Morgunblaðið - 20.02.1987, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
42. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Noregnr:
Aðhalds-
aðgerðir
boðaðar
Osló, Reuter.
NORSKA stjórnin œtlar að
leggja frumvarp um aðhaldsað-
gerðir í efnahagsmálum fyrir
þingið f mars, að því er Gunnar
Berge fjármájaráðherra sagði f
gær. Stefnt er að þvf að afgreiða
frumvarpið áður en samninga-
viðræður um kaup og kjör
hefjast f vor.
Berge sagði á blaðamannafundi
að ætlunin væri að afla eins millj-
arðs norskra króna (um 56 milljarða
ísl.kr.) með því að draga úr fjárveit-
ingum til félagsmála og hækka
skatta.
Hann kvað aðgerðimar nauðsyn-
legar vegna Qölda flóttamanna, sem
sótt hafa um hæli í Noregi, og einn-
ig þyrfti að efla ríkisfyrirtæki.
Þingheimur tók yfírlýsingu ráð-
herrans með ró og ætlar stjómar-
andstaðan að skoða fmmvarpið og
kanna hvemig hrinda eigi aðgerð-
unum í framkvæmd áður en gefín
verður út opinber yfírlýsing.
Reuter
RósturíPerú
Flugmaður lét lffið f sprengingu á herflugvelli í Lima í Perú í
gær og embættismaður stjómarinnar var skotinn til bana. Tafið
er að skærulfðar hafi verið að verki. Skæruliðar úr maóistahreyf-
ingunni „Stígur Ijóssins" (Sendero Luminosa) lögðu undir sig sjö
útvarpsstöðvar skamma stund í gær. I sfðustu viku réðist lög-
regla inn f þijá háskóla í Lima og voru átta hundruð námsmenn
handteknir. Aðgerðir þessar hafa vakið mikla reiði f Perú og
hafa mótmæli námsmanna sett sinn svip á höfuðborgina í þess-
ari viku. Á myndinni mundar stúdent með klút fyrir vitum sér
slöngvivað á þaki háskólabyggingar.
Pakistan:
Sprengjutilræði við
afganska skæruUða
Peshawar, Pakiwtan, AP.
KRÖFTUG sprengja sprakk f vöruflutningabifreið fyrir utan skrif-
stofu afgönsku skæruliðahreyfingarinnar Jamiat-i-Islami f bænum
Peshawar f Pakistan f gær. Að sögn lögreglu létust tfu menn f
sprengingunni, þ. á m. fimm böra, og 70 særðust.
Að sögn lögreglu skemmdist
einnig skólabygging sem stendur
gegnt skrifstofunni. Böm vom að
leik við skólann.
Óstaðfestar fregnir herma að
flórir menn hafi verið skotnir til
bana í mótmælum, sem brutust út
þegar reiðir Pakistanar þustu á
götur út eftir sprenginguna, en líkin
hefðu horfið þegar lögregla dreifði
mannfjöldanum. Haft var eftir
blaðamönnum og sjónarvottum að
fólkið hefði hrópað vígorð gegn
Afgönum og varpað gijóti.
Fjöldi íbúa í Peshawar réðist
einnig að verslunum og heimilum
afganskra flóttamanna og kveikti f
húsum og ökutækjum.
Sendiherra Bandaríkjanna í Bonn:
Bandarískt herlið
er forsenda friðar
Fundur helstu iðnríkja heims:
Búist við samkomulagi
um gengi gjaldmiðla
Parífl, AP.
Edouard Balladur, fjármálaráðherra Frakklands, neitaði í gær að
staðfesta að helstu iðnrfki heims ætli að halda fund f Parfs um helg-
ina. En yfirmaður f japanska seðlabankanum sagði að Satoshi Sumit
bankastjóri héldi tíl Parísar f dag til að sitja fund sjö helstu iðn-
ríkja. Þar verður til umræðu að koma jafnvægi á gengi gjaldmiðla.
Bankastarfsmaðurinn sagði að
Sumito ætlaði að hitta seðlabanka-
stjóra og fulltrúa ríkisstjóma iðn-
rílq'anna sjö í efnahagsmálum.
Hann neitaði að staðfesta frétt í
japönsku dagblaði um að Kiichi
Miyazawa flármálaráðherra færi
með Sumita á fund fímm helstu
iðnríkja heims á laugardag.
Embættismenn í Bonn sögðu að
ákveðið hefði verið að halda fundinn
eftir margra vikna viðræður bak
við tjöldin.
Fimm helstu iðnríki heims em
Japan, Bandaríkin, Bretland, Vest-
ur-Þýskaland og Frakkland. Þegar
talað er um sjö helstu iðnríki bæt-
ast Ítalía og Kanada við.
Á fundi fímm helstu iðnríkja í
september árið 1985 var ákveðið
að stuðla að lækkun gengis Banda-
ríkjadollara til að aðstoða við að
minnka viðskiptahalla Bandaríkja-
manna og lækka verð á banda-
rískum útflutningsvörum. Síðan
hefur dollarinn snarlækkað gagn-
vart helstu gjaldmiðlum heims án
þess að tilætlaður árangur næðist.
Gengi dollara hækkaði í gær vegna
frétta af fundinum.
