Morgunblaðið - 24.01.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vélstjóra
og vélaverði vanta á mb Eyvind Vopna NS
70 og Lýting NS 250 sem gerðir eru út frá.
Vopnafirði.
Upplýsingar í síma 97-3143 á daginn og síma
97-3231 á kvöldin.
Tækifæri
úti á landi
Óska að taka á leigu hótel, söluskála eða
rekstur í svipuðu formi úti á landi.
Reynsla fyrir hendi.
Tilboð óskast send á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Áhugi — 5788"
Fiskvinna
Óskum eftir fólki í allar deildir fiskvinnslu.
Greitt eftir bónuskerfi. Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í símum 98-2254 og 98-2255
(Viðar Elíasson, verkstjóri).
Vinnslustöðin hf.,
Vestmannaeyjum.
Beitningamenn
óskast
Fiskiðjan Bylgja,
Ólafsvík.
Simi 93-6291 og kvöldsími 93-6388.
Heimilishjálp
erlendis
Heimilishjálp erlendis vegna veikinda. Upp-
lagt fyrir stúlku með áhuga á tungumálanámi.
Bílpróf og helst ekki reykingar.
Upplýsinga í síma 53346.
Lögfræðingur
Nýlega útskrifaður óskar eftirstarfi, Getur
byrjað fljótlega.
Lysthafendur vinsamlegast leggið inn upp-
lýsingar á auglýsingadeild Mbl. fyrir 5. feb.
nk. merkt: „Lögfræðingur 1996".
Allt kemur til greina
Húsasmíðameistari sem starfað hefur um
árabil sem rannsóknamaður hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins vill nú breyta
til og óskar eftir atvinnu. Allt kemur til greina.
Tilboð óskast send á inn auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Húsasmíðameistari — 1516“
fyrir 30. jan.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Sólarkaffi ísfirðinga
Sólarkaffi ísfirðingafélagsins verður í Súlna-
sal Hótel Sögu sunnudaginn 25. janúar kl.
20.30.
Miðasala laugardag kl. 16.00-18.00 og
sunnudag kl. 16.00-17.00.
Fjölbreytt skemmtiskrá.
Stjórnin.
SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR
Árshátíð SVFR
Árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur verð-
ur haldin í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn
6. febrúar 1987.
Dagskrá:
Verðlaunaafhending.
Söngskemmtun Ríó tríósins.
Skemmtidagskrá Ladda og félaga.
Happdrætti o.fl.
Dans til kl. 03.00.
Matseðill:
Krabbapate með humarsósu.
Nauta- og grísaorður, Madeira.
Frosin ávaxtatilbrigði.
Húsið verður opnað kl. 18.00.
Borðhald hefst stundvíslega kl. 19.00.
Veislustjóri: Ragnar Halldórsson.
Miðasala verður í félagsheimilinu Háaleitis-
braut 68 í dag, laugardag 24. jan., frá kl.
13.00 til kl. 17.00.
Skemmtinefndin.
SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR
I
húsnæöi óskast
Sendiráð
óskar að taka á leigu skrifstofuhúsnæði ca
220-250 fm í gamla miðbænum eða nágrenni.
Tilboð sendist undirrituðum, sem gefur nán-
ari upplýsingar.
Ágúst Fjeidsted hrl.,
Ingólfsstræti 5,
simi 22144.
þjónusta
Bókhald og endurskoðun
Skattskil, launamiðar, ráðgjöf.
Sigfinnur Sigurðsson, hagfræðingur,
sími 621697 og 686326.
Ertu of upptekin
til þess að finna upp á
einhverju nýju?
Aðstoða innflytjendur við að finna réttu vöruna.
Svar sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Trúnaður-4816"
tifkynningar
Orðsending til
atvinnurekenda frá
félagsmálaráðuneytinu
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið hér með vekja
athygli atvinnurekenda á ákvæði 55. gr. laga
nr. 13 10. apríl 1979 um stjórn efnahags-
mála o.fl., en þar segir að atvinnurekendum
sé skylt að tilkynna Vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins og viðkomandi verka-
lýðsfélagi með tveggja mánaða fyrirvara
ráðgerðan samdrátt eða aðrar þær varanleg-
ar breytingar í rekstri, er leiða til uppsagnar
fjögurra starfsmanna eða fleiri.
Félagsmálaráðuneytið 16. janúar 1986.
Útgerðarmenn
— þorskkvóti
Til sölu er þorskkvóti.
Upplýsingar í síma 687472.
Útgerðarmenn
Vorum að fá takmarkað magn af beitusmokk.
STEFNIR
Laugavegur 172, 105 Reykjavik Simi 1-11688
Símar 11688 og 622866.
Borgarbúar!
Úrvals kartöflur beint frá bóndanum, rauðar
eða gullauga.
Ath. heimsendingarþjónustuna, hún er
ókeypis.
Verð aðeins kr. 32 per. kg.
Eyfirska kartöflusalan,
Vesturvör 10,
Kópavogi.
Sími: 641344.
Innflutningsfyrirtæki
Til sölu lítið innflutningsfyrirtæki með góð
erlend umboð. Traust viðskiptasambönd inn-
anlands.
Tilvalið tækifæri fyrir tvo samhenta aðila.
Farið verður með öll tilboð sem trúnaðarmál.
Tilboð sendist auglýsingadeild fyrir 1. febrú-
ar merkt: „P - 2064“.