Morgunblaðið - 24.01.1987, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.01.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987 31 Svíþjóð: Þriðja dauðsfallið af völdum menffaðs víns Stokkhólmi. AP. ^ LÆKNAR í borginni Eskilstuna í Svíþjóð sögðust á fimmtudag hafa grunsemdir um, að þriðja dauðsfallið, sem þar varð með voveiflegum hætti nýverið, tengdist neyslu ítalsks rauðvins. Við rannsóknir hafa engin merki fundist um etýlenglýkól (uppistaða i frostlegi) í óseldum birgðum af þessum víni. Niðurstöðum rannsóknanna, sem framkvæmdar voru að fyrirskipan stjómvalda, ber saman við þær fiill- yrðingar stjómar sænsku ríkiseinka- sölunnar, að útilokað sé, að átt hafi verið við flöskumar, áður en þær vom seldar. Egon Jacobsson, forstjóri áfengis- einkasölunnar, sagði TT-fréttastof- unni, að loku væri fyrir það skotið, „að aðskotaefnið í víninu, sem lög- reglan fann, sé frá okkur komið". Stjóm áfengiseinkasölunnar hefur stöðvað dreifíngu rauðvínsins „( ör- yggisskyni". Nils Eriksson, lögreglustjóri í Eskilstuna, sagði á miðvikudag, að það hefði verið sameiginlegt með fyrstu fómarlömbunum tveimur, að „báðir höfðu drukkið „ítalskt rauðvín" eða eitthvað úr flöskum, sem merktar voru á þann veg. Dánarorsök þriðja mannsins, sem fannst látinn á heimili sínu á mið- vikudag, var, samkvæmt niðurstöð- um líkkrufningar, eitmn af völdum etýlenglýkóls, að sögn TT-fréttastof- unnar. Henry Kissinger um íransmálið: Segir stórhækkanir á olíu huersanleffar New York. AP. '—' V—7 VOPNASALA Bandaríkjanna til írans var aðalor- sök kúvendingar Saudi-Araba í olíumálum og getur, þegar til lengri tíma er lit- ið, leitt til gífur- legrar hækkunar olíuverðs, að því Henry Kissinger er Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði nýlega í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð. Það var vopnasalan, sem vó þyngst hjá Saudi-Aröbum, þegar þeir ákváðu að víkja Ahmed Zaki Yamani olíuráðherra úr embætti 29. október í fyrra og gjörbreyta stefn- unni í olíumálunum, að mati Kiss- ingers. „Milliganga saudi-arabíska vopnasalans Adnan Khashoggi við að koma þessum viðskiptum í kring hefur ekki farið fram hjá stjóm- völdum í Saudi-Arabíu," sagði Kissinger í viðtalinu. „í Riyadh hefur ekki verið verið talið fært að líta á vopnasöluna öðmvísi en sem merki þess, að bandarísk stjómvöld annað- hvort gerðu ráð fyrir eða beinlínis óskuðu eftir, að íranar þæm sigur- orð af írökum í Persaflóastríðinu. í framhaldi af þessu hófu Saudi- Arabar, sem staðið hafa með Irak í stríðsátökunum, að leita eftir sam- vinnu við írana í viðleitni sinni til að hækka olíuverðið," sagði utanrík- isráðherrann fyrrverandi, sem er virtur sérfræðingur í utanríkismál- um bæði innan og utan Banda- ríkjanna. „Vopnasala Bandaríkjamanna til írans kom Saudi-Aröbum auðvitað til að halda, að við óskuðum þess, að Iranir færu með sigur af hólmi í stríðinu við íraka. Og sigur írana hlyti augljóslega að leiða til þess, að áhrif þeirra í samtökum olíuút- flutningslandanna, OPEC, ykjust að mun, á kostnað Saudi-Araba. Af þessu drógu Saudi-Arabar þá pólitísku ályktun, að óhjákvæmilegt væri að leita eftir samstarfi við Ir- ana,“ staðhæfir Kissinger og heldur áfram: „Saudi-Arabar töldu, að réttast væri að losna við Yamani, fyrst svona væri í pottinn búið, og láta írönum þá þegar í té það, sem þeir mundu hvort eð er gera kröfu til, þegar stríðinu væri lokið: Minni olíu- framleiðslu og hærra olíuverð." Kissinger telur, að olíuverð muni hækka gífurlega, ef íranar vinna sigur í Persaflóastríðinu, „því að það kemur þá í hlut íranskra stjómvalda að skera og skammta írökum