Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987 Tveir lögreg’luþjón- ar myrtir í Róm Talið fullvíst að Rauðu herdeildirnar hafi verið þar að verki Tórínó, frá Brynju Tomer fréttaritara Morgnnblaðsins. Rannsóknir og yfirheyrslur í tengslum við ránið sem fram- ið var i Róm sl. laugardag og leiddi til dauða tveggja lögregiuþjóna, benda til þess að Rauðu herdeildimar hafi verið að verki. Þœr hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu og þykir flest benda til þess að hér hafi verið um hefndar- verk að ræða. Tveir meðlimir Rauðu herdeildanna em nú eftirlýstir, en þeir komust undan með 1150 milljónir líra, sem svarar til um 35 milljói Ódæðið í Róm síðastliðinn laug- ardag, er tveir lögreglumenn voru myrtir að störfum. hefur vakið mikinn óhug meðal ítaia. Mál þetta hefur verið til umræðu á ítalska þinginu og á miðvikudag hélt Luigi Scalfaro innanríkisráðherra langa ræðu um málið í báðum deildum þingsins. „Hryðjuverkastarfsemi ýmiskonar eykst sífellt þrátt fyrir aukið öryggiseftirlit á flestum svið- um,“ sagði ráðherrann meðal annars." Síðastliðinn laugardag var póst- flutningabifreið rænt framan við aðalpósthúsið í Róm. Er lögreglu- menn hugðust stöðva ræningjana hófst mikill skotbardagi sem end- aði með því að tveir lögreglumann- anna féllu. Ræningjamir komust á brott og eru nú eftirlýstir. Þegar í upphafi beindust böndin að Rauðu herdeildunum, sem rejmdar lýstu yfír ábyrgð á verkn- aðinum skömmu síðar. Ránið var vel skipulagt, ræningjamir töluðu við íbúa og verslunareigendur í götunni og vöruðu þá við skot- íslenskra króna. bardaga sem mundi hefjast innan stundar. Þóttust þeir vera lög- reglumenn og báðu fólk að vera rólegt. í desember 1984 gerðu meðlim- ir Rauðu herdeildanna tilraun til að ræna brynvörðum bfl sem flutti mikla fjármuni. Tilraunin mistókst og einn meðlimur Rauðu herdeild- ánna lét lífíð. Félagi hans, kona að nafni Cicilia Massara, slasaðist töluvert en hélt þó lífí. Hún starfar enn með Rauðu herdeildunum og er nú í gæsluvarðhaldi vegna ráns- ins síðasta laugardag. Hún hefur gefið I skyn að hér hafí verið um hefndarverk að ræða „í minningu látinna félaga“. Einnig lýsti hún því yfír að Rauðu herdeildimar mundu berjast áfram fyrir „góðu lífí íbúa landsins" og stríða gegn einveldi og NATO. í kjölfar þessar- ar yfírlýsingar hefur öryggisgæsla á starfsmönnum NATO verið hert til muna, en talið er að hermenn og yfírmenn hersins séu í hættu gagnvart morðóðum félögum Rauðu herdeildanna. James Webb skipaður flotamálaráðherra; Sagður líkjast fyrirrennara sínum í flestu Bandaríkjaþing kann að reynast honum þungnr ljár í þúfu Waahington, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti hefur skipað James Webb eftirmann Johns Lehman flotamálaráðherra. Webb er þekktur rithöfundur og m.a. verið útnefndur til Pulitzer- verðlauna. Hann er sagður minna um margt á Lehman og er þvi talið að stjómin muni fylgja óbreyttri stefnu þótt nýr maður muni setjast í stól flota- málaráðherrans. James Webb er fertugur að aldri, lögfræðingur að mennt, og gat sér gott orð í Víetnam-stríð- inu. Hann hefur verið aðstoðar- vamarmálaráðherra