Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 23 Útvarp allan sólarhringinn: Breytingatíllögur um Rás 2 samþykktar í Utvarpsráði 5 fulltrúar greiddu tillögunum atkvæði sitt, 2 sátu hjá TILLÖGUR vinnuhóps sem skipuð var af Útvarpsráði, til að vinna drög að breyttri dagskrá Rásar 2, var samþykkt samhljóma á fundi Útvarpsráðs á aukafundi ráðsins á miðvikudag. Fimm manns greiddu tiilögunni atkvæði sitt, en tveir sátu hjá, þeir Jón Þórarinsson og Magnús Erlendsson. Ríkisútvarpið hefur haft dag- skrárstefnu og rekstur Rásar 2 til endurskoðunar að undanförnu, en samkvæmt útvarpslögum skal Ríkisútvarpið senda út til landsins alls, og næstu miða, tvær hljóð- varpsdagskrár og minnst eina sjónvarpsdagskrá, árið um kring. í tillögum vinnuhópsins verður aðalá- herslan, sem áður, á flutningi léttrar tónlistar í fjölbreyttu úrvali, fréttum og fréttatengdum þáttum, dægurmálaumræðum og íþróttum. Þar kemur ennfremur fram, að með hagræðingu í rekstri verði unnt að lengja dagskrána verulega, eða í sólarhringsútsendingu, án mikils aukakostnaðar Tillögumar grundvallast á þeim meginlínum að á Rás 2 verði útvarp- að léttri tónlist, auglýsingum og almennum upplýsingum, sem varða öryggi og velfarnað hlustenda um land allt. Efnisval og efnistök mið- ist, í aðaldráttum, við hinn almenna hlustanda á fullorðinsaldri, en í sér- stökum dagskrárliðum verði eink- um höfðað til fólks á aldrinum 10—20 ára. Einnig á því að dag- skrárgerð á Rás 2 verði, að öllum jafnaði, einföld og tiltölulega ódýr. Efni verði nær allt í beinni útsend- ingu og aðallega í höndum dag- skrárgerðarmanna sem verða einir við útsendingarborð. Að lokum er gert ráð fyrir því í dagskrártillögum að nokkrir þættir flytjist af Rás 1, yfir á Rás 2, auk þess sem iagt er til að nokkrir þættir á núverandi dagskrá Rásar 2 verði þar áfram á dagskrá enn um sinn. Tillögurnar um breytta dagskrá eru í þrennu lagi: Að dagskrá mánu- daga til föstudaga verði frá miðnætti til kl. 19.30, kvölddagskrá virkra daga verði frá klukkan 19.30 til miðnæítis og að dagskrá verði um helgar, það er laugardaga og sunnudaga. Aðalefni á breyttyri dagskrá Rásar 2 er skemmtitónlist af ýmsu tagi og hefur sú stefna verið mörkuð að tónlistin verði fjöl- breyttari og blandaðri en verið hefúr til þessa. Gert er ráð fýrir að Næturútvarp hefjist að loknum samtangdum fréttum klukkan 24.00 og að efni þess verði létt tólist. Þó er gert ráð fyrir lágmarkskynningum fram til klukkan 01.00. Einnig er stefnt að því að endurtaka óskalagaþátt sjó- manna, „Á frívaktinni," í næturút- varpi Rásar 2 og fleiri þætti sem falla vel að þessum útsending- artíma. Ráðgert er að Morgunútvarp Blóðþrýstingiir mæld- ur í Hagkaup í dag í DAG getur að líta nýstárlegan atburð í stórmarkaði Hagkaups í Skeifunni. Þar verða fulltrúar Félags velunnara Borgarspítalans og bjóða til sölu bók, sem félagið gaf út að beiðni starfsfólks á hjarta- deild Borgarspítalans: „Listin að lifa með kransæðasjúkdóm — Það sem þú og fjölskylda þín þurfa að vita um hjartakveisu". Með þeim verða hjúkrunarfræð- ingar, sem mæla blóðþrýsting þeirra sem óska, en blóðþrýstingur er einn þeirra áhættuþátta, sem valda kransæðasjúkdómi. Að dómi hjartasérfræðinga getur þessi bók bætt verulega úr þeim skorti, sem verið hefur á fræðslu- efni um kransæðasjúkdóm, sem er mannskæðasti og alvarlegasti kvilli sem hrjáir ibúa hins vestræna heims í dag. Bókin var fyrst gefin út af bandarískri stofnun, Medecine in the Public Interest, og er í röð rita sem ætlað er að fræða sjúklinga og aðstandendur þeirra um eðli ýmissa sjúkdóma og meðferð við þeim. Hjúkrunarfræðingar í hjarta- deild Borgarspítalans fengu hugmyndina að þýðingu bókarinn- ar, en á þeim brenna heitast ýmsar spumingar, sem bókin svarar. Um 2000 Islendingar leggjast árlega í sjúkrahús vegna kransæða- sjúkdóma, eða u.