Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987
2.400 manns atvinnu-
lausir í janúar sl.
51.000 atvinnuleysisdagar voru
skráðir á landinu öllu í janúar-
mánuði síðastliðnum. Það jafn-
gildir þvi, að 2.400 manns hafi
að meðaltali verið á atvinnuleys-
isskrá í mánuðinum. Það svarar
til 2,% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaðnum samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar. Þetta er
lægri tala en í janúar á síðasta
ári en tvöfalt hærri en í desem-
ber síðastliðnum.
í frétt frá vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins segir að
fjölgun skráðra atvinnuleysisdaga
frá því í desember megi rekja til
verkfalls fískimanna fyrri hluta jan-
úarmánaðar. Síðasta virkan dag
mánaðarins hafí flöldi skráðra verið
kominn niður fyrir 1.500 manns,
þannig að atvinnulífíð hafí fljótt
leitað jafnvægis eftir að veiðar hóf-
ust að nýju.
Þrátt fyrir stöðvun veiða í janúar
síðastliðnum vegna verkfallsins hafí
ijöldi skráðra atvinnuleysisdaga
verið svo til hinn sami og í sama
mánuði í fyrra. Skýringar á þessu
sé vafalaust að leita í því, að vegna
fastráðningarsamninga við físk-
vinnslufólk, en gerð þeirra hafí
hafízt síðast liðið haust, hafí orðið
minna um uppsagnir í fískvinnsl-
unni vegna verkfalls sjómanna, en
vænta hefði mátt. Tölur um þá, sem
hafí haldið launum í fískvinnslunni,
þrátt fyrir hráefnisskort, liggi ekki
fyrir ennþá, en miðað við fyrri
reynslu megi gera ráð fyrir að sá
fjöldi hafí getað numið 1.000 til
1.200 manns.
Raðhús við Vogatungu sem Kópavogsbær byggir
öryrkja.
fyrir
aldraða
og
Kópavogur:
Raðhús fyrir
aldraða og öryrkja
FYRSTU leiguíbúðimar í rað-
húsum, sem Kópavogsbær hefur
látið byggja við Vogatungu og
ætlaðar eru öldruðum og öryrkj-
um, verða afhentar 6. til 9. mars
næstkomandi. Þegar er fullskip-
að í íbúðimar.
Ólafur Jónsson formaður bygg-
inganefndar sagði að fyrirhugað
væri að byggja 28 leiguíbúðir í rað-
húsum á vegum bæjarins í þessu
hverfí. Fyrstu níu íbúðimar yrðu
afhentar í mars en aðrar ellefu eru
í byggingu og verða væntanlega
afhentar á þessu áru. Að auki eru
framkvæmdir við grann að átta
síðustu húsunum þegar hafnar og
er stefnt að því að þau verði tilbúin
til afhendingar á næsta ári.
Hver íbúð, sem er 70 fermetrar
að stærð er ætluð tveimur íbúum
og er sérstaklega hönnuð með tilliti
til aldraðra og fatlaðra. íbúðimar
eru afhentar full frágengnar með
öllum innréttingum og fylgir lítil lóð
hverju húsi.
Að sögn óilafs er ekki gert ráð
fyrir sérstakri þjónustu við íbúanna
heldur munu þeir hafa aðgang að
þjónustu aldraða sem boðið er upp
á, á vegum bæjarins í miðbænum
hinumegin við götuna.
Grindavík:
Myndbandstæki stolið
úr grunnskólanum
Algengt að myndbandstækjum sé stolið úr bátum
Grindavík.
BROTIST var inn í grunnskólann
í Grindavík aðfaranótt miðviku-
dagsins og stolið Panasonic
myndbandstæki ásamt spennu-
breyti.
Að sögn lögregiunnar var farið
inn um glugga á norðurhlið skólans
og síðan brotin rúða í dyram kenn-
arastofu, en þar var allt látið vera.
Reynt var að komast inn á skrif-
stofu skólastjórans og efnafræði-
stofu, án árangurs, en hurðir
skemmdar. Myndbandstæki stóð á
vagni utan við eina kennslustofuna
og höfðu hinir óboðnu næturgestir
það með sér.