í stjómartíð Reagans og hafði yfírstjóm vara- liðs Banadaríkjahers með hönd- um. Líkt og John Lehman er Webb lýst sem manni sem setur sér markmið og gerir allt til að ná þeim. „Webb er gáfumenni og hann mun ekki láta niðurskurðar- menn setja sig út af laginu þegar hann krefst aukinna Qárveitinga til flotamála. Hann er maður geðs- legur og fullur sjálfstrausts," sagði embættismaður í vamar- málaráðuneytinu í viðtali við fréttamann Reuter-fréttastofunn- ar. Lehman var óhræddur við að krefjast gífurlegra flármuna til uppbyggingar flotans og setti saman sérstaka áætlun í þessu skyni þar sem ráðgert er að Bandaríkjafloti ráði yfir 600 her- skipum árið 1989. Þá mótaði hann nýja herfræðikenningu en sam- kvæmt henni er gert ráð fyrir að Bandaríkjafloti sendi öflug flug- móðurskip til svæða þar sem óvissuástand kann að skapast m.a. á norðurslóðum. Lehman hikaði ekki við að hafa afskipti af málum, sem að öllu jöfnu heyra ekki undir valdsvið flotamálaráðherra, og hlaut oft- lega litlar þakkir fyrir. Þeir embættismenn sem til þekkja segja að James Webb muni óhræddur beita sömu aðferðum til að ná fram markmiðum sínum. Hins vegar benda þeir hinir sömu á að Webb kunni að eiga við ramman reip að draga þar sem þingmenn muni reynast ófúsir að samþykkja þær flárveitingar sem flotinn þarf til reksturs og við- halds. Webb lauk námi frá Sjóliðs- foringjaskólanum og starfaði einnig fyrir hermálanefnd full- trúadeildar Bandaríkjaþings. Hann var sæmdur fjölmörgum heiðursmerkjum fyrir framgöngu sína í Víetnam-stríðinu. Fyrir skömmu kvaðst hann ætla að láta af störfum í vamarmálaráðuneyt- inu og helga sig skriftum. Sem fyrr sagði hefur hann skrifað nokkrar bækur. Þekktust mun vera Fields of Fire, sem fjallar á gagnrýninn hátt um, Víetnam- stríðið. Webb ritaði einnig A Sense ofHonour, sem íjallar um Sjóliðs- foringjaskólann og A Country Such as This en fyrir þá bók var hann útnefndur til Pulitzer-verð- launa. Reuter John Runnings. Myndin til hægri sýnir hann ganga i hægðum sínum eftir Berlínarmúrnum. Austur-Berlín: Hlaut 18 mánaða skílorðs- bundinn fangelsisdóm - fyrir mótmæli við Berlínarmúrinn AuHtur-Berlín, AP. Bandaríkjamaðurinn John Runnings var í gær dæmdur i 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir mótmæli við Berlínarmúrinn. Dómari i Aust- ur-Berlin kvað dóminn upp í gær en Runnings var hand- tekinn á Berlínarmúmum 18. nóvember siðastliðinn. Þegar Runnings var handtek- inn var hann vopnaður hamri og hafði hann brotið upp steinsteypu ofan á múmum. Austur-þýskir landamæraverðir höfðu hins veg- ar oft séð til Runnings þar sem hann hljóp eftir múmum hrópandi vígorð gegn honum. Höfðu verð- imir oftylega afskipti af Runn- ings, sem er 69 ára gamall, en komu honum jafrian í hendur yfír- valda í Vestur-Berlín. Eitt skiptið óku austur-þýskir landamæra- verðir Runnings að landamæmn- um og þóttust þess fullvissir að hann yrði fluttur til Banda- ríkjanna. Svo fór þó ekki og skömmu síðar sást til hans við múrinn þar sem hann veifaði fána með áletruðum slagorðum. Talsmaður bandaríska sendi- ráðsins í Austur-Berlin sagði að samkvæmt dómnum yrði