Morgunblaðið - 03.03.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1987
5
Samkomulag ríkis og bænda um
frestun á hluta af hækkun launaliðar
verðlagsgrundvallar;
Fáum alla hækkunina
eftir hálfan mánuð
- segir formaður Stéttarsambands bænda
STÉTTARSAMBAND bænda gerði formlegt samkomulag við ríkis-
stjórnina um helgina um að fresta um 2 vikur hluta af hækkun
launaliðar verðlagsgrundvallar sauðfjár- og nautgripaafurða. Ingi
Tryggvason formaður Stéttarsambands bænda túlkar þetta sam-
komulag á þann veg að bændur
liðnum en neytendum verði ekki
umfram almenna verðlagsþróun.
Ingi sagði að í samkomulaginu,
sem hann undirritaði fyrir Stéttar-
sambandið og Jón Helgason land-
búnaðarráðherra fyrir ríkisstjórn-
ina, væri ákveðið að fresta um
hálfán mánuð 12% af þeirri 22%
hækkun launaliðar verðlagsgrund-
vallarins sem samkomulag hafði
orðið um í sexmannanefnd, en 10%
tekin inn nú. Þá felur samkomulag-
ið í sér að þessi tími verður notaður
til að kanna sérstakar ráðstafanir
til að ná fram áhrifum jólaföstu-
samninganna á- kjör bænda, í
samræmi við ákvæði búvörulag-
anna og að leitast verði við að
hækkun búvaranna til neytenda
rýmist innan almennrar verðlags-
þróunar í landinu.
Ingi sagði að samkomulag hefði
náðst í sexmannanefnd um 22%
hækkun launaliðarins, að tillögu
fulltrúa bænda. Við útreikninga
sína hefðu bændur reiknað launalið-
inn samkvæmt hinum nýju lág-
markslaunum iðnaðarmanna og
verkamanna í sömu hlutföllum og
áður, auk 2% hækkunar frá 1.
mars, og þetta hefði orðið útkoman.
Hann sagði að viðræður við ríkis-
stjórnina yrðu að skera úr um
hvernig bændur fengju þessa hækk-
un án þess að það kæmi fram í
fái sína hækkun að þcssum tíma
íþyngt með hækkun búvöruverðs
hækkuðu búvöruverði til neytenda.
„Ég tel þetta viðunandi niður-
stöðu miðað við aðstæður. Bændur
munu fá kjör sín lagfærð, án þess
að það brjóti niður verðlagsstefnu
stjórnvalda. Ég tel það í sjálfu sér
mikils virði fyrir bændur,“ sagði
Ingi. Um mótmæli sem komið hafa
fram frá bændum, sagði Ingi: „Það
er eðlilegt að bændur séu vel á
verði í kjaramálum sínum, þannig
að ekki verði gefið eftir af réttmæt-
um kröfum. Þessar kröfur mega
þó ekki verða til þess að draga úr
sölu á búvörum, þannig að tekjubót-
in skili sér til bóndans."
Þrátt fyrir að launaliður verð-
lagsgrundvallar hækkaði um 10%,
hækkaði verðlagsgrundvöllur naut-
gripaafurða aðeins um 4,4% og
sauðfjárafurða um 5,6%. Grundvöll-
urinn hækkaði minna en launin
vegna þess að sumir liðir hans
hækkuðu minna og sumir lækkuðu.
Til dæmis lækkaði kjarnfóðurliður-
inn um 5-6%. Vinnslu- og heildsölu-
kostnaður tók svipuðum breyting-
um og verðlagsgi-undvöllurinn.
Smásöluverð búvara hækkar heldur
meira en grundvöllurinn vegna þess
að niðurgreiðslur eru hafðar
óbreyttar að krónutölu.
Blönduós:
Mikið um dýrðir við komu Nökkva
HÁTÍÐARBRAGUR var yfir
Blönduósi á sunnudaginn er
hinn nýi togari Nökkvi HU 15
kom til heimahafnar i fyrsta
skipti. Nær allir bæjarbúar
voru á bryggjunni til þess að
fagna fyrsta togaranum, sem
Blöndósingar eignast, og fjöl-
margir komu úr nágranna-
byggðalögum og víðar að til
að samfagna þeim. Ræður
voru fluttar og slegið upp
veizlu og allir sem vildu fengu
að fara í stutta siglingu með
skipinu. Veður var hið bezta
og jók það hátíðarstemning-
una.
f Nýjabæ færðu allt sem þarf til að láta
sprengjuna heppnast fullkomlega:
Indælis saltkjöt á aðeins kr. 330.- kílóið og
rófur á aðeins kr. 45.- kflóið ásamt öllu öðru
sem til þarf á lágu verði.
En svo er annar möguleiki:
Kokkarnir í Nýjabæ hafa matreitt saltkjöt og
baunir eftir kúnstarinnar reglum, þannig að þú
getur keypt þér ríflegan skammt af tilbúnu
sprengiefni á aðeins kr. 186,-
Verði þér að góðu og ríflega það.
Opið til kl. sjö.
VÖRUHÚS/Ð E/Ð/STORG/
mi
YVER
Hættulega
gott
Sprengieftii!