Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
3
>
Þjóðleikhúsið:
Fj árveiting hækk-
uð um 28 milljónir
Búist við
inflúensu-
faraldri
EKKI hefur inflúensa greinst
hér á landi það sem af er
vetri, en hún er komin tal-
svert á kreik í nálægum
löndum. Inflúensa er sjúk-
dómur kaldasta tímans á árinu
svo búast má við henni hér á
landi fljótlega, að sögn Mar-
grétar Guðnadóttur, prófess-
ors í veirufræðum.
„Eg veit um fólk, sem er veikt
og með ýmis einkenni inflúens-
unnar, en það eru þá aðrar
kvefsóttir, sem líkjast inflúensu,
enda nóg um slíka sjúkdóma.
Inflúensa er árviss gestur hér á
landi, en nokkuð mismunandi er
hvaða mánuði hún velur sér, des-
ember, janúar, febrúar eða mars,“
sagði Margrét.
Inflúensa er bráðsmitandi og
getur lagt marga á sama heimilinu
í rúmið á einum degi þótt smittími
sé ekki nema einn til tveir sólar-
hringar. Fyrstu einkenni sjúk-
dómsins eru hár hiti, beinverkir,
hausverkur og hrollur. Síðan
hverfur hitinn á þremur til fimm
dögum. Inflúensan er vel þekkjan-
leg þegar hún hefur á annað borð
skotið rótum.
Fimm ný um-
ferðarljós
í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur að tillögu
yfirverkfræðings umferðar-
deildar samþykkt að sett verði
upp umferðarljós á fimm
gatnamótum í Reykjavík.
Umferðarljósin verða á mótum
Suðurlandsbrautar og Vegmúla,
Bústaðavegar og Suðurhlíðar,
Álfabakka og Stekkjarbakka og
Stekkjarbakka og Höfðabakka.
Þá verða einnig sett upp ljós á
vestari gatnamótum Listabrautar
og Kringlunnar.
UPPHÆÐ sú sem Þjóðleikhúsinu
er úthlutað á fjárlögum 1987
hefur verið hækkuð um 28 millj-
ónir. Er þessi hækkun ákveðin
vegna rekstrarörðugleika Þjóð-
leikhússins.
Að sögn Þjóðleikhússtjóra, Gísla
Alfreðssonar, er fjárveiting vegna
endurbóta og viðgerða hin sama og
áætluð var í upphafi, 7 xh milljón-
ir. „Sú upphæð nýtist okkur mjög
vel,“ sagði Gísli, „og ég vil koma
því á framfæri að það hefur ekki
endilega verið stefna hjá okkur að
lagfæra allt húsið á einu og sama
árinu. Við erum með 5—10 ára
áætlun um viðgerðir og vissulega
er hægt að dreifa kostnaðinum á
þann tírna."
„Við höfum verið að vinna hér
með ágætum mönnum sem mennta-
málaráðherra hefur skipað til þess
að gera úttekt á málum Þjóðleik-
hússins og ég get ekki sagt annað
en hér ríki mikil bjartsýni eftir það
samstarf. Menntamálaráðherra
hefur sýnt mikinn skilning á vanda
okkar.
Við vorum orðin svo svartsýn hér
í lok síðasta árs því fjárlagafrum-
varpið var okkur mjög óhagstætt.
En eftir að Sverrir Hermannsson
lét málið til sín taka fóru hlutimir
að taka nýja stefnu og voru komnir
í ágætar skorður í desember," sagði
Gísli Alfreðsson ennfremur.
USA
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ
ÞEIM NÝJU AMERÍSKU
MERCURY TOPAZ GS
FRAMHJÓLADRIFINN LUXUSBÍLL MEÐ SJÁLFSKIPTINGU, VÖKVASTÝRI,
RAFMAGNSRÚÐUM OG LÆSINGUM, LUXUS INNRÉTTINGU, ÚTVARPI OG
ÝMSUM AUKABÚNAÐIÁ AÐEINS kr. 695.000.-
FORD BRONCOII
ÓSKABÍLL ALLRA JEPPAÁHUGAMANNA, 140HÖVÉL, VÖKVASTÝRI, MIKILL
AUKABÚNAÐUR OG VERÐIÐ AÐEINS kr. 995.000