Morgunblaðið - 24.01.1987, Side 36

Morgunblaðið - 24.01.1987, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987 Davíð Oddsson um fjárhagsáætlun 1987: Framsækin ogþróttmikil en gætt hæfilegrar varfæmi og hagsýni Útsvar 10,2% - Tvær af sameigin- legum breyting’artillögnm minni- hlutans samþykktar FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar var afgreidd snemma á föstudagsmorgni á aukafundi borgarstjórnar. Fjárhagsáætlun hljóð- ar upp á um fimm og hálfan milljarð og er gert ráð fyrir því að útsvar verði óbreytt eða 10,2%. Fundurinn hófst á því að Davíð Oddsson, borgarstjóri, gerði grein fyrir þeim breytingum sem höfðu orðið síðan fyrri umræða fór fram en síðan tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi Kvennalistans, til máls og gerði grein fyrir sjónarmiðum minnihlutans. Að því loknu gerðu borgarfulltrúar minnihlutans grein fyrir breytingartillögum sinum og rökstuðningi við þær en formenn nefnda og ráða því sem efst var á baugi hjá þeim á síðasta ári og atriði varðandi fjárhagsáætlun ásamt afstöðu sinni gagnvart breytingartillögum minnihlutans. Síðan tók við atkvæða- greiðsla og stóð hún á aðra klukkustund. Fundinum lauk klukkan rúmlega fimm um föstudagsmorguninn. „Fjallgarðurinn tók jóðsótt“ Borgarstjóri minntist einnig á sameiginlegar breytingartillögur minnihlutaflokkanna. Sagði hann það reyndar ekki vera venju að fjalla efnislega um þær, fyrr en fyrir þeim hefði verið mælt af hálfu talsmanna minnihlutaflokkanna, nú hefði hins vegar orðið sú nýbreytni á, að tillögurnar hefðu verið kynnt- ar á bláðamannafundi, áður en þær voru kynntar borgarfulltrúum. Davíð sagðist ekki hafa getað séð þegar þessar tillögur voru fyrst bomar upp í borgarráði að þær mörkuðu slík tímamót, né heldur að í þeim kæmi fram svo nýstárieg stefna, að ástæða myndi þykja til að kalla saman skyndifund blaða- manna. Enda væm það líklega ekki tillögumar sem forystummönnum minnnihlutaflokkanna þættu slík nýjung heldur það „fagnaðarundur" að þeim hefði tekist að ná saman um breytingartillögur, þó að visu ekki að fullu og öllu. Minnihluti borgarstjómar flutti 70 sameiginlegar breytingartillögur og voru tvær þeirra samþykktar. Hækkun á framlagi til félagsstarfs aldraðra að Lönguhlíð 3 og 30.000 króna framlag til Guðrúnar Nielsen vegna íþróttaiðkana aldraðra. 109 milljóna hækkun Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði við upphaf umræðunnar að tillögur meirihluta borgarráðs, sem komið hefðu fram síðan fyrri um- ræða um fjárhagsáætlun fór fram, myndu hafa í för með sér hækkun á niðurstöðutölum reikningliða borgarsjóðs sem næmi um 109 milljónum króna. Þar af næmi hækkun rekstrargjalda tæplega 75,9 milljónum en eignabreytinga- gjöld um 33,1 milljón króna. Davíð sagði að einnig mætti gera ráð fyr- ir því að útsvarstekjur yrðu 80 milljónum hærri og hluti borgarinn- ar í tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga 29 milljónum króna hærri en reiknað hefði verið með við fyrri umræðu um frumvarpið í borgar- stjóm. Davíð sagði hækkun styrkveit- inga nema tæplega 33 milljónum króna og munaði þar mest um hækkun á styrkjum vegna fram- kvæmda við íþróttavelli á vegum einstakra