Morgunblaðið - 20.02.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987
29
Læknavaktin sf
Keyptu bíl
yfir símann!
Heilsugæslulæknar á Akureyri
stofnuðu fyrir skömmu sameign-
arfélagið Læknavaktin sf.
Tilgangur félagsins er rekstur
bifreiðar vegna vaktþjónustu heil-
sugæslulækna í bænum, eins og það
hét í Lögbirtingarblaðinu. Hjálmar
Freysteinsson, yfirlæknir á Heilsu-
gæslustöðinni, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sex læknar hefðu
í sameiningu keypt lítinn bíl til að
nota á vaktinni - „aðaltilgangurinn
með þessu var reyndar að fá
farsíma á vaktina. Það má segja
að við höfum keypt bíl utan um
símam!" sagði Hjálmar.
Áður var vaktlæknir á eigin bif-
reið en nú, sagði Hjálmar, er
öryggið og þægindin mun meiri.
„Það er öruggt að hægt er að ná
í vaktlækni strax, hann hefur
símann í bílnum og getur síðan
stillt hann á númerið þar sem hann
er staddur ef hann fer úr bflnum."
Skipsljóra- og stýrimannanám:
Kennsla á 2. stigi
á Dalvík næsta vetur
Daivík.
Næsta skólaár mun Dalvíkur-
skóli bjóða upp á kennslu á 2. stigi
skipstjóra- og stýrimannanáms og
munu nemendur þá geta lokið fiski-
mannsprófi á Dalvík. Menntamála-
ráðuneytið hefur heimilað að þetta
nám fari fram á Dalvík með tilliti
til góðrar reynslu af starfrækslu
1. stigs skipstjómarbrautar sfðast-
Iiðin 5 ár.
Á þessu skólaári hófu 14 nemendur
nám á 1. stigi og er mikill áhugi
meðal þeirra að geta lokið 2. stigi á
Dalvík. Þetta er sjötta árið sem 1.
stigs skipstjómarbraut er starfrækt
við skólann og hefur náðst góður
Sjónvarp Akureyri
FÖSTUDAGUR
20. febrúar
§18.00. Undir áhrifum. Ný sjónvarps-
kvikmynd frá CBS. Átakanleg mynd
um þau áhrif sem ofneysla áfengis
getur haft á fjölskyldulífið.
19.36. Teiknimynd. Glæframúsin.
20.00. Geimálfurinn.
§20.30. Benny Hill. Breskur gamanþátt-
ur.
§21.05. Háskaleg eftirför (Moving Viol-
ations). Bandarísk bíómynd frá 1976
með Stephen McHattie, Kay Lenz og
Eddie Albert í aðalhlutverkum. Mynd-
in fjallar um krakka f ökuskóla sem
eiga í útistöðum við óheiöarlega
menn.
§22.40. f upphafi skal endinn skoða
(The Gift Of Life). Hjón hafa árangurs-
laust reynt að eignast barn. Vandinn
leysist þegar þau fá konu til aö ganga
með barnið fyrir sig. En engan hafði
órað fyrir þeim siðferðislegu og tilfinn-
ingalegu átökum sem fylgdu í kjölfar-
ið.
§00.15. Cabo Blanco. Bandarísk bíó-
mynd með Charles Bronson, Jason
Robards, Simon MacCorkindale og
Camillu Sparv i aðalhlutverkum. Giff
Hoyt ákveður að snúa baki við skark-
ala heimsins og flytur til Cabo Blanco,
lítils fiskiþorps við strendur Perú. En
Adam var ekki lengi í paradís.
01.50. Dagskrárlok.
árangur af starfseminni. Alls hafa 38
nemendur útskrifast frá skólanum.
Aðstaða er góð á Dalvík, Qölbreytt
útgerð og vinnsla er á staðnum og
þá er góð aðstaða til að taka á móti
nemendum, því við skólann er nýleg
heimavist, en nemendur hafa komið
víða að af Norðurlandi. Sjávarútvegs-
fræðsla hefur skipað veglegan sess f
starfi skólans undanfarin ár, þvf auk
1. stigs hefur nemendum 9. bekkjar
verið boðið upp á að ljúka 30 tn skip-
stjómarprófi, pungaprófi, og hefur
stór hluti þeirra valið sér þá grein.