þ.b. 5 á dag til jafnaðar. Bókin á því erindi til margra, og sjúkdómurinn raunar svo algengur, alvarlegur og mann- skæður, að enginn veit hver verður næsta fórnarlamb sjúkdómsins. Helstu áhættuþættir eru skýrðir í bókinni og þar eru á mjög alþýðleg- an hátt settar fram upplýsingar um það, hvernig má bregðast við ein- kennum sjúkdómsins, varast hann og lifa eðlilegu lífi þó hann geri vart við sig. (Fréttatilkynning) hefjist klukkan 06.00 til klukkan 9.00, en þá hefjist Árdegisútvarp fram til klukkan 12.20, eða fram að samtengdum aðalfréttatíma Rása 1 og 2. Eftir það heíjist Mið- degisútvarp til klukkan 16.00, en þá taki Síðdegisútvarp við til klukk- an 18.30. Kvöldfréttir verða samtengdar milli Rása 1 og 2 klukk- an 19.00. Auk þess verða sam- tengdar fréttir á um það bil klukkustundar fresti allan daginn. Sem fyrr segir, sátu tveir út- varpsráðsfulltrúar hjá við atkvæða- greiðslu með tillögunni, þeir Jón Þórarinsson og Magnús Erlendsson. Létu þeir gera eftirfarandi bókun: „1) að „samkeppni" Ríkisútvarpsins við einkastöðvar eigi að vera um efnisgæði dagskrár fremur en magn hversdagslegs afþreyingarefnis, 2) að lenging dagskrár á rás 2 sé ónauðsynleg og færi ekki Ríkisút- varpið nær því höfuðmarkmiði sínu að „leggja rækt“ við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararf- leifð,“ eins og kveðið er á um í útvarpslögum, 3) að kostnaðaráætl- anir varðandi lengingu á dagskrá Rásar 2 séu óraunhæfar, ef eitt- hveija marktæka viðleitni á að sýna til að laða að hlustendur, 4) að tekjuvonir sem tengdar eru fram- lögðum tillögum séu allt of óvissar til að veijandi sé að leggja út í það áhættufyrirtæki sem hér um ræð- ir.“ Af þessum ástæðum sögðust þeir Jón Þórarinsson og Magnús Erlendsson ekki sjá sér fært að styðja fyrirliggjandi tillögu um lengingu á dagskrá Rásar 2 og því sætu þeir hjá við atkvæðagreiðsl- una. I samtali við Morgunblaðið sagði Magnús Erlenddsson: „Á sama tíma og upplýst er að auglýsingatekjur Rásar 2 drógust saman jrfir 60 pró- sent á síðustu mánuðum liðins árs, miðað við sömu mánuði ársins á undan, tel ég það mjög alvarlegt ábyrgðarleysi að eyða um 45 millj- ónum króna af skattpeningum landsmanna í sólarhringsútsend- ingu á efni sem að meginhluta er ómerkileg, lágkúruleg popptónlist. Auglýsingatekjur munu aðeins dekka brot af þessum kostnaði. I íjármálum eiga að gilda sömu lög- mál um opinberan rekstur, sem um einstaklinga og heimili, að ekki sé eytt meiru en aflað er.“ í vinnuhópnum störfuðu þeir Jón Örn Marinósson, tónlistarstjóri, Friðrik Páll Jónsson, varafrétta- stóri, Ingólfur Hannesson, íþróttaf- réttamaður og Ólafur Þórðarson, tónlistarfulltrúi. Bogi Ágústsson, sem nýlega tók við starfi fulltrúa framkvæmdastjóra hljóðvarps, hef- ur einnig unnið að skipulagsbreyt- ingunum. Reykjavíkurdeild Rauða kross fslands 5skar eftir tilboðum í breytingar og inn-| réttingar á tveimur sjúkrabílum. Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu deildarinnar i Öldugötu 4, gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu RRKÍ fyrir kl. 16.00 fóstudaginn 20. mars. Reykjavíkurdeild RKÍ iRauði kross Islands RITVINNSLA II íslensk ritvinnsla ítarlegt og vandað námskeið í notkun Ritvinnslu II. Forritið er á íslensku. Dagskrá: ★ Grundvallaratriði við notkun PC-tölva. ★ Ritvinnsla með tölvu. ★ Ritvinnsla II. ★ Aðalvalmynd. ★ Ritvinnsluskipanir. ★ Útprentanir. ★ Kerfisaðgerðir. ★ Umræður og fyrirspurnir. Tími: 9.—11. mars kl. 13—17. Innritun í símum 687590, 686790, 687434 og 39566. Tölvufræðslan Borgartúni 28. AUK M 3 158

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.