Morgunblaðið - 24.01.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
19
Brids
Arnór Ragnarsson
Frá Bridssambandi
*
Islands
Minnt er á að frestur til að sækja
um þátttöku í landsliðskeppnum í
kvennaflokki og flokki yngri spilara
f. eftir '62, rennur út 10. febrúar.
Keppnir þessar eru opnar öllum
spilurum. Sérstaklega er minnt á
ákvæði landsliðsnefndar, að um-
sóknum verður að fylgja stutt yfírlit
yfír kerfi viðkomandi para. Pörin
geta sent þessi yfirlit í pósthólf 272
— 121 — Reykjavík (pósthólf Brids-
sambandsins) um leið og umsókn-
imar.
Landsliðskeppnir þessar, sem
haldnar verða helgina 21,—22. febr-
úar í Sigtúni 9, verða með Butler-
sniði, þ.e. tvímenningur með
sveitakeppnisútreikningi. Að
keppni lokinni mun landsliðsnefnd
velja pör úr báðum flokkum til
áframhaldandi keppni í mars.
Alls sóttu 8 pör um rétt til þátt-
töku í Evrópumótinu í tvímennings-
keppni, sem haldið verður í París
helgina 27.-29. mars nk. ísland á
rétt á að senda 7 pör, þannig að
Bridssambandsstjórn verður að
velja þátttakendur, eins og auglýst
var. Val á þessum 7 pömm mun
liggja fyrir um helgina, en nokkur
af stigaefstu pörum Bridssam-
bandsins sóttu um.
Meistarastigaskrá Bridssam-
bandsins er tilbúin til prentunar og
verður væntanlega dreift til félag-
anna í næstu viku. í skránni er að
fínna nöfn tæplega 3 þús. spilara,
sem hlotið hafa stig í keppnum inn-
anlands og eru á skrá hjá einhverju
af hinum 50 félögum innan vébanda
sambandsins.
Skrifstofa BSI mun, frá og með
2. febrúar nk., verða til húsa í Sig-
túni 9 í Reykjavík. Nýtt símanúmer
skrifstofunnar er: 91-689360.
Gjalddagi árgjalda félaganna til
Bridssambandsins, var 15. janúar
sl. Enn eiga nokkur félög óuppgert
við sambandið. Er því hér með kom-
ið á framfæri, að félögin standi
klár að þessum gjöldum. Greiðslu
má koma í pósthólf 272 — 121 —
Reykjavík eða beint til Ólafs Lárus-
sonar.
Og að lokum: Guðmundarsjóður-
inn. Framlögum má koma á hlaupa-
reikning nr. 5005 í aðalbanka
Utvegsbankans. Sjóðurinn er til
styrktar húsakaupum BSÍ.
Bridsfélag-
Tálknafjarðar
Eftir tvö kvöld af þremur í hrað-
sveitakeppni félagsins er staða
efstu sveita þessi:
Sveit Ævars Jónassonar 1078
Sveit Björns Sveinssonar 1060
Sveit Sigurðar Skagfjörð 980
Vestfjarðamótið í sveitakeppni
1987 verður haldið á ísafirði helg-
ina 30.—31. maí og verður væntan-
lega með hefðbundnu sniði, þ.e.
allir v/alla. Nánar síðar.
Bridsfsélag- Reyðar-
fj arðar/Eskifj arðar
Eftir fyrstu tvær umferðimar í
aðalsveitakeppni félagsins er staða
efstu sveita þessi:
Sveit Trésíldar 50
Sveit Árna Guðmundssonar 50
Sveit Jóhanns Þórarinssonar 36
Sveit Hauks Björnssonar 29
10 sveitir taka þátt í keppninni
að þessu sinni og spila allir v/alla,
tvo leiki á kvöldi.
Reykjavíkurmótið
í sveitakeppni
Að loknum 12 umferðum af 21
í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni,
þar sem 6 efstu sveitirnar komast
í úrslitakeppnina um Reykjavíkur-
hornið, en 13 efstu í Islandsmótið,
er staða efstu sveita þessi:
Sveit Páls Valdimarssonar BR 234
Sveit Pólaris BR 228
Sveit Samvinnuferða/
Landsýnar BR 222
Sveit Atlantik BR 203
Sveit Deíta BR 202
Sveit Ólafs Lárussonar BR 198
Sveit Jónas Hjaltasonar BR 197
Sveit Sigfúsar A. Árnas. TBK 187
Sveit Sigtryggs Sigurðss. BR 186
Sveit Aðalst. Jörgensen BR 186
Sveit Sigurðar Siguijónss. BR 184
Sveit Sigmundar Stefánss. BR 176
Sveit Fram BR 168
Sveit Guðm. Thorsteinss. BFB 167
Næstu fjórar umferðir verða spil-
aðar næsta laugardag og sunnudag
í Sigtúni 9 og hefst spilamennska
kl. 13 báða dagana.
