Morgunblaðið - 20.02.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987
Irland:
Leiðtogi, sem
lætui' ekki
áföll buga sig
CHARLES Haughey, sem nú
mun á ný taka við stjórnar-
taumunum í írska lýðveldinu,
er þekktur fyrir það að láta
ekki áföllin verða sér fjötur um
fót. Hann hefur m. a. lifað af
bílslys, sem hefði getað orðið
honum að fjörtjóni og hann
komst naumlega af eitt sinn,
er skúta hans lenti í sjávar-
háska. Eitt sinn féll hann af
hestbaki, svo að lá við stór-
slysi. Tvisvar sinnum áður
hefur hann náð því að verða
forsætisráðherra, en stjórn
hans mátti síðan lúta i lægra
Iialdi, eftir að hafa staðið af
sér hneykslismál og ásakanir
um lögbrot.
Nú hefur hann enn einu sinni
sigrað andstæðing sinn, Garret
Fitzgerald, fráfarandi forsætis-
ráðherra og mun því í þriðja sinn
taka við völdunum á Irlandi.
Ástæðumar fyrir valdatöku hans
nú má kannski fyrst og fremst
rekja til þess efnahagsvanda, sem
dunið hefur yfir írland í valdatíð
FitzGeralds, en ótvíræðir leið-
togahæfileikar og persónulegar
vinsældir Charles James Haughey
eiga ekki lítinn þátt nú í kosninga-
sigri hans og flokks hans, Fianna
Fáil (Hermenn örlaganna).
Haughey er þekktur fyrir mikið
skap og þróttmikla skipandi rödd,
sem geislar af sannfæringar-
krafti. Jafnframt kann hann vel
að þóknast fjöldanum. Hversu vel
þetta á eftir að duga honum í
þeim erfiðleikum, sem nú blasa
við írum, skal ósagt látið, en víst
er, að hann má taka á öllu sínu.
Þjóðin er að kikna undan erlend-
um skuldum og nær fimmti hver
maður er atvinnulaus.
Oft hefur staðið styrr um
Haughey og líklegt er, að svo
kunni enn að verða, nú þegar
hann verður forsætisráðherra í
þriðja sinn. Árið 1970 lá við, að
bundinn yrði endir á stjómmála-
feril hans vegna Norður-írlands,
en þá var hann sakaður um að
hafa smyglað vopnum þangað,
sem nota átti gegn Bretum.
Haughey var að lokum sýknaður,
en varð að segja af sér embætti
sem fjármálaráðherra.
Honum tókst þá að vinna sér
vinsældir á nýjan leik og tók við
sem forsætisráðherra, er Jack
Lynch sagði af sér því embætti
1979. En einu ári og fimm mánuð-
um síðar var hann aftur kominn
í stjómarandstöðu og helzti and-
stæðingur hans, Garret FitzGer-
ald, orðinn forsætisráðherra.
Haughey komst til valda á ný
1982, er stjóm FitzGeralds féll,
en Fine Gael og Verkamanna-
flokkurinn áttu aðild að henni.
Minnihluta stjóm sú, sem Hug-
hey kom þá á fót, var aðeins við
völd í 10 mánuði og átti við hvert
hneykslismálið á fætur öðm að
stríða á þessum stutta tíma. Þann-
ig varð dómsmálaráðherra stjóm-
arinnar, Patrick Connolly, að
segja af sér, eftir að maður, sem
leitað var að fyrir tvö morð, fannst
í íbúð hans.
Ekki bætti það úr skák, er tveir
blaðamenn leiddu sönnur að því,
að símar þeirra hefðu verið hlerað-
ir. Stærsta áfallið kom þó, er
Desmond O’Malley, einn af sam-
heijum Haugheys, yfirgaf Fianna
Fáil og stofnaði klofningsflokk,
Framfarasinnaða lýðræðisflokk-
inn, en góður árangur þess flokks
í þingkosningunum nú, kann ein-
mitt að verða til þess, að Haughey
og flokkur hans nái ekki alveg
þeim hreina meirihluta, sem
Haughey hefur svo lengi verið að
bíða eftir.
Haughey fæddist 16. septemb-
er 1925. Hann er kvæntur dóttur
fyrrverandi forsætisráðherra fr-
lands og eiga þau eina dóttur og
þijá syni.
Stuðningsmenn Charles Haughey ldappa fyrir honum, eftir að
hann hafði sigrað i kjördæmi sínu í þingkosningunum á þriðjudag.
Selakösin stækkar óðum en þorskurinn lætur ekki sjá sig. Sjómennirnir kenna umhverfisvemdar-
mönnum um en þeir segja, að ástæðan sé ofveiði og fæðuskortur hjá selnum af þeim sökum.
Vísindamenn nefna aftur á móti til stórkostlega fjölgun í selastofninum og óvanalega hlýjan sjó
við Jan Mayen. Er hann talinn hafa spillt fyrir hrygningu loðnu og síldar, sem em réttur dagsins
hjá selaþjóðinni.
Norður-Noregur:
Netaaflinn er aðeins selur
Ósló. Reuter.
SJÓMENN í Norður-Noregi
hafa nú fengið um 30.000 seU
í netin og þykir viðbúið, að
annar eins fjöldi hafi festst en
losnað úr þeim. Minna fer hins
vegar fyrir þorskinum þvf að
selavöðuraar hafa rekið fiskinn
af gmnnslóðinni og á dýpra
vatn.
Giskað er á, að selaherinn, sem
ráðist hefur inn á miðin við Norð-
ur-Noreg, telji um 300.000 dýr
og verður sjómönnunum strax
heitt í hamsi ef minnst er á græn-
friðunga eða uir.hverfisvemdar-
menn, sem þeir kenna um hvemig
komið er.
„Þúsundir sjómanna eru að
verða gjaldþrota vegna selanna,
þeim finnst ekki lengur taka því
að leggja netin. Það eina, sem í
þau fæst, er selur," sagði Hans
Wiesener, forstjóri sjávarútvegs-
fyrirtækis í Niðarósi. Bjame Mörk
Eidem, sjávarútvegsráðherra,
sagði fyrir nokkru, að reynt yrði
að fækka selnum með því að auka
veiðamar en grænfriðungar hafa
hótað öllu illu ef selnum verður
gert eitthvað til miska.
Palme lét slökkva á öryggis-
kerfi forsætisráðunevtisins
Stokkhólmi, Reuter.
OLOF Palme, fyrrum forsætis-
ráðherra Sviþjóðar, hafði
vanþóknun á öryggisráðstöfun-
um. Af þeim sökum lét hann
m.a. gera rafeindaviðvörunar-
kerfi í skrifstofu sinni óvirkt, að
sögn Per-Eriks Nilsson, umboðs-
manns sænska þingsins.
Nilsson stjómar rannsókn á opin-
berri öryggisgæzlu sem ákveðin var
í framhaldi af morðinu á Palme
fyrir tæpu ári. Nefndinni var falið
að fínna veikleika í öryggiskerfinu
og gera tillögur um úrbætur. Er
von á niðurstöðum frá henni í byij-
un apríl.
Nilsson sagði að Palme hefði
verið afar fjarhuga og hefði t. d.
eitt sinn lokast inni í forsætisráðu-
neytinu því hann hafði gleymt
lykilnúmeri að öryggiskerfi þess.
Viðbrögð hans vom að láta taka
viðvörunarkerfíð úr sambandi.
Palme samþykkti aðeins öryggis-
ráðstafanir við opinbera atburði.
Vildi hann losna við þær í einkalíf-
inu og var því ekki í fylgd iífvarða
í bíóferðinni að kvöldi föstudagsins
28. febrúar í fyrra þegar hann var
myrtur í miðborg Stokkhólms.
„Hann gat orðið hinn versti út
af öryggisráðstöfunum og þess
vegna þorðu eiginlega engir að
fylgjast með honum. Hann krafðizt
þes3 að fá að labba einn og óstudd-
ur milli „hins gullna þríhymings",
þ.e. milli heimilis síns, skrifstofu
sinnar og þinghússins. Hver sem
er gat í raun og veru labbað sér inn
á skrifstofu hans,“ sagði Niisson.
Að sögn Nilssons var viðvörunar-
kerfíð í forsætisráðuneytinu sett
aftur í samband eftir Palme-morðið.
FYRIR nokkrum ámm stóðu
danskir aðilar fyrir því að reist
var sementsverksmiðja í norður-
hluta Víetnam. Rekstur verk-
smiðjunnar hefur gengið
erfiðlega en nýlega bárast fregn-
ir um að forstjórinn hefði verið
rekinn og nýskipuðum eftir-
manni hans væri ætlað að rétta
hag verksmiðjunnar.
Áð sögn danska blaðsins Politi-
ken, er verksmiðjan lokuð um
þessar mundir vegna bilana og á
síðasta ári voru aðeins framleidd
40% af því sementi sem hægt er
að framleiða á einu ári. Karsten
Þá var Ingvari Carlsson, forsætis-
ráðherra, gert að flytjast í sér-
stakan embættisbústað til þess að
hægt yrði að vemda hann sem bezt.
Er hann fyrsti forsætisráðherra
Svíþjóðar sem býr ekki á heimili
sínu meðan hann situr í embætti.
Jolck, verkfræðingur sem starfað
hefur við verksmiðjuna segir að
ástæður þessarar litlu framleiðslu
séu ýmsar s.s. skrifræðið í Víetnam,
skortur á varahlutum, olíu og hrá-
efnum. í frétt Politiken, er vitnað
í skýrslu nokkra þar sem fram kem-
ur að laun verkamannanna 2.300
er við verksmiðjuna vinna séu svo
lág, að vonlaust sé fyrir þá að fram-
fleyta sér á þeim. Þeir grípi því til
þess að stela verkfærum, hráefnum
og sementi í stórum stíl. Víetnamar
eru taldir ein fátækasta þjóð verald-
ar, þar em meðallaun um 7.000 kr.
ísl á ári.
Víetnam:
Launin drýgð
með þjófnaði
MITSUBISHI
FIOLHÆFASTA ----
FARARTÆKIÐ