Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987 11 andstæðingum og þá getur hrein hending ráðið úrslitum. Keppend- urnir voru heldur ekki öfundsverðir fyrir þá sök að fyrir fram var ekki vitað hvaða árangri þyrfti að ná til að komast áfram. Allt þetta olli því að aðeins helmingur norrænna stór- meistara mætti til leiks, hinir vildu ýmist tefla annars staðar eða gátu ekki sætt sig við fyrirkomulagið. í dönsku pressunni sendi Bent Larsen þeim tóhinn sem hann taldi ábyrga fyrir mótinu og það er líklegt að hann muni nú endanlega snúa bakinu við Danmörku og tefli framvegis undir merki Argentínu, en þar hefur hann sest að. Fyrirfram var heimamaðurinn Simen Agdestein talinn sigur- stranglegastur, eftir góða frammi- stöðu að undanfömu. Hann var einnig stigahæstur þátttakenda. Hann fór hins vegar hægt af stað á meðan Jóhann Hjartarson vann þtjár fyrstu skákimar. Þá fór Jó- hann að taka hlutunum fullrólega, hann gerði fjórar næstu jafntefli og með afar mikilvægum sigri yfir Agdestein tók Emst ömgga for- ystu. Eftir slæmt tap Jóhanns fyrir komungum og efnilegum Svía, Hellers, í næstsíðustu umferð varð baráttan um annað sætið gífurlega spennandi. Jóhanni tókst að halda því með því að sigra Guðmund Sig- urjónsson í síðustu umferðinni og ljóst var að hann myndi verða efst- ur á stigum. Jón L. Ámason byrjaði svo illa að hann átti ekki möguleika að komast áfram nema úrslit í mörgum skákum yrðu honum hag- stæð í síðustu umferðinni. Hann lagði sitt af mörkum, mátaði Agde- stein með glæsibrag, en það dugði aðeins í fjórða sæti, því Jóhann og Hellers unnu báðir. Það kemur auðvitað mjög á óvart að Emst skuli skjóta stórmeisturum ref fyrir rass, en hann er afskap- lega hvass skákmaður sem er til alls vís á góðum degi. Svissneska kerfið gaf honum einnig vind í bak- ið, því eftir að Jóhann sigraði hann örugglega í annarri umferð fékk hann fremur þægilega andstæðinga í næstu skákum. Guðmundur og Sævar vom báðir langt frá sínu bezta á mótinu. Æfingarleysi kann að hafa valdið því að þeir komust aldrei í gang. Þó Islendingar megi þokkalega við niðurstöðu þessa móts una verð- ur það að segjast að það er hálfgerð óvirðing við heimsmeistarakeppn- ina að láta úrslit svæðamóts ráðast af níu skákum tefldum eftir svissn- esku kerfi. Því miður virðist sem íslendingar séu eina Norðurlanda- þjóðin sem kann að halda alþjóðlegt skákmót á sómasamlegan hátt og næst er líklega rétt að huga að því í tíma að fá mótið hingað til lands. Við skulum að lokum líta á tvær skákir frá mótinu í Gausdal. Fyrst er það innbyrðis viðureign þeirra sem komust áfram. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Thomas Ernst Kóngsindversk vörn. I. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rf3 - Bg7, 4. g3 - 0-0, 5. Bg2 - d6, 6. 