Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Stefna ungs fólks er styrk- ur Sjálfstæðisflokksins Þrettán atriði í þágu ungs fólks eftir Árna Johnsen Ungt f ólk og ef nahagur Það er aðalsmerki Sjálfstæðis- flokksins að vinna í anda ungs fólks, vinna af áræði og þrótti með skyn- semissjónarmið að leiðarljósi, treysta athafnafrelsi fólks og tryggja aðstöðu og þjónustu við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu, treysta heimilið, kirkjuna, skólana og íslenska menningu með höfuð- áherslu á íslenska tungu og með þessa þætti í stafni vilja sjálfstæðis- menn byggja upp atvinnulíf lands- ins, grundvöllinn að efnahagslegri þróun og stöðu íslendinga. Menn í stjómmálum verða að hafa þrek til þess að taka af skarið til árangurs, takast á við vandamálin af festu og einurð, og það er einmitt í anda ungs fólks að segja hlutina eins og þeir eru, byggja á staðreyndum en ekki falsvonum. Það skilar árangri að horfast í augu við veruleikann, meta möguleikana og hrinda málum síðan fram. Hér fara á eftir þrettán atriði sem sjálfstæðismenn hafa haft forgöngu um og náð fram sem leiðandi stjóm- málaafl í núverandi ríkisstjóm, þrettán atriði sem varða sérstak- lega ungt fólk þótt það komi öllu samfélaginu að sjálfsögðu til góða. Hvað hefur áunnist fyrir ungt fólk að frumkvæði Sjálfstæðis- flokksins? 1. Verðbólgan slegin niður. 2. Húsnæðislánakerfíð stóreflt. 3. Staðgreiðslukerfi skatta — stórkostleg framför. 4. Námslánin meiri en í öðrum löndum. 5. Greiðslukortin færa réttinn til fólksins. 6. Fijálsar útvarpsstöðvar fyrir atbeina sjálfstæðismanna. 7. Stórlækkun tolla á bifreiðum auðveldar ungu fólki að eignast bíl. 8. Skattlausa árið gefur einstakl- ingum og heimilum tækifæri. 9. Verkmenntun hefur verið stór- aukin á kjörtímabilinu. 10. Minnkandi erlendar skuldir spara ungu fólki í framtíðinni. 11. Jöfnuður við útlönd í viðskipt- um markar tímamót. 12. Aukinn innlendur spamaður styrkir íslenska byggð og fram- þróun. 13. Veruleg aukning fjármagns til íþrótta- og æskulýðsmála. Dæmi um möguleika ungs fólks sem kaupir eða byggir fyrstu íbúð Ungt fólk með tilskilin lífeyr- issjóðsréttindi fær allt að 2,5 millj. kr. lán til húsnæðis, sem greiðist út í tvennu lagi með 6 mánaða millibili, en seinni greiðslan hækkar eftir því sem verðtrygging býður. Um er að ræða allt að 70% af byggingar- kostnaði. Afborganir fyrstu 2 árin eru 21.500 kr. ársfj'órð- ungslega, eða 7 þús kr. á mánuði, en eftir tvö ár er af- borgunin 29.338 kr. ársfjórð- ungslega, eða 10 þús. kr. á mánuði. 1. Að verðbólga skuli komin úr 130% niður í um það bil 10% er grundvallaratriði fyrir því að ungt fólk geti skipulagt líf sitt og starf, náð áttum í verð- mætamati, bæði siðferðilegum og peningalegum. í stuttu máli: Menn skynja einfaldlega miklu betur hvar þeir standa. Jafn- vægi í efnahagsmálum tryggir ungu fólki að ekki sé jafnóðum grafíð undan því sem það er að gera. Bylting’ í húsnæöislánum 2. Það gjörbyltir möguleikum venjulegs fólks til þess að koma sér upp þaki yfir höfuðið og miðað við eðlilega þörf í ný- byggingum á ári hverju eiga þeir sem byggja eða kaupa íbúð í fyrsta sinn tryggt lán sem ræður úrslitum og auðveldar fólki að komast fljótt í varan- legt húsnæði til lengri tíma á mjög hagstæðum greiðsluskil- málum. Staðgreiðslu- kerfi skatta 3. Staðgreiðslukerfi skatta trygg- ir lægri skattbyrði ungs fólks, gerir mönnum kleift að standa alltaf í skilum jafnóðum og auðveldar fólki öll frávik, svo sem að fara í nám, minnka við sig vinnu t.d. vegna bameigna, en fram til þessa hafa menn gjaman setið fastir í vítahring skattakerfísins. Nú verður hreint kort um hver mánaða- mót. Sterkur námslánasjóður 4. íslenski námslánasjóðurinn er tvímælalaust sá rausnarlegasti í heimi. Enginn ágreiningur er um markmið sjóðsins, að hvetja fólk til framhaldsnáms og tryggja eðlilegt jafnrétti, en það verður ekki gert nema að tryggja fjárhagsgrundvöll sjóðsins til frambúðar og þar verða hagsmunir námsmanna og skattgreiðenda að fara sam- an. Greiðslukortin og nýrtími 5. Notkun greiðslukorta í útlönd- um var áður bundin við for- stjóra í fyrirtækjum og siíkihúfu hjá