Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987 Verksmiðjuhús Völundar hf. við Klapparstig í smíðum árið 1905. Að teikningu þess stóðu Sigurjón Ólafsson trésmiður og Jens Eyjólfsson húsameistari. uðust, en það gerðist ekki á Noregi á landnámsöld heldur mun síðar, og hér varð það ekki fyrr en á 19. öld. Smiði lærðu menn á þessum tíma með því að nota hvert tæki- færi sem gafst til þess að læra af þeim, er betur kunnu, og þroska með sér eigin hæfileika. Talið er að flestir smiðimir hafi lifað við svipuð kjör og alþýða manna. Bændur höfðu — og hafa reyndar enn — þörf fyrir það í búskap sínum að geta lagað og smíðað tæki sín, enda hafa fundizt merki þess, að jámvinnsla (rauðablástur) átti sér stað strax á landnámstíma. Þessa kunnáttu fluttu fommenn með sér frá Noregi og notuðu mýrarrauða sem hráefni í smíðajámið auk viðar- kola. Þannig voru fommenn sér nógir um smíðaefni lengi vel. Smíðakunnátta þótti virðulegt handverk og nytsamt frá fyrstu tíð, jafnvel einskonar íþrótt. Skalla- grímur hlaut sóma af að vera bæði góður skipasmiður og jámsmiður (Egla). Og ýmsir höfðingjar fengust við smíðar. Þess er getið, að sumir af biskupum okkar voru miklir hag- leiksmenn, t.d. Guðbrandur Þor- láksson og Þórður Þorláksson. Var það venja á þessum tíma bæði í Noregi og á íslandi, að smiðir höfðu Framfaraspor — fyrr og nú: Hugleiðíngar um húsa- gerð og aðrar smíðar Húsavíkurkirkja. Eitt af kirkjuhúsum Rögnvalds Ólafssonar, byggð árið 1907. eftír Aðalstein Jóhannsson Þessi þáttur mun aðallega fjalla um húsasmíðar og byggingarmál í framhaldi af fyrri greinum mínum um skylt efni, en þetta eru viðamik- il mál og verða þeim ekki gerð rækileg skil í stuttum pistli. 'iíðar verður kannski aukið nokkru við. Að þessu sinni skal einkum leit- ast við að gera nokkurt sögulegt yfírlit um húsasmíðar fyrri tíma og getið nokkurra manna, sem staðið hafa framarle_ga í þessari grein. í Iðnsögu Islands eftir dr. Guð- mund Finnbogason, útgefinni 1943, segir í formála: „íslenzkur iðnaður hefur fengið mikinn vöxt og við- gang síðustu áratugi. Á slíkum tímum er hollt að nema staðar, líta yfir farinn veg og átta sig.“ Og dr. Guðmundur segir líka að þar sem rit sitt sé frumsmíð á þessu sviði hafí oft verið erfítt um efnisaðföng. En seinna í formálanum segir dr. Guðmundur að nafni sinn, Guð- mundur Hannesson prófessor, hafi gert sér þann mikla vinargreiða að taka að sér stærsta verkefnið að rita um húsagerð á íslandi og hann leyst það af hendi með þeim ágæt- um, sem raun beri vitni. Guðmundur Hannesson prófess- or segir í formála fyrir skrifum sínum: „Mér voru að sjálfsögðu kunnug algengustu heimildarritin um þetta efni, hin ágæta bók dr. Valtýs .puðmundssonar um húsa- kynni íslendinga á söguöld, rit Daníels Bruuns og íslenzkir þjóð- hættir eftir séra Jónas Jónasson, en ég rak mig fljótlega á, að þau voru fjarri því að vera einhlít. Fjöldi annarra heimilda var víðsvegar í útlendum og innlendum bókum, blöðum og tímaritum, jafnvel í skáldsögum og þjóðsögum. Til þess að safna öllu þessu saman og meta það rétt þurfti auðsjáanlega stál- sleginn mann í íslenzkum fræðum, sögufróðan og þar á ofan góðan, glöggskyggnan smið. Mér var þetta í raun og veru ofvaxið. Annar erfiðleiki var sá, að strax er frásögn Sturlungu lýkur um þetta efni er fátt til af gagnlegum prentuðum heimildum allt fram á 18. öld. Til að ráða bót á þessu hefði þurft að safna efni ofviða þessu riti. Ég hef leitað upplýsinga um húsasmíðina o.fl. hjá mörgum góðum mönnum og kann þeim beztu þakkir fyrir góðfúslega hjálp