0-0 - Rc6, 7. Rc3 - a6, 8. h3 - Hb8, 9. Be3 Upp á síðkastið hefur oftast ver- ið leikið hér 9. e4 — b5, 10. e5 og baráttan verður mjög tvísýn. 9. - b5, 10. Rd2 - Ra5?! Teórían mælir með 10. — Bd7 og þessi skák kemur ekki til með að breyta því mati. II. cxb5 — axb5, 12. b4 — Rc4, 13. Rxc4 - bxc4, 14. b5 - d5, 15. a4 - Bf5, 16. a5 - Dd7 Hvítur er kominn með stórhættu- Jóhann Hjartarson legt frípeð á a-línunni og svartur getur aðeins treyst á óvisst mótspil á miðborði og kóngsvæng. 17. h4 - Rg4, 18. Bf4 - e5, 19. dxe5 — d4 20. Bc6 - dd8, 21. Bg5! - f6, 22. exf6 - Bxf6, 23. Bxf6 - Rxf6, 24. Ra2 Tilraunir Emst til að grugga vatnið hafa kostað hann peð og þó þessi riddari lendi úti á kanti reyn- ist það ekki koma að sök. 24. - d3, 25. Da4! - Dd4, 26. e3 - Dg4? Eftir þetta kemur hvíta frípeðið til með að kosta svart liðstap, án þess að hann fái fullnægjandi gagn- færi á kóngsvæng. Nauðsynlegt var því að leika 26. — Dc5 til að drottn- ing svarts geti haft auga með frípeðinu. 27. a6 - Be6, 28. a7 - Ha8, 29. Rc3 — Rh5, 30. b6! - Rxg3 örvænting, en svartur gat ekki beðið eftir 31. Bxa8 — Hxa8, 32. Dc6. 31. fxg3 — Dxg3+, 32. Bg2 — Dxe3, 33. Khl - Dg3, 34. Re4 - Dxh4+, 35. Kgl - Bd5, 36. Dd7 - Hfd8, 37. Dxc7 - Hac8, 38. Rf6+ — Kh8, 39. De5 og svartur gafst upp. Sú þjóðhollusta Agdesteins að tefla norska afbrigðið í spánska leiknum reyndist honum dýrkeypt, því hann beitti þvi í báðum skákun- um sem hann tapaði. Fyrst tapaði hann illa gegn Emst, en meðferðin sem hann og afbrigðið fengu í síðustu umferð var vægast sagt hroðaleg: Hvítt: Jón L. Arnason Svart: Simen Agdestein Spánski leikurinn 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6,4. Ba4 - b5, 5. Bb3 - Ra5 Helsti tilgangurinn með þessu afbrigði virðist vera að mana hvítan út í fómina 6. Bxf7*!? 6. 0-0 - d6, 7. d4 - Rxb3, 8. axb3 - f6, 9. Rh4 Emst lék hér 9. c4 — b4, 10. Rh4 - Re7, 11. Be3. 9. - Re7, 10. f4! - Bb7, 11. d5 — c6,12. c4 — exf4,13. Hxf4 — g5 Ef svartur tekur ekki manns- fómina situr hann uppi með alveg óvirka stöðu. 14. Dh5+ - Kd7, 15. Hxf6 - Db6+, 16. Khl - gxh4, 17. Df7 - Hd8 18. Hxd6+! - Kc8, 19. De6+ - Kb8, 20. Hxd8+ - Dxd8, 21. De5+ - Ka8, 22. Dxh8 - Rg6, 23. Dd4 Hvítur er nú orðinn skiptamun og tveimur peðum yfir og á því gjömnna stöðu. 23. - c5, 24. Df2 - Bd6, 25. Rc3 - bxc4, 26. Rb5 - Bb8, 27. Dxc5 - h3, 28. Be3 - hxg2+, 29. Kxg2 Mun einfaldara var 29. Kgl, því þá má svara 29. — Re5, 30. Db6 - Dc8 með 31. Rd6! og svartur getur gefíst upp. 29. - Re5, 30. Db6 - Dc8, 31. h3 - Rd7, 32. Dd4 - Dg8+, 33. Kfl - Dg3, 34. d6! - Dxh3+, 35. Kel - Dhl+, 36. Kd2 - Dg2+, 37. Kc3 - Bxe4, 38. Hxa6+ - Kb7, 39. Ha7+ - Kc8, 40. Dh8+ - Rf8, 41. Dxf8 mát. essemm sIa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.