Morgunblaðið - 03.03.1987, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1987
27
Georges Abdallah, líbanski hryðjuverkamaðurinn, sem var dæmdur
i lifstiðarfangelsi.
Frakkland:
Ánægja með dóm-
inn yfir Abdallah
- þrátt fyrir ótta við aukin hryðjuverk
París. AP.
FRANSKA stjórnin hefur aukið
öryggisráðstafanir í landinu af
ótta við hryðjuverk, einkum í
París, eftir að líbanski hryðju-
verkamaðurinn Georges Abd-
allah var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi.
Abdallah var fundinn sekur um
aðild að morði tveggja manna,
bandarísks og ísraelsks sendi-
manns, og hefur dómnum almennt
verið fagnað í Frakklandi ef undan
er skilinn kommúnistaflokkurinn.
Hermenn hafa verið sendir til liðs
við tollverði á flugvöllum í borginni
og hafa þeir sérstaka gát á far-
angri og vörum af ótta við, að í
þeim kunni að leynast sprengjur.
Þá hefur landamæragæslan einnig
verið aukin. í september sl. létust
11 menn og 150 slösuðust í sprengj-
utilræðum hryðjuverkamanna. sem
kröfðust þess, að Abdallah yrði lát-
inn laus.
Dómararnir sjö, sem dæmdu
Abdallah, sinntu ekki áköfum ósk-
um saksóknarans um að sakborn-
ingurinn yrði ekki dæmdur í lengra
fangelsi en 10 ár vegna óttans við
aukna hryðjuverkastarfsemi.
í skoðanakönnun, sem gerð var
í París, kemur fram, að langflestir
fagna dómnum og telja, að dómar-
arnir hafi sýnt mikið hugrekki. Svo
er einnig um frammámenn flestra
stjómmálaflokkanna nema komm-
únistaflokksins. í málgagni hans,
L'Humanité, sagði á sunnudag, að
réttarhöldin hefðu verið „skrípaleik-
ur“ og aðeins til „að þóknast
Bandaríkjamönnum".
Svlþjóð:
Vilja svipta
leigusalana
rétti sínum
Stokkhólmi, AP.
HANS Gustafsson, húsnæðis-
málaráðherra Svíþjóðar, lagði á
fimmtudag fram frumvarp, sem
gæti orðið til að svipta leigusala
rétti sínum til að velja leigutaka,
verði frumvarpið að lögum.
Markmiðið með þessu er að reyna
að draga úr þeim húsnæðisskorti,
sem ríkir á sumum stöðum í
landinu. Er ætlunin með fmmvarp-
inu að knýja leigusala til þess að
fá svonefndum „húsnæðisskrifstof-
um“ umráð yfir íbúðum þeirra.
Skrifstofurnar eiga síðan að úthluta
íbúðunum til þeirra, sem helst þurfa
á þeim að .halda og hafa beðið
lengst.
Forsvarsmenn húseigenda em
mjög andvígir fmmvarpinu eins og
að líkum lætur en það getur orðið
að lögum á næsta ári.
Svíþjóð:
Boða viðskipta bann á S-Afríku
Stokkhólmi. Reuter.
Jafnaðarmannaflokkurinn í
Svíþjóð hefur samþykkt, að
stjórnin skuli grípa til einhliða
viðskiptaþvingana gagnvart Suð-
ur-Afríku. Skýrði Ingvar Carls-
son, forsætisráðherra, frá þessu
í gær.
A fréttamannafundi, sem Carls-
son efndi til, sagði hann, að flokkur-
inn hefði ákveðið, að baráttan gegn
aðskilnaðarstefnunni væri svo brýn,
að rétt væri að grípa strax til að-
gerða og bíða ekki eftir ákvörðun
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Sagði hann, að stjórnin myndi síðar
taka ákvörðun um aðgerðirnar og
hve umfangsmiklar þær yrðu.
Haft er eftir heimildum, að við-
skiptabann á Suður-Afríku muni
bitna mest á sænska stáliðnaðinum,
sem er mjög háður hráefnisinn-
flutningi þaðan, og nokkmm fyrir-
tækjum öðmm, sem hafa viðskipti
við suður-afríska námaiðnaðinn.
Afgrciðslufrestur
3gO «i
"J VlKUr í stað 2.-3. mánaða
Pökkunarsérfræðingur Plastprents er öllum þeim til
ráðgjafar er auka vilja hagkvæmni og þróa pökk-
unaraðferðir.
Minni birgðakostnaður — aukið öryggi
Plastprent framleiðir áprentaða og óáprentaða poka til
lofttæmingar. Afgreiðslufrestur er aðeins 3-5 vikur og
lágmarkspöntunarmagn lægra en þekkst hefur.
Pökkunaraðferð framtíðarinnar
Lofttæming eykur geymsluþol og verðmæti stórlega og
þeim framleiðendum fjölgar stöðugt er nota lofttæmdar
umbúðir til að styrkja markaðsstöðu sína.
* Brautryðjandi á sviði pökkunar
P Plastprent hf.
Höföabakka 9, sími 685600