Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987 Shevardnadze í Indónesíu: Hyggst treysta sam- skiptín á nýjan leik Jakarta, Reuter. EDUARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna lagði áherslu á hernaðarlegt mikilvægi Indónesiu i stuttu ávarpi er hann hélt við komu sína til Jakarta í gær. Kvaðst ráðherrann vænta þess að samskipti Sovétríkjanna og Indónesíu yrðu treyst á nýjan leik. Shevardnadze hélt frá Ástralíu hugðist mótmæla kjörum gyðinga til Indónesíu á aðfaranótt fímmtu- dags. Ráðherrann fékk nokkuð blendnar viðtökur í Ástralíu. Hópur fólks kastaði að honum eggjum og svífyrti hann er hann kom til Syd- ney á þriðjudag. Við brottför hans safnaðist fjöldi fólks saman í ná- grenni flugvallarins í Sydney og í Sovétríkjunum. Lögreglumenn sáu til þess að fólkinu var ekki hleypt inn á flugvallarsvæðið. She- vardnadze lét mótmælin sem vind um eyru þjóta og kvaðst sannfærð- ur um að samskipti Ástralíu og Sovétríkjanna myndu batna eftir komu hans. Shevardnadze mun í dag eiga viðræður við Mochtar Kusuma- atmadja, utanríkisráðherra Indó- nesíu, og á laugardag mun eiga fund með Suharto forseta. She- vardnadze sagði þann fund vera sérlega mikilvægan og kvaðst vænta þess að unnt yrði að treysta samskipti ríkjanna, sem hafa verið lítil undanfarna tvo áratugi. Indónesía hefur snúist frá fylgi- spekt við kommúnismann í valdatíð Suhartos. Hins vegar voru lands- menn einna traustustu bandamenn Sovétríkjanna í Asíu í valdatíð Suk- arnos, fyrrum forseta. Til marks um það má nefna að Nikita Khrusc- hev Sovétleiðtogi sendu Sukarno aldinmauk og sultutau á tveggja vikna fresti er hann sat að völdum eystra. Reuter Tékkneskir her- foringjar flýja land TVEIR foringjar úr tékkneska hernum flúðu í herþyrlu til Vestur-Þýskalands á miðvikudag, að því er talsmaður lögreglunnar þar sagði. Lentu þeir þyrlunni, sem er af gerðinni MI-2 og sérfræðingar vestur-þýska hersins sjást skoða hér á myndinni, skammt frá borginni Regensburg, um 100 km. frá landamærunum að Tékkóslóvakíu. Pollard dæmdiir í lífstíð- arfangelsi fyrir njósnir Reuter Shultz, utanríkisráðherra heim- sótti fæðingarstað kínverska heimspekingsins Konfúsiusar, i Kínaferðinni og var þessi mynd tekin við það tækifæri, er hann klappaði á höfuð risastórrar steinskjaldböku. George Shultz: Kína og Taiwan sameinist í eitt ríki Shanghai, Reuter. KÍNAFÖR George Shultz, ut- anrikisráðherra Bandaríkjanna, lauk i gær. í ræðu i lokahófi sagði utanrikisráðherrann að Bandarikjamenn stæðu fast við þá stefnu sina að Kina og Taiwan ættu að sameinast. Bandarískir embættismenn sögðu við fréttamenn að Shultz hefði sagt þetta til að fullvissa stjómina á Taiwan um að hún nyti stuðnings stjómarinnar í Washing- ton hvað þetta varðaði, en sterk öfl innan stærsta stjómarandstöðu- flokksins á Taiwan vilja að eyjan verði sjálfstætt ríki. Nýskipaður formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, demókratinn Claibome Pell, hefur lýst því yfír að hann álíti að Taiwan eigi að vera sjálfstætt ríki án tengsla við Kína. Shultz sagði á blaðamannafundi í gær að í Suður-Kóreu, sem er næsti viðkomustaður hans á ferð hans um Asíuríki, þyrftu landsmenn sjálfír að fínna lausn sinna deilu- mála. Halda yrði uppi lögum og reglu, en virða yrði rétt manna til fundahalda og annarra athafna er teldust til mannréttinda. í síðasta mánuði hafði Gaston Sigur, einn aðastoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, látið í ljósi óánægju með stöðu mála í Suður-Kóreu og sagt að bæði ríkisstjómin og stjómar- andstaðan yrðu að sýna meiri sveigjanleika við að jafna ágrein- ingsmál sín. Washington, Tel Aviv, AP, Reuter. DÓMARI í bandaríkjunum hefur dæmt Jonathan Pollard, sem ját- aði á sig njósnir, í lífstíðarfang- elsi fyrir að láta ísraela hafa hernaðarleyndarmál. Mál þetta hefur skaðað stjórnmálasam- band Bandaríkjamanna og Israela. Shimon Peres, utanríkis- ráðherra ísraels, sagði í gær að ísraelar myndu ekki gera þau mistök aftur að njósna um Bandaríkjamenn. Aubrey Robinson dómari hafnaði beiðnum um að sýna Pollard, fyrr- um sérfræðingi bandaríska sjóhers- ins um njónsamál, og konu hans, sem var flækt í málið, miskunn. Anne Henderson-Pollard var dæmd til fímm ára fangelsis fyrir að hafa skjöl frá Bandaríkjastjórn í fómm sínum og fimm ára fangels- is fyrir að vera samsek manni sínum. Þegar dópmurinn yfir manni hennar var lesinn upp féll hún á gólfið grátandi og hrópaði: „Nei.“ Pollard hjálpaði henni fölur og fár á fætur. Sækjendur í málinu fóru fram á langan fangelsisdóm, en samþykktu að krefjast ekki lífstíðarfangelsis, þar sem Pollard hefði verið sam- vinnufús. Sækjendumir og Caspar Weinberger vamarmálaráðherra hafa sagt að njósnahringur Pollards hefði valdið einna mestum skaða í öryggismálum í sögu Banda- ríkjanna. Pollard er gyðingur og kvaðst hann hafa látið ísraela hafa gögn vegna þess að hann taldi að banda- rískir _ embættismenn stofnuðu öryggi Israels í hættu með því að liggja á upplýsingum. Israelar hafa verið skömmustu- legir vegna þess að þeir voru gripnir við að njósna um helstu bandamenn sína. Þeir hafa beðist formlegrar afsökunar á því að hafa leyft þess- ar njósnir um helstu góðgerðar- menn sína og reyna nú að bæta fyrir. Abba Eban, talsmaður fijáls- lyndra á ísraelska þinginu, gagn- rýndi í gær ísraelsku stjómina fyrir það hvernig Pollard-málið hefði verið meðhöndlað. Hann sagði að stjómin hefði getið af sér mestu erfíðleika Israela í samskiptum við erlend tíki frá upphafi. Hann kvað háttseta embættismenn hafa sýnt fullkomið ábyrgðarleysi og skaðað mikilvægustu hagsmuni ísraela. Eban, sem er formaður utanríkis- og varnarmálanefndar þingsins og fyrrum utanríkismálaráðherra, sagði að kominn væri tími til að ísraelar færu að veita Bandaríkja- mönnum fullar upplýsingar um málið. Eban gagnrýndi einnig stjómvöld fyrir að hækka Autem Sella í tign. Bandaríkjamenn stefndu Sella á þriðjudag fyrir að fá Pollard og konu hans til að njósna. Sovézki sagnfræðingurinn Isaak Mints: Fómarlömb Stalins fái uppreisn æru Moskvu, AP. KUNNUR sovézkur sagnfræð- ingur krafðist þess í fyrradag, að þeir, sem týnt hefðu lífi í hin- um blóðugu hreinsunum Stalins á fjórða áratug þessarar aldar, fengju uppreisn æru. „Enn vitum við ekki nándar nærri um nöfn allra þessara manna,“ sagði sagnfræðingurinn Isaak Mints í viðtali við TASS-fréttastof- Bandaríkin: Nýtt kíghósta- lyf væntanlegt Atlanta, Georgíu. AP. SÆNSKIR vísindamenn telja, áð þeim muni takast að framleiða nýtt kíghóstalyf í stað DPT-bóluefnisins, sem getur valdið heila- skemmdum og öðrum hliðarverkunum. Dr. Per Askelof, einn vísinda- mannanna, segir, að þeir hafí framleitt bóluefni, sem vinnur á kíghóstabakteríunni. Hann segir, að enn sé óunnið um tveggja ára rannsóknastarf, þá taki við tveggja ára tilraunir á mönnum og loks líði ef til vill tvö ár, þar til unnt verði að mark- aðssetja lyfíð. í Svíþjóð var hætt að nota DPT-bóIuefnið 1979, eftir að rannsókn leiddi í ljós, að einn af hveijum 100.000, sem fengu Iyf- ið, urðu fyrir heilaskemmdum. Rannsóknimar eru að mestu kostaðar af bandarískum heil- brigðisstofnunum, að því er Askelof sagði, er hann greindi frá þessum niðurstöðum á árlegum fundi bandarískra örverufræðinga á þriðjudag. Askelof sagði enn fremur, að tilraunir til að búa til nýtt kíghóstalyf hefðu hingað til strandað á því, hversu óvenjuleg kíghóstabakterían væri að allri gerð. una. Mints, sem er meðlimur sovézku vísindaakademíunnar, sagði að umbótaáform Mikhails Gorbachevs nú ættu rætur sínar að rekja til októberbyltingarinnar í Rússlandi 1917, en breytingamar nú myndu eiga sér stað smám sam- an. Ýmsir sovézkir rithöfundar, sem hefðu verið í ónáð, hefðu nú fengið uppreisn æm og verk þeirra gefin út. Þá hefðu ýmsir andófsmenn verið látnir lausir úr fangelsi og meiri opinber umræða verið leyfð um ýmsa þætti þjóðfeálgsins. Yfír sumum málefnum hvíldi þó enn þögn, þar á meðal um stjóm Josefs Stalin og þá stefnu hans að knýja fram með valdi samyrkjubú- skap í landbúnaðinum, en síðast en ekki sízt um hreinsanir hans á raun- verulegum og ímynduðum andstæð- ingum sínum. „Nöfn margra byltingarmanna og baráttumanna fyrir sovézku stjómarfari hafa gleymzt að ógleymdum þeim, sem hurfu í hreinsunum 1936-1938,“ segir Mints, en á þeim árum voru hreinsanir Stalins í hámarki. „Það er skylda okkar sagnfræð- inganna að kalla nöfn þessara manna á ný fram á spjöld sögunn- ar,“ hefur TASS ennfremur eftir Mints. Að áliti vestrænna séfræðinga týndu 8-10 millj. manna lífi í hreins- ununum 1936-1938. Kýpur: Blaðamaður setur bankarán á svið Nicosia, Kýpur, Reuter. Starfsmenn banka eins á Kýp- ur ráku upp stór augu þegar maður nokkur vatt sér inn, kvaðst hafa sprengju undir hend- inni og heimtaði 10.000 dollara (um 400 þúsund isl.kr.). Maður- inn hafði ekki fyrr tekið við fénu en hann skilaði því aftur. Demetris Mamas, blaðamaður Kyrikas kvaðst í gær hafa sett rán- ið á svið og þóst hafa sprengju vafða inn í dagblaðapappír undir hendinni til að sýna fram á hversu lítill öiyggisviðbúnaður er í bönkum á Kýpur. í febrúar var framið bankarán á Kýpur, en þar höfðu slíkir glæpir ekki þekkst. „Lögreglan var æf af bræði," sagði Mamas. „Þeir ætla að gefa út yfírlýsingu, en ég hugsa að þeir kæri mig ekki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.