Morgunblaðið - 06.03.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
27
Færeyjar:
Eldur kom upp
í Hótel Borg
Þórshöfn. Frá Hilmari Jan Hansen, fréttaritara Morgunbladsins.
ELDUR kom upp í stærsta hóteli
Færeyja, Hótel Borg, í Þórshöfn,
um miðnætti aðfararnótt mið-
vikudags. Tjón varð töluvert, en
engin alvarleg slys hlutust af.
Ekki er vitað um eldsupptök.
Mest varð eldhafið í gangi inn
af móttökunni og breiddist hann
upp á næstu hæð, þar sem veitinga-
salur hótelsins er og hlaust þar af
umtalsvert tjón.
Um þrjátíu manns voru á hótel-
inu, þegar eldurinn kom upp, en
öllum tókst að komast út. Einn
þeirra meiddist, er hann braut sér
leið í gegnum glerdyr og skar sig
Grænlending-
ar sækja um
lán hjá OECD
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
HANS Pavia Rosing, sem fer með
efnahagsmál fyrir hönd græn-
lensku landstjórnarinnar, fór á
miðvikudag í leiðangur til höfuð-
stöðva Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu, OECD, í París
til að leita eftir 200 milljóna dan-
skra króna (um 1,1 milljarðs isl.
kr.) framkvæmdaláni.
Verði lánið veitt, er það í fyrsta
sinn, sem Grænlendingar fá erlent
lán. Heimastjómin reiknar með
svipaðri lánsþörf næstu árin vegna
fjárfestinga í atvinnulífinu. Danska
ríkisstjórnin hefur neitað að veita
ríkisábyrgð fyrir lánsfénu.
á stálneti í glerinu.
Slökkviliðið kom fljótt á vettvang
og slökkti eldinn á einum og hálfum
klukkutíma.
Tveir sérfræðingar frá dönsku
lögreglunni eru væntanlegir tii
Færeyja til að kanna eldsupptök.
Israel:
Spáaukinni
verðbólgu
Tel Aviv, Reuter.
SAMKVÆMT skýrslu sem starfs-
menn annars tveggja stærstu
banka ísrael hafa unnið eru blik-
ur á lofti í efnahagsmálum
landsins. Spáð er 30% verðbólgu
á þessu ári en í fyrra var hún
rúm 18%.
í skýrslu hagfræðinga Hapoa-
lim-bankans segir að nauðsynlegt
kunni að reynast að lækka gengi
shekelsins. Þá er varað við fyrir-
huguðum skattalækkunum og telja
sérfræðingamir að þær muni hafa
aukinn fjárlagahalla í för með sér.
10% verðbólgu er spáð á fyrstu fjór-
um mánuðum ársins í kjölfar þess
að gengi shekelsins gagnvart
Bandaríkjadollar var lækkað um
9,7% í janúar. Hagfræðingamir
segja að lækkunin hafi ekki leyst
vanda efnahagslísfsins sem sé of
hár framleiðslukostnaður, launa-
gjöld og verðfall á útflutningsafurð-
um. Því megi búast við frekari
gengisfellingu á síðari hluta ársins.
Hefur getið sér
góðan orðstír
sem yfirmaður FBI
William Webster
Reuter
Washington. AP.
WILLIAM Webster, sem Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseti, hef-
ur skipað sem yfirmann CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar,
settist við stjórnvölinn hjá FBI,
bandarísku alríkislögreglunni,
fyrir níu árum, í kjölfar Water-
gate-hneykslisins. Starfaði hann
þar áður sem alríkisdómari og
þótt hann væri repúblikani féllst
hann á beiðni Jimmys Carter,
forseta og demókrata, um að
gerast þriðji yfirmaður FBI i
sögu stofnunarinnar.
Webster, sem verður 63 ára í
dag, föstudag, átti að láta af störf-
Indland:
43% aukning út-
gjalda til hermála
Islamabad, London, Reuter, AP.
INDLAND og Pakistan hafa
komist að samkomulagi, eftir 4
daga viðræður í Islamabad i Pa-
kistan, um að kalla fleiri
hermenn frá landamærum land-
anna, til að draga úr spennu.
Viðræðum um þetta efni verður
haldið áfram í Nýju Delhi á næs-
tunni.
Yfirmaður áætlunar um notkun
á úraníum í Pakistan, Abdul Qadeer
Khan, gaf á sunnudag út yfirlýs-
ingu þar sem hann neitaði því að
hafa sagt í viðtali við indverskan
blaðamann að Pakistanir hefðu yfir
kjamorkuvopnum að ráða og
myndu beita þeim ef með þyrfti.
Blaðamaðurinn Kuldip Nayyar sem
ritar dálka er birtast í 40 blöðum
í Suðaustur Asíu heldur þvi fram
að hann hafi ummælin rétt eftir
Khan.
Indveijar hafa tekið þessi um-
mæli óstinnt upp og þingmenn
krafist þess að indversk stjómvöld
séu vel á verði. Rajiv Gandhi, for-
sætis- og fjármálaráðherra Ind-
Iands sagði í umræðu um fjárlög í
þinginu á laugardag að útgjöld til
hermála yrðu aukin um 43% á
næsta ári.
um hjá FBI á næsta ári en hafði,
að því sagt er, í hyggju að draga
sig í hlé nokkru fyrr. Þær fyrirætl-
anir hans breyttust þó þegar FBL
tók að rannsaka vopnasölumálið og
fjárveitingamar til skæmliða í Nic-
aragua.
Þegar Webster tók við sem yfír-
maður FBI naut stofnunin ekki allt
of mikils álits í augum margra
Bandaríkjamanna. Höfðu starfs-
menn hennar sinnt ýmsum vafa-
sömum verkum fyrir J. Edgar
Hoover, fyirum yfirmann FBI, haft
ólöglegt eftirlit með ýmsum mönn-
um á tímum Víetnam-stríðsins og
árið 1973, þegar Patrick Gray var
yfírmaður stofnunarinnar, höfðu
þeir reynt að hindra rannsókn á
Watergate-hneykslinu.
Undir stjóm Webster jókst hróð-
ur FBI þótt sumar starfsaðferðir
stofnunarinnar sættu nokkurri
gagnrýni. Átti það einkum við um
svokallað Abscam-mál þegar
nokkrir starfsmenn FBI þóttust
vera arabískir furstar og buðu þing-
mönnum fé gegn fyrirgreiðslu í
þinginu. í því máli vora sjö þing-
menn og 11 aðrir menn dæmdir
fyrir mútuþægni.
Webster hefur gengið mjög hart
fram gegn hryðjuverkamönnum og
aukið eftirlit með þeim, sem gran-
samlegir þykja. Hefur slíkum
verkum enda fækkað mjög í Banda-
ríkjunum.
Webster í fæddur í St. Louis í
Missouri og útskrifaðist sem lög-
fræðingur frá Washington-háskól-
anum þar í borg. Starfaði hann sem
slíkur til ársins 1971 þegar Richard
Nixon skipaði hann alríkisdómara.
Nbkkur sœti kws
áþessum %,
namskeiöum
3
SNIÐ OG SNIÐTEIKNINGAR 20 st.
Kolbrún Júlínusdóttir
Mán. kl. 19-22 (5 vikur frá 9. mars)
FATAHÖNNUN 20 st.
Ásdís Loftsdóttir
Mán. kl. 19-22 (5 vikur frá 9. mars)
VIÐ HVAÐ VILTU STARFA? 20 st.
Sölvína Konráðs
Þri. kl. 19-22 (5 vikurfrá 10. mars)
TEIKNING 20 st.
Þóra Sigurðardóttir
Mið. kl. 19-22 (5 vikur frá 11. mars)
GARÐRÆKT 15st.
Hafsteinn Hafliðason
Þri. kl. 20.30-22.45 (5 vikur frá 17. mars)
HÖNNUN OG ÚTLITSTEIKNING
BÆKLINGA OG BLAÐA 20 st.
Björn Björnsson
Þri. kl. 19-22 (5 vikur frá 10. mars)
ÁVÖXTUN EIGIN FJÁR 10 St.
Davíð Björnsson
Kl. 20-22.30 frá 10.-12. mars.
WALDORF - BRÚÐUR 20 St.
Hildur Guðmundsdóttir
Lau. kl.10-13 (5 vikurfrá 14. mars)
AÐ VERA FORELDRI UNGLINGS 15 St.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Fim. kl. 20-23 (4 vikur frá 19. mars)
BÓTASAUMUR 20 st.
Fríða Kristinsdóttir
Mið. kl. 19-22 (5 vikur frá 11. mars)
AÐ HANNA OG PRJÓNA EIGIN FÖT 20 st.
Kristín Jónsdóttir
Þri. kl. 19-22 (5 vikur frá 10. mars)
NÝTT:
ER HEIMILISBÍLLINN í LAGI? 24 st.
Elías Arnlaugsson
Þri. og fim. kl. 19-22 (3 vikurfrá 17. mars)
í SAMVINNU VIÐ FÉLAG ELDRI
BORGARA:
MÁLUN 20 st.
Kristjana F. Arndal
Mið. kl. 18-21 (5 vikur frá 11. mars)
SÖGURÖLT 8 st.
Guðjón Friðriksson
Fim. kl. 16-18 (3 vikurfrá 12. mars)
ÆTTFRÆÐI 20 St.
Þorsteinn Jónsson
Þri. kl. 19-22 (5 vikur frá 10. mars)
UPPLÝSINGAR í SÍMA 621488
Verslunarmannafélag Reykjavíkurog Iðja,
félag verksmiöjufólks, veita félagsmönnum
sínum styrki til náms í Tómstundaskólanum.
Félagsmenn eftirtalinna félaga fá
10% afsláttaf námskeiðsgjöldum:
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
Iðja, félag verksmiðjufólks
Verkakvennafélagið Framsókn
Starfsmannafélagið Sókn
Trésmíðafélag Reykjavíkur
Félag matreiðslumanna
Félag starfsfólks i húsgagnaiðnaði
Félag bókagerðarmanna
Félag blikksmiða.
TDMjmjNDA
SKOUNN
Skólavördustig 28
Sími 621488