Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987 Ellefu íþróttamenn heiðraðir MORGUNBLAÐIÐ hefur undan- farin ár heiðrað íslenskt afreks- fólk í íþróttum og í gœr fengu ellefu íþróttamenn viðurkenn- ingu fyrir unnin afrek á sfðasta ári. Árangur íslenskra íþrótta- manna var sérstaklega gófiur á árinu sem leifi og hefur sjaldan verifi betri. Hæst ber frækilegan árangur landsliðsins í handbolta á HM, en knattspyrnulandsliðið stóð sig einnig vel í Evrópu- keppninni í haust. Körfuknattleik- urinn er á uppleifi, sundfólkifi er í mikilli framför, skíðamenn sækja á og kylfingar eru í stöð- ugri sókn. Eftirtaldir afreksmenn voru heiðraðir: Knattspyrna Guðmundur Torfason, Fram, markakóngur 1. deildar. Viðar Þorkelsson, Fram, stiga- hæsti leikmaður 1. deildar í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Handknattleikur Egill Jóhannesson, Fram, markakóngur 1. deildar. Guðmundur Guðmundsson, Víkingi, handknattleiksmaður ársins. Körfuknattleikur Valur Ingimundarson, UMFN, stigakóngur úrvalsdeildarinnar. Pálmar Sigurðsson, Haukum, körfuknattleiksmaður ársins. Linda Jónsdóttir, KR, körfuknatt- leikskona ársins og stigadrottn- ing. Golf Úlfar Jónsson, GK, kylfingur ársins. Steinunn Sæmundsdóttir, golfkona ársins. Sund Eðvarð Þór Eðvarðsson, sund- maður ársins. Skfði Einar Ólafsson, ísafirði, skíða- maður ársins. MorgunDlaöiö/Bjarm tiriKsson • Morgunblaðið heiðraði ellefu fþróttamenn fýrir unnin afrek á sfðasta ári. Á myndinni eru f fremri röð frá vinstri: Linda Jónsdóttir KR, körfuknattleikskona ársins, Haraldur Sveinsson, framkvæmda- stjóri Morgunblaðsins, Steinunn Sæmundsdóttir GR, golfkona ársins, og Guðmundur Guðmundsson Vfkingi, handknattleiksmaður ársins. Aftari röð frá vinstri: Halldór B. Jónsson, sem tók við viðurkenn- ingunni fyrir hönd Guðmundar Torfasonar Fram, markakóngs 1. deildar í knattspyrnu, Halldór Ólafsson, sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd bróður síns, Einars Ólafssonar ÍBI, skíðamanns ársins, Viðar Þorkelsson Fram, stigahæsti leikmaður 1. deildar f knattspyrnu í einkunnagjöf Morgun- blaðsins, Valur Ingimundarson UMFN, stigahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, Pálmar Sigurðsson Haukum, körfuknattleiksmaður ársins, Egill Jóhannesson Fram, markakóngur 1. deildar f handknattleik, og Úlfar Jónsson GK, kylfingur ársins. Á myndina vantar Eðvarð Þór Eð- varðsson UMFN, sundmann ársins. -j® Nurnberg er spáð glæstri framtfð. ZANUSSI KÆLI- SKÁPUR Gerö Z—5250 H 200 lítra kælir. Mál H x B x D = 142x53x60 cm. 50 lítra 4ra stjörnu sér frystihólf. Sjálfvirk afhríming í kæli- skáp. Frystigeta 5 kg/24 klst. Val á huröaropnun (hægri-vinstri). Fæst í 5 litum. Hagstætt verð. Góð kjör. Þýska knattspyrnan: Mikil barátta hjá botnliðunum Frá Slgurði Bjömssyni f V-Þýskslandi. NEÐSTU liðin f þýsku Bundeslig- unni f knattspyrnu eiga erfiðar vikur og mánuði fyrir höndum. Tvö neðstu falla, en liðið, sem hafnar f 16. sæti, leikur við þriðja efsta lið 2. deildar um sæti f 1. deild næsta tfmabil. Þvf er mikil og hörð barátta framundan hjá neðstu liðunum og ekkert iið mun falla átakalaust. Eintracht Frankfurt Franljfurt-liðið upplifir nú aðra tíma en áður. í stað þess að vera með í toppbaráttunni, hefur liðið undanfarin fjögur ár verið í botn- baráttunni og í fyrra slapp liðið rétt við fall. í lok fyrri umferðar dró til tíðinda hjá Frankfurt en þá var þjálfari liðsins, Weise, rekinn eftir að hafa lent í útistöðum við for- ráðamenn liðsins um nýráðinn framkvæmdastjóra, Wolfgang Krause, en hann leikur einnig með liöinu. Weise þykir með virtari þjálf- urum í Þýskalandi og er erfitt að geta sér til um hvernig brottrekst- ur hans virkar á liðið. Frankfurt sýnir af og til