íþróttafélaga í borginni. Sá liður hækkar úr 4,9 milljónum í 20 milljónir. Þetta væri liður í þeirri stefnu að draga úr framlögum til framkvæmda við íþróttamann- virki á vegum borgarinnar sjálfrar en hækka í staðinn umrædda styrki og gera hverfisbundnum félögum kleift að flýta frágangi mannvirkja sinna og vallargerð. Aðrar styrkveitingar sagði Davíð nema tæplega 17,8 milljónum króna, en það er nær tvöföldun frá frumvarpsfjárhæðum, sem voru óbreyttar fjárhæðir fjárhagsáætl- unar 1986. Mest munar þar um styrki til félagsmála, en þeir hækka um 9-10 milljónir króna umfram verðlagsforsendur og styrkir til ýmis konar menningar og fræðslu- starfsemi, sem hækka um 3 milljón- ir umfram verðlagsforsendur frumvarpsins. Kostnaður við nýjar stöður hækkar samkvæmt tillögum borg- arráðs um 10,6 milljónir og kostn- aður vegna ýmissa annarra breytinga á rekstri hjá borgarsjóði um tæplega 32,3 milljónir króna en þar munar mestu um leiðréttingu launakostnaðar vegna ræstingar í skólum. Hækkun á eignabreytingagjöld- um nemur 33,2 milljónum og munar þar mest um hækkun á stofnkostn- aði heilbrigðismála um rösklega 10,2 milljónir og 10 milljóna fram- lag til stofnunar sjóðs, sem ætlað er að standa undir lánum til þeirra er ráðast í umtalsverðar viðgerðir og endurbætur á húsum sem talin eru hafa sérstakt varðveislugildi. Frá borgarstjórn Davíð sagði það fyrsta sem hefði komið upp í hug hans þegar hann heyrði „gauraganginn í kringum þennan samruna vinstri flokkanna" hafa verið orðtakið „Fjallið tók jóð- sótt- fæddist mús", en við nánari athugun hefði komið komið í ljós að kannski væri rétt að endurbæta orðtakið „Fjallgarðurinn tók jóð- sótt- fæddist lús“. í raun hefðu fulltrúar minnihlutaflokkanna þurft að gera lúsarleit til að marka sjáan- legan ágreining við meirihluta borgarstjómar. Þetta væri að vísu hagræðingar- og fagnaðarefni og óneitanlega hagfelldara en þegar þeir væru að „flytja 150 tillögur út og suður og koma sér ekki saman nema um eina eða tvær af slíkum tillögum, eins og gerðist á síðasta ári“. Davíð sagði að ef menn hefðu ekki kynnt sér tillögur meirihluta borgarstjómar áður en til kynning- ar kom á breytingartillögum minnihlutans væri hægt að ímynda sér að stærsti hlutinn af fram- kvæmdafé borgarsjóðs rynni til bílastæðahúsa og að þar gætu „góð- ir“ borgarfulltrúar seilst í endalausa sjóði. Þetta sagði hann minna á til- burði á síðasta kjörtímabili að vilja framkvæma allar skýjaborgir með því fé sem átti að renna til gervigra- svallarins. Engin stefnubreyting- Þegar tillögumar væru skoðaðar nánar stæði aftur á móti ekkert eftir sem gæti talist vera stefnu- breyting. Það að vilja fresta ráðhúsi markaði engin stórpólítísk tímamót og upphæðimar sem um væri að ræða breyttu ekki miklu. Þama væri að miklu leyti um að ræða talnaleiki, sem væru afar auðveldir þegar menn væru í minnihluta, en kæmu að engu gagni fyrir þá sem væru ábyrgir fyrir fjármálum og stæðu að meirihlutanum. Borgarstjóri sagðist hafa sann- færst um að engin heilindi fylgdu þessum breytingartillögum þegar hann hefði heyrt hvemig þær vom kynntar og túlkaðar af hálfu minni- hlutaflokkanna. Ekki hefði verið gerð minnsta tilraun til þess