fram- leiðslukvóta, fyrir utan það að íranir munu þá ná sterkri valdaaðstöðu innan OPEC." Davíð Oddsson, borgarstjóri, býður Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seta, velkominn í Höfða; á milli þeirra stendur (dökkhærður) Nikolay Uspensky, túlkur Mikhails Gorbachev, sem nú hefur verið skipaður yfirmaður þeirrar deildar sovéska utanrikisráðuneytisins, sem fjall- ar um málefni Norðurlanda og Bretlands. Fyrir breytingamar var sérstök Norðurlandadeild í sovéska utanrík- isráðuneytinu. Hefur jafnan verið töluverður samgangur milli hennar og þeirra, sem hafa fjallað um málefni Bretlands og fyrrum ný- lendna Breta, svo sem Ástralíu og Nýja Sjálands. Hin nýja skipan staðfestir gamalgróna afstöðu Rússa til Norðurlanda og Bret- lands, þeir hafa löngum litið á þessi ríki saman. V \ AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND HEIÐAR FRÍMANNSSON Guinness-fyrirtækið í vandræðum í sl. viku voru engar fréttir umfangsmeiri i brezkum fjölmiðl- um en af vandræðum Guinness-fyrirtækisins, sem fyrst og fremst framleiðir hið fræga Guinness-öl og heimsmetabókin fræga dreg- ur nafn sitt af. Sumir þeirra, sem málinu eru kunnugir, taka jafnvel svo til orða, að þessir erfiðleikar Guinness-fyrirtækisins séu mesta hneyksli í fjármálaheimi Lundúna í áratugi. Þetta mál teygist i margar áttir og er farið að valda brezku stjórninni erfið- Ieikum. Um mánaðamótin nóvember- desember á síðasta ári voru rannsóknarmenn frá iðnaðarráðu- neytinu sendir á skrifstofur Guinness-fyrirtækisins, en ráðu- neytið hefur vald til þess sam- kvæmt lögum að rannsaka reikninga fyrirtækja, sem það hefur ástæðu til að ætla, að séu vafasamir. Enginn hafði hugmynd um að þetta stæði til og getgátur voru margvíslegar næstu vikumar á eftir. Verð á Guinness-hluta- bréfum féll. Fljótlega bauð mönnum í grun, að rannsóknin á Guinness-fyrir- tækinu stæði í sambandi við rannsókn á bandaríska fjármála- manninum Ivan Boesky í New York, en sú nefnd, sem á að sjá um að lögum sé fylgt á fjármála- mörkuðum í Bandaríkjunum, Securities and Exchange Com- mission (SEC), hafði komizt að raun um að Boesky hafði græðst stórfé á því að hafa upplýsingar um það fyrirfram, að bjóða ætti í hlutabréf fyrirtækja. En vitn- eskja af þessu tagi er gífurlega verðmæt í fjármálaheimi á Vest- urlöndum. Ástæðan er einföld. Eftir að vitað er, að gert hefur verið tilboð í mikið magn hluta- bréfa einhvers fyrirtækis, stíga þau í verði. Kaupendur á hluta- bréfamarkaði sjá, að veruleg eftirspum er eftir þessum bréfum, sem eykst við þessa vitneskju. Ef einhver veit fyrirfram um, að gera á slíkt tilboð, getur hann notfært sér vitneskju sína, keypt hlutabréf á verðinu fyrir tilboðið og selt þau, þegar þau hafa hækkað í verði. SEC kallaði Ivan Boesky fyrir sig og hann féllst á að greiða yfirvöldum þegar í stað 100 millj- ónir dollara vegna lagabrota sinna. Einnig féllst hann á, að upplýsa nefndina um heimildar- menn sína innan fyrirtækja, hvaða aðferðir hann notaði við kaup á hlutabréfum til að komast hjá grunsemdum, hvaða samninga hann hefði gert við viðskiptavini sína og fleira. Áður en það var gert opinbert, að Boesky hefði samið við nefndina, fékk hann ráðrúm til að selja ýmsar eignir sínar, þar á meðal hlutabréf, til að afla fjár til að geta greitt 100 milljónirnar. Nú er vitað, að Boesky tók þátt í því, þegar Guinness-fyrir- tækið yfirtók Distillers, skozka viskífyrirtækið, á fyrri hluta þessa árs. Brezka iðnaðarráðuneytið fékk upplýsingar um þátttöku hans frá SEC og á grundvelli þeirra upplýsinga var ákveðið að hefja rannsókn á reikningum Guinness-fyrirtækisins. í maí sl. lagði fyrirtæki