Morgunblaðið - 06.03.1987, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
4
t
Eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR BREIÐFJÖRÐ JÓHANNSSON,
andaðist 4. mars í Borgarspítala.
Mfnerva Hafliðadóttir.
t
Bróðir minn,
GUNNAR G. JÚLÍUSSON,
Laugabóli, Laugadal,
Reykjavfk,
andaöist 3. mars í Landakotsspítala.
Baldvin Júlíusson.
t
Sonur minn og bróðir okkar,
HALLDÓR GÍSLi ODDSSON,
skipstjóri,
Háaleitisbraut 44,
andaðist í Landakotsspítala 5. mars.
Áslaug Guðjónsdóttir,
Bjarni Oddsson,
Guðjón Oddsson.
t
Móöir okkar,
SALOME JÓHANNSDÓTTIR,
andaðist þriðjudaginn 3. mars.
Karl Sveinsson, Borgar Sveinsson.
t
Föðurbróðir minn,
BALDVIN ODDSSON
frá Grœnuborg,
verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 7. mars kl.
11.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Elfsabet Vormsdóttir.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
EGILL FRIÐRIKSSON,
Skarði,
Þykkvabœ,
sem andaöist í Landspítalanum þann 27. febrúar, verður jarðsung-
inn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 7. mars kl. 13.00.
Þeirsem vildu minnast hins látna láti Hábaejarkirkju njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fanney Egilsdóttir, Grettir Jóhannesson,
Helgi Egilsson, Guðríður Magnúsdóttir.
t
Eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA BÖÐVARSDÓTTIR,
Sólheimum 23,
er lést 1. mars sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudag-
inn 9. mars kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins-
félagiö.
Siggeir Blöndal Guðmundsson,
Sigrún Þorláksdóttir,
Garðar Siggeirsson, Erla Ólafsdóttir,
Sigrún Siggeirsdóttir, Björgvin Björgvinsson,
Ómar Bl. Siggeirsson, Sigurborg Sigurjónsdóttir,
Kristfn Siggeirsdóttir, Ólafur Hafsteinsson,
Snorri Bl. Siggeirsson, Guðbjörg Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANN ÁRNI SIGURGEIRSSON,
Hlfðarvegi 16,
Isafirði,
veröur jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. mars kl.
14.00.
Una Ó. Thoroddsen,
Ingibjörg Þ. Jóhannsdóttlr, Jón Þórðarson,
Kolbrún S. Jóhannsdóttir, Poul Vestereng,
börn og barnabörn.
Þór Alexanders-
son - Minning
Fæddur 10. október 1965
Dáinn 27. febrúar 1987
Nú legg ég augun aftur
ó, guð þinn náðarkraftur
mín væri vöm í nótt.
Æ virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Fátt er meira virði en að kynn-
ast góðu fólki á lífsleiðinni og
eignast vináttu þess. í dag kveðjum
við vin okkar og vinnufélaga, Þór
Alexandersson, í hinsta sinn, en
honum kynntumst við er við unnum
saman að vegagerð síðastliðið sum-
ar.
Þór var sérstaklega ljúfur í allri
umgengni og ef einhver þurfti á
hjálp að halda var Þór ávallt tilbú-
inn og alltaf var stutt í brosið.
Vegna þessara eiginleika sinna
er Þór okkur sérstaklega minnis-
stæður. Viljum við þakka góðum
dreng og félaga þær samverustund-
ir er seint gleymast og hið stóra
skarð sem hann skilur eftir verður
seint fyllt. Við vottum unnustu
hans, dóttur og foreldrum okkar
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hans.
Eddi, Steini, Óskar
og fjölskyldur.
í dag verður kvaddur frá Nes-
kirkju Þór Alexandersson sem lést
af slysförum aðeins 21 árs. Þór var
fæddur í Vestmannaeyjum og ólst
þar upp fyrstu átta ár ævi sinnar,
en við upphaf eldgossins 1973 flutt-
ist fjölskylda hans til Reykjavíkur.
Það hefur verið erfitt fyrir átta
ára dreng að flytjast burt úr rólegu
og vemduðu umhverfi í ys og þys
borgarinnar þar sem miklar vega-
lengdir skildu að frændfólk og vini.
En Þór var bam síns tíma og lifði
lífinu hratt, svo hratt að við sem
eldri emm áttum oft bágt með að
fylgja honum eftir. Leitina að starfí,
sem gæti gert honum kleift að veita
litlu Qölskyldunni sinni gott lífsvið-
urværi, framkvæmdi hann af áræði
og bjartsýni því hennar hag bar
hann fyrir brjósti svo unun var með
að fylgjast.
Okkur fínnst óréttlátt þegar ung-
menni er hrifið burt frá okkur í
blóma lífsins. Við stöndum eftir
hljóð og klökk.
Við biðjum algóðan Guð að taka
vel á móti vininum okkar og styðja
foreldra hans, Hafdísi og Hjördísi
litlu í þeirra miklu sorg.
Við geymum minninguna um
góðan og hjartahlýjan dreng.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: „Kom til mín.“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú er blessuð hans í höndum,
hólpin sál með Ijóssins öndum.