að kynna Reykvíkingum margt sem hefði verið gert í þágu þeirra borg- Málflutningi í Kaffibaunamáli lokið: Dóms að vænta inn- an þriggja vikna MÁLFLUTNINGI í Kaffibauna- málinu lauk í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Sverrir Ein- arsson, sakadómari, og meðdóm- endur hans, endurskoðendurnir Sigurður Stefánsson og Jón Þ. Hilmarsson, kveða upp dóm inn- an þriggja vikna. Jónatan Sveinsson saksóknari andmælti í gær ýmsum fullyrðing- um sem fram hefðu komið í vamarræðum verjenda ákærðu. Hann sagði að veijendur slitu málið úr samhengi og kvörtuðu yfír ein- földun málsins. Fyrir utan þá sýknuástæðu sem veijendur héldu fram, að ekki væri um umboðsvið- skipti að ræða, þá segðu þeir einnig að ekki hafi verið um launung gagn- vart Kaffíbrennslu Akureyrar að ræða, þótt gögn sýni annað. Rök þeirra fyrir því séu þau að SÍS hafí ekki verið skylt að upplýsa Kaffíbrennsluna um ágóðann af viðskiptunum. Þessu næst vék sækjandi stutt- lega að vamarræðum hvers veij- anda um sig. Hann sagði að í máli Jóns Finnssonar, veijanda Erlendar Dómur fellur i Kaffi- baunamálinu innan þriggja vikna. Málið dæmir Sverrir Einars- son, sakadómari, sem hér sést fyrir miðri mynd og meðdómendur hans, Sigurður Stefáns- son og Jón Þ. Hilmars- son, endurskoðendur. Fremst á myndinni er dómritari, Hildur Melsted. Einarssonar, hafi komið fram það álit að SÍS hafí, vegna viðskipta- sambanda sinna, öðlast rétt til avisos-greiðsla og Kaffíbrennslan hafi ekki getað samið um slíkt beint við seljendur í Brasilíu. Þetta væri alrangt, enda hefði það komið fram í vitnisburði forstjóra O. Johnson & Kaaber fyrir dóminum að t.d. það fyrirtæki naut sömu réttinda. Þá hafí það hvergi komið fram í málinu að óhjákvæmilegt hafi verið að nota tvöfalda vörureikninga, en því hafí verið haldið fram af veijanda Er- lendar að Brasilíumenn hafi viljað hafa viðskiptin með því móti. Sækjandinn sagði að Guðmundur Ingvi Sigurðsson, veijandi Hjalta Pálssonar, talaði um misskilning hjá ákæruvaldi og væri með dylgjur um annarlegar ástæður fyrir ákæru. Það væri fráleitt af veijand- anum að tala um að ekki hafi verið tveir reikningar í gangi fyrir hveija kaffísendingu, því sjálfur gæti hann ekki skilið hvemig reikningur sem hljóðaði upp á 500 þúsund dollara væri samhljóða öðrum upp á 250 þúsund dollara. Bæði skjölin séu merkt sem reikningar og hafí þetta kerfí þjónað þeim eina tilgangi að gefa SÍS færi á að ná undir sig tekjunum. Trú Kaffibrennslunnar áSÍS ótrúleg Þegar sækjandi gerði athuga- semdir við vamarræðu Eiríks Tómassonar, veijanda Sigurðar Áma Sigurðssonar, sagði hann meðal annars að veijandinn dragi þá ályktun að grófleiki launungar Morgunblaðið/Þorkell við Kaffibrennsluna hafí verið lítill. Sjálfur telji hann launungina hins vegar grófa, enda miklir fjárhags- legir hagsmunir í húfí. Aðstöðu- munur fyrirtækjanna hafi verið mjög mikill og traust Kaffibrennsl- unnar á SÍS ótrúlegt. Þess vegna hafí aldrei hvarflað að fram- kvæmdastjóra Kaffibrennslunnar að kynna sér kaffiviðskipti í heimin- um. Þá sé það alls ekki rétt að stjóm Kaffíbrennslunnar hafi verið sammála framkvæmdinni og hafí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.