Runn- ings rekinn úr landi og dæmdur í 18 mánaða fangelsi ef hann kæmi aftur til Austur-Þýskalands innan þriggja ára. Kvaðst hann búast við að Runnings yrði fluttur til Vestur-Þýskalands í dag. Tals- maðurinn sagði Runnings hafa fengið að segja álit sitt á Berlín- armúmum frammi fyrir dómaran- um. Ákærandinn hafði krafíst 18 mánaða fangelsisdóms og þóttist Runnings heppinn að sleppa með skilorðsbundinn dóm. Bandaríkjaþing: Frumvarp um bann við sígarettuauglýsingum að auglýsingum þeirra sé beint til tilgangurinn sé aðeins að fá fólk unglinga og baraa. Þeir segja að til að skipta um tegund. Fjárlög fyrir EB samþykkt Straabourg;, Reuter. EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti loks í gær fjárlög fyrir Evrópu- Waghington, Reuter. FRUMVARP um bann við síga- rettuauglýsingum i dagblöðum, tímaritum og á götum úti var lagt fram í gær af 26 banda- riskum þingmönnum. Þingmenn- irnir, sem eru bæði úr flokki repúblikana og demókrata, segja að auglýsingarnar örvi reyking- ar barna. Árið 1971 lagði Bandaríkjaþing fram bann við tóbaksauglýsingum í útvarpi og sjónvarpi. Frummælandi frumvarpsins Mike Synar f fulltrúadeildinni sagði: „Nú er tími kominn fyrir þingið að banna villandi auglýsingar sem hvetja ungt fólk til þess að taka upp þennan vanabindandi ósóma, sem banar u.þ.b. 1000 Bandaríkja- mönnum á dag. Við heimilum nú tóbaksframleiðendum að auglýsa eftir staðgenglum fyrir þær tvær milljónir reykingamanna sem hætta á ári hverju og þær 350.000 sem deyja af völdum reykinga. Við vit- um að fullorðnir byija ekki að reykja, svo að augljóst er að auglýs- ingamar beinast að börnum," sagði Synar á blaðamannafundi. Þingið vill lfka banna tóbaksframleiðend- um að styrkja rokktónleika og íþróttakeppni með fjárframlögum. Tóbaksframleiðendur mótmæla þvf, bandalagið (EB) fyrir árið 1987. Með þvi var komið í veg fyrir öngþveiti í fjármálum bandalags- ins og bundinn endir á deilur þær, sem staðið hafa yfir milli þingsins og ríkisstjóraa aðild- arrílga bandalagsins. Evrópuþingið, sem hefur flárveit- ingavald ásamt með ríkisstjómum aðildarríkjanna, samþykkti með 301 atkvæði gegn 41 að fallast á endurskoðað Qárlagafrumvarp ráð- herranefndar bandalagsins, en niðurstöðutölur þess eru um 41 milljarðar dollara. Gert var ráð fyr- ir því, að Henry Plumb lávarður, forseti þingsins, myndi undirrita fjárlögin sfðdegis f gær. Ekki tókst að ná samkomulagi um fjárlög EB fyrir 1. janúar sl., sem leiddi til þess, að grípa varð til neyðarúrræða, sem ekíd gátu orðið til að ieysa flárhagsvanda EB, þegar til lengdar lét. Fjárlögin, sem samþykktu voru, gera ráð fyrir halla að fjárhæð um 5,7 milljarðar dollara. Halli þessi á fyrst og fremst rót að rekja til hinna miklu útgjalda EB til landbúnaðarmála, en þau gleypa um 2/3 af útgjöldum banda- lagsins. I gær lagði Jacques Delors, for- seti framkvæmdaráðs EB, til að gerðar yrðu róttækustu breytingar í flármálum bandalagsins, allt frá því að það var stofnað fyrir 30 árum. Gert er ráð fyrir, að fjármála- ráðherrar aðildarríkja EB kynni sér þessar tillögur fyrir næsta sunnu- dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.