Morgunblaðið - 24.01.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
Reuter
Ronnie Caglais, sem er fötluð og því bundin við hjólastól,
reynir að hreinsa snjóinn burt frá innganginum að húsi sínu í
Albany í New York-ríki í gær. Þar var víða gríðarlegt fann-
fergi og hefur ekki orðið þar meiri snjókoma i janúarmánuði
um margra ára skeið.
Vetrarríki í
Bandaríkjunum
New York, AP.
MIKIÐ hríðarveður gekk yfir
alla austurströnd Banda-
ríkjanna í gærmorgun. Var
ofankoman víða mjög mikii og
olli hún miklum truflunum á
samgöngum, þar sem snjórinn
hlóðst í skafia. Talið var að 9
manns hefðu farizt í þessu
óveðri, þrír i Pennsylvaníu,
tveir f Norður-Karólínu og einn
i Suður-Karólinu, Delaware og
New Yorki-ríki hverju um sig.
Umferð fór víða úr skorðum.
Þannig áttu íbúar New York-
borgar í miklum erfiðleikum með
að komast til og frá vinnu. Veð-
urspáin fyrir næstu daga var ekki
heldur hagstæð á þessum slóðum.
Gert er ráð fyrir miklu frosti,
þannig að búast má við miklu
vetrarriki þama á næstunni.
Besta vetrarvörnin er:
Amerisk
glerbrynja
d bilinn
★ Þægilegt og auðvelt (notkun.
★ Tjara og salt bindur sig ekki við lakkið.
★ Bflþvottur verður leikur einn.
Inniend umsögn:
J.R., umsjónarmaður böasfðu DV,
hafði þatta að segja:
DV.
Bílar
M kinn mörgum að þykja ■krítið aö (irt iö
r*ð& um bón A bílum á þetsum árstims. Flestir
setjs vel bónaAs og fallegs bíU i s&mband viÖ
sum&r of sól, en stsðreyndin er sú, sö nú á þess-
um árstima reynir fyrst verulega á sð verjs
Iskkið fyrir skemmdum, miklu freksr en á
sumrin.
Ssltsusturinn á göturnsr og tjsrsn sem sf hon-
um leiðir er einn helsti óvinur lskksins á biln-
um. Tjsrsn sest i lakkið og veldur þvi sð óhrein-
indin setjsst enn freksr á bílinn. s<ið hreiðrsr
um sig i óhreinindunum og byr jsr sð trra lskk-
íö.
Þvi sterksri bónhúð sem er á l&kkinu þeim mun
betur er þsð vsrið gegn Uering&ráhrifum sslts-
ins, sem eykur á endingu þess og þsr með lff-
dsgs bilsins.
Á undsnförnum árum hsís komið frsm nýjsr
tegundir bóns. einskonsr „bryngljái“ sem gefið
hefur l&kkinu sukns vernd og myndsð húð yfír
l&kkið sem lsngvsrsndi gljás. Fyrst vsr hér um
sð rmÖM efni sem einungis vsr sett á, á sérstok-
um bónstöðvum. Nú eru boðnsr bóntegundir
sem eru þsnnig, sð suðvelt er sð bóns með þeim
á hefðbundinn hátt.
Umsjónsrmsður siðunn&r tók sig til og bónsði
sinn bil með siiku bóni, ti! þess sð ksnns kosti
þess. Bónið sem um rmðir heitir „ULTRA
GL08S“ og til sð tryggjs sem bestsn ársngur
vsr fsrið nákvaemlegs eftir tslenskum leiðbein-
ingum, sem prentsðsr eru á brússnn.
ÚTKOMAN:
Fimm mánuðum siðsr, eftir undsngengna um-
hleypings, þótti timsbmrt sð gsngs úr skuggs
um hvort ULTRA GLOSS stmðist þ*r kröfur
sem til þess eru gerðsr.
A bilstjórshlið, þeirri hlið sem snýr sð míerð,
settist dálitil tjsrs. sem auðvelt vsr sð þurrka
sf, en á þeirri hlið, sem frá umferðinni snýr, vsr
nasr engin tjsrs. Ein lótt umferð með þvi sem
sfgsngs vsr i bónbrússnum, frá þvi um hsustið,
nmgði til sð gers l&kkið sftur sem nýtt.
Greinilegt er þó, sð þvi meiri vinns sem lögð er
í þrif, áður en bónsð er, því betri veröur út-
komsn og endingic.
