Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 25 Meðaldrægu eldflaugarnar: Sovétmenn segja svar Bandaríkjannajákvætt Moskvu, Reuter. GENNADY Gerasimov, talsmað- ur sovézka utanríkisráðuneytis- ins, lét í gær í ljós varfærna bjartsýni um hugsanleg-a mögu- leika á því, að bráðlega verði gerður samningur milli risaveld- anna um útrýmingu meðal- drægra eldflauga í Evrópu. Gerasimov sagði á fundi með fréttamönnum í Moskvu, að Sovét- stjómin væri ánægð með að hafa fengið Jákvætt svar frá nær því sérhveiju landi" við tillögum hennar um síðustu helgi um að aðgreina meðaldrægu eldflaugamar frá öðr- um sviðum afvopnunarmála í von Góð ræða frá mál skrafssjón- armiði - sagði Sam Don- aldson New York, frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Stjórnmálamenn hér í Washington og fjölmiðlar yfir- leitt taka ræðu Reagans í fyrrakvöld vel og telja að hann hafi snúist um hæl í vopnasölu- málinu og sé nú á réttri braut til að vinna á ný traust almenn- ings og vera fær um að stjórna af krafti þau tæplega tvö ár sem hann á eftir af kjörtíma- bilinu. Þekktur frammámaður demó- krata, Robert S. Strauss, fyrver- andi formaður Demókrataflokks- ins sagði: „Forsetinn sagði það sem segja þurfti.“ Garry Hart, sem er efstur á lista, sem væntanlegur frambjóð- andi demókrata í forsetakosning- unum 1988, sagði, að forsetinn væri nú farinn að taka á vanda- málum, sem skekið hefðu undir- stöður stefnu hans í utanríkismál- um. Bæði fyrir og eftir tuttugustu ræðu forsetans kepptust sjón- varpsfréttamenn við að segja sitt álit á forsetanum og ræðu hans. Þær athugasemdir og ráðlegging- ar voru ekki allar jafn vingjamleg- ar og ummæli stjórnmálamann- anna. Flestir sjónvarpsmenn kvörtuðu yfir að forsetinn hefði ekki beðist afsökunar á framferði sínu. Sálfræðingar og aðrir sér- fræðingar á ýmsum sviðum voru kallaðir fram á skjáinn til að segja sitt álit á líðan forsetans, andlega, eða líkamlega. Sérfræðingur í öld- runarmálum fullyrti, að það yrði Reagan forseta hollt að fá sér síðdegislúr daglega. Það vakti nokkra athygli, að einn af hatrömmustu umvöndun- armönnum forsetans, Sam Don- aldson frá ABC-sjónvarpsstöðinni, lét svo ummælt, að ræðan hefði verið góð, „frá málskrafssjónar- miði“. ERLENT um að fljótlega næðist samkomulag um þær. Garasimov sagði ennfremur, að tillögur Bandaríkjamanna, sem lagðar hefðu verið framí afvopnun- arviðræðunumí Genf í þessari viku, væru í samræmi við það þær hug- myndir, sem samkomulag hefði verið um á fundi þeirra Gorbachevs Sovétleiðtoga og Reagans Banda- ríkjaforseta í Reykjavík á sl. ári. „Fyrstu viðbrögð okkar gagnvart þessu eru mjög jákvæð," sagði Ggerasimov. „Við sjáum, að hreyf- ing er komin á hlutina og við vonum, að hún verði hröð, en hvort okkur tekst að ná samkomulagi eða ekki á eftir að sjást." Maynard Glitman (til vinstri), aðalfulltrúi Bandaríkjamanna í viðræð- unum í Genf um meðaldrægu eldflaugarnar heilsar Lev Masterkov, aðalfulltrúa Sovétmanna í þessum viðræðum. Mynd þessi var tekin, er Glitman afhenti uppkast Bandaríkjamanna að samningi um útfym- ingu meðaldrægn eldflauganna i Evrópu á miðvikudag. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands: Ekki má horfa framhjá skammdrægn eldflaugxmum Gengi gjaldmiðla Bonn og París, Reuter, AP. HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýzkalands, hefur varað við því, að horft verði framhjá skammdrægum kjarnorkueldflaugum risa- veldanna, ef samkomulag næst milli þeirra um að flytja burt meðaldrægar eldflaugar þeirra frá Evrópu. Friedhelm Ost, talsmaður kansl- meðaldrægu eldflaugarnar burt frá arans skýrði fra þessu í fyrrakvöld. Hann tók það jafnframt fram, að kanslarinn fagnaði því skrefi, sem bæði risaveldin hefðu þegar stigið í átt til samkomulags um að flytja URVALS FILNUR Kvnninaarverö ## Dreifing: TOLVUSPIL HF. sími: 68-72-70 Evrópu. Ost benti hins vegar á, að skammdrægar eldflaugar Sovét- manna í Tékkóslóvakíu og Austur- Þýzkalandi myndu sennilega lenda á Vestur-Þýzkalandi, ef til þess kæmi, að þeim yrði beitt. Frönsk stjómvöld, sem í upphafi voru andsnúin tillögum Sovét- manna, hafa dregið úr andstöðu sinni. Þannig var haft eftir Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakka í gær, að „það væri fráleitt að ætla sér að snúast gegn hugsanlegri núll-lausn Bandaríkjamanna og Sovétmanna" varðandi meðaldrægu eldflaugarnar. Japanska utanríkisráðuneytið fagnaði í gær fram komnum tillög- um um, að fyrst yrðu gerðir samningar um meðaldrægu eld- flaugamar og önnur svið afvopnun- armála skilin eftir á meðan. Talsmaður ráðuneytisins lagði hins vegar áherzlu á, að útryma yrði meðaldrægum eldflaugum í Asíu ásamt þeim, sem fyrir væru í Evr- ópu. London, AP. BANDARÍKJADOLLAR lækkaði í gær gagnvart helztu gjaldmiðl- um heims, eftir að Robert Ortner, aðstoðarviðskiptaráð- herra Bandaríkjanna lét hafa eftir sér, að japanska jenið væri of lágt skráð gagnvart dollarn- um og ætti að hækka um 10-15% enn. Síðdegis í gær kostaði brezka pund- ið 1,5775 dollara (1,5665), en annars var gengi dollarans þannig, að fyrir hann fengust 1,8315 vest- ur-þýzk mörk (1,8350), 1,5437 svissneskir frankar (1,5435), 6,0950 franskir frankar (6,0975), 2,0795 hollenzk gyllini (2,0685), 1.308.75 límr (1,302,50), 1,33425 kanadískir dollarar (1,3323) og 153.75 jen (153,47) Gullverð hækkaði og var 411,00 dollarar únsan (406,30). LYSínG LADA Bílar dagsins Árg. Ekinn Verð Samara 5 gíra 86 11 þ. 230 þ. Sport5gira 87 4þ. 345 þ.* Lux 85 40 þ. 185 þ. Station 85 50 þ. 135þ.* LuxCanada 85 15 þ. 190 þ. 1200 84 26 þ. 110 þ. * = stgr. Vegna mikillar sölu bráð- vantar okkur nýlega bíla í sal á skrá. Opið 9—19 virka daga, laugardaga 10-18. Verlð velkomln Suöurlandsbraut 12 84060 £ 38600 Brunabótafélagið, Búnaðar- bankinn, Landsbankinn og Sjóvá hafa tekið höndum saman og stofnað alíslenskt fyrirtæki á sviði fjármálaþjónustu: Lýsing hf. Suðurlandsbraut 22 Reykjavík Sími 91-689050 Lýsing hf. býður þjónustu á sviði fjármögnunarleigu, þ.e.a.s. kaup og útleigu á flestum vélum, tækjum og búnaði til atvinnu- rekstrar. Stofnun Lýsingar hf. sýnir að með sameiginlegu átaki eru öflug íslensk fyrirtæki fullfær um að mæta erlendri samkeppni á þessu sviði sem öðrum. Kynntu þér hvað við höfum að bjóða áður en þú tekur ákvörðun um fjárfestingu í vélum og tækjum. BRunnBár -AfÖRVGGSÁST/eEIUM 1 Jr BUNADÁRBANKJ ÍS1.ANDS Landsbanki íslands Banki allra landsmanna um Lýsing hf. Suðurlandsbraut 22 Reykjavík Sími 91-689050 SVONA OíRUM VIO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.