Morgunblaðið - 20.02.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987
19
Aðalfundur Blóðgjafafélags íslands:
Rætt um hjartaskurðlækning-
ar og blóðbankastarfsemi
AÐALFUNDUR Blóðgjafafélags íslands, sem jafnframt var fræðslu-
fundur, var haldinn mánudaginn 2. febrúar í hinni nýju miðstöð
Rauða kross íslands við Rauðarárstíg. Fræðsluefni fundarins var
hjartaskurðlækningar og blóðbankastarfsemin og fyrirlesarar lækn-
arnir Hðrður Alfreðsson, hjartaskurðlæknir og Soili H-Erlingsson,
læknir í Blóðbankanum.
Hörður gerði grein fyrir sögu
nútímahjartaskurðlækninga. Hann
lýsti þróun tækjabúnaðar síðustu
30—40 árin sem gert hefur hjarta-
aðgerðir að mikilvægum þætti í
nútíma skurðlækningum. í því sam-
bandi minntist hann sérstaklega á
þróun hjarta-lungnavéla og tilkomu
hjartaþræðingatækja til nákvæmr-
ar greiningar á kransæðasjúk-
dómum.
Hörður lýsti síðan í erindi sínu
skurðaðgerðum á kransæðum.
Hann lauk erindi sínu með stuttu
yfirliti um árangur hjartaskurð-
lækninga hérlendis frá því þær
hófust á síðasta ári. Alls hafa 36
sjúklingar gengist undir aðgerð
vegna kransæðaþrengsla. Hörður
taldi líklegt 'að framkvæma yrði um
Leiðrétting
MARGAR prentvillur eru í grein
Erlends Jónssonar, Frá konum á
fyrri öld, sem birtist i blaðinu í
gær. Víðast er unnt að lesa í
málið. Á einum stað hafa þó fall-
ið niður allmörg orð. Setningarn-
ar áttu að vera svona:
Fljótt á litið sýnist hins vegar svo
sem dómarar á æðri dómstigum
hafi gert sér furðulítinn mannamun
eftir auði og völdum. Ófullkomnar
rannsóknir og klaufalegir dómar í
héraði, sem landsyfírrétturinn
átaldi oft, bera því fyrst og fremst
vott um almennt eymdarástand
þjóðarinnar, réttarfarslegt, menn-
ingarlegt og stjómarfarslegt.
120 aðgerðir hér til að þörfum
væri fullnægt og ekki þyrfti að búa
við langa biðlista sjúklinga eða
senda þá til útlanda. I langflestum
tilvikum óska sjúklingar frekar eft-
ir að gangast undir aðgerð hér á
landi en þurfa að fara utan til þess-
ara aðgerða.
Hörður minntist á þýðingu stoð-
deilda sem sinna rannsóknum til
sjúkdómsgreiningar, blóðbanka-
þjónustu og gjörgæsluþjónustu.
Slíkar deildir eru ómissandi hlekkir
í keðju samvinnuhópa til að gera
þessar skurðaðgerðir árangursrík-
ar. Soili H-Erlingsson flutti síðan
erindi um þátt blóðbankastarfsem-
innar.
Meiriháttar skurðaðgerðir eins
og hjartaskurðlækningar gera æ
strangari kröfur til skipulags og
samvinnu milli skurðlæknanna og
starfsmanna Blóðbankans. Allra
síst má svo gleyma framlagi blóð-
gjafanna, sem leggja til blóð sitt,
en það gerir hjartaskurðlækningar
og aðrar meiriháttar aðgerðir fram-
kvæmanlegar.
í sambandi við hveija hjarta-
skurðaðgerð þarf að hafa ákveðið
magn af blóði og blóðhlutum til
tafarlausrar afgreiðslu. Visst magn
af því sem haft er til reiðu er alltaf
notað, oft þarf meira og stundum
mjög mikið magn.
Soili gerði nákvæma grein fyrir
blóð- og blóðhlutaþörfum þeirra 36
sjúklinga, sem gengið höfðu undir
hjartaaðgerð. I flestum tilfellum
hafði það blóð, sem áætlað var að
þyrfti í og eftir hjartaaðgerðina,
Hamrahlíðarkór-
inn fær^góðar við-
tökur í Israel
Tel Aviv^frá Heimi PáUsyni, fréttaritara
SÖNGFÓR Hamrahlíðarkórs-
ins til Israel hófst á sunnudag-
inn með ferðalagi frá
Reykjavík til Tel Aviv. Þar gisti
kórinn fyrstu nóttina en hefur
dvalist síðustu sólahringana á
samyrkjubúinu Givat Brenner,
sem er eitt hið stærsta í ísrael.
Kórinn hélt fyrstu tónleikana í
ísraelsferðinni á samyrlqubúinu á
mánudagskvöld fyrir fullu húsi.
Þar var saman kominn fullur
þriðrjungur íbúanna á búinu að
sögn heimamanna. Næstu tón-
leikar voru í Tel Aviv-safninu á
þriðjudagskvöld, einnig fyrir troð-
Morgunbladsins.
fullu húsi og hafði reyndar verið
uppselt í sex mánuði. Á báðum
stöðum hrifu kórinn og stjómandi
hans, Þorgerður Ingólfsdóttir,
áheyrendur með list sinni og fram-
komu allri. Ferðalagið hefur allt
gengið að óskum þótt stundum
kenni þreytu, enda mikil ferðalög
og margt nýstárlegt sem fyrir
augu ber og eyru hér í ísrael, eins
og síðar verður sagt frá hér í blað-
inu. Veður er með afbrigðum gott,
20 gráðu hiti og meira á hveijum
degi og appelsínumar glóa á
tijánum. Beztu kveðjur til allra
heima.