í eigu Guinness 100 milljónir dala í einn fjárfest- ingarsjóða í eigu Ivans Boesky. Talið er, að það fé hafi verið nokk- urs konar greiðsla fyrir aðstoð Boeskys Við yfirtökuna á Distill- ers. Yfirtaka Guinness á viskífyrir- tækinu voru viðskipti upp á tæpa þijá milljarða enskra punda, eða hundrað og áttatíu milljarða íslenzkra króna. í apríl á síðasta ári var Distillers í eigu Guinness og þá var Guinness-fyrirtækið metið á ríflega þijá milljarða enskra punda. Argyll-fyrirtækið Þótt Saunders virðist hafa beitt ólöglegum aðferðum við yfirtöku Distillers, neitar því enginn, að hann hafði gert Guinness að stór- veldi í drykkjariðnaði. Þegar hann tók við því 1981 átti fyrirtækið í verulegum erfiðleikum, salan á Guinness-ölinu dróst stöðugt sam- an og allar tilraunir til að koma í veg fyrir það mistókust. Fyrir- tækið er írskt að uppruna og var stofnað 1759 og hefur verið í eigu og undir stjóm sömu fjölskyldunn- ar frá upphafí og þar til Saunders var fenginn til að taka við því. hafði boðið á móti Guinness í Dist- illers og átökin á milli þessara tveggja fyrirtækja vom mjög hörð og virðist flestum brögðum hafa verið beitt. Eitt ráðið, sem Emest Saunders, fyrrverandi stjómar- formaður Guinness, greip til ásamt aðstoðarmönnum sínum til að gera sitt tilboð fysilegra fyrir hlutabréfaeigendur Distillers en tilboð Argyll, var að fá ýmsa að- ila til þess að kaupa hlutabréf í Guinness-fyrirtækinu fyrir fé, sem þeir fengu að láni frá Guinn- ess. Þetta varð til þess að hluta- bréf Guinness stigu mjög í verði einmitt á þeim tíma, sem Distill- ers var að ákveða, hvom tilboðinu ætti að taka. En samkvæmt brezkum lögum er fyrirtæki óheimilt að kaupa eigin hlutabréf og einnig að veita einhveijum aðstoð til þess með beinum eða óbeinum hætti. Talið er að Boesky hafí einmitt keypt hlutabréf á þessum tíma, að undirlagi stjómar Guinness- fyrirtækisins. En þeir vom fleiri. Leu-bankinn í Ziirich gerði það einnig og á föstudaginn í síðustu viku varð stjómarformaður hans, Dr. Furer, sem einnig sat í stjóm Guinness, að segja sig úr stjóm þess fyrirtækis. Stjórnarformað- urinn sjálfur, Ernest Saunders, vék úr stöðu sinni 9. janúar sl. vegna rannsóknar iðnaðarráðu- neytisins. Og hann sagði sig úr stjóminni sl. föstudag. Tveir aðrir stjómarmenn sögðu af sér í síðustu viku vegna þessa máls. Þá var það metið á 90 milljónir punda. Nú er það metið á tæpa þtjá milljarða. Vegna þessa máls og þess, að mjög hefur farið í vöxt að fyrir- tæki séu yfírtekin á hlutabréfa- markaði í LundUnum með misjöfnum hætti, varð forsætis- ráðherrann, Margaret Thatcher, að gefa í skyn að það kæmi til greina að setja lög um sérstaka yfírstjóm fjármálahverfisins í Lundúnum, en nýjar reglur gengu í gildi á sl. ári um það efni, sem ekki eru taldar nógu strangar, að mati gagnrýnenda. Stjómin segir hins vegar, að ekki hafi verið reynt á þessar reglur til fullnustu og þegar það gerist, muni koma í ljós, að þær séu mun strangari en til að mynda í Bandaríkjunum. En hvað sem um það má segja, hefur þetta fjármálahneyksli og önnur umsvif í City skaðað mál- stað stjómarinnar. Nú er ljóst, að stjómin mun beita sér fyrir því, að lögfest verði þyngri viðurlög við ólöglegri fjármálastarfsemi. Talið er að í kosningayfirlýsingu sinni muni Ihaldsflokkurinn taka mjög eindregna afstöðu gegn ýmis konar starfsemi Qármála- manna. Um Guinness-málið hafa ónefndir ráðherrar jafnvel látið hafa eftir sér, að fljótlega þyrfti að taka einhvem fastan til að stjórnin byði ekki meiri skaða en orðið er. Höfundur er fréttaritari Morgunblaðsins í Skotlandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.