt?
Jú, menn deila um 90 km fjar-
lægð frá höfuðborgarsvæðinu og
spyija hvemig á svo sérhæfur skóli
að dafna úti á landsbyggðinni?
Því er til að svara, að með fram-
angreindri aðstöðu er auðvelt að
tryggja skólanum tekjur. Skólann
má nota sem hótel allan veturinn,
t.d. fyrir námskeið til endurmennt-
unar, en algengt er að launþegum
innan og utan ríkisgeirans bjóðist
endurmenntunamámskeið og þá
oftar en ekki til launahækkana.
Aðstaða til slíkra námskeiða er
mjög til fyrirmyndar í þessu hús-
næði og vísast, með hliðsjón til
annarra landa, að færri kæmust að
en vildu.
Þá er ekki fjarri lagi að mat-
reiðslunemar á fyrstu önn sæu um
matargerð undir handleiðslu kenn-
ara fyrir annan eða báða heimavist-
arskóla staðarins, að mínu viti er
það réttur vettvangur við upphaf
matreiðslunáms, þ.e. koma nemum
fyrst inn í almenna heimilismat-
reiðslu og meðferð hráefna, sem er
undirstaða í þessari iðngrein.
Á framangreindan hátt má
tryggja nýtingu þess hráefnis sem
nemar verða að vinna úr.
Hugsanlega gætu aðildarfélög
þau sem að skólanum standa tryggt
honum tekjustofn í einhveijum
mæli. Ég nefni þetta ekki til að firra
ríkið þeirri fjárfestingu sem það á
að leggja til skólans, heldur til að
auka mátt hans og getu og hafa
fijálsara val um ráðningu á hæfum
fagkennurum og jafnvel koma til
móts við nema hvað varðar aukaút-
gjöld, sem þeir telja sig verða fyrir,
staðarins vegna.
Það er að mínu viti tfmi til kom-
inn að lyfta þessu olnbogabami
menntakerfisins á hærra plan, enda
hefur tiivist þeirra stétta sem úr
þessum skóla skrifast sannað þjóð-
hagslegt gildi sitt.
Eg vona að með þessum orðum
hafi ég svarað helstu mótrökum
þeirra manna, sem um Hótel- og
veitingaskólann hafa fjallað, hvað
varðar nýtingu hráefnis, utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins, en í þeirra
rökum hefur enginn nefnt einu orði
hvemig hráefni skólans nýtist í dag.
En fleira þarf til, til að af öllu
þessu geti orðið. Mörgum kemur
eflaust á óvart að engin námsskrá
er til fyrir þennan skóla. Hana þarf
að vinna sem allra fyrst af fæmstu
mönnum. Eftirfarandi tillaga hefur
fengið góðan hljómgrunn þeirra
fagmanna sem lengst og mest hafa
unnið við þessi störf.
1. Hótel- og veitingaskóli Is-
lands yrði eingöngu fagskóli, sem
kenndi ekki aðeins framreiðslu og
matreiðslu, heldur öllum þeim sem
honum ber að kenna lögum sam-
kvæmt.
2. Að einn fjölbrauta- eða
menntaskóli í hveijum landsfjórð-
ungi gefi kost á forskólanámi (einn
til tvo vetur).
3. Kennsluskrá forskóla væri:
Tungumál, stærðfræði, skrift, mat-
vælafræði, bókhald samhliða
undirstöðu í tölvufræði og jafnvel
fleiri greinar.
4. Próf úr þessum forskóla gæfi
réttindi til inngöngu í Hótel- og
veitingaskóla íslands þó að því til-
skyldu að viðkomandi nemi hafi
tryggt sér námssamning hjá meist-
ara á viðurkenndum hótelum eða
veitingastöðum, þar sem það á við.
í dag fylla framangreind fög um
helming af kennsluskrá skólans.
Nái þetta fram að ganga má stytta
hveija önn skólans úr fjórum í tvö
mánuði á ári. Að þessu fengnu
fækkar nemum í hverri önn um
helming, hinsvegar bættust við þeir
nemar sem ekki hefur verið sinnt
hingað til, þar á ég við gestamót-
tökufólk, veitingastjóra, hótelstjóra
og allt starfsfólk innan vébanda
Félags starfsfólks í veitingahúsum,
þó er um styttra námskeið að ræða,
fyrir síðastnefnda hópinn.
Einhveija kenningu heyrði ég um
að eðlilegast væri fyrir íslendinga
að læra hótelstjóm erlendis. Ég er
aldeilis hissa á yfirlýsingu sem þess-
ari og trúi því naumast að hún
komi frá mönnum sem þekkja til
hótela hér á landi.
Staðreyndir tala sínu máli um
þessar kenningar, því þeir sem
lengst hafa náð, eru með almenna
fagþekkingu og margra ára reynslu
innan veggja hótela og veitingahúsa
hérlendis.