Vestur-Þjóðveijar hafa lýst yfír
því að þeir muni aðeins sitja fund
fímm helstu iðnríkja ef unnt verður
að komast að samkomulagi um
gengi gjaldmiðla. Ifyrst ákveðið
hefur verið að halda fund er líklegt
að þegar hafi náðst samkomulag
um meginatriði og fyrir henni sé
tillaga, sem ráðherrar og banka-
stjórar þurfi aðeins að ræða og
veita samþykki sitt.
Washington, Reuter.
RICHARD Burt, sendiherra
Bandaríkjanna í Vestur-Þýska-
landi, kvaðst f gær telja að átök
í líkingu við heimsstyrjaldirnar
tvær gætu blossað upp ef herlið
Bandaríkjamanna yrði kallað frá
Evrópu. Burt lét þessi orð falla
á ráðstefnu sem bandarfsk stofn-
un (Cato-institute) gekkst fyrir
um Atlantshafsbandalagið og
fjárframlög Bandaríkjastjómar
til þess.
Tilefíii ráðstefnunnar var útgáfa
bókar eftir bandaríska hagfræðing-
inn Melvin Krauss, sem nefnist
„Þannig veikir NATO Vesturlönd".
I bókinni koma fram ákveðnar efa-
semdir höfundar um að fjárframlag
Bandaríkjastjómar til NATO skili
tilætluðum árangri. Krauss kveðst
telja að vera bandarískra hermanna
í Evrópu sýni að Evrópumenn
treysti ekki loforðum Bandaríkja-
manna um að veita þeim vemd ef
til ófriðar dregur.
Burt kvaðst telja að aukinnar
tilhneigingar til að halla sér að
Sovétríkjunum myndi gæta hjá
ríkjum Evrópu ef Bandaríkjamenn
kölluðu herlið sitt á brott.
Haughey
falin stjórn-
armyndun
Dublin, Reuter.
CHARLES Haugliey, leiðtoga
flokksins Fianna Fáil, vantar
þijú þingsæti upp á að geta
myndað meirihlutastjóra í írska
lýðveldinu.
Talningu atkvæða í þingkosning-
unum lauk í gær og hlaut Fianna
Fáil 81 þingsæti. 166 þingsæti eru
á írska þinginu. Haughey tekur nú
við forsætisráðherraembættinu í
flórða sinn og verður hann að
treysta á stuðning þriggja óháðra
þingmanna.
Sjá bls. 22.
Gorbachev:
Afsögn ef endur-
bætur stöðvaðar
Moflkvu, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, sagði við sovéska
blaðamenn f sfðustu viku að hann
yrði að segja af sér, ef andstaða
við endurbótastefnu hans myndi
binda enda á hana. Yegor
Yakovlev ritstjóri greinir frá
þessu f vikuritinu Moskvufréttir.
Þar sagði að Gorbachev hefði
látið þessi ummæli falla á fundi
með fimmtán blaðamönnum fyrir
viku. Yakovlev sagði að þar hefði
komið í ljós að aðalfundi miðstjóm-
ar sovéska kommúnistaflokksins
hefði verið frestað þrisvar áður en
hann var settur 27. janúar.
„Ef miðstjómin hefði komist að
þeirri niðurstöðu að endurbætur
ættu ekki rétt á sér og þeim bæri
að haftia, hefði ég sagt að ég gæti
ekki haldið áfram störfum," hafði
Yakovlev orðrétt eftir Gorbachev.
Anatoly Koryagin lát-
inn laus úr fangelsi
Moflkvu. AP.
Moskvu, AP.
Sálfræðingnum Anatoly
Koryagin hefur nú verið
sleppt eftir fimm ára vist í
þrælkunarbúðum og fang-
elsi, að því er haft var eftir
Yelenu Bonner f gær.
Bonner kvaðst hafa frétt að
Koryagin hefði verið látinn laus
hjá vinum sálfræðingsins. Hún
sagði að þeir hefðu hringt í sig í
gær og greint frá því að Koryag-
in væri nú á heimili sínu í borginni
Kharkov í ÚkraSnu.
Koryagin var dæmdur til sjö
ára fangelsis og útlegðar innan-
lands árið 1981. Hann var
sakaður um að hafa komið á fram-
færi áróðri gegn Sovétríkjunum
og kynnt undir andófí vegna þess
að hann birti fregnir af sovéskum
Anatoly Koryagin.
Reuter
andófsmönnum, sem lagðir höfðu
verið inn á geðsjúkrahús.
Örlög Koryagins vöktu reiði á
vesturlöndum og evrópskir þing-
menn tilnefndu hann til friðar-
verðlauna Nóbels á þessu ári.
Eiginmaður Bonners, friðar-
verðlaunahafinn Andrei Sakh-
arov, hefur nokkmm sinnum tekið
mál Koryagins upp síðan þau hjón
vom látin laus úr útlegð í Gorkí
23. desember.
Gennady Gerasimov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
tilkynnti í gær að æðstaráð
kommúnistaflokksins hefði náðað
andófsmanninn Iosif Begun og
sagði að hann yrði látinn laus úr
Chistopol-fangelsinu í dag. Geras-
imov sagði að náðunin hefði verið
undirrituð á þriðjudag.