Bridshátíð 1987
Bridssamband íslands minnir á
að frestur til að sækja um þátttöku
í tvímenningskeppninni á Bridshá-
tíðinni 13.—16. febrúar nk. rennur
út miðvikudaginn 28. janúar. Þátt-
tökutilkynningar á Flugleiðamótið
jtrfijm p '
* ♦ ♦
(opna sveitakeppnin) þurfa að ber-
ast fyrir þriðjudaginn 10. febrúar.
Útlit er fyrir að yfír 20 erlend
pör (40 keppendur) sæki Bridshá-
tíðina heim. Þeirra á meðal eru
heimsfrægir spilarar, núverandi og
fyrrverandi heimsmeistarar, spilar-
ar eins og Giorgio Belladonna, Alan
Sontag, Billy Eisenberg, Zia Mah-
mood, George Mittelmann og
landslið Dana, Svía og Noregs.
Bridshátíðinni er keppnislega
skipt í tvennt. Annars vegar
tvímenningskeppni 44—48 para
með barometer-fyrirkomulagi.
Stigaefstu íslensku pörin ganga
fyrir, þ.e. þau sem sækja um þátt-
töku hveiju sinni, og hins vegar
Flugleiðamótið, sem er opin sveita-
keppni, þar sem allir spilarar eru
velkomnir. Spilaðir verða 7x14 spila
leikir, 5 á sunnudeginum og 2 á
mánudeginum, eftir Monrad-fyrir-
komulagi. Verðlaun fyrir þessi tvö
mót nema yfír 8.000 dölum.
Spilað verður á Hótel Loftleiðum.
Hreyfill —
Bæjarleiðir
Fimm kvöld eru búin af 10 í
aðalsveitakeppni bílstjóranna en
þeir spila 32 spila leiki.
Staðan:
Jón Sigtryggsson 116
Sigurður Olafsson 96
Gísli Sigurtryggvason 93
Jón Sigurðsson 82
Anton Guðjónsson 71
Næsta umferð er á mánudaginn
kemur kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu.
LANCIA THEMA:
ÍBURÐUR,
LÆGINDI
OG TÆKNHEG
FULLKOMNUN
Við hjá Lancia viðurkennum fúslega að við höfum gaman
af því að vera fyrstir. Fyrir 25 árum síðan smíðuðum við
fyrsta ítalska bílinn með framdrifi. Það var líka okkar hug-
mynd að smíða bíl með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum
og sjálfberandi yfirbyggingu. Og enn erum við í fararbroddi.
Nú er það fólksbíll sem skipar sér á bekk með þeim bestu í
Evrópu og sameinar krafta og aksturseiginleika sportbílsins og
íburð og þægindi luxusbílsins. Þetta er LANCIA THEMA.
Að innan er THEMA íburðarmikill og geysilega rúmgóður og
undir húddinu leynist 165 hestafla TURBO vél með millikæli og
ýmsum tæknilegum eiginleikum, sem hingað til hafa eingöngu verið
notaðir í vélar kappakstursbíla. Þessi vél skilar THEMA TURBO úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða á aðeins 7.2 sekúndum og hámarkshraðinn
er 218 km/klst! Vélin er næsta hljóðlaus og titringsdeyfar eyða öllum titringi,
þannig að þú finnur raunverulega aldrei fyrir þessum ógnarkrafti. Hröðunin
og mýktin er slík, að líkast er að setið sé í þotu í flugtaki! Ef þetta er ekki nóg
fyrir þig, þá er hægt að fá THEMA með 32 ventla FERRARI V8 vél og þá er
hröðunin í 100 km hraða aðeins 6.8 sekúndur!
LANCIA THEMA TURBO kostar nú aðeins 895 þúsund krónur* með álfelgum og ríku-
legum búnaði. Aðrar gerðir af LANCIA THEMA kosta frá 760 þúsund krónum
Ef þú teiur að þú eigir aðeins það besta skilið, hafðu þá samband við okkur og fáðu að reynsluaka
LANCIA THEMA TURBO, ÞAÐ ER LÍFSREYNSLA ÍJT AF FYRIR SIG!.
LANCIA THEMA ER FLUTTUR INN AF BÍLABORG H.F. ÞAÐ TRYGGIR ÖRUGGA
ENDURSÖLU OG 1. FLOKKS ÞJÓNUSTU, SEM ER RÓMUÐ AF ÖLLUM SEM TIL ÞEKKJA!
LANCIA THEMA FÆST f 5 MISMUNANDI GERÐUM:
THEMA TURBO - 2000 cc, 165 hö, 0-100 km/klst = 7.2 sek.
THEMA i.e - 2000 cc, 120 hö, 0-100 km/klst = 9.7 sek.
THEMA 6V - 2850 cc, 150 hö, 0-100 km/klst = 8.2 sek.
THEMA TURBO DIESEL - 2500 cc, 100 hö, 0-100 km/klst =11.9 sek.
THEMA 8.32 - 2927 ccc, 218 hö, 0-100 km/klst = 6.8 sek.
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 68-12-99
* gengisskr. 14.1.87