Fyrir nokkram dögum var einnig
stolið myndbandstæki úr netabátn-
um Hragni GK í Grindavíkurhöín
og er það mál enn óupplýst. Mynd-
bandsþjófnaður úr bátum er orðinn
mjög algengur og virðist vera þægi-
legt að ná tækjunum og losna við
þau, þó af og til komi tæki f leitim-
ar þegar stór þjófnaðarmál upplýs-
ast hjá lögreglunni í hinum ýmsu
byggðalögum.
Kr.Ben.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Grínland er ungt fyrirtæki í „skemmtibransanum“. Aðstandendur þess eru þó engir nýgræðingar
í faginu: Gunnar Þórðarsson, Björn Björnsson og Egill Eðvarðsson.
Frumsýning á Broadway:
Gullöld rokksins mynd-
skreytt í dansi og tónum
Til átaka kemur miHi stríðandi fylkinga: Töffarinn og gleraugnaglámur bítast um sömu stúlkuna.
LJÚFIR tónar og trylltir, sóttir
f sjóð „Gullaldar*1 rokksins eins
og hún er stundum nefnd, eru
í öndvegi sýningar Grinlands
og skemmtistaðarins Broadway
sem frumsýnd verður í kvöld.
Þeir þremenningar Egill Eð-
varðsson, Björn Björnsson og
Gunnar Þórðarsson eru skrif-
aðir fyrir handriti og útliti
dagskrárinnar sem þeir kjósa
að nefna „Allt vitiaust." „Við
vildum fjör, mikla tónlist og
mikinn dans,“ sagði Egill.
„Þetta er ekki söngleikur, ekki
leikrit og ekki upprifjun í anda
rokkhátfðanna sem Broadway
hefur haldið. Við vinnum ein-
faldlega úr tfðaranda, tökum
allt það skemmtilega frá þess-
um árum; kfmnina, fjörið og
tónlistina. Afraksturinn er sýn-
ing sem höfðar tíl allra aldurs-
hópa.“
Bjöm sagði þeir félagar hefðu
sest niður í byijun janúar og
ákveðið þráðinn í sýningunni.
Síðan hefðu lögin verið valin. Hin
elstu frá árinu 1956, hin yngstu
frá árinu 1962. „Við sátum saman
helgi eftir helgi, Gunni með gítar-
inn og við hinir raulandi."
Þeir sögðust að ætlunin hefði
verið að búa til viðameiri sýningu
sem skotið hefði verið á frest
vegna þess að hún krefðist meiri
undirbúnings. Þeir hefðu kosið að
nota rokkárin sem efnivið og því
búið til litlar myndskreytingar við
tónlist. Hún réði samt ferðinni.
„Umgjörð sýningarinnar er djús-
barinn þar sem unglingamir koma
saman og úr útvarpinu hljómar
kynnirinn, Jón Axel Ölafsson, sem
bregður sér á næturvaktina fyrir
tæpum þremur áratugum," sagði
Egill. „Þeir sem fylgst hafa með
verkefhum okkar í auglýsinga-
gerð munu kannast við ýmsar
hugmjmdir sem við notum hér.“
Gunnar hefur sér til fulltingis
hljómsveit sem hann segir
„draumabandið", skipaða 7 lands-
þekktum hljóðfæraleikuram úr
ýmsum áttum. Fjórir söngvarar
flytja lögin með hljómsveitinni,
þau Sigríður Beinteinsdóttir,
Björgvin Halldórsson, Eiríkur
Hauksson og Eyjólfur Kristjáns-
son. Ástrós Gunnarsdóttir og
Nanet Nelms bára hitann og
þungann af þvf að semja dansat-
riðin og æfa dansarana sem era
28 talsins.
„Þetta er mikil keyrsla allan
tíman, stöðugar skiptingar og erf-
iðir dansar. Krakkamir sam-
þykktu að fóma öllu fyrir
sýningamar, hér hefur verið æft
á hveijum degi undanfamar vik-
ur. Á æfíngu á mánudag vildi svo
óheppilega til að einn dansaranna
lenti vitlaust úr stökki, braut í sér
tvö rifbein og brákaði mjöðm.
Hann er samt búinn að ákveða
að vera með á framsýningunni.
Sýnir það best hvílík harka er í
hópnum að standa sig,“ sagði
Egill.
„Um eiginlegan söguþráð er ekki að ræða. Við reynum að setja
upp myndskreytingar en látum tónlistina ráða ferðinni," sögðu
höfundar sýningarinnar.