Sem kunnugt er af fréttum varð
einnig brani í húsi við Freyjugötu
í Reykjavík og þar missti ung kona
allt sitt. Af hálfu Rauða kross ís-
lands hafa verið lagðar fram
fímmtíu þúsund krónur til
ekki nægt. Þannig þurfti þriðji hver
hjartasjúklingur blóðflöguþykkni,
sem safnað er úr 10 blóðgjöfum
fyrir hveija gjöf af þessu tagi. Að
meðaltali þurfti tvöfalt meira af
plasma, en áætlað var. Það plasma
er unnið úr fersku blóði og geymt
frosið. Væri hjartaaðgerðum fjölg-
að úr 2 í 3 á viku má áætla að
nota verði milli 17—18% af því
blóði, sem safnað er í Blóðbankan-
um fyrir þessa einu tegund skurðað-
gerða. Að lokum sagði Soili
H-Erlingsson frá því, sem gert hefði
verið til að mæta hinu aukna álagi
á blóðbankastarfsemina, vegna
þessara nýju skurðlækninga.
Hún minnti á, að talað væri um
að fjölga vikulegum aðgerðum
vegna kransæðasjúkdóma, og fyrir-
hugað að gera kransæðavíkkunar-
aðgerðir og aðgerðir á hjartaloku-
göllum. Núverandi starfsgeta
Blóðbankans setur slíkum fyrirætl-
unum augljósar skorður. Til þess
að hægt sé með viðunandi öryggi
að auka skurðlækningastarfsemina
í þessari grein, þarf, hvað blóð-
bankastarfseminni viðvíkur, bæði
að auka húsnæðið og bæta tækja-
búnað. Einnig er nauðsynlegt að
styrkja starfslið Blóðbankans bæði
með því að fjölga því og bæta kjör
þess. Langvarandi kreppa er nú hjá
rannsóknarstofum vegna óánægju
með laun eins og alkunnugt er.
Stjórn Blóðgjafafélags íslands. Talið frá vinstri: Hólmfríður Gísla-
dóttir ritari og varaformaður, Logi Runólfsson gjaldkeri, Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir og Jóhann Diego Arnórsson meðstjórnendur,
Ólafur Jensson formaður.
Ifyrirlesarar svöraðu mörgum
fyrirspumum fundarmanna.
Á þessum aðalfundi var stíómin
endurlqörin. Hana skipa: Olafur
Jensson, formaður, Hólmfríður
Gísladóttir, ritari og varaformaður,
Logi Runólfsson, gjaldkeri og Jó-
hann Diego Amórsson og Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir meðstjómend-
ur. Endurskoðendur voru kjömin
Þorsteinn Kragh og Halberg Sig-
geirsson. Ýms viðfangsefni félags-
ins til eflingar blóðbankastarfsemi
voru rædd. Meðal þeirra helstu var
efling blóðsöfnunar með auknu
fræðslu- og kynningarstarfi svo og
með bættum tækjakosti Blóðbank-
ans.
Grímuball skáta í Tónabæ
GRÍMUBALL verður í Tónabæ
við Miklubraut sunnudaginn 22.
febrúar frá kl. 14.30 til 17.00.
Er það St. Georgs-gildið Straum-
ur sem stendur fyrir þessum
grímudansleik.
Grímudansleikurinn er haldinn
fyrir skáta og aðstandendur þeirra.
Á dansleiknum verða skemmtiatriði
og leikir, veitingar verða einnig í
boði. Fyrir bestu búningana verða
síðan veitt verðlaun.
Safna fyrir fólk
sem missti allt
sitt í eldsvoðum
UM TVÖ hundruð og fimmtíu þúsund krónur hafa nú safnast til
fólksins sem missti aleiguna í brunanum á Völlum í Mýrdal. Strax
daginn eftir að bruninn varð lagði Rauði kross íslands fram eitt
hundrað þúsund krónur til Rauðakrossdeildarinnar í Vik og deildin
setti þá um leið af stað söfnun i héraðinu. Rauðakrossdeildin á
Kirkjubæjarklaustri fylgdi svo fordæminu og safnaði líka. Loks var
tekið við fijálsum framlögum á aðalskrifstofu Rauða kross íslands
i Reykjavík.
Reykjavíkurdeildarinnar og mun
hún taka við frjálsum framlögum
næstu daga. Reykjavíkurdeildin er
til húsa á Óldugötu 4 og sfminn þar
er 28222 á venjulegum skrifstofu-
t.íma. Fréttatilkynning:
Málverk eftir Karcn Agncle Þórarinsson af stofnfundi Sanibandsins að Ystafclli hinn 20. fcbrúar 1902.
Talift frá vinstri: Steingrímur Jónsson, Bencdikt Jónsson á Auðnum, Sigurður Jónsson í Ystafclli,
Petur Jónsson á Gautlondum, Helgi 1-axdal i Tungu, Arni Kristjánsson í Loni og Friðbjorn Bjarnason a Grvtuhakka.
LIFANDITRÉ
FJÖLGAR LENGI GREINUM
Hi nn 20.febrúar 1902stofnuðu kaupfélögin í landinu með sér
samband til að sinna ýmsum sameiginlegum verkefnum.
Það hlaut nafnið Samband íslenskra samvinnufélaga
- og er fyrirtækið í eigu kaupfélaganna.
Sambandið hefur með höndum fjölþættan atvinnurekstur
- innanlands og utan - og annast margvísleg verkefni
fyrir samvinnufélögin um land allt.
VINNUM S/V/ViyVISI
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA §