Morgunblaðið - 30.01.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.01.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987 23 Franskt blað: Akvörðim um mynd- birtingu vekur nokkrar umræður NOKKRAR umræður hafa spunnist um það í Bandaríkjunum, hvort fjölmiðlar hafi farið út fyrir velsæmismörk í fréttaflutningi af þvi, er féhirðir Pennsylvaníurikis stytti sér aldur í siðustu viku. í því sam- bandi hafa myndbirtingar af atburðinum í blöðum og sjónvarpi sérstak- lega nefndar. Það var hinn 22. janúar s.l., að Budd Dwyer, ríkisféhirðir í Pennsylv- aníu, boðaði blaðamenn á sinn fund til að bera af sér sakir um að hafa þegið mútur. Á fundinum flutti hann ruglingslega ræðu, seildist síðan eft- ir skammbyssu og skaut sig til bana fyrir framan stóran hóp fréttamanna og útvarps- og sjónvarpsmanna. Blöð víða um heim birtu myndir af þessu atviki, en misjafnt var eftir fjölmiðl- um, hvað sýnt var. í grein frá AP í Intemational Herald Tribune um síðustu helgi segir, að ein sjónvarps- stöð í Pittsburgh í Pennsylvaníu hafí sýnt sjálfsmorðið í heild og Dwyer hníga niður örendan. Flestar aðrar stöðvar hafi aðeins sýnt aðdraganda harmleiksins. í blaðinu er haft eftir By Williams, fréttastjóra sjónvarps- stöðvarinnar: „Við höfum séð JFK [John F. Kennedy] skotinn til bana 200 sinnum. Við höfum séð_ Bobby Kennedy skotinn til bana. Á sama hátt var hér sýnt, hvað kom fyrir mikinn áhrifamann í Pennsylvaníu." Sjónvarpstöð í Philadelphiu sýndi sjálfsmorð Dwyer einnig í heild. „Það er enginn munur á þessu og því, þegar skotið var á Reagan eða Sad- at. Sjónvarpið er, það sem myndavél- amar sjá. Fréttastjóri okkar taldi nauðsynlegt, að sýna þetta í heild til að koma fréttinni til skila," sagði talsmaður stöðvarinnar. Hann kvað 200-300 manns hafa hringt og flest- ir kvartað vegna myndanna. Sjónvarpsstöðin KYW-TV í Penn- sylvaníu og margar aðrar stöðvar í ríkinu ákváðu, að sýna sjálfsmorðið ekki. Sumar sýndu Dwyer með byssu í hönd, en aðrar ekki. „Fólki hér varð flökurt af að sjá þetta," sagði Randy Covington, forstjóri KYW-TV. „Við erum eindregið þeirrar skoðun- ar, að það hafí ekki átt að sýna sjálfsmorðið í heild. Eg á tvö böm heima og ég hefði orðið mjög reiður, ef þau hefðu orðið vitni að þessu í sjónvarpinu," sagði hann. Stóru sjónvarpsstöðvamar ABC og CBS sýndu engar myndir frá hin- um örlagaríka blaðamannafundi Dwyers. NBC sýndi myndir af honum með byssu í hönd, en annað ekki. Sama gerði kapalsjónvarpið CNN. „Það var hægt, að segja fréttina án þess að sýna þetta í heild. Hitt þjón- aði engum tilgangi," sagði talsmaður stöðvarinnar. Geðheilbrigðissamtök í Suður- Pennsylvaníu hvöttu sjónvarpsstöðv- ar, sem ætluðu að sýna myndir af sjálfsmorðinu, til að vara áhorfendur við fyrirfram. Þau sögðu, að atvikið gæti hvatt aðra til að fylgja í fóit- spor Dwyers. AP-fréttastofan sendi frá sér margar myndir af fundi Dwyers og sjálfsmorðinu, en varaði jafnframt við myndunum á fjarritum sínum. Meðal mynda AP var ein, þar sem Dwyer hafði stungið byssuhlaupinu í munninn, önnur skömmu eftir að hann hafði hleypt af og sú þriðja þar sem hann lá í blóði sínu á gólfinu. James F. Weseley, ritstjóri í Bandaríkjunum, sem hefur haft for- ystu fyrir hópi ritstjóra við rannsókn- ir á meðferð blaða á ógnvekjandi ljósmyndum, sagði í tilefni umræðn- anna um myndimar af sjálfsmorði Dwyers, að ritstjórar sýndu nú meiri aðgát í ákvörðunum um notkun slíkra mynda en nokkru sinni á seinni tímum. Þeim væri í mun að ganga ekki of nærri lesendum sínum án augljósra ástæðna. Þess má geta, að Morgunblaðið birti Reuters-myndir af blaðamanna- fundi Dwyers 23. janúar s.s. með- fylgjandi úrklippa ber með sér. / Háskólabíói, laugardaginn 31. janúar,kl. 17.00. eftir Giuseppe Verdi með Placido Domingo í adalhlutverki. Alíur ágóði af frumsýningunni rennur tíl starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar íslands og verður honum varið óskiptum tíl að bæta lýsinguna á sviði Háskólabíós. TÓNLISTARUNNENDUR! Styðjum gott málefni. LlFANDl TÓNLIST í ANDDYRI OG Á SVIÐINU í HÁLFTÍMA ÁÐUR EN SÝNING HEFST. Miðaverð er kr. 300. ISLANDS HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS • ALMENNAR TRYGGINGAR Stalín vildi tryggja sér yfírráð yfir Eyrarsundi FRUMSÝNING fyrir nasista. Gilbert þessi hafði ver- ið kennari hjá Rauða hemum á þriðja áratugnum og hafði góð sambönd hjá Sovétmönnum. Meðan hann dvaldist í Sovétríkjunum, hitti hann í eigin persónu fólk eins og Lenin, Dzersjinskij, föður sovésku leyni- þjónustunnar, og Zukov hershöfð- ingja. Gilbert var skotinn til bana á götu í Kaupmannahöfn í október árið 1944. Um Jane Homey segir blaðið, að það sé enn óráðin gáta, hvort hún var tvöföld í roðinu og starfaði bæði fyrir Þjóðverja og Englendinga, eða hvort hún þjónaði enn fleiri herrum, t.d. Svíum og Sovétmönnum. Blaðið hallast að þeirri kenningu, að þetta hættuspil fyrir frelsun Danmerkur í maí 1945 hafi kostað hana lífið. Lifir Jane Horney enn? Blaðið nefnir orðróm, sem gengið hefur, um að önnur kona hafi verið skotin á Eyrarsundi 1945 — í stað Jane Homey, og að hin eina og sanna Jane Horney búi nú í ná- grenni Leningrad. Philippe Bernert, höfundur greinarinnar, sem vakið hefur miklá athygli í Frakklandi, hefur orð á sér fyrir að hafa traust sambönd við leyniþjónustuaðila. Stalin var talinn af því að her- nema Danmörku fyrir töku Berlínar. Aleksandra Kollontaj, „eina kon- an sem Stalin virti“. SENDIHERRA Sovétríkjanna í Stokkhólmi i síðari heimsstyrjöldinni, Aleksandra Kollontaj, taldi Stalín á að hætta við að hrinda í fram- kvæmd áætlun um að láta Rauða herinn hernema Danmörku árið 1945, áður en reynt yrði að taka Berlín, að þvi er fram kemur í franska dagblaðinu VSD nýlega. Að sögn blaðsins var það ætlun Stalíns að koma ár sinni vel fyrir borð á Eyrarsundi til þess að styrkja pólitíska stöðu sína gagnvart Eng- lendingum og Bandaríkjamönnum. „Gerorgij Zukov hershöfðingi, yfirmaður sovésku heijanna í bar- áttunni um Þýskaland nasismans, taldi, að fyrmefnd áætlun væri dæmd til að mistakast, og óttaðist, að framkvæmd hennar kæmi í veg fyrir sigur hans yfir Berlín. Þess vegna fékk hann Aleksöndru Koll- ontaj til að telja Stalín af því að taka Danmörku, áður en lagt yrði til atlögu gegn höfuðvígi nasista.. Aleksandra Kollontaj var eina kon- an, sem Stalín virti," segir blaðið. Þýskur hershöfð- ingi milliliður „Sem milligöngumann milli sín og Aleksöndru," bætir blaðið við, „not- aði Zukov þýska hershöfðingjann Gilbert, sem var vinveittur Sovét- mönnum og hafði komið á fót njósnakerfi fyrir leyniþjónustu þýska hersins, Abwehr, í Skandinavíu — undir merkjum fréttastofunnar Skandinavia Bildburo. Aleksandra sagði við Stalín, að það væri tímaeyðsla að freista þess að ná yfirráðum yfir dönsku sundun- um. Svíþjóð, sagði hún, yrði áfram hlutlaust að styrjöldinni lokinni og mundi heimila sovéskum skipum að sigla þar um. „Gætið að því, að þetta er á yðar ábyrgð," á Stalín þá að hafa svarað," segir í VSD. Þessi staðhæfíng blaðsins — að það hafi fyrst og fremst verið fyrir áhrif Aleksöndru Kollontaj, að Stalín lét undir höfuð leggjast að „frelsa Danmörku“ á undan bandamönnum sínum á Vesturlöndum — kemur fram í langri grein um hinn fræga kvennjósnara, Jane Homey, undir titlinum: „Mata-Hari norðursins“. Ráðin njósn- ari nasista Hlutur Jane Horney í því hernað- arlega og pólitíska sjónarspili, sem blaðið getur um, var sá, að Gilbert hershöfðingi réð hana sem njósnara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.