mjög góða leiki og eru mjög góðir menn í liðinu eins og t.d. pólski landsliðs- maðurinn Smolarek og þýsku landsliðsmennirnir Thomas Bert- hold og Ralf Falkenmayer svo og Andreas Miiller, en hann er aðeins átján ára gamall og þykir einn sá efnilegasti í dag í þýsku knatt- spyrnunni. Seinni umferðin kemur til með að verða erfið leikmönnum Frank- furts, en iiðið hefur alla burði til að hækka sig í stigatöflunni. Niirnberg Eins og Frankfurt lifir Nurnberg á fornri frægð, en ekkert annað lið hefur eins oft orðið Þýskalands- meistari og Nurnberg. Liðið kom upp úr annarri deild fyrir tveimur árum og er skipað mjög ungum og efnilegum leikmönnum. Meðal- aldur leikmanna er sá lægsti í Bundesligunni, rétt um tuttugu og tvö ár. Nurnbergliöinu er spáö glæstri framtíð, en reynsluleysið hefur háð liðinu mjög það sem af er tímabil- inu. Nurnberg spilar sóknarknatt- spyrnu og vill þá oft vörnin gleymast. Því hafa þeir tapað mörgum stigum af hreinum klaufa- skap og segir fimmtánda sætið ekkert til um getu liðsins. Margir stórefnilegir leikmenn eru í liðinu eins og Dieter Eck- stein, en hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Austurríkismönn- um í vetur svo og Stefán Reuter aðeins tvítugur að aldri sem hefu'r þegar skipað sér á bekk mefi bestu leikmönnum í Þýskalandi. Með sama áframhaldi verður hann „li- beró" í þýska landsliðinu að sögn Frans Beckenbauer. í seinni umferðinni verður gam- an að fylgjast með Nurnbergliðinu því það er til alls líklegt. Homburg Homburg er það lið ásamt, Dús- seldorf og Berlin, sem fyrirfram var dæmt til að standa í botnbarát- tunni. Þessi þrjú lið koma til með að berjast um sextánda sætið, en það veitir rétt til að spila viö það lið sem verður í þriðja sæti annarr- ar deildar um sæti í Bundesligunni. Homburg, sem nú spilar í fyrsta skipti í sögu félagsins í Bundeslig- unni, var fyrir þremur árum áhugamannaliö og hafa hlutirnir gengið hratt fyrir sig. Aðeins tvö ár í annarri deild og síðan sú fyrsta. Velgengni liðsins hefur komið á óvart og er takmarkið að halda sér uppi fyrsta árið. Það hefur gengið á ýmsu hjá Homburg og var þjálfar- inn rekinn eftir aðeins þrjár umferðir. Einnig hafa meiðsl hrjáð leikmenn liðsins og hafa þeir oft- ast teflt fram hálfgerðu varaliði. Homburg hefur nú tveggja stiga forskot á Dússeldorf og Berlin og mun þetta verða mjög hörð bar- átta milli þessa liða um sextánda sætið. Blau-Weiss Berlin Berlin er eins og Homburg í fyrsta skipti í sögu félagsins í Bun- desligunni og bæði voru áhuga- mannalið fyrir þremur árum. Aðeins tveir leikmenn liðsins hafa einhverja reynslu í Bundesligunni. Þþað eru þeir Horst Feilzer, sem í fyrra spilaði með Bayer Uerding- en, og markvörður liðsins, Rein- hard Mager, sem lengi spilaði með Bochum. Er fyrri umferðin var hálfnuð lánaði Ánderlecht Belgíu- manninn Vanderberg og hefur koma hans styrkt liðiö nokkuð, en liðinu er ýmsu ábótavant og eru erfiðir tímar framundan fyrir Blau- Weiss. Fortuna Dusseldorf Dússeldorf vermir nú neðsta sætið eins og svo oft áður, ón síðastliðin ár hefur þeim tekist á síðustu stundu að sleppa við fall. En Dússeldorf-liðiö hefur þó sýnt að það geti spilaö góða knatt- spyrnu og þá sér í lagi í bikar- keppninni, en þar sló liðið út lið eins og Bayer Leverkusen og Bay- ern Múnchen. Reynsla leikmanna Dusseldorf mun eflaust reynast þeim dýrmæt í fallbaráttunni og eru þeir þar betur settir en leik- menn Homburg eða Berlin. Eins og sjá má á þessari úm- fjöllun, má búast við spennandi keppni þegar Bundesligan fer aftur af stað á morgun, hvort sem litið er á botn eða topp deildarinnar. LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI: 50022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.