ULTRA GLOSS er ödýr langtímavörn.
Útoölustaöir: ESSO-stöövarnar. HAGKAUP, Skeifunni
Mikil ólga á Filippseyjum:
Stjórn Aquino er
kennt um morðin
Reuter
Jaime Tadeo, leiðtogi bændasamtakanna á Filippseyjum, á fundi
með fréttamönnum í gær, þar sem hann gerði grein fyrir mótaðgerð-
um vegna blóðsúthellinganna á fimmtudag.
Manilla, Reuter, AP.
FIDEL Ramos, forseti herráðs
Filippseyja, sagði í gær, að her-
menn þeir, sem skutu til bana
12 manns fyrir framan forseta-
höllina á fimmtudag, hefðu gerzt
offarar. Gaf hann hernum fyrir-
mæli um að gæta fyllsta umburð-
arlyndis framvegis gagnvart
þátttakendum í kröfugöngum og
mótmælaaðgerðum. Varnar-
málaráðherrann, Rafael Ileto,
sagði hins vegar: „Stundum verð-
um við að beita valdi.“
í yfírlýsingu, sem Juan Ponce Enr-
ile, fyrrum varnarmálaráðherra
Filippseyja, lét frá sér fara í gær,
sagði að Corazon Aquino forseti
hefði getað komið í veg fyrir blóðs-
úthellingamar með því að ræða við
leiðtoga mótmælendanna. Hann
gagnrýndi forsetann einnig fyrir að
hafa ekki gripið til sinna ráða sem
yfírmaður herafla landsins. Hún
hefði átt að dveljast um kyrrt í for-
setahöllinni til að geta sjálf gefið
hermönnunum fyrirmæli.
Foringi bændagöngunnar á
fimmtudag, Jaime Tadeo, sem er
leiðtogi bændasamtakanna á
Filippseyjum, sagði í gær, að stuðn-
ingsmenn sínir myndu nú neita að
sá fyrir uppskeru og sjá til þess,
að sulturinn héldi innreið sína í
höfuðborgina, Manilla. „Bændur
eru að búa sig undir verkfall," sagði
Tadeo. ( samtökum hans eru um
700.000 manns. Aðstoðarmaður
hans bætti því við, að verkfallinu
yrði fylgt eftir með því koma upp
umferðarhindrunum á öllum veg-
um, sem lægju til Manilla til þess
að koma í veg fyrir, að matvæli
bærust til borgarinnar.
Maria Diokao, ein af þremur
samningamönnum stjómarinnar í
friðarviðræðunum við uppreisnar-
menn kommúnista, sagðist í gær
hafa sagt af sér í mótmælaskyni
við manndrápin á fímmtudag. Bætti
hún því við, að æ erfiðara væri að
veija gerðir stjómarinnar og að alls
ekki væri unnt að veija það, að
skotvopnum hefði verið beitt gegn
þáttakendum kröfugöngunnar í
fyrradag.
„Ríkisstjómin hlýtur að bera
mikla ábyrgð á því, sem gerðist,"
sagði hún. Auk þeirra 12, sem biðu
bana, særðust nærri 100 manns,
þar af flestir af skotsárum.
Vestur Þýskaland:
Fj örug’ar sjónvarps-
umræður í lok kosn-
ingabaráttunnar
„ Jafn spennandi og glæpamynd,“ sagði einn áhorfandi
ZUrich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
UMHVERFISMÁL, atvinnuleysi, félags- og vamarmál vora til um-
ræðu í svokölluðum „fílahringborðsumræðum" vestur-þýska sjón-
varpsins á fimmtudagskvöld. Formenn kristilegu bræðrafiokkanna
(CDU og CSU) og fijálsra demókrata (FDP), þeir Helmut Kohl,
kanslari, Josef Strauss, forsætisráðherra Bæjaralands, og Martin
Bangemann, viðskiptaráðherra, voru mættir til leiks auk Johannes
Rau, kanslaraefnis jafnaðarmanna (SPD), og Juttu Ditfurth, tals-
manns græningja. Þetta var síðasta tækifæri stjóramálaflokkanna
til að boða stefnu sína í beinni útsendingu á báðum stóru sjón-
varpsstöðvunum fyrir þingkosningarnar á sunnudag. Deilurnar urðu
stundum svo heitar að einn áhorfandi sagði að hringborðsumræðurn-
ar hefðu verið jafn skemmtilegar og glæpamynd.
