Morgunblaðið - 08.01.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
47
Þakkir til unga mannsins í Hagkaupum
Þakklát móðir skrifar:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti mínu til ungs pilts sem vinnur
í Hagkaupum í Skeifunni. Því miður
vejt ég ekki hvað þessi ungi maður
heitir en það sem hann gerði fyrir
mig mættu fleiri taka sér til fyrir-
myndar, jafnt ungir sem aldnir.
Þannig var mál með vexti að ég
fór nú fyrir stuttu að versla í Hag-
kaupum ásamt sjö ára syni mínum,
sem er fatlaður og gengur við tvær
hækjur. í þessari verslunarferð okk-
ar var hann óvenju þreyttur og
þurfti ég að halda á honum og jafn-
framt setja vörurnar sem ég versl-
aði í körfuna. Þegar ég kem að
kassanum til að borga fer strákur-
inn minn fram á gang. En þar sem
blautt var á ganginum og gólfið
mjög hált komst hann ekkert áfram
heldur datt aftur og aftur því gúm-
míið undir hækjunum er mjög
varasamt, hvort heldur er í bleytu
eða hálku.
Þegar ég var að verða búin að
setja vörumar í pokana kemur til
mín ungur maður og segir: „Ég
ætla að bera pokana fyrir þig út í
bfl“. Ég varð mjög undrandi á þessu
og sagðist nú ekki vera slíku vön.
Þá sagði hann mér að strákurinn
minn hefði dottið á ganginum en
jafnframt að til stæði að gera end-
urbætur á gólfinu svo að það yrði
ekki eins hált og það er nú.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti mínu til þessa pilts og jafn-
framt hvetja fólk til þess að taka
meira tillit til bflastæðanna sem eru
merkt fötluðum og auðvelda fötluð-
um að komast í þau.
Þessir hringdu . . .
Er aldurstak-
mark á al-
mennings-
salerninu í
Bankastræti?
E.K. hringdi:
Ég var stödd niður á Lauga-
vegi rétt fyrir jólin og þurfti þá
einn krakkinn, ellefu ára að aldri,
að fara á salerpiá: Ég sagði dótt-
ur minni að fara á almenningssal-
emið í Bankastræti en hún kom
til baka að vörmu spori og sagð-
ist ekki hafa fengið að fara þar
inn þar sem hún væri of ung.
Mig langar til að spyijast fyrir
um það, hvort þessi salemi séu
fyrir einhveija sérstaka aldurs-
hópa og þá hveija. Manni finnst
það svo lítið undarlegt, að ellefu
ára krakki, sem fer allra sinna
ferða einn um bæinn í strætis-
vagni, sé of ungur til þess að
nota almenningssalemi.
Brúnt seðla-
veski tapaðist
María KrSstín Þorleifsdóttir
hringdi:
Ég tapaði brúnu seðlaveski,
sunnudaginn 4. janúar sl., annað-
hvort fyrir utan Hrísateig 19 eða
Laugamesveg 86. Finnandi vin-
samlegast hringi { síma 14621.
Dömuveski
tapaðist
Brynhildur Jónsdóttir
hringdi:
Ég varð fyrir því óhappi á ný-
ársnótt að tapa dömuveski á
leiðinni frá Háaleitisbraut að
Hollywood. Þetta kemur sér mjög
illa fyrir mig þar sem í veskinu
vom m.a. skilrfkin mín. Finnandi
vinsamlegast hafi samband í síma
43455.
Leiðrétting*
ávísu
Elín Guðmundsdóttir hringdi:
Eina línu vantaði í vísu eftir
Lárus Thorarensen, sem birtist í
síðasta sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins. Rétt er vísan svona:
Af hvaða lesti er hneykslið mest?
Hátíðaróskin er gleðileg rest.
Óðar þegar hátíð hallar
heyra má um götur allar,
þar sem einn til annars kallar:
Gleðileg rest, gleðileg rest!
Gullhringur
tapaðist
Katrín Sigurðardóttir
hringdi:
Ég tapaði gullhring með fer-
köntuðum rauðum steini í
desember, sennilega einhvers-
staðar í miðbænum. Finnandi
vinsamlegast hafi samband í síma
18908.
Vitni vantar
að ákeyrslu
Páll Hreinsson hringdi:
Ekið var á bflinn minn, sem er
blá Toyota Corolla árgerð 1981,
og var lagt við Amtmannsstíg 2,
á milli kl. 10 og 12 á Þorláks-
messumorgun. Ef einhver hefur
orðið vitni að þessum atburði er
hann beðinn um að hafa samband
í síma 73029.
Stöndum sam-
an og neitum
að borga
Kona úr vesturbænum
hringdi:
Ég er ekki enn búin að ná mér
eftir leikritið sem Sjónvarpið sýndi
á nýársdag. Er þetta framlag
Sjónvarpsins til útbreiðslu eyðnis,
þessa hroðalega sjúkdóms sem nú
tröllríður mannkyninu? Ég legg
til að við sendum Nínu Björk,
Hrafn og Kristínu saman til
Svíþjóðar í ævilanga útlegð því
þar virðast þau geta notið sín
best. Við skulum öll standa saman
og neita að borga af Sjónvarpinu
meðan Hrafn Gunnlaugsson er
þar ráðandi. Hann hefur gert of
mikið af klámmyndum nú þegar
og er það Sjónvarpinu til mikillar
minnkunar.
