Morgunblaðið - 08.01.1987, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Tr
• Helga Sigurðardóttir 17 ára sundkona með verðlaunabikarinn en
hún var kjörin íþróttamaður ísafjarðar 1986.
mennirnir Þuríður Pétursdóttir,
Martha Jörundsdóttir, Sigurrós E.
Helgadóttir, Helga Sigurðardóttir,
Pálína Björnsdóttir, Birgir Örn
Birgisson, Ingólfur Arnarson,
Steinþór Bragason, Hafþór Haf-
steinsson, Magnús Erlingsson,
Hlynur Tr. Magnússon, Halldór
Sigurðsson, Þór Pétursson, Egill
Kr. Björnsson, Víðir Ingason, Björg
A. Jónsdóttir og Margrét J. Magn-
úsdóttir.
Um 140 manns sóttu hófið, þar
voru margar ræður fluttar og
íþróttafólkið sagði frá starfinu
síðasta árið, en allir sem heiðurs-
viðurkenninguna fengu hafa
stundað íþrótt sína af kappi síðast-
liðið ár að sögn Björns Helgasonar
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Sagði
hann ánægjulegt til þess að vita
hversu góðum árangri mætti ná í
æskulýðsstarfi ef foreldrar og
þjálfarar barnanna sýndu starfi
þeirra þann áhuga sem vitað er
um hjá sund- og skíðamönnum á
ísafirði. Hann sagði að bæjarstjórn
væri öll af vilja gerð til að létta
undir með ungmennunum, en erfið
fjárhagsstaða kæmi oft í veg fyrir
að gert væri eins vel og menn
vildu.
Úlfar
HELGA Sigurðardóttir sundkona
var kosin íþróttamaður ársins á
ísafirði í fjölmennu hófi sem bæj-
arsjóður efndi til í Félagsheimil-
inu í Hnífsdal 30. desember.
Þetta er í sjöunda sinn sem
slíkt kjör fer fram hór á ísafirði
og hafa skíðamenn fimm sinnum
verið útnefndir og sundmenn
tvisvar sinnum.
Helga er 17 ára og hefur æft
með sunddeild Vestra sl. 4 ár og
er mjög fjölhæf sundkona.
Forseti bæjarstjórnar, Kristján
Jónasson, afhenti Helgu veglegan
farandbikar og heiðursskjal ásamt
peningaupphæð.
Um leið afhenti íþróttabandalag
ísafjarðar eftirtöidum 38 ung-
mennum heiðursviðurkenningu
fyrir íþróttaafrek 1986.
Einar Ólafsson, Bjarni Gunnars-
son, Stella Hjaitadóttir, Auður
Ebenezersdóttir, Þröstur Jóhann-
esson, Ólafur Sigurðsson, Margrét
Rúnarsdóttir, Jón Ólafur Árnason,
Sara Halidórsdóttir, Rafn Pálsson,
Kristinn Grétarsson, Bjarni Péturs-
son, Ólöf Björnsdóttir, Ágústa
Jónsdóttir, Guðbjörg Ingvarsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Kristján Flosa-
son, Gunnar Hólm Friðriksson,
Arnór Gunnarsson, Hanna Mjöll
Ólafsdóttir og Þórunn Pálsdóttir,
sem öll eru skíðafólk og sund-
Helga íþróttamaður
ísafjarðar 1986
iufirAi
# Kristján Sigmundsson hefur staðið sig mjög vel i vetur í marki
Víkings og með íslenska landsliðinu. Hann verður í eldlínunni annað-
kvöld gegn Gdarisk í Höllinni.
• Þau hafa verið útnefnd íþróttamenn Ísafjarðar. Frá vinstri: Stella Hjaltadóttir 1984, Guðmundur Jó-
hannsson 1980, Helga Sigurðardóttir 1986, Einar Ólafsson 1981,1982 og 1985 og Ingólfur Arnarson 1983.
Evrópukeppnin:
Víkingur og Gdansk
í 8 liða úrslitum
í Höllinni annaðkvöld
Gdansk tapaði naumlega í úrslitaleik keppninnar
í fyrra. en hefur sett stefnuna á titilinn í ár
PÓLSKA liðið Wybrezeze
Gdarisk, eitt sterkasta handknatt-
leikslið heims, kemur til landsins
í dag og leikur gegn Vikingi í 8
liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða á morgun og sunnu-
dag í Laugardalshöllinni.
Víkingar sömdu við Pólverjana
um að leika báða leikina hér á
landi. Viðureignin á morgun hefst
klukkan 20 í Höllinni og er það
heimaleikur Víkings. Seinni leikur-
inn hefst klukkan 20.15 á sunnu-
dagskvöldið.
Gdarisk lók til úrslita í Evrópu-
keppni meistaraliða í fyrra, en
tapaði samanlagt með einu marki
gegn júgóslavnesku meisturunum
Metalapiastica. Liðið er í efsta
sæti í pólsku deildinni og hefur
sett stefnuna á Evróputitilinn í ár.
Með Gdarisk leika frægir leikmenn
eins og Bogdan Wenta, einn besti
handknattleiksmaður Austur-Evr-
ópu, Daniel Waszkiewicz, sem er
heimsklassaleikmaður, og horna-
maðurinn Plechoc.
Víkingar hafa staðið sig vel í
vetur og það að komast í 8 liða
úrslit Evrópukeppninnar er stór
sigur út af fyrir sig. Með frábærum
stuðningi áhorfenda tókst þeim að
sigra svissneska liðið St. Otmar í
16 liða úrslitum og þó sigurmögu-
leikar Gdarisk verði að teljast
meiri, hafa Víkingar og áhorfendur
ekki sagt sitt síðasta orð.
Víkingur tók fyrst þátt í Evrópu-
keppni 1975, en hefur verið með
árlega síðan 1979. Félagið hefur
leikið 34 leiki í Evrópukeppni, 18
sinnum borið sigur úr býtum, gert
tvö jafntefli og tapað 14 sinnum.
Fyrir tveimur árum lék Víkingur í
undanúrslitum og tapaði þá naum-
lega gegn Barcelona, sem frægt
er.
Forsala á leikinn annnaðkvöld
hefst í Höllinni klukkan 17 á morg-
un og er fólk hvatt til að kaupa
miða tímanlega til að forðast bið-
raðir skömmu fyrir leik og eiga á
hættu að missa af hluta leiksins.
Handbolti:
Evrópuleikir Víkings
Samanlagt
1975: Víkingur—Gummersbach 16-19 — 12-21 28-40
1978-79 Víkingur—Halewood Enskirgáfu
Víkingur—Ystad 24-23-24-23 48-46
1979-80 Víkingur—Heim 19-23 — 19—22 38—45
1980-81 Víkingur—Tatabanya 21-20 -22-23 43-43
Víkingur—Lugi 16-17 — 16-16 32-33
1981-82 Víkingur—At. Madrid 14-15-22-23 36-38
1982-83 Víkingur—Vestmanna 35—19 — 27—23 62—42
Víkingur—Dukla Prag 19-18-15-23 34-41
1983—84 Víkingur—Kolbotn 21—19 — 18—20 39—39
1984-85 Víkingur— Fjellh. 26—20 — 23—25 49-45
Víkingur—Tres de Mayo 28—21 — 28—21 56—42
Víkingur—Crvenka 20-15-25-24 45-39
Víkingur—Barcelona 20-13-12-22 32-35
1985—86 Víkingur—Teka 20-21-19-21 39-42
1986-87 Vikingur—Vestmanna 16—12 — 26—26 42—38
Víkingur—St. Otmar 22—17 — 19—20 41-37