Morgunblaðið - 06.03.1987, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1987
fclk í
fréttum ^ )bL
Elton
John
kominn
á fætur
Breski popparinn Elton John er
kominn á fætur eftir hálsað-
gerðina, sem hann þurfti að
gangast undir ekki alls fyrir löngu.
Langt er þó þar til að hann getur
farið að beita röddinni á ný svo að
hann hefur sig hægan í bili.
Þegar Elton John sýndi sig loks
var hann býsna „fríkaður" í útliti,
eins og einhveijir myndu segja, en
tækifærið var afhending tónlistar-
verðlauna í Ástralíu.
Þeir sem fylgst hafa með ferli
Elton Johns muna eflaust eftir því
að hann barðist í fjölmörg ár við
skallann og var orðinn jafnþekktur
fyrir hatta og gleraugun áður. Þá
greip hann gamalkunnugt ráð og
lét græða hár á hvirfílinn þar sem
farið var að næða um. Var því al-
mennt fagnað, þar sem téður skalli
þótti yfírleitt ekki til fyrirmyndar.
Nú bregður hins vegar svo við
að hann hefur klippt ígrædda hárið
mjög snöggt og litað það silfur-
grátt. Til þess að bæta bláu ofan á
grátt eru rakaðir þríhymingslagaðir
„gaddar“, í hárið að aftanverðu og
þau hár sem eftir eru Iituð fagurblá!
Sérkennilegur svipur á kappanum.
Reuter
COSPER
C.OSPER
©PIB
— Þad er rétt hjá bér, hún er rokna skvísa.
__________„H^Sigur09
„Sigmiistinn
* * LL
íar
- segir Eyjólfur Sveinsson formaður Vöku
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta í Háskóla íslands
efndi nýverið til svonefndrar „Lista-
hátíðar", þar sem kynntir voru og
samþykktir þeir frambjóðendur,
sem Vaka teflir fram í komandi
kosningum til Stúdentaráðs og
Háskólaráðs. Þegar félagsmenn
höfðu samþykkt uppstillingu kosn-
ingastjómar var gengið til glasa og
efnt til mikillar gleði, sem stóð fram
eftir kvöldi. Um fímmtíu manns
mættu á hátíðina, sem var haldin
í Vökuheimilinu, Hverfísgötu 50.
Þegar listinn hafði verið sam-
þykktur með lófataki hélt Eyjólfur
Sveinsson, formaður Vöku, stutta
tölu, þar sem hann sagði stöðu
Vöku í kosningunum framundan
vera sterka. „Styrkur félagsins felst
annars vegar í sterkri málefnastöðu
og hins vegar í listum, sem skipað-
ir em dugmiklum frambjóðendum,
sem flestir hafa verið virkir í fé-
lagslífí eða hagsmunabaráttu
stúdenta. Einnig tel ég að megin-
sjónarmið þau, sem Vaka hefur
haldið í heiðri eigi hljómgmnn með-
al stúdenta. Þau felast í þeirri
skoðun okkar að Stúdentaráð sé
Nýjasta tíska
í Sovét
Nú stendur til að tískuvæða
sovéskar konur og mun það
liður í framsókn Gorbachevs til
vestrænni lífshátta en verið hef-
ur. Er það að sjálfsögðu Raisa
eiginkona hans, sem þar gengur
undan með góðu fordæmi, en
eins og íslendingum mun í fersku
minni var hún gangandi auglýs-
ing fyrir Dior meðan á dvöl
hennar hér á landi stóð.
Nú er farið að gefa út rússn-
eska útgáfu af þýska tískublað-
inu Burda, en í samtali við
útgefanda þess, Aenne Burda,
sagði Raisa að Sovétmenn gerðu
sér Ijósari grein fyrir nauðsyn
fallegra og vandaðra fata en
áður, að sögn Tass-fréttastof-
unnar.
Talið hafði verið að Raisa yrði
viðstödd tískusýningu á þriðju-
dag, sem haldin var í tilefni
útgáfunnar, en af einhveijum
ástæðum kom hún ekki.
Tass hafði það þó eftir henni
að útgáfan sýndi hvað alþjóða-
samvinna gæti eflt skilning þjóða
á milli, en hún hrósaði sérstak-
Iega tískuhönnuðum í Moskvu,
Leníngrad og innlimuðu löndun-
um við botn Eystrasalts.
Fyrsta tölublað Burda var
prentað í 100.000 eintökum og
kostar hvert rúmar 300 krónur
út úr búð. Utgefendur vonast til
þess að seinna muni blaðið kom
út í um tveimur milljónum ein-
taka.
Frá tískusýningunni, sem á er minnst.