Fékk ekki að
taka út á inn-
leggs nótuna
Þórir Gunnarsson hringdi:
Bömin mín gáfu mömmu sinni
flík í jólagjöf sem hún fór strax
eftir jól og skipti gegn innlegg-
snótu í þeirri verslun sem flíkin
hafði verið keypt í, versluninni
Lilju við Laugaveg. En nú vildi
svo til að þegar konan mín fór í
verslunina nokkmm dögum síðar,
og ætlaði að taka fatnað út á inn-
leggsnótuna, var þar hafín útsala
og fékk hún þau svör frá af-
greiðslukonunni, að henni væri
óheimilt að taka út á innleggsnót-
una fyrr en útsölunni væri lokið.
Þetta finnast mér furðulegir við-
skiptahættir, því ég stóð í þeirri
trú að innleggsnótur jafngiltu
peningum.
„Skylda sam-
félagsins“
Aðalheiður Sigurbjörnsdótt-
ir hringdi:
Hagstofan segir að ekki sé
hægt að láta skrá lögheimili sitt
á pósthólf, bát, hjólhýsi eða eitt-
hvað hæli, en til er fólk skráð
heimilislaust. Mér dettur í hug að
beinast liggi við fyrir vinnuglaðan
eyjaskeggjann að láta skrá lög-
heimili sitt á vinnustað sinn. En
til hvers er ungum íslendingum
gefíð sjálfræði, Qárræði, lögræði
og umráðaréttur bama sinna þeg-
ar svo margir neyðast til þess að
bakka heim til mömmu og pabba
eftir að hafa farið halloka í frum-
skógi allsnægta, sem býður upp
á yfirdrifið nóg af húsnæðis-
vandamálum? Ekki getur þetta
verið þáttur í skynsamlegu hag-
ræði fyrir þessa sjálfstæðisáfjáðu
þjóð? Eg hefði nú haldið að betra
væri fyrir einstaklinginn og ný-
útsprungnar fjölskyldumar að fá
að nota þennann rétt sinn til þess
að vera út af fyrir sig á heimili
sem það mótar sjálft, án þess þó
að þurfa að leggja allann sinn
mátt og eigur í sölumar fyrir
samastaðinn sem því miður ansi
margir hafa gert.
Ég vil taka undir þau orð Jóns
frá Pálmholti, í DV 29. des. sl.,
að það er „skylda samfélagsins
að tryggja öllum þau gmndvallar-
mannréttindi sem húsnæði er“.
Eða eru mannréttindi eitthvað
ofan á brauð fyrir aurasálir og
ístmbelgi af íhaldsættum? Hvar
svo sem fólk stendur í pólítík þá
hljóta allar sjálfstæðar manneskj-
ur, með lágmarks sjálfsvitund, að
vilja ráða einhvetju um sitt eigið
líf. Hvað er jákvætt við það, að
halda aftur af fólki með því að
neyða það til að búa í föðurhúsum
eða óíbúðarhæfum skúmaskotum
fram á miðjan aldur? Lögheimili
er lygi, viðurkennd hilling. Heimil-
isrétt hafa einungis þeir sem
fæðast inn í erfðafestu.
Að lokum vil ég láta undmn
mína í ljós á því fólki sem í bestri
aðstöðu er til þess að mæla fyrir
munn alþýðu, að það skuli ekki
reyna að hafa bætandi áhrif á
kjör hennar með því að draga
fram í dagsljósið sannleikann súra
sem geijar undir niðri, þá á ég
við fólk sem t.d. starfar að fé-
lags- og heilbrigðismálum.
Þorrablót
Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og Rauða-
sandshreppsbúa verður haldið í Domus Medica
fyrsta dag þorra, föstudag 23. jan. Miðar verða
seldir í Domus fimmtudaginn 15. jan. frá kl. 17
til 19 og laugardaginn 17. jan. frá kl. 14 til 17.
Ath. að ekki verður hringt í fólk að þessu sinni.
Stjórnin
Lilla s. 73763, Erna s. 671877, Esther s. 36195.
IBUÐ ÓSKAST
Óska eftir að taka 2—3 herbergja íbúð
á leigu.
Algjörri reglusemi og skilvísum greiðsl-
um heitið. Einhver fyrirframgreiðsla ef
óskað er.
Upplýsingar í síma 621625 frá kl. 18—
20 í kvöld.
V13GG.IA
TliAMS
4
j&jýjæS
Að stíga á stokk og strengja heit
er gamall siður hér á landi.
Veggjatennis er hins vegar nýleg
íþrótt hérlendis en ekki síður spennandi.
Það þart tvo til, góða aðstöðu,
spaða, títinn bolta
og svo kemur hitt afsjáltu sér.
Hjá Dansstúdiói Sóleyjar
bjóðum við uppá fjóra fullkomna sali
til þess að spila þennan spennandi leik
og nú gefst fólki kostur
á því að fylqjast með af mikilli
innlifun / gegn um stóra glugga.
Raffitóttwrt
Timar i vegqjatennis eru
á sérstaklega hagstxðu verði
frá kl. 8-4 á daglnn.
Það væri alls ekki svo
galið að fara i vegqjatennis
kl. 8 á morgnana eða
i hádeglnu og fá sér svo
iéttan morgun- eða hádegisverð
i matsal okkar
áður en farið er i vlnnuna.
\ i
Engjateigi 1 , simar 687701 og 687801.