Morgunblaðið - 24.01.1987, Side 1

Morgunblaðið - 24.01.1987, Side 1
64 SIÐUR OG LESBOK STOFNAÐ 1913 19. tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Júgóslavía: Milovan Djilas fær fararleyfi Belprad, AP. Andófsmaðurínn þekkti, Milov- an Djilas, hefur fengið leyfi stjórnvalda í Júgóslavíu til að ferðast til Vesturlanda. Djilas var í eina tíð varaforseti Júgóslavíu en snerist gegn stjórnvöldum árið 1953. Þekktasta rit hans, „Hin nýja stétt“, hefur verið gefið út á íslensku. Djilas hefur fengið vegabréfsárit- Lögreglu- rannsókn á norskum bönkum? Ösló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. KOMIÐ hefur í ljós við um- fangsmikla könnun norska seðlabankans, að i september- lok höfðu viðskiptabankarnir lánað nærri 30 milljörðum nkr. meira en opinberar tölur gáfu til kynna. Gunnar Berge, fjár- málaráðherra, telur, að e.t.v. verði nauðsynlegt að efna til lögreglurannsóknar á þessu máli. Það hefur verið stefna stjóm- valda í nokkuð langan tíma að takmarka bankaútlánin til að halda aftur af einkaneyslunni og þess vegna voru bankarnir skyld- aðir til að binda ákveðna fjárhæð í seðlabankanum ef útlánaaukn- ingin færi yfir ákveðið mark. Nú virðist ljóst, að í mörgum bönkum hefur bókhaldinu verið hagrætt og raunveruleg útlán miklu meiri en lesa má um í opinberum skýrslum. Seðlabankinn kannaði stöðuna í 43 bönkum og reyndust 15 þeirra hafa brugðið á leik með tölurnar. Meðal þeirra eru stóru bankarnir Kreditkassen og abc- bank. un til Bretlands en þar er sonur hans búsettur. Undanfarin 18 ár hefur hann freistað þess að fá fararleyfi án árangurs. Aðspurður kvaðst Djilas, sem er 75 ára gamg.ll, ekki hyggja á fyrir- lestraferðir en sagðist reiðubúinn að veita viðtöl. Sagðist hann hafa feng- ið fararleyfi með því skilyrði að hann léti ógert að gefa yfirlýsingar um stöðu mála í Júgóslavíu. Árið 1953 ritaði Djilas fyrstu grein sína þar sem hann hélt því fram að kommúnistar hefðu náð markmiðum sínum í Júgóslavíu og því væri tími til kominn að lina tökin á landsmönn- um. Ári síðar var hann sviptur öllum embættum. Honum tókst að smygla bók sinni, „Hin nýja stétt“, úr landi til Vesturlanda og vakti hún mikla athygli. Árið 1956 var Djilas hand- tekinn og sat hann í fangelsi til 1961. Hann hélt áfram að smygla endur- minningum sínum til Vesturlanda og var handtekinn að nýju í maímánuði árið 1962. Tító, þáverandi Júgó- slavíuforseti, náðaði hann óvænt í desember árið 1966. Frá þeim tíma hafa stjórnvöld reglulega sakað Djilas um að hafa svert kommúnismann með skrifum sínum auk þess sem honum og syni hans hafa borist nafnlausar morð- hótanir. Reuter Götuóeirðir íMadrid NÁMSMÖNNUM og lögreglu lenti saman í Madríd, höfuðborg Spánar, í gær er tugþúsundir náms- manna efndu til mótmæla gegn stefnu stjórnvalda i menntamálum. Fólkið grýtti lögreglu, kveikti elda og velti bilum en lögreglumenn dreifðu óeirðaseggjunum með táragasi og gúinmikúlum. Að minnsta kosti fjórir námsmenn voru hand- teknir og nokkrir slösuðust að sögn sjónarvotta. Undanfarna fjóra daga hafa námsmenn mótmælt niðurskurði á fjárveitingum til menntamála auk þess sem þeir hafa krafist þess að inntökupróf í framhaldsskóla verði afnumin. Að sögn lögreglu hófust ólætin er hægrisinnaðir öfgamenn úr röð- um námsmanna hófu að grýta lögreglumenn. Líbanon: Fjórir Vestur-Þjóðveijar í höndum mannræninsia Beirút, Bonn, London, AP, Reuter. VOPNAÐIR menn rændu tveim- ur mönnum, sem talið er víst að séu Vestur-Þjóðverjar, í Beirút í gaer. Eru nú fjórir Vestur-Þjóð- verjar í höndum mannræningja í Líbanon. Terry Waite, sérlegur sendimaður ensku biskupakirkj- unnar, sendi í gær frá sér boð um að hann stæði enn í samn- ingaviðræðum við öfgamenn, se.m halda nokkrum Bandarikja- mönnum í gíslingu í Líbanon. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, vildi í gær ekki stað- Geimvarnaráætiun Bandaríkj astj órnar: Stjómvöld íhuga að hraða framkvæmdum Colorado Springs, Colorado, AP. CASPAR Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði á fimmtudag að stjórn Reagans forseta íhugaði nú að flýta framkvæmd geimvarnar- áætlunarinnar. Sagði Weinberger að með þessu vonuðust Banda- ríkjamenn til að rugla sovéska hernaðarsérfræðinga í ríminu og flýta fyrir takmörkun vígbúnaðar. Weinberger lét þessi orð falla á ráðstefnu vísindamanna í Colorado í Bandaríkjunum. Sagði hann að ákvörðunar væri að vænta innan skamms og að í fyrstu yrði komið fyrir búnaði á jörðu niðri og í geimn- um. Nokkrir bandarískir embættis- menn hafa sagt að unnt verði að hrinda fyrsta stigi áætlunarinnar í framkvæmd eftir fimm eða sex ár. Áður hafði verið talið að þetta /æri ekki gerlegt fyrr en eftir átta til tíu ár. Weinberger sagði að búnaður þessi myndi ekki geta eytt öllum kjarnorkuflaugum Sovétmanna, sem hugsanlega kynni að verða skotið að Bandaríkjunum, en kvaðst sannfærður um að með þessu yrði unnt að bjarga mannslífum og efla fælingarmátt vopnabúnaðar Bandaríkjamanna. „Tilraunir okkar með hátæknibúnað og árangursrík- ar geimferðir hafa gert okkur kleift að gera hluti sem áður voru óhugs- andi,“ sagði Caspar Weinberger. Með því að flýta framkvæmd áætlunarinnar kvaðst Weinberger telja að Sovétmenn glötuðu yfir- burðum sínum á sviði kjamorku- flauga. Taldi hann víst að Sovétstjórnin yrði þá reiðubúin til samninga. „Áætlunin mun verða til þess að flýta fyrir árangursríkum samningaviðræðum um takmörkun árásarflauga," sagði varnarmála- ráðherrann. festa að tveimur vestur-þýskum ríkisborgurum hefði verið rænt í Beirút í gærmorgun. Kvaðst hann óttast að yfirlýsingar stjórnvalda gætu stefnt lífi gíslanna í hættu. Kohl sagði að stjórnvöld reyndu nú hvað þau gætu til að ná samningum við menn þá er rændu tveimur Vestur-Þjóðveijum í Beirút í síðustu viku. Talið er víst að mannránin í Beirút undanfarna viku standi í sambandi við fangelsun Líbanans Mohammeds Ali Hamadei, en hann var handtekinn í Frankfurt í Vest- ur-Þýskalandi í síðustu viku sakaður um að hafa tekið þátt í flugráni þar árið 1985. Fréttir frá Beirút herma að bróðir Hamadeis hafi staðið að baki mannránunum. Bandaríkjamenn hafa farið fram á að fá Hamadei framseldan þar sem hann er sakaður um að hafa myrt bandarískan hermann í flugráninu. Hins vegar þykir margt benda til þess að Hamadei verði dreginn fyr- ir dómstóla í Vestur-Þýskalandi og hafa menn leitt getum að því að stjórn Kohís kanslara óttist frekari mannrán og ofbeldisverk ef hann verður framseldur til Banda- ríkjanna. Terry Waite, sendimaður ensku biskupakirkjunnar, sendi í gær frá sér boð um að hann stæði enn í samningaviðræðum við mannræn- ingja í Beirút. Voru menn farnir að óttast að honum hefði einnig verið rænt. í fréttum útvarpsstöðv- ar einnar í Beirút sagði í gær að Waite hefði tekist að frelsa tvo Bandaríkjamenn, sem haldið hefur verið gíslum í Líbanon. Þær fréttir fengust þó ekki staðfestar. Indland: Hernum skip- að að vera í viðbragðsstöðu Nýju Delhí, Reuter. INDVERSKUM hersveituni var í gær skipað að vera í viðbragsstöðu á landamær- um Indlands og Pakistan. Að sögn talsmanns varnar- málaráðuneytisins hafa Pakist- anir enn ekki kallað herlið sitt til baka frá landamærunum eftir heræfingar í október og nóvember. Sagði hann 14 her- deildir Pakistana við landa- mærin. Stjórnvöld í Pakistan hvöttu í gærkvöldi til viðræðna til lausnar deilunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.