Morgunblaðið - 06.03.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
Húsnæðismálin og upp-
hlaup Alþýðuflokksins
eftir Guðmund G.
Þórarinsson
Alþýðuflokksmenn hafa að und-
anförnu ráðist mjög að hinu nýja
húsnæðislánakerfi: Þeir nota í því
sambandi stór orð og upphrópanir.
Röksemdafærsla alþýðuflokks-
manna virðist lítils virði og þar
stangast allt á. Verst er þó, að
upphlaupið getur stórlega skaðað
þá sem þurfa að útvega sér hús-
næði.
Nýja húsnæðis-
lánakerfið
Nokkur atriði verða menn að
hafa í huga þegar rætt er um Bygg-
ingarsjóð ríkisins.
1) Lánin eru nú til lengri tíma en
þau hafa nokkru sinni verið áð-
ur, þ.e. til 40 ára.
2) Lánsupphæð er hærri en hún
hefur líklega nokkru sinni verið
áður, þ.e. allt að 70% af kaup-
verði eða byggingarkostnaði.
3) Byggingarsjóður ríkisins hefur
aldrei lánað svo stórar upphæð-
ir, sem nú síðastliðin ár, miðað
við þjóðarframleiðslu.
4) Þegar rætt er um biðtíma
gleyma menn breyttu fyrir-
komulagi.
a) Áður þurftu menn að hafa
lóð og teikningu eða kaup-
Guðmundur G. Þórarinsson
samning, áður en þeir sóttu
um lán.
b) Nú geta menn sótt um þótt
þeir hafi hvorugt.
60% þeirra 4.260, sem sóttu um
lán síðustu 4 mánuði ársins
1986, hafa hvorki lóð eða kaup-
samning, heldur eru að afla sér
lánsréttinda.
5) Umsóknir eru því eðlilega vegna
breytts fýrirkomulags miklu
fleiri en áður, en nú verður því
að leggja allt aðra merkingu í
orðin umsóknir og biðtími en
áður.
Sprenging á fast-
eignamarkaði
Alþýðuflokksmenn gera mikið úr
gífurlegum verðhækkunum á fast-
eignamarkaði síðan nýja húsnæðis-
lánakerfið tók gildi og kenna því
um.
Lítum nánar á málið. Meðfylgj-
andi mynd sýnir verðsveiflur á
íbúðum í fjölbýlishúsum í Reykjavík
frá ársbyijun 1982 til ársloka 1986.
Myndin sýnir, að talsverðar
sveiflur eru í fasteignaverði og frá
árslokum 1984 til miðs árs 1986
hefur orðið mikið verðfall á íbúðum
í fjölbýlishúsum í Reykjavík.
Af myndinni er ljóst, að ekki er
rétt að tala um verðsprengingu.
Ástæður þess, að verð fer hækk-
andi eru margar aðrar en nýja
húsnæðislánakerfið.
1) Verð hefur líklega verið orðið
„óeðlilega" lágt og því mátt
búast við að það hækkaði á ný.
Fasteignaverð var orðið það
lægsta, sem mælst hefur í ára-
tug.
2) Eftirspurn hefur aukist fram
yfir framboð vegna:
a) Aðfluttir til Reykjavíkur um-
fram brottflutta 1985 og
1986 eru á þriðja þúsund og
þurfa húsnæði.
b) Byggingarframkvæmdir
drógust mjög saman um tíma
og framboð minnkaði því.
c) Almennur efnahagur hefur
batnað en kaupmáttur at-
vinnutekna heimilanna hefur
aldrei verið meiri en núna
samkv. upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar.
Upphrópanir alþýðuflokksmanna
um sprengingu á fasteignamarkaði,
sem afleiðingu af nýja húsnæðis-
lánakerfinu, eru því rangar. Enda
sýnir línuritið, að ekki er um neitt
„óeðlilegt" fyrirbæri að ræða.
Hins vegar er ekki ólíklegt að
alþýðuflokksmenn hafi með upp-
hlaupi sínu og flugeldasýningu
valdið nokkurri verðhækkun um-
fram það, sem orðið hefði ella og
þannig skaðað íbúðarkaupendur,
sem síst máttu við slíkri hækkun.
Biðtími og fjárvöntun
Alþýðuflokksmenn hafa í upp-
hlaupi sínu gert mikið úr löngum
biðtíma og fjárvöntun.
Sá málflutningur er einkar
skrítinn.
Það er alrangt að reikna bið-
tíma út frá umsóknarfjölda á
þann hátt sem gert er, vegna
þess að 60% umsækjenda hafa
hvorki lóð eða kaupsamning.
Hvað halda menn að unnt sé
að gera mörg hundruð lóðir
byggingarhæfar í hvelli? Sagt er
að 80% þeirra umsókna, sem inn
komu séu vegna kaupa á eldri
íbúðum. Skyldi sá fjöldi íbúða
vera falur?