og leiðbeininar. Mest hef ég þó far- ið eftir leiðbeiningum Sigurðar Halldórssonar húsasmíðameistara í Reykjavík. En hann veit ég allra manna fróðastan um húsasmíði og húsagerð í Rvík. Þá hef ég oft og einatt leitað til Einars Erlendsonar húsasmíðameistara og Matthíasar Þórðarsonar prófessors, sem hefur bent mér á ýmislegt og sýnt mér þá miklu velvild að leyfa mér að nota uppdrætti sína af Skeljastöð- um, en þeir hafa ekki áður verið birtir. Þá hefur Kristján Eldjám fom- fræðingur litið yfír lýsingu mína á Þjórsárdalsbænum. Jón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis hefur verið mér hinn mesti bjargvættur við prófarkalestur og fært margt til betra máls.“ Af þessu sést að margir leggja efni í Iðnsögu íslands. Er gaman að glöggva sig á því, að nafnamir tveir, þeir merku menn, sem þar stóðu aðallega að verki, vom ein- ungis áhugamenn um byggingar- mál en hins vegar sérfræðingur á öðmm sviðum, dr. Guðmundur Finnbogason í heimspeki og sálar- fræði og Guðmundur Hannesson prófessor í læknavísindum. Af eftir- farandi orðum Guðmundar prófess- ors sést, hve hæverskir þessir menn vom í skrifum sínum: „Það er hægara að styðja en reisa. Ef fróðir menn vildu leiðrétta það, sem hér kann að vera mis- sagt, ef safnað væri til byggingar- sögu hvers héraðs um land allt, og ekki sízt ef kapp væri lagt á rann- sókn fombæja, — þá myndi þess ekki langt að bíða, að rituð yrði ágæt og áreiðanleg bók um húsa- gerð og húsasmíði á íslandi." Mun ég nú í þessum hugleiðing- um leyfa mér að styðjast við nokkur áhugaverð efnisatriði í þessari bók. Svo má heita, að húsagerð hér á landi hafí verið heimilisiðnaður fram á sfðari hluta 19. aldar og yfírleitt engin iðnaðarmannastétt með þeim hætti, sem nú gerist. Eigi að síður er enginn vafí á því, að víðsvegar um landið hafa verið menn, sem stóðu öðmm framar um allskonar hagleik og verkhyggni, og hafa þeir menn þá mest fengizt við smíðar og byggingar, því að eins og margir vita er hagleikur arfgengur eiginleiki, menn oft og einatt fæddir smiðir að segja má. Byggingarstörfín hafa þá mest fall- ið þessum mönnum í skaut og jafnvel öll forsögn um húsaskipan, að svo miklu leyti sem landsvenja, efni og áhöld ieyfðu. í flestum byggðarlögum hefur einhver skarað fram úr öðmm að þessu leyti og nágrannamir þá leitað til hans í slíkum málum og hann þá orðið sveitarsmiður. í Laxdælu er þess getið, að Ólaf- ur pá hafði þrjá smiði á heimili sínu. í íslendingasögum er sjaldan getið um farandsmiði, sem fóm úr einni sveit í aðra og lifðu aðallega á smíðum, en það átti sér stað í Nor- egi á þeim tímum. Regluleg iðnað- armannastétt og iðnmenntun verður hvergi til fyrr en bæir mynd- betri kjör en almennir verkamenn. í Búalögum er kaup húsasmiðs, sem er „alfær að reisa kirkjur og önnur hús og smíða alla húsasmíði" talið eitt hundrað í landauram á mán- uði, en það samsvaraði einu kýr- verði. Smiðir vora og lausir við vistarband. Smiðir, sem fluttu hing- að á landnámsöld, munu að öllum líkindum hafa haft svipaða aðstöðu hér og í Noregi. Skal nú tekinn upp orðréttur kafli, sem Guðmundur Hannesson prófessor skrifar um þetta efni, því að betur og skil- merkilegar verður það varla sagt: „En þegar frá leið vom íslenzku smiðimir hálfu verr settir, því þá fóm bæir að vaxa upp í Noregi og margskonar bæjarmenning. Þar vom þá byggðar kirkjur og ýmis stórhýsi, fyrst úr timbri og síðan úr steini, svo að mörg vom verkefn- in fyrir húsasmiði. Þá vom og samgöngur við útlönd greiðari, og útlendir smiðir unnu þar að ýmsum byggingum. Þeir hafa