Þá hafa verið haldin réttindanámskeið
fyrir undanþágumenn nú í kjölfar
nýrra laga um atvinnuréttindi skip-
stjómarmanna.
f haust kaus bæjarstjóm nefnd tii
að gera tillögur og vinna að frekari
uppbyggingu sjávarútvegsfræðslu á
Dalvík. Vinna nefndarinnar beindist
að því f fyrstu að kanna möguleika á
viðbót við skipstjómarfræðsluna. Nið-
urstöður nefndarinnar urðu þær að
ekkert væri þvf til fyrirstöðu að á
Dalvík væri starfrækt fyrsta og ann-
ars stigs skipstjómarbraut en skip-
sfjóra- og stýrimannanám er hvergi
hægt að sækja á Norðurlandi. Sótt
var um heimild til ráðuneytisins og
veitti ráðuneytið Dalvíkurskóla leyfi
til að he§a kennslu á 2. stigi næsta
skólaár enda fáist nægjanlegur nem-
endaflöldi til þess.
Jafnframt þessu hefur nefndin
kannað möguleika á fiskvinnslunámi
á Dalvík. Gerðu nefndarmenn sér ferð
f Fiskvinnsluskólann f Hafnarfirði til
að kynna sér starfsemi skólans og
hugmyndir heimamanna. Urðu undir-
tektir ráðamanna skólans mjög
jákvæðar og 1 framhaldi af heimsókn
nefndarinnar í skólann hefur þess
verið farið á leit við menntamálaráðu-
neytið að það tilnefni fulltrúa frá
ráðuneyti, Fiskvinnsluskólanum og
heimamönnum í nefnd til að vinna
að athugun og undirbúningi á því að
setja á stofti fiskvinnslunám á Dalvík
og tengja það skipstjómamáminu.
— Fréttaritarar.
Gigtarfélag á Norð-
urlandi eystra stofnað
STOFNFUNDUR gigtarfélags á
Norðurlandi eystra verður luild-
inn á hótel KEA á sunnudaginn
og hefst kl. 15.
í fréttatilkynningu frá þeim sem
ætla að stoftia félagið segir að á
svæðinu sé stór hópur fólks, um
2.500 manns, sem á við varanlegan
heilsubrest að stríða af völdum gigt-
sjúkdóma. „Telja má að sameigin-
leg hagsmunamál þessa fólks séu
svo mörg og brýn að ástæða sé til
að vinna saman að framgangi máls-
ins,“ segir í tilkynningunni. Enn-
fremur segir „Gigtarfélag íslands
er að vísu til og hefur unnið mikið
og gott starf, en sú uppbygging
hefur fýrst og fremst miðast við
suðvesturhomið og nýtist fólki hér
takmarkað. Með stofnun gigtarfé-
algs hér nyrðra er vonast til að
geta flýtt fyrir uppbyggingu ýmiss-
ar þjónustu fyrir gigtsjúka. Hér er
enginn gigtarsérfræðingur starf-
andi. Ef til vill er á einhvem hátt
hægt að flýta fyrir því að slík staða
fáist af fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri."
í tilkynningunni segir að engin
sérhæfð þjálfunar- eða endurhæf-
ingaraðstaða sé á svæðinu og úr
því þurfi að bæta, helst í samvinnu
við aðra sem á slíkri aðstöðu þurfa
að halda.
Þeir tylltu sér niður í nýja salnum meðan Ijósmynbdari festi þá á filmu. Frá vinstri: Amfinnur Arnfinns-
son, framkvæmdastjóri IOGT á Akureyri, Birgir Ágústsson, hönnuður hússins og framkvæmda, Sigurður
Arnfinnsson, bíóstjóri og Ingimar Eydal, stjómarformaður IOGT á Akureyri.
Nýi salurínn í Borgarbíói tekinn í notkun á morgnn:
Bylting í bíómenningu á Akureyri
- segja forráðamenn IOGT
NÝI sýningarsalurinn í Borg-
arbíói verður tekinn í notkun á
morgun, laugardag.
„Við tökum hann í notkun kl.
2, þá bjóðum við hingað þeim sem
hafa unnið við nýja húsið, stjóm
IOGT og nokkrum fleirum og höld-
um prufusýningu," sagði Sigurður
Amfinnsson, bíóstjóri, í gær er
nokkrir forráðamenn Borgarbíós
sýndu blaðamanni Morgunblaðsins
hin nýju salarkynni. Annað kvöld
klukkan 21.00 verður svo fyrsta
sýningin fyrir almenning í nýja
salnum - þá verður sýnd mjmdin
Pirates í leikstjóm Romans Pol-
anski.