B. Halld.
Mágkona
í dag verður litli bróðir, Þór Alex-
andersson, borinn til grafar, aðeins
21 árs gamall. Það fyrsta sem við
hjónin hugsuðum, þegar fregnin um
að hann Þór hefði beðið bana í
bflslysi barst, var að það gæti ekki
verið. Síðan kom hver hugsunin af
annarri. Af hverju hann, sem átti
allt lífið framundan? En enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur. Góði guð, hugsar maður,
vegir þínir eru órannsakanlegir, en
við vitum að þú hefur ætlað litla
bróður annað og meira hlutverk.
Þess vegna segjum við „verði þinn
vilji“.
Þór lætur eftir sig unnustu, Haf-
dísi Bylgju Guðmundsdóttur, og
dóttur, Hjördísi Dögg, einnig ófætt
bam þeirra, sem aldrei fær að kynn-
ast föður sínum.
Elsku Hafdís, Hjördís Dögg,
mamma og pabbi, megi guð styrkja
ykkur í ykkar miklu sorg.
Við sjáum elsku litla bróður
seinna.
Siggi og Erna
I>júpt snortin kveðjum við í dag
ástkæran bróður, Þór Alexanders-
son, sem yngstur var í hópi okkar
systkina.
Hann fæddist í Vestmannaeyjum
10. október 1965 og ólst þar upp
í góðu umhverfi hjá foreldrum og
ijórum systkinum og oft undir
handleiðslu afa og ömmu í Eyjum.
Þegar jarðeldar brutust út í Vest-
mannaeyjum 1973 fluttist fjölskyld-
an til Reykjavíkur og síðar að
Nesbala 18 á Seltjamamesi. Sam-
stillt ólumst við systkinin upp í
hinum nýju heimkynnum en skyndi-
leg brottför frá rólegu bæjarlífí
Vestmannaeyja til höfuðborgarinn-
ar, sem hafði öllu hraðari hjartslátt,
virtist hafa meiri áhrif á Þór en
okkur sem eldri vorum.
Á hinum erfiðu árum táningsins
var sem hann ætti örðugt með að
finna lífi sínu réttan farveg og
mark að stefna að en er hann eign-
aðist unnustuna, Hafdísi, og dóttur-
ina, Hjördísi, fannst honum að hann
hefði fundið rétta stefnu og ótrauð-
ur og hamingjusamur lagði hann
af stað út í lífsbaráttuna.
28. janúar sl. tók hann sig upp
með fjölskylduna sína litlu og hélt
til ísafjarðar til að hefja störf hjá
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf. í
samtölum við okkur ættingjana fyr-
ir sunnan geislaði af honum gleðin
og sagðist hann aldrei hafa verið
jafn hamingjusamur og ánægður í
starfi. Hann ræddi af bjartsýni um
framtíðina og litla bamið sem þau
Hafdís áttu í vændum.
Aðeins mánuði eftir að hann hóf
nýjan kafla í lífí sínu kom reiðar-
slagið. Þegar við systkinin fréttum
af hinu hörmúlega slysi, sem varð
honum að aldurtila, urðum við hljóð
og spurðum hvort annað í van-
mætti okkar hvers vegna okkar
yngsti bróðir þyrfti að falla frá svo
ungur að árum, einmitt þegar ham-
ingjan tók að brosa svo blítt við
honum. Við þeirri spumingu finnum
við engin svör.
Um leið og við biðjum algóðan
Guð að styrkja foreldra okkar, unn-
ustu hans og bam í sorg þeirra,
þökkum við góðum dreng fyrir sam-
fylgdina.
Þessum fátæklegu kveðjuorðum
viljum við ljúka með orðum úr Jó-
hannesarguðspjalli sem innrömmuð
héngu yfir rúmi Þórs á heimili for-
eldra okkar:
Jesús sagði við hana: Ég er upp-
risan og lífið; sá sem trúir á mig
mun lifa, þótt hann deyi. Og hver
sá, sem trúir á mig, hann skal aldr-
ei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?
(Jóh. 11. 25-26.)
Systkinin
t
Útför eiginkonu minnar, móöur og tengdamóður,
MARGRÉTAR HALLDÓRSSON,
Tómasarhaga 31,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. mars. kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á styrkt-
arsjóði íþróttamanna.
Gfsli Halldórsson,
Leifur Gíslason, Þórdfs Jónsdóttir.
t
Við þökkum öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vináttu
vegna fráfalls
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
blfreiðastjóra,
Kársnesbraut 90, Kóp.
Súsanna Magnúsdóttir,
Jón Þ. Guðmundsson, Kristrún Danfelsdóttir,
Helgi A. Guðmundsson,
Erlendur A. Guömundsson,
Fanney Jónsdóttlr.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HANS MEYVANTSSONAR,
Kjartansgötu 15,
Borgarnesi.
Lára Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og sambýlismanns,
SAMÚELS TORFASONAR
frá Kollsvfk,
Bólstaðarhlfð 7.
Hlff Samúelsdóttir, Pótur Stefánsson,
Árni Samúelsson, Guðný Á. Björnsdóttir,
Torfhildur Samúelsdóttir, Guðmundur Ágústsson,
Sigurlaug Sigurjónsdóttlr
og barnabörn.