vafalaust komið með nýja kunnáttu og áhöld með sér. í Noregi var og víða hent- ugt gijót til bygginga. Á íslandi var engin bæjarmenning, nálega engin stórhýsi reist, mesti skortur á efnivið, gijótið víða óvinnandi blá- grýti og torfíð helzta byggingarefn- ið. Við þetta bættist langvinn einangmn, því að fæstir smiðir höfðu tækifæri til þess að kynnast framfömm í húsagerð erlendis. Þá var og fátækt almennings mesta niðurdrep fyrir alla vandaða húsa- gerð. Við alla þessa erfíðleika áttu íslenzku smiðimir að stríða öldum saman, en þrátt fyrir það tókst þeim að gera lífvænleg húsakynni fyrir landslýðinn og jafnvel að bæta mörgu við kunnáttu fomu smið- anna. Nú má segja að á öllum öldum hafí þó íslenzkir hagleiksmenn farið utan og fengið tækifæri til þess að sjá margfalt fullkomnari húsagerð en hér tíðkaðist, allstórar borgir og skrautbyggingar úr steini, eins og sjá má af því, að gotnesk bygging- arlist hófst þegar á 11. öld, og um miðja 13. öld var smíði Kölnar- kirkju hafin. Þetta gat þó tæpast komið húsasmiðunum eða þjóðinni að vemlegu haldi, að nokkm leyti vegna skorts á byggingarefnum, að nokkm vegna fátæktar lands- manna. Múrsteina var ekki að fá, ekki kalk og ekki einu sinni hent- ugt byggingargijót. Þó að sögur vorar geti oft um byggingar og smíði, em fáar heimildir af þeim flestum á þessum öldum. Allir kann- ast við Skallagrím, Gísla Súrsson og Þórð hreðu, en annars em það einkum kirkjusmiðir, sem getið er um og vom þá venjulega afreks- menn. Þannig er frá því sagt, að þegar Jón biskup Ogmundsson byggði „mikla, virðuliga" kirkju á Hólum 1107, þá valdi hann „þann mann til kirkjugjörðarinnar, er þá þótti einhverr hagastr vera“ og galt honum mikið og gott kaup. Hann hét Þóroddur Gamlason. Hann var svo næmur, að hann Iærði latneska málmyndafræði af því að hlusta á kennslu í henni meðan var við smíðar og gjörðist einn mesti íþróttamaðr í þesskonar námi.“ Honum hefur verið fleira vel getið en hagleikurinn. Þá byggði og Klængur biskup mikla kirkju í Skálhojti 1153 og segir í Hungurvöku: „Ámi, er kall- aður var höfuðsmiður, ok Bjöm hinn hagi Þorvaldsson; Illugi Leifs- son telgdi ok viði." Þá hefur líklega Kolli Helgason smiður byggt Jör- undarkirkju á Hólum (1294). Allt vom þetta íslenzkir smiðir. Þótt íslenzku smiðunum væri ókleift að fylgjast með framfömm í húsagerð erlendis, þá er lítill vafí á því, að ýmsar framfarir áttu sér stað á þessum öldum. Ef dæma má eftir elztu rústunum, t.d. á Bólstað, virð- ist veggjagerð hafa verið lítt vönduð og staðið langt að baki því, sem bezt gerðist á 11.—12. öld, t.d. á Stöng í íjórsárdal. Þá em ölí líkindi til þess að landnámssmiðunum hefði verið það ofætlun að byggja stærstu timburkirkjumar, sem vom byggð- ar hér á 12. öld. Smíðakunnáttan . hefur vaxið með verkefnunum, og víst er um það, að vér vorum sjálf- bjarga í húsagerð á þessum öldum. Þeim, sem vilja gera sér grein fyrir húsagerð á liðnum öldum er nauðsynlegt að gera sér svo ljóst sem unnt er, hvaða tól og tæki smiðimir höfðu. Þekkist þau, má fara nærri um, hvað helzt menn unnu og hvemig. Að sjálfsögðu verður einnig að styðjast við margt annað, svo sem rannsókn hústótta, fomrit, fombréf og fommenjar, en eigi að síður er tækni hvers tíma eitt af gmndvallaratriðunum. Nú er það svo, að flestar tegundir smíðatóla vom þekktar í Miðjarðar- hafslöndum löngu fyrir Krists fæðingu. Ófullkomnar sagir þekkt- ust þegar á steinöld og einskonar hefla með jám- eða tréstokk notuðu Rómveijar. En þekking á þessum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.