Ástæðan er augljós, á íslandi er
tæpast hægt að tala um stórt hótel
á heimsmælikvarða. Tvö þau
stærstu hafa aðeins á þriðja hundr-
að herbergi, og öll hótel önnur
þaðan af minni. Af þessum sökum
bera þau einfaldlega ekki hótel-
stjóra með staðbundna þekkingu á
sérsviðum, sem stórhótel eða hótel-
samsteypur úti í heimi eiga auðvelt
með, enda allt aðrar forsendur fyr-
ir rekstri þeirra hótela.
En við þurfum engu að kvíða,
lítil hótel em og verða persónulegri
en þau stóm, því þarf hótelstjóri
hér á landi að vera allt í öllu, og
bera fullt skyn á flesta þætti hótel-
rekstursins, þannig hefur það verið,
og þannig hefur best til tekist í
okkar litla þjóðfélagi.
Það er gott að hafa háleitar hug-
sjónir, en stöldmm við og gemm
okkur grein fyrir hver þróunin er
hér og gefum okkur forsendur í
samræmi við hana.
Við megum ekki mgla saman
veitinga- og hótelrekstri við hina
almennu ferðaþjónustu, þ.e. leið-
sögumönnum, sölu- og ferðaskrif-
stofufólki, markaðsstjórn ofl. En í
umræðum hafa mér fundist allir
þessir þættir settir undir sama þak.
Þær litlu hóteleiningar sem við
íslendingar höfum rekið undanfarin
ár og komum vonandi til með að
reka í næstu framtíð, er samvinna
allra starfsmanna hótelanna, sú
samvinna getur ekki orðið nema
hver einstaklingur hafi þekkingu
og skilning á vinnu hins.
Það segir sig sjálft að ólíkir hóp-
ar úr ólíkum skólum sameinast
síður en þeir einstaklingar sem læra
á sama stað og fá um leið yfirsýn
og skilning á störfum hvers annars,
því allar deilur sem upp kunna að
koma milli starfsmanna í þjónustu-
greinum bitna fyrst og síðast á
þeim sem síst skyldi þ.e. viðskipta-
vininum. Því ólíkari sem starfs-
hópurinn er, því meiri hætta er á
þversögnum, misskilningi og stétt-
arríg, sem engan veginn samrýmist
mannlegum þáttum í hótel- og veit-
ingarekstri, en sá þáttur er stærri
en sumir ætla og lærist ekki í skól-
um, heldur af reynslu og þekkingu
innan veggja þessara fyrirtækja.
Hveijum og einum er svo í sjálfs-
vald sett hveiju hann vill bæta við
þekkingu sína erlendis, enda gera
það íjölmargir nú til dags.
Fyrir stuttu sendi skólanefnd
Hótel- og veitingaskóla íslands frá
sér einróma tillögur um framtíð
skólans. Nú er það í höndum hæst-
virts menntamálaráðherra að taka
ákvörðun um staðarval og þjóð-
hagslega bestu uppbyggingu hans.
Að öllu þessu sögðu er það bjarg-
fost trú mín að við hér á íslandi
getum auðveldlega kennt hótel- og
veitingastörf frá a-z. Hver þjóð
hefur sinn metnað og sérstöðu, við
í skólanefnd Hótel- og veitingaskóla
íslands höfum kynnt okkur þróun
mála í þeim löndum sem næst okk-
ur standa, af þeirri þróun má margt
læra, en margt ber jafnframt að
varast. Tillaga okkar er því snið-
mynd af þeirri þróun, en heimfærð
að okkar hefð.
Lifum eins og við brosum
Tónleikar
Grafík Rauðir fletir
Forvitnilegt: Tríó Oddnýjar og Ofris.
Húsið opnað kl. 22.00.
Sími: 11440.
Mé' °9
'5 09
16. jaoúaí-
MEL OG KIM
Um næstu helgi koma til landsins söngkonurnar Mél
og Kim. Þær áttu smellinn "Showing Out" sem sat á
toppnum á vinsældalistum um alla Evrópu og víðar
í síðasta mánuði.
"ROCR & ROLL PARTY"
Á laugardaginn 10. janúar verður bein útsending í
EVRÓPU á 12 m2 risaskjá frá verðlaunaafhendingu
20 bestu tónlistarmyndbanda í heimi árið 1986.
Margir vinsælustu tónlistarmenn heims í dag koma
fram. Útsending þessi kemur frá sjónvarpsstöðinni
Sky Channel og er í EVRÓPU einn af örfáum „afrugl-
urum" fyrir þá stöð á landinu.
í KVÖLD
í kvöld verður hitað upp fyrir helgina. Daddi plötu-
snúður er alveg óstöðvandi eftir allar jólaskemmtan-
irnar og verður með tónlistina á hreinu. nýtt efni
verður vitaskuld á risaskjánum frá sjónvarpsstöðvun-
um Music Box og Sky Channel.
Svo verður eins og endranær allt skemmtilega fólkið
í EVRÓPU. |
BINGO!
Hefst kl. 19.30____________________________________ j
Aöalvinningur að verðmaeti________ ij
_________kr.40bús.________________ il
Heildarverðmaeti vinninga _________________ TEMPLARAHÖLLIN
_________kr.180 þús.______________ Eiríksgötu 5 — S. 20010