Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
Árfari lendir heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli. MorKunbiaðið/Bjöm Biðndai
’Wi r
W .
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 8 skýjaö
Reykjavik 7 þokumóða
Bergen 4 skýjað
Helsinki -9 skýjað
Jan Mayan -2 alskýjað
Kaupmannah. 0 slydda
Narssarssuaq -8 snjókoma
Nuuk -10 alskýjað
Osió -5 léttskýjað
Stokkhólmur -6 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 13 þokumóða
Amsterdam 6 rlgning
Aþena 11 hálfskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Berifn 2 súld
Chicago -19 heiðskfrt
Glasgow 5 mistur
Feneyjar 2 þoka
Frankfurt -1 frostúði
Hamborg 2 þoka
Las Palmas 20 skýjað
London 6 súld
Los Angeles 10 skýjað
Lúxemborg 0 þoka
Madríd 7 skýjað
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Miami 14 léttskýjað
Montreal -8 snjókoma
NewYork -2 léttskýjað
París 0 þokumóða
Róm 11 þokumóða
Vfn 1 alskýjað
Washlngton -4 láttakýjað
Winnipeg -33 helðskfrt
Nefhjól í Fokkerflugvél bilaði í flugtaki:
Hjólíð small í rétta
stöðu í lendingu
á Keflavíkurvelli
BILUN kom fram í nefhjóli Ár-
fara, Fokkervélar Flugleiða í
gærmorgun, þegar vélin var í
flugtaki á Reykjavíkurflugvelli
með 47 farþega á leið til ísafjarð-
ar. Almannavarnir ríkisins settu
í gang hópslysaáætlun á
Reykjavikurflugvelli, og síðan á
Keflavikurflugvelli þegar ákveð-
ið var að lenda vélinni þar.
Flugvélin lenti síðan heilu og
höldnu á Keflavíkurflugvelli og
kom bilunin ekki að sök við lend-
inguna.
Árfari fór í loftið frá Reykjavík-
urflugvelli klukkan 10.06 í
gærmorgun og rétt seinna kom í
ljós að nefhjólið lagðist ekki upp
að vélinni og var auk þess skakkt
að sjá. Fyrst í stað var lending
undirbúin á Reykjavíkurflugvelli
aftur, þar sem aðstæður á Keflavík-
urflugvelli voru ekki nægilega
góðar vegna veðurs. Flugvélin
hringsólaði yfir flugvellinum til að
eyða eldsneyti og á meðan var nauð-
Iendingin undirbúin á jörðu niðri.
Klukkan 11.10 var síðan ákveðið
að láta vélina lenda í Keflavík og
var nauðlending undirbúin þar í
skyndi. Flugvélin lenti síðan heilu
og höldnu klukkan 11.27 og við
lendinguna small nefhjólið aftur á
sinn stað og tók eðlilega við vélinni
þegar hún lenti.
Ónnur Fokkervél var send til
Keflavíkur og flutti hún farþegana
úr Arfara til ísafjarðar skömmu
eftir hádegið. Að sögn Margrétar
Hauksdóttur í kynningardeild Flug-
leiða var Árfari rannsakaður í
Keflavík en ekki var ljóst hvað hafði
bilað. Nýbúið var að skipta um nef-
hjólið og allan búnað sem því fylgdi
en flugvélin'var öll endumýjuð, og
þar með þessi búnaður, eftir að hún
rann út á Suðurgötu í Reykjavík í
flugtaki um mitt síðasta ár.
I samtali við Guðjón Petersen
framkvæmdastjóra Almannavama
ríkisins kom fram að þegar tilkynn-
ing baret um erfiðleika flugvélar-
innar hefði hópslysaáætlun
almannavama verið sett af stað og
allt gengið snurðulaust fyrir sig.
Áætlunin felst í stómm dráttum í
því að slökkvilið Reykjavíkurflug-
vallar fer í viðbragðsstöðu á
ákveðnum stað eftir því hvaða flug-
braut á að nota við lendinguna,
greiningarsveit frá Borgarspítalan-
um fer í viðbragðsstöðu í neyðarbíl,
sjúkrahúsum er gert viðvart og þar
hafinn undirbúningur samkvæmt
hópslysaáætlun spítala, lögreglan
setur af stað ákveðna áætlun og
sendir em menn með fjarskiptatæki
í flugturn til að stjóma aðgerðum.
Lögreglan sér síðan um að halda
hreinum götum, bæði til að hindra
að almenningur komist á flugvöllinn
og eins er viðbúnaður við fyrir-
hugaðar akstursleiðir milli flugvall-
ar og sjúkrahúsa. Þá em
björgunarsveitir kallaðar út í bæki-
stöðvar sínar.
Þegar ákveðið var að lenda í
Keflavík fór svipuð áætlun af stað
þar, á vegum almannavarnamefnda
Suðumesja og Keflavíkurflugvallar.
Einnig var undirbúin för greining-
arsveitarinnar með þyrlu til
Keflavíkurflugvallar, og björgunar-
sveitir vom sendar af stað, en
þessara sveita varð ekki þörf þar
sem lendingin gekk að óskum.
Farþegar stíga úr úr flugvélinni
eftir lendinguna á Keflavíkur-
flugvelli.
Hugað að nefhjóli Árfara eftir lendinguna.
Flugleiðir:
Ameríkuflug féll niður
vegna snjókomu vestra
FLUG á vegum Flugieiða til New
York og Baltimore féll niður á
fimmtudag vegna fannfergis og
mikillar snjókomu á austur-
strönd Bandaríkjanna.
Flugvellir í New York og Baltin-
more Iokuðust vegna snjókomunnar
en í síðamefndu borginni var eitt
fet af jafnföllnum snjó á fimmtu-
dag. Þykir mönnum þetta tíðindum
sæta í samanburði við sumarveðrið
sem ríkt hefur á íslandi undanfama
daga. Farþegar sem áttu bókað far
til Bandaríkjanna á fimmtudag ko-
must vestur um haf á föstudag, en
þá var áætlunarflug til Banda-
ríkjanna með eðlilegum hætti.