Stjómmálamönnunum var mikið
niðri fyrir. Umræðumar vom svo
fjörugar að stjómendur þeirra réðu
ekki við neitt og þær héldu áfram
langt fram yfír boðaðan sýning-
artíma. Kohl tók völdin í sínar
hendur þegar honum þótti nóg kom-
ið af rangfærslum og orðaskaki.
Stjómmálamennimir svömðu allir
fyrir sig en Kohl tók jafnvel af ska-
rið fyrir Rau þegar honum þótti
Ditfurth halla réttu máli um stefnu
SPD í kjamorkumálum.
Umhverfismálin tóku upp einna
mestan tíma í umræðunum. Þau
eru nú efst á baugi í Vestur-Þýska-
landi samkvæmt könnun sjónvarps-
stöðvanna. Bruninn í vörugeymslu
svissneska efnafyrirtækisins
Sandoz sem olli gífurlegri mengun
í Rín í vetur og Chemobyl-kjam-
orkuslysið í Sovétríkjunum í fyrra
vöktu mikla athygli og fréttir af
mengunarskýjum yfír stórborgum
landsins vekja fólk til umhugsunar.
Stjómarflokkamir, CDU/CSU og
FDP, em sammála um að það verði
að setja strangar reglur um meng-
un, banna hættuleg efni og hafa
strangt eftirlit með að reglunum
sé framfylgt. Bangemann er hreyk-
inn af því að Hans-Dietrich Gensc-
her, nv. utanríkisráðherra, var
fyrsti innanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands sem lét umhverfísmál
til sín taka. Kohl teiur ríkisstjóm
sína hafa gert margt gott í um-
hverfísmálum, hann skipaði fyrsta
umhverfismálaráðherra landsins í
fyrra, og telur að hún sé á réttri
braut. Stjómarflokkamir em
hlynntir því að kjamorkuver verði
rekin áfram. Strauss fullyrti að
enginn orkugjafí gæti tekið við af
kolum, olíu og kjamorku á næstu
áratugum. Hann gerði lítið úr ótta
fólks við kjamorkuslys og sagði að
meiri ástæða væri til að óttast jám-
brauta-, flug- og bflslys.
Jafnaðarmenn vilja hætta kjam-
orkuframleiðslu á tíu ámm. Rau
sagði að það væri hægt með því
að breyta skattakerfínu og hvetja
fyrirtæki þannig tii að leita nýrra
leiða í orkuneyslu og -framleiðslu.
Hann telur að það eigi að breyta
refsilöggjöfinni á þann veg að þeir
sem verða fyrir skaða af völdum
mengunar þurfi ekki lengur að
sanna hver sökudólgurinn sé þegar
það liggur í augum uppi eins og í
sambandi við Sandoz-slysið.
Ditforth gat ekki alltaf á sér
setið þegar mótheijar hennar höfðu
orðið. Hún greip oft fram í fyrir
þeim og hló þegar henni blöskraði
það sem þeir sögðu. Hún telur
stefnu allra flokkanna í umhverfis-
málum vera fyrir neðan allar hellur
og segir að vestur-þýsk fyrirtæki
hafí heimild til að baneitra um-
hverfíð. Græningjar vilja hætta
kjamorkuframleiðslu nú þegar og
Ditfurth vill að þjóðin gangi á und-
an öðrum þjóðum, eins og td.
Frakklandi sem framleiðir 70% orku
sinnar í kjamorkuvemm, með góðu
fordæmi.
Nokkur hiti var í umræðunum
um atvinnuleysi, málefni aldraðra
og kvenna. Stjómarflokkamir telja
að hagvöxtur og aukin menntun sé
svarið við atvinnuleysi en Rau sagði
að það hefði þegar sýnt sig að svo
er ekki. Hann benti á að 2,2 milljón-
ir em nú atvinnulausar og sagði
að atvinnuleysi hefði verið meira í
fímmtíu mánuði samfellt í stjóm-
artíð Kohls en það var nokkum tíma
í stjómartíð jafnaðarmanna.
Strauss, Kohl og Bangemann
fóru í hár saman þegar kom að
vamarmálaumræðunni. Strauss tel-
ur nauðsynlegt að ræða takmörkun
á skammdrægum kjamorkuvopnum