rfkinu, en sjálf- stæðismenn færðu þennan rétt til almennings í landinu sem nú getur ferðast erlendis án þess að þurfa að sækja allt sitt til skömmtunarstjóranna. Sjálfstæður útvarps- og sjónvarpsrekstur 6. Við afgreiðslu laga 1985 um fijálsar útvarpsstöðvar munaði aðeins 1 atkvæði á Alþingi, enginn alþýðuflokksmaður treysti sér til að styðja málið, allir alþýðubandalagsmenn voru á móti, allir kvennalista- þingmenn voru á móti og margir framsóknarmenn voru á móti. Aðeins Sjálfstæðis- flokkurinn stóð heill og óskipt- ur að framgangi málsins og tókst að koma því í gegn með aðstoð Bandalags jafnaðar- manna, sem nú er búið að útskrifa úr Alþýðuflokknum. Morgunblaðið/Þorkell Útvarp framhaldsskólanema tók til starfa fyrir skömmu, en fjöl- breytni í útvarpi og sjónvarpi er mikið kappsmál ungs fólks ekki siður en þeirra sem eldri eru. Myndin er tekin í hljóðstofu unga fólksins. Það er vissara að allt sé í lagi. m Þeir ganga léttstígir og rösklega þessir ungu menn eins og vera ber og þannig á takturinn einnig að vera i stjórnmálum landsins. Stórlækkun tolla á bílum 7. Tollalækkun 1985 og 1986 úr 90% í 10% á mörgum tegundum bifreiða auðveldar mjög þeim sem kaupa bíla í fyrsta sinn að kaupa gott tæki. Undir for- ystu sjálfstæðismanna hefur bíllinn því verið viðurkenndur sem bráðnauðsynlegt tæki til daglegra nota. Þessi ráðstöfun lækkaði einnig verð notaðra bíla og auðveldar því ungu fólki að eignast bíl hvar sem á mál- ið er litið. Skattlaust ár 7. Skattlausa árið sem sjálfstæðis- menn komu í gegn gefur ungu fólki möguleika á að gera átak í tekjuöflun án þess að eiga yfír höfði sér þyngingu gjalda. Þannig vilja sjálfstæðismenn gefa fólki tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum og treysta stöðu sína til framtíð- arinnar. Verkmenntun í öndvegi 9. Veruleg áherzla hefur verið lögð á aukna verkmenntun á Arni Johnsen þessu kjörtímabili enda mikil- vægt að aðlaðandi sé fyrir ungt fólk að mennta sig í greinum sem skila fjáröflun og fram- þróun til samfélagsins. Lækkun er- lendra skulda 10. Lækkun verðbólgunnar og jafnvægi í efnahagsmálum er grundvallaratriði fyrir lækkun erlendra skulda og vaxtabyrði sem leggst á komandi kynslóð- ir. Allt stefnir í, vegna mark- vissarar stjómunar í efnahags- málum, að erlendar skuldir sem fóru hæst í um 60% af þjóðar- framleiðslu lækki í 44% í ár og haldi áfram að lækka verulega ef jafnvægi helst í efnahags- málum. Það er einfaldlega verið að lækka greiðslubyrði unga fólksins í framtíðinni. Hagstæð viðskipti við útlönd 11. í fyrsta skipti um langt árabil höfum við íslendingar selt okk- ar framleiðslu fyrir meira en við keyptum inn fyrir erlendis frá. Þessi þróun gefur bjartar vonir fyrir Island morgundags- Aukinn sparnaður 12. Tekist hefur að ná verulega auknum spamaði með aðgerð- um í efnahagsmálum, en aukinn spamaður á fjölbreytt- an hátt gefur jafnframt meiri möguleika á fjölbreyttari upp- byggingu í landinu og dregur úr þörfum fyrir erlent lánsfé. Efling íþróttalífs 13. Á því kjörtímabili sem er að ljúka hefur Qármagn til íþrótta- og æskulýðsmála verið aukið svo um munar á fjárlögum, því sterk ástæða er til að styrkja vel möguleika íþrótta- og æskulýðsstarfs í landinu. Sókn í þeim málum er besta vömin gegn alþóðlegum vandamálum sem vofa yfír. Höfundur er einn afþingmönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurlandskjördæmi. Ungftfólk að stofna heimili Dæmi um árangur í skattamál- um með tilkomu staðgreiðslukerf- is skatta: Einstæð móðir með 2 böm und- ir 7 ára aldri borgar ekki skatt fyrr en eftir 60 þús. kr. mánaðar- tekjur, hvorki til ríkis né sveitarfé- lags. Skattleysismörk hjá barnlaus- um hjónum em 66 þús. kr. á mánuði, ef viðkomandi fer að byggja á hann rétt á 55 þús. kr. afslætti frá skatti á ári í 6 ár sem verða borgaðar út ef þær em hærri en skattgreiðslu nemur. Breytt fyrirkomulag á sjó- mannafrádrætti gagnast ekki sízt ungum sjómönnum sem em marga daga á sjó á ári. Hjón með 2 ung böm borga ekki tekjuskatt til ríkisins sam- kvæmt hinu nýja kerfí fyrr en þau hafa meira en 90 þús. kr. á mán- uði í tekjur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.