Krafa alþýðuflokksmanna er að
auk þeirra 4.482 milljóna króna,
sem Byggingarsjóður ríkisins mun
hafa til umráða árið 1987, verði
þegar útvegaðar um 1.700 milljónir
króna til viðbótar og 8.000 milljón-
ir króna fyrir árið 1988.
Líklega er þetta nú nokkuð und-
arlegur hlutfallareikningur ef
forsendurnar eru skoðaðar.
En meginspumingin hlýtur að
vera sú, hvort menn gera sér grein
fyrir hvað þessi krafa alþýðuflokks-
manna þýðir og hvemig hún fellur
við annan málflutning þeirra.
Hvaða áhrif mundi það nú hafa
á fasteignamarkað og byggingar-
kostnað ef öllu þessu fjármagni
væri hellt út í einu?
Áhrifin
Reynum aðeins að velta fyrir
okkur samhenginu í málflutningi
alþýðuflokksmanna.
1) Ef öllum umsóknum um lán til .
kaupa á eldri íbúðum væri full-
nægt á stuttum tíma risi gífur-
leg eftirspumaralda. Hér er um
að ræða líklega um 3.400 um-
sóknir síðast á árinu 1986, fyrir
utan þær sem bámst fyrstu
mánuði 1987.
Þessar íbúðir em ekki á boð-
stólum nú og þótt einhver
innbyrðisfærsla sé er Ijóst, að
MYND:
UOMUNOUR t. ff
Ný unglinga- og
fjölskyldusaga
gefin út í kilju
ÚT ER komin hjá bókaútgáfunni
Erni og Örlygi skáldsagan Mislitt
mannlíf eftir Guðmund L. Frið-
finnsson á Egilsá. Þetta er
fjórtánda bók höfundar.
I frétt frá bókaútgáfunni segir að
sagan fjalli um dreng sem er að
alast upp í Reykjavík og býr í upp-
hafi við öryggi en mótlætið er á
næsta leiti. Foreldrar hans skilja
og lífið verður drengnum smám
saman óbærilegt. Samfélagið hefur
ekkert að bjóða nema ny Cg nl'
vandræði. A eftir fara afbrot og
afskipti lögreglu og sagan tekur
nýja stefnu.
Þetta er bók handa unglingum
og fullorðnu fólki, bók sem vekur
umhugsun um marga þætti í
íslenska velferðarþjóðfélaginu.
Bókin er sett og brotin um hjá
Filmur og prent en prentuð og
bundin í Prentstofu G. Benedikts-
sonar.
Kransæöarabb
eftir Guðmund
Oddsson
Kransæðasjúkdómur er alvar-
legasti og mannskæðasti kvilli
sem hrjáir menn um hinn vest-
ræna heim í dag. Honum hefur
verið líkt við farsótt, svo ör hefur
útbreiðsla hans verið á þessari
öld. Geysimiklum tíma og fjár-
munum hefur verið varið í
rannsóknir á kransæðasjúkdómn-
um og mikil vitneskja fengist um
eðli sjúkdómsins, gang hans og
einkenni. Mikilvægt er að greina
sjúkdóminn áður en hann hefur
valdið óbætanlegu heilsutjóni eða
jafnvel dauða. Þrátt fyrir rann-
sóknir sem náð hafa til milljóna
manna hefur enn ekki fundist
nein ein ákveðin orsök kransæða-
sjúkdóms. Með langtímarann-
sóknum þar sem fylgst er náið
með lifnaðarháttum fólks og
heilsufari hafa þó komið í ljós ein-
stakir áhættuþættir, sem eru
tengdir tíðni sjúkdómsins. Ef ein-
hverjir þessara áhættuþátta eru
til staðar hjá einstaklingi aukast
greinilega líkur á að hann fái
kransæðasjúkdóm. Suma þessara
áhættuþátta getum við ekki haft
nein áhrif á svo sem arfgengi,
sykursýki, aldur og kyn en hættan
á að fá sjúkdóminn eykst stöðugt
eftir fertugt og hann er mun al-
gengari hjá körlum. Alvarlegir
áhættuþættir sem vio geíCiT. hzft
áhrif á eru reykingar, hækkuð
blóðfíta (kólesteról), háþrýsting-
ur, offíta og streita. í stórri
bandarískri rannsókn kom í ljós
að áhætta kransæðastíflu er 2,5
sinnum meiri ef þú reykir pakka
af sígarettum á dag og vex með
auknum reykingum. Þetta á sérs-
taklega við um fólk yngra en 65
ára. Hátt kólesteról í blóði er einn-
ig alvarlegur áhættuþáttur sem
hægt er að hafa áhrif á með því
„Almenningsfræöslu
hefur verið talsvert
ábótavant í sambandi
viö hjarta- og æða-
sjúkdóma en hún er
nauðsynleg forsenda
þess að árangur náist
ef við ætlum að breyta
áhættuþáttum okkur í
hag.“
að minnka neyslu á mettaðri fltu
og í sumum tilfellum með lyíja-
gjöf. Háþrýstingur er einnig
alvarlegur áhættuþáttur og hefur
því verið lögð ríkari áhersla á
meðferð hans en áður. Offíta er
ekki eins ljós áhættuþáttur og
hinir fyrmefndu en sjálfsagt er
að reyna að halda kjörþyngd og
minnka þannig möguleika á syk-
ursýki og lækka blóðþrýsting.
Aðrir minni áhættuþættir eru
streita og hreyfíngarleysi og er
mun erfíðara að meta þessa þætti
en þó er hægt að sýna fram á
að líkamleg áreynsla breytir hlut-
falli fituefna í líkamanum og
minnkar hættu á kransæðakölk-
un.
Engin lækning er til við krans-
æðasjúkdómnum. Aðgerðir lækna
”7 * — - •** * /ii . l
og annarra heilbngðisstecta uem-
ast því að tvennu:
1. Fyrirbyggjandi aðgerðum þar
sem reynt er að hafa áhrif á
hina ýmsu áhættuþætti t.d.
með breytingu á mataræði og
minnkun reykinga.
2. Lyfjameðferð og skurðaðgerð-
um sem fyrst og fremst miða
að því að minnka einkenni
sjúkdómsins og gera fólk starf-
hæfara og lengir að öllum
líkindum líf manna í mörgum
tilfellúm.
Á síðustu árum hefur sjúk-
dómurinn greinilega verið í
nokkurri rénun og varð þess fyrst
vart í Bandaríkjunum. Á þingi
hjartasérfræðinga sem haldið var
í Osló 1985 um tíðni og út-
breiðslu kransæðasjúkdóma á
Norðurlöndum kom fram að sjúk-
dómurinn er greinilega í rénun í
Finnlandi, Noregi og á íslandi og
á síðasta áratug og á síðustu árum
sjást merki þess sama í Danmörku
og Svíþjóð. Er talið að breytingar
á fæðu og minnkun reykinga hafi
átt þátt í þessari gleðilegu þróun.
Tíðni kransæðasjúkdóma er
langhæst í Finnlandi og Finnar
eru með hæstu kólesterólgildi í
blóði og neyta meiri fítu en aðrar
Norðurlandaþjóðir. Á síðustu 10
árum hafa kólesterólgildi lækkað
um 10—15% í Finnlandi og Nor-
egi og er þakkað breyttum
neyzluvenjum. Jafnframt hafa
sígarettureykingar minnkað tölu-
vert meðla karla í þessum löndum.
Mikil áhersla hefúr verið lögð á
aukna almenningsfræðslu í mörg-
um löndum og reynt að breyta
neyzluvenjum fólks til batnaðar.
Hér á landi sem víða annars stað-
ar hefur verið hafín mikil herferð
gegn reykingum bæði með au-
kinni fræðslu og með löggjöf sem
ætluð er til að vemda þá sem
ekki reykja gegn reykmengun á
yjnnnstöðum og öðrum opinberum
stöðum. Vonandi tekst að eria
almenningsálitið gegn þessum
sóðalega og heilsuspillandi ávana
og væri þá talsvert unnið í barát-
tunni við æðasjúkdóma. Almenn-
ingsfræðslu hefur verið talsvert
ábótavant í sambandi við hjarta-
og æðasjúkdóma en hún er nauð-
synleg forsenda þess að árangur
náist ef við ætlum að breyta
áhættuþáttum okkur í hag. Fyrir
Þaó sem þú oif fjölsk y/r/a
þin þurfa að vita um
hjartakveisu
rúmu ári gaf Félag velunnara
Borgarspítalans út bókina „Listin
að lifa með kransæðasjúkdóm".
Bók þessi er mjög vel skrifuð og
auðveld aflestrar og veitir ótrú-
lega miklar upplýsingar um
kransæðasjúkdóminn, þó ekki sé
hún stór í sniðum. Þetta framtak
velunnara félagsins er mjög þakk-
arvert og gott framlag í barát-
tunni við kransæðasjúkdóminn.
Ég vil eindregið mæla með þess-
an agætu bÓk tí! almenn-
ingsfræðslu og fyrir þá sem eru
með kransæðasjúkdóm því í henni
fá þeir einföld og greinargóð svör
við flestum spumingum varðandi
sjúkdóminn.,
Höfundur er hjartasérfræðing-
ur og stnrfar á hjartadeild
Borgarspítalans.