Eftir breytinguna verður gengið
inn í Borgarbíó að vestan - frá bfla-
stæði við Geislagötuna. Þar er
rúmgott anddyri, sælgætissala, sal-
emisaðstaða. Þaðan er gengið inn
í nýja salinn og einnig verður geng-
ið úr þessu sama anddyri inn í þann
gamla þegar honum hefur verið
„snúið við“ - þvi verki ætti að vera
lokið eftir um það bil einn og hálfan
til tvo mánuði að sögn Birgis
Ágústssonar, sem hannað hefur
breytingar á húsinu og haft yfirum-
sjón með verkinu.
Nýi salurinn tekur 132 manns í
sæti. Mun meira bil er á milli sæta-
raða en nú er í gamla salnum og
verður honum breytt á sama hátt.
Honum verður einmitt breytt mikið;
verður með sama sniði og sá nýi.w
„Nú getum við loks boðið upp á
alvöru bíó,“ sagði Ingimar Eydal,
stjómarformaður IOGT, í gær.
Hann sagði að þetta yrði bylting í
bíómenningu í bænum og tóku aðr-
ir undir það. Eins og áður hefur
komið fram em tæki í nýja salnum
hin fullkomnustu sem fáanlega eru
- Dolby-hljóðkerfi og sitthvað fleira.
Séð yfir nýja salinn.
Úr nýja anddyrinu í Bórgarbíói.
Þeim gremst að fund-
ur þeirra féll í skugg-
ann vegna okkar
-segir kosningastjóri J-listans sem segir
nú of seint að tala við forsætisráðherra
„SONUR minn er þarna að senda
mér kveðju sína. Þetta gengur
hægt og rólega en menn eru
ekkert að hætta við. Ég veit að
visu ekki hvað mikið þetta verður
en það er í gangi,“ sagði Harald-
ur M. Sigurðsson, kosningastjóri
J-listans, sérframboðs Stefáns
Valgeirssonar, f samtali við
Morgunblaðið í gær.
Haraldur sagði þetta í tilefni af
ummælum kosningastjóra Fram-
sóknarflokksins, Sigurðar Haralds-
sonar, í Degi í gær þar sem hann
segir að engar úrsagnir úr flokkn-
um hafi borist á flokksskrifstofuna
og sér vitanlega væri engin hrejrf-
ing í gangi í þá átt.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, hefur nú haft
samband við Stefáns-menn og
bauðst til að koma norður og ræða
við þá, en Haraldur og félagar höfn-
uðu því. „Það er of seint að ræða
við hann um kosningamál núna því
við erum búnir að ákveða okkar
innri mál. Við viljum tala við
Steingrím, en ekki um kosninga-
mál. Hann vildi ekki „spandera"
þremur mínútum á okkur á Hótel
KEA um síðustu helgi og því óþarfi
að bjóðast til að tala við okkur
núna. Það er bara tímaeyðsla,“
sagði Haraldur.
Á sunnudaginn halda stuðnings-
menn Stefáns fund í Vín í Eyjafirði
og sagði kosningastjórinn að þar
ætti að leggja helstu drög að stefnu-
skrá framboðsins.
Menn Stefáns Valgeirssonar voru
ákafiega óhressir er forsætisráð-
hera vildi ekki tala við þá er hann
fundaði á Hótel KEA um helgina.
Sigurður Haraldssonar, kosninga-
stjóri B-listans, ségir i Degi í gær
að hvorki Steingrímur né aðrir úr
forystu flokksins hafi viljað „trufla
vinnufundinn á Hótel KEA með því
að taka þátt í einhverri fjölmiðla-
sýningu með sérframboðsmönnum
utandyra." Haraldur var spurður
álits á ummælum sonar síns, hvort
það væri rétt að hann og félagar
hans hefðu ætlað að vera með ein-
hvers konar „fjölmiðlasýningu" um
helgina - hvort þeir hefðu ekki ætl-
að að tala við Steingrím í alvöru.
„Hann er að rejma að stæla
pabba sinn svolítið. Það er gott að
vita að hann er vakandi," sagði
Haraldur um ummæli sonarins, og
bætti við: „Nei, þetta átti ekki að
vera nein sýning. Við ætluðum að-
eins að nota tækifærið og sýna
forsætisráðherra að við erum fram-
boð. Þeir eru svo að grípa í rassinn
á sjálfum sér núna og vilja tala við
okkur, en það er tímasóun. Þeim
gremst að fundur þeirra féll f
skuggann vegna okkar," sagði